Morgunblaðið - 15.11.1935, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudaginn 15. nóv. 1935.
■i—8———■iifnr
Frá óeirðum í Kairo 1930, þegar stjórnarskráin var numin úr gildi og Bretar sendu „high commis-
soner“ til Bgyftalands.
[Egyftar gera uppreisn gegn Bretum.
Framhald af 2. síðu.
Á fundinum talaði foringi
Wafdista, Naha F'asha, og rjeð-
ist hatramlega á Breta og
stjórn þeirra í Egyfhalandi.
Kvatti hann egyftsku þjóð-
ina til að gera uppreisn gegn
kúgunarstjórn Breta.
„Níutíu af hverjum hundrað
Egyftum krefjast þess að Eg-
yftaland verði gert að fullkom-
lega sjálfstasðu ríki“, hrópaði
Naha Pasha yfir mannf jöldann.
í lok fundarins var gerð eft-
irfarandi samþykt í þrem lið-
um:
1. Samvinnu Breta og
Egyfta verði slitið.
2. Egyftska stjórnin
segi tafarlaust af sjer,
þar sem hún sje ekkert
nema verkfæri í hönd-
um Breta.
3. Egyftar virði að
vettugi hverja þá stjórn,
sem taki upp samvinnu
við Breta.
Stúdentar gengu lengst fram
í æsingunum gegn Bretum í
Kairo.
Hafa þeir um langt skeið
verið sterkasta uppistaðan í
sjálfstæðisbaráttu Egyfta.
Wafdistar reið-
ir Sir ^aimiel
Hoare.
* ...........
Óeirðir þessar eiga rót sína
að rekja til inngróinmar óá-
nægju með stjórn Breta í Eg-
yftalandi.
Ýmsar orsakir liggja hins-
vegar til þess, að hatrið á Bret-
um hefir blossað upp einmitt
nú.
Hefir ræða sem. Sir Samuel
Hoare hjelt í Guildhall í Lon-
don fyrir skömmu vakið mikía
gremju í EgyftaLandi.
í ræðu þessari' varaði utan-
ríkismálaráðherra Breta við því
að taka upp aftur stjórnar-
skrána, sem samþykt var 1923,
en feld úr gildi aftur 1939.
Samkvæmt stjórnarskrá
þessari skal vera þingræðis-
stjóm í Egyftalandi.
. Bretar óttast, að Wafdistar
muní komast til valda, ef gamla
stjórnarskipulagið verði tekið
upp að nýju.
Egyptar óltast víg-
búnað Breta í
Egyptalancli.
Enn fremur hefir vígbúnað-
ur Breta í Egyftalandi vegna
Abyssiníudeilunnar orðið til
þess að vekja æsingar í Egyfta-
landi.
Hefir Sir Samuel Hoare þó
lýst yfir því, að Bretar muni
ekki neyta aukins herafla síns
til þess að styrkja aðstöðu sína
í Egyftalandi.
Loks hefir óhróður ítalskra
blaða gegn Bretum verið eins
og olía á eld Bretahaturs þjóð-
ernissinna í Egyftalandi.
Bretnr eru
úbygilfufuliir.
Bretar eru mjög áhyggju-
íullir út af atburðum þessum í
Egyftalandi.
Hafa Wafdistar notið hent-
ugt augnablik til að hef ja bar-
áitu gegn Bretum, þar sem
Bretar eiga annríkt vegna deilu
ítala og Abyssiníumanna.
Páll.
K ötverðlagsneínd og kjötsölulögin.
Framhald af 3. síðu.
P. Zóph. fer með
ósannindi um sum~
arslátrunina.
Því rnæst sneri P. 0. sjer að
sumarslátruninni og sýndi fram
á hve skýrsla P. Zóph. um þetta
atriði hefði verið gersamlega röng
og villandi.
I stað þess að P. Zóph. hefði
skýrt svo frá, að ekki hefði verið
slátrað nema 1000 dilkum færra
hjer í Reykjavík í ágústmán., en
venjuleg slátrun í þeim mánuði
væri 2—3000 kindur, þá hefði
hjá SláturL Suðurl. einu árið 1934
verið slátrað 3412 kindum, en í
sumar ekki nema 1037. Heildar-
sumarslátrun hjá Sf. Sl. hefði verið
1934 5998, en í sumar 2975, og
munaði því 3000 eða fullum helm-
ing, sem færra var slátrað í sum-
ar.
Bftir upplýsingum, sem hann
hefði aflað sjer væri munurinn
svipaður hjá Kf. Borgfirðinga,
og mundi sama um aðra að segja,
sem sumarslátrun hefðu með hönd
um.
Þessi eyðilegging á sumarmark-
aðinum stafaði af því, að Kjöt-
verðlagsnefndin hefði látið mark-
aðinn í Reykjavík yfirfyllast af
kjöti víðsvegar að, síðastliðinn vet-
ur, svo að nú hefði sumarslátrun-
in ekki getað byrjað fyr en löngu
seinna en venja hefði verið og
auk þess fyrst framan af slátrun
gamlar birgðir að þvælast fyrir
sölunni á nýja kjötinu.
Bn 1934 þegar sumarslátrun
hófst miklu fyr, voru engar hirgð-
ir fyrirliggjandi og því strax hægt
að selja með fullum krafti.
Alt þangað til í snmar hefðu
sunnlenskir bændur að mestu leyti
setið einir að sumarmarkaðinum
og þannig hefði S. í. S. á undan-
förnum árum keypt af Sf. Sl.
kjöt í búðir sínar hjer í Reykja-
vík yfir sumarið. En nú hefði
brugðið svo við,- þegar kjötverð-
lagsnefndin var komin á laggirn-
ar, að S. í. S. hefði hætt ölluin
slíkum viðskiftum við Sf. S1 og
flutt alt það kjöt sem það gat
selt hjer í sumar, af öðrum ve'rð-
lagssvæðum.
Skakkar 100 tonn-
um.
Þá sneri P.O. sjer að saman-
burði Páls á kjötbirgðunum ’34
og 1935. Hefði Páll haldið því
fram að nú væru kjötbirgðirnar
50 smál. minni en á samra tíma
í fyrra. Hjer færi Páll ekki síð-
ur á hundavaði, en um hið
fyrra atriðið. Hefði P. Z. hald-
ið því fram að birgðimrar hjá
Sf. SI. hefðu verið haustið 1934
254 smál. en í haust 260. Sann-
leikurinn er sá, sagði P. O., að
af því kjöti, sem hjer kemur
til greina, átti Sf- Sl. 1934 ekki
nema 180 smál. og 8 smál. sem
flutt var til Rvíkur frá frysti-
húsinu á Akranesi, eða samtals
188 smálestir.
En nú í haust væru birgðir
Sf. Sl. 260 smál. í R'vík og
Hafnarfirði, en þar við mætti
bæta 30 smál., sem vitað væri
um að hingað yrðu fluttar af
birgðum fjelagsins á Akranesi.
Eru því birgðir fjel. nú 102
smál. meiri en í fyrra, en þenn-
an mismun taldi Páll ekki nema
6 smálestir.
Sjeu nú aðrar skýrslur Páls
um kjötmagnið í Rvík teknar
gildar — sem mjög mætti þó
draga í efa samkv. þessu —
þá væri þó útkoman sú, að kjöt-
birgðirnar hefðu aukist um ca.
50 tonn, í stað þess að Páll
hefði fullyrt að þær hefðu
minkað um 50 tonn.
Minsta skekkja á þessum
eina lið væri því um 100 tonn.
Eins og sýnt hefði verið, 'væri
hreint ekkert á tölum Páls að
byggja. — Og væri því full-
komin ástæða til að ætla, að
sama gilti um aðrar tölur ann-
ars staðar að af landinu, sem
hann hefði farið með í þessu
sambandi.
Frysti- og geymslu-
kostnaður.
Þá sneri Pjetur sjer að fram-
komu kjötverðlagsnefnd-ar við
Sf. Sl. og Kaupfjel.. Borgfirð-
inga og aðra þá, sem versluðu
með fryst kjöt hjer á Reykja-
víkurmarkaði.
Auk þess sem bændur hjer
hefðu orðið að greiða hátt verð-
jöfnu.uarg jald fyrir verndun
markaðarins, sem ekki væri þó
merkilegri en lýst hefði verið,
þá hefði Sf. SL, Kaupfjelag
Borgfirðinga og öðrum, sem
frysta kjöt til sölu í Reykjavík
verið fyrirmunað af kjötverð-
lagsnefnd, að leggja nægjan-
lega á frysta kjötið, til þess að
bera uppi geymslu og frysti-
kostnað m. m.
Margra ára reynsla væri fyr-
ir því hjá Sf. Sl. að meðal kostn
aður við geymslu og frystingu
næmi 20 aurum á kíló miðað
við fyrsta flokks kjöt. Haustið
1934, hefði meirihluti nefndar-
innar fyrst 15. okt. leyft að
leggja á fyrir þessum kostnaði
7 aura á kíló. Enda hefði full-
trúi Sf. Sl. og Kaupfjel. Borg-
firðinga Helgi Bergs, verið
alveg ofurliði borinn. Um miðj-
an jan. er svo bætt við 8 aur.
og svo ekki söguna meir.
Af þessu leiddi að til 15. okt.
hefði fjelögin skaðast um20au.
á kg. á frysti og geymslukostn-
aði. Frá 15.okt.—15.jan. um 13
aúra á kíló og síðan um 5 auna
á hvert kíló. Væri þetta vitan-
lega stórkostlegt tap fyrir þessa
raðila. Þannig hefði Sf. Sl. getað
borgað gæruuppbót á þessu ári,
sem nam um 28 þús. kr. en
tapið á kjötsölunni hefði gleypt
alla þessa upphæð.
En þó er ótalið tapið á birgð-
unum sem eftir voru í haust,
þegar slátrun hófst að nýju.
Ekki skorti þó að Sf. Sl. og
Kaupfjel. Borgfirðinga hefðu
ekki haft alla vitleitni, til að
Qóður síldarafli í Vest-
mannaeyjum þráttfyrir
slæmt veður.
Vestmamiaeyjum, 14. nóv. FÚ_
Þessir bátar .lögðú síld á land
í Vestmannaeyjum í dag: Gull-
toppur 45 tunnur, Frygg 40, Óð-
inn 40, Ágústa 26, Þorgeir Goði
20, Kristbjörg 11 og Kap 10.
Sjóveður var slæmt, svo að
aflann má telja góðan. Síldin er
mestöll matje’ssöltuð.
Tunnugerð í Vestnianna-
eyjum.
Tunnugerð Haraldar Loftsson-
ar smíðar mikið af tunnum þeim,
sem saltað er í. Hefir Haraldur
fullkomnustu vjelar til tunnu-
gerðar og getur fullgert um 300
tunnur á dag.
Níu manns vinna við tunnu og’
ltassagerð Haraldar.
Bókmentaverðlaun
Nobels verða ekki
veitt í ár.
London 14. nóv. FÚ.
Nobelsverðlaunanefndin hef-
ir ákveðið, að ekki skuli út-
býta Nobelsverðlaunum fyrir
bókmentir á þessu ári, heldur
skuli peningarnir geymdir til
næsta árs.
koma í veg fyrir að kjötverð-
lagsnefndin dragi ekki niður
afurðaverðið með þessum hætti.
Nefndinni var margskrifað og
menn gerðir út á hennar fund
hvað ofan í rannað, bæði frá
Sf. Sl. og Kaupfjelagi Borg-
firðinga. En engu fjekst um-
þokað hjá kjötverðlagsnefnd-
inni.
Ferðasaga P. Zóph.
Loks mintist P. O. á ferða-
sögu Páls, um 12 sýslur, þar
sem hann hafði að eigin sögn
talað við 4. hvern bónda og
aðeins fyrirhitt 5 menn, sem
hefðu látið í ljós óánægju með
framkvæmd kjötlaganna. Ef
um einhvern annan væri að
ræða en Pál Zóph. gætu menn
orðið undrandi yfir svona tali
og fullyrðingum. En til þess
að gefa mönnum ofurlítið sýnis-
horn af áreiðanleik Páls, las
P. O. upp tvær tillögur, sem
samþyktar voru á aðalfundi Sf-
Sl. í vor, þar sem mættir hefðu
verið fulltrúar bænda úr 6 sýsl-
um. En tillögur þessar voru
þess efnis, að víta kjötverð-
lagsnefnd fyrir framkvæmd
kjötsölulaganna.
Að endingu sagði P.O. að eng-
in breyting á skipun kjötverð-
lagsn. kæmi fram, og hald-
ið yrði áfram á sömu braut, um
framkvæmd laganna, þá væri
sýnt, að gert yrði að engu það
gagn, sem leitt hefði getað af
kjötlögunum með skynsamlegri
framkvæmd.
Umræðunni var ekki lokið.