Morgunblaðið - 16.01.1936, Síða 3
Fimtudaginn 16. jan. 1936.
MOKGUNBLAÐIÐ
Bráðabirgðalög um loftskeytaeftirli
Seytján menn
farast
j i flugslysi!
FárþegaflugTjelin
Ncw York —
Los> Angeles
hrapar.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
M ORGUNBL AÐSINS.
SEYTJÁN manns, þar
af 14 farþegar, fór-
ust í flugslysi í Ameríku
í gær.
Samband var við talstöðina í
flugvjelinni, skömmu áður en
slysið varð, og gekk þá alt að
óskum
örstuttu síðar heyrðu
bændur í Arkanasríki, ná-
lægt Goodwin, mikinn
dynk og hafði - flugvjelin
hrapað með miklum hraða
til jarðar.
Talið er að allir farþegarnir
hafi látist samstundis.
Flugvjelin var á leiðinni frá
Nevr York til Los Angeles.
Páll.
Italir búasttil söknar
á suðurvígstöðvunum.
London, 15. jan. FÚ.
Graziani, yfirhershöfðingi ít-
ala á suður-vígstöðvunum, hef-
ir hafið sókn á allri herlínunni.
Abyssinskur her, undir for
ystu Ras Desta, hefir undan-
farið sótt fram á ýmsum stöð-
um á svæðinu milli fljótanna
Canala, Dorya og Dawa, og er
það all-langt norðvestur af
Dolo.
Tilgangur hans er að kreppa
að vestari fylkingararmi ítala.
Sunnudaginn 12. janúar hóf
Graziani harðvítuga árás á þess
um slóðum. Telja Italir sig ekki
hafa beðið neitt verulegt tjón,
enn sem komið er, og í Róm bú-
ast menn alment við því í dag,
að næstu daga muni ítalski her-
in hefja allsherjarsókn í áttina
til Harrar.
Liðsafli þeirra hefir ver-
ið aukinn á suðurvígstöðv-
unum úr 45 þúsund upp í
75 þúsundir, samkvæmt
kröfu Graziani, og einnig
hefir hernaðarflugvjelum
verið bætt við á þessum
slóðum.
1 Addis Abeba hefir ekkert
rignt í síðustu tvo sólarhringa,
en á sama tíma hefir rignt tals-
vert á Somaliströnd. Telja veð-
urfræðingar ekki ósennilegt, að
regnið berist inn yfir Abyssiníu,
og kynni þá að valda Itölum
erfiðleikum.
sett til þess að sýnast.
Eins og Alþingi licfir marg ofl
__ ^
ályktað og reynslan sýnt var
eflirlilið framkrænaanlegl að
óbreyllum lagafyrirmælum.
it Skipstjórar ð enskum togurum
hala sagt fiá landhelgisveiðum
sfrium I dulmðlsskeytum.
Hermann Jónasson dómsmála
ráðherra hefir gefið út bráða-
birgðalög „um ráðstafanir til
varnar því, að skipum sje leið-
beint við ólöglegar fiskveiðar“.
Samkvæmt þessum bráða-
birgðalögum verður nú komið
á mjög ströngu eftirliti með
notkun dulskeyta til veiðiskipa
hjer við land og ströng refsing
við lögð, ef brotið er. Refsingin
er frá 3—15 þúsund króna sekt,
eða fangelsi, sem má hækka
upp í 2 ára hegningarvinnu, ef
miklar sakir eru eða brot ítrek-
að. —
Þeir sem lesa þessi bráða-
birgðalög dómsmálaráðherrans,
hljóta að álykta út frá þeim,
að ekki sjeu til nein gildandi
lög hjer á landi, sem heimili
slíkt eftirlit með notkun dul-
skeyta.
1 þessu sambandi er rjett að
minna á, að Alþingi 1928, 1929,
1930, 1931 og 1932 fekk til
meðferðar frumvarp, sem í
ýmsu var mjög svipað þessum
nýju bráðabirgðalögum, en
frumvarpið náði aldrei fram að
ganga. Þetta var „ömmu“-frum-
varpið svonefnda, sem margir
kannast við.
Ástæðan til þess, að „amma“
gamla náði ekki lögfestu var
sú, að þingið leit svo á, að rík-
isstjórnin hefði næga heimild í
lögum, til þess að koma á þessu
eftirliti með dulskeytum.
Þessvegna afgreiddi Alþingi,
í það eina skifti sem málið fekk
þinglega afgreiðslu (það var
1930), ,ömmu‘-frumvarpið með
svohljóðandi rökstuddrí dag-
skrá:
„Með því að landsstjómin
hefir í gildandi löggjöf næga
heimild til eftirlits með loft-
skeytum, þykir ekki þörf nýrrar
lagasetningar um þetta, og tek-
ur deildin því fyrir næsta mál
á dagskrá“.
Rjett þykir að taka það fram,
að nokkrir af stuðningsmönnum
þáverandi Tímastjórnar greiddu
atkv. með þessari dagskrártil-
lögu.
En hin „gildandi löggjöf“,
sem dagskrártillagan vitnaði til,
eru lög nr. 82, 14. nóv. 1917,
um rekstur loftskeytastöðva á-
íslandi og reglugerð nr. 32, 17.
maí 1918. Bæði lögin og reglu-
gerðin eru í gildi enn þann dag
í dag.
í 19. gr. tjeðrar reglugerðar frá
1918, segir svo:
„Ráðuneytið getur bannað öll
loftskeytaviðskifti innan íslenskr-
ar landhelgi, bæði frá íslenskum
og erlendum skipum og gert þær
ráðstafanir, er nauðsynlegar þykja
til þess að banninu verði hlýtt.
Einniff getur ráðuneytið
íátið hafa eftirlit með öllum
loftskeytum, látið stöðva þáu
skeyti, sem að þess áliti, geta
verið skaðleg velferð lands-
ins“.
í 20. gr. sömu reglugerðar
segir, að brot gegn ákvæðum
hennar varði sektum alt að 10
þús. kr. eða alt að 6 mánaða
fangelsi, „ef brotið varðar ekki
þyngri hegningu“, segir þar
ennfremur.
Af þessu er ljóst, að ekki var
þörf nýrra Iaga til þess að koma
á eftirliti með notkun loft-
skeyta. Ekki þurfti annað að
gera, en að breyta reglugerð-
inni frá 1918 lítilsháttar og
koma á eftirliti því, sem 19. gr.
ráðgerir. Voru því bráða-
birgðalög Hermanns algerlega
óþörf.
Það kemur og fram í for-
sehdunum fyrir bráðabirgðalög
unum, að dómsmálaráðherrann
er sjer þess fyllilega meðvit-
andi, að bráðabirgðalögin eru
óþörf. Hann segir þar, að „á-
kvæði íslenskra laga“ hjer að
lútandi, sjeu „ekki nógu ýtar-
Ieg“.
Ef Hermann Jónasson dóms-
málaráðherra hefði viljað segja
konungi allan sannleika í þessu
efni, hefði hann orðað þetta
eitthvað á þessa leið:
„Vegna þess að það er óheppi
legt fyrir Framsóknarflokkinn
að reynslan sanni, að ný lög-
gjöf um eftirlit með loftskeyt-
um sje óþörf, og vegna þess að
núverandi stjórn vill láta líta
svo út, sem dagskrártillaga sú
sem samþykt \ar á Alþingi
1930 hafi ekki verið á rökum
bygð, leggjum vjer til við Yðar
Hátign, að gefin verði út svo-
hljóðandi bráðabirgðalög“. o. s.
frv.
Þetta er ALLUR sannleikur
málsins, eins og margsinnir hef-
iir verið sýnt fram á á Alþingi.
Og ÞETTA hefir dómsmála-
ráðherrann sjálfur sannað með
þeirri rannsókn, sem hann hafði
fyrirskipað í sambandi við dul-
skeytin til erlendra togara.
Eimskip. Gullfoss er í Kaup-
mannahöfn. Goðafoss er í Ham-
borg. Brúarfoss fór frá Leith í
gær. Dettifoss fór frá Hull í fyrra-
kvöld á leið til Austfjarða. Lág-
arfoss fór frá Leith í fyrrakvöld
á leið til Aiistfjarða. Selfoss er í
Leith.
Flóaáveitan. Aðalfundur Flóa-
áveitufjelagsins ve'rður haldinn að
Tryggvaskála 10. febrúar.
Fimm mánaðá
fangelsi fyrir
að Kvíkja
unnustuna!
Oslo, 14. janúar.- |
í lögmannsrjettinum í Oslo
var í gær kveðinn upp dóm-
ur, þar sem stefndur, ungur
maður, var dæmdur í fimm
mánaða fangelsi fyrir að
bregða eiginorði við unga
stúlku. (NRP. — FB.).
Fleiri menn blandast
í málin.
Magni brýtur ísinn
á Skerjafirði til að
náútskipi,
Dráttarbáturinn „Magni“ fór í
gærmorgun suður í Skerjafjörð til
■
að brjóta togaranum Agli Skalla-
grímssyni leið ixt úr ísnum.
Gekk það alt vel og komu bæði
skipin hingað í gærdag.
Egill Skallagrímsson fer nú inn-
an skams á veiðar.
y P
Skeljungur, sem hefir legið fros-
inn inni í Skerjafirði undanfarna
daga er nú kominn hingað inn á
höfn. Tókst skipinu að komast
af eigin ramleik út úr ísnum, enda
lá það svo utarlega í firðinum að
þegar frostið minkaði myndáðist
lón kring um skipið.
Lítil stúlka slasast
á Tjörninni.
Það slys vildi til á
Tjörninni klukkan rúm-
lega 1 í gærdag að hest-
ur sló 13 ára gamla
stúlku og slasaðist hún
töluvert á andliti.
Slysið vildi til með þeim
hætti að verið var að aka ís á
sleða, sem hestur gekk fyrir.
Þrjú börn komu þarna að og
hrasaði stúlkan á sleðann, en
studdi um leið hendi á lend
hestsins.
Maðurinn sem teymdi hestinn
stöðvaði þegar sleðann en hest-
urinn styggðist og jós; lenti
afturlöpp hestins í andlit stúlk-
unnar og fjell hún þegar í öng-
vit.
Stúlkan 'var þegar flutt til
Ólafs Þorsteinssonar læknis.
Hafði hún fengið allmikið
sár á hægri kinn, sem náði alt
út að eyra; skarst hún á höku
og þrjár tennur brotnuðu í
munni hennar.
Stúlkunni leið sæmilega í gær
kvöldi. Hún á heima á Leifs-
götu 24, dóttir Hjálmars Bjarna
sonar.
T ÖGREGLAN hefir látið vinna
að því undanfarna daga að
þýða dulmálsskeyti til togara, eft-
ir dulmálslyklunum, sem hún fekk
hjá njósnurunum.
Skeytin skifta hundruðum og
verður það töluvert langt ■eerk,
að vinna úr þeim öllum.
Ymislegt hefir komist upp í
þeim skeytum sem þegar liaía
verið þýdd.
A skeytum Þorgeirs Pálssonar
sjest, að tveir íslenskir fiskiskip-
stjórar á breskum togurum hafa
yerið að veiðum í landhelgi og
hagað veiðum sínum þar eftir
upplýsingum úr landi.
Hinn 15. september í haust var
Þorgeiri Pálssyni sent skeyti frá
togaranum „Warwickshire", þar
sem Markús Grímsson er fiski-
skipstjóri á. Skeytið hljóðar
þannig:
„Gjörið svo vel, og látið mig
vita síðustu frjettir af varðskip-
unum og um þau framvegis.
Jeg er að fiska við Kópanes og
fer inn fyrir landhelgislínuna ef
mögulegt verður“.
26. september sendir Markús
enn skeyti og segist þá hafa heyrt
að Óðinn sje við Langanes. Biður
hann um frjettir fljótt, þar sem
hann sje enn fyrir innan land-
helgislínu.
| Samskonar skeyti fekk Þorgeir
frá togaranum Berkshire um miðj-
an september, en þá var Páll Sig-
. fússon skipstjóri á þeim togara.
1 Þorgeir Pálsson hefir svarað þess-
um skeytum og lofað að vera á
verði.
Yfirheyrsla í gær.
í gær kallaði Jónatan Hall-
varðsson fulltrúi, Ólaf Ófeigsson,
skipstjóra, fyrir rjett. Hefir Ól-
afur verið fiskiskipstjóri á bresk-
um togurum og m. a. á nokkrum,
sem fengið hafa skeyti um ferðir
varðskipanna frá mönnum hjer í
landi.
Ólafur játaði fyrir rjettinum að
hafa vitað til að slík skeyti hefðu
komið. til togara sem hann hefir
verið á og að togararnir hefðu
farið eftir leiðbeiningum þeirra
og fiskað í landhelgi.
Við vesturströnd Noregs e'r nú
einhver hinn mesti síldarafli, sem
menn muna. Net hafa rifnað hjá
fjölda bátum og eyðilagst,
vegna þess, hve mikið he'fir komið
í þau af síld. Síldarsöluráð á
mjög annríkt við að selja síldina,
og er þegar búin að ráðstafa
miklu til Þýskalands og Svíþjóð-
ar. í Svíþjóð er tunnan nú Seld
á 15 krónur. (FÚ).
Heimatrúboð leikmanna, Hverf-
isgötu 50. Samkoma í kvöld kl. 8.
Allir velkomnir.