Morgunblaðið - 20.02.1936, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudaginn 20. febr. 1936.
wmm
^lflorsmihlnbib
Útgéí.: H.f. Árutur, Reykjarfk.
Ritatjórar: Jðn Kjartansson,
Vaitýr Stefánsson.
Rltstjórn og afgreiBsla:
Austurstræti t. — Sfmi 160*.
Auglýsingastjóri: H. Hafberar.
Auslýslnsaskrifstofa:
r; Austurstræti 17. — Sínai »700.
Heimasímar:
Jin Kjartansssn, nr. S742
Valtýr Stefánssen, »r. 422Ó.
Árni Óla, nr. 304S.
H. Hafberg, nr. S77S.
Áskrlftagjald: kr. S.tt á mánuSi.
I lausasölu: 1S aura elntakltt.
2* aura meS Lesbók.
AiJifíj'V- V v'.'r
Skrælingjar
stjórnarblaðanna.
Alkunnugt er, að allur þorr-
inn af útlendingum hefir til
skamms tíma gert sjer hinar
fáránlegustu hugmyndir um
land vort og þjóðina, sem það
byggir. Hafa margir litið á Is-
Iánd eins og skrælingjabygð
y«t í norðurhöfum, þar sem
ó;mannaður skinnbrókarsöfnuð-
úr hefðist við í lágreistum
moldarkofum.
En þetta álit útlendinga er
óðum að breytast, og ekki
lúngur hægt að skáka í því
skjóli, að enginn veiti eftirtekt
því, sem hjer er aðhafst.
t!En það er eins og sumir menn
gangi upp í þeirri dul, að við
sáe.upi ennþá svo fjarri förnum
vegi þjóðanna, að enginn sjái
eða heyri til okkar, hvernig
sem við hegðum okkur.
Af þessum toga er það
spunnið þegar stjómarblöðin
hjer á landi ráðast á fulltrúa
þá, sem íslenska ríkið sendir
til ppinberra samningagerða, af
slíku ábyrgðarleysi og slíkri
fóísku að forsætisráðherrann
vérður að hirta sína eigin menn
í nýársboðskap sínum.
Af þessum toga er það spunn-
ið að komin er tvenskonar
skráning á gildi þess sannleika,
sem stjórnarblöðin boða, heima
skráningin og, erlenda skrán-
ingin. Forsætisráðherrann rak
sig eftirminnilega á gengisfall
„Tímasannleikans" í síðustu
utanför sinni. .
Af þessum sökum hefir Al-
þýðublaðið verið að berjast við
sjálft sig síðustu vikurnar, út
af því, að frj ettaritari erlends
blaés var svo óheppinn að hafa
það að heimild.
Af þessum sökum flytja
stjórnarblöðin dag eftir dag
greinar, sem hljóta að spilla
vinsamlegum skiftum við mik-
ilvægustu viðskiftaþjóðir okk-
ar, ef þær berast til hlutaðeig-
andi þjóða.
Ritstjórar stjómarblaðanna
halda að þeir megi hegða sjer
eins og skrælingjar, af því eng-
inn taki eftir þeim utan land-
steinanna. Og þeir bölsótast
éihs og óðir menn, þegar flett
er niður um þá skinnbrókinni.
Ekkert er okkur hættulega
en hin ábyrgöarlausu skrif
stjómarblaðanna um málefni,
sem vita að erlendum þjóðum.
Þótt skrælingjamir viljji endi-
íega klæðast skinnbrókinni
heimafyrir, verða þeir að gera
svo Vel að hafa buxnaskifti,
þegar útlendingar eiga í hlut.
HE I M SSTY RJ O L D
ÁRIÐ 1937!
— SEGIR MADAME TABOUIS.
’tr't
Sumarið 1937 láta Þjóð-
verjar til skarar skSða.
Trenchard
dómari hefir nú dæmt Hauptmann
til dauða í þriðja sinn.
Condon,
sem afhenti bamsmorðingja
Lindberghs lausnarfjeð.
Bylling voflr
yfir Spáni.
Spanska •tfórnln
■agðl af sfer
i gær.
Ráðuneyfi Azana
myndar stjórn
naestu daga.
Götuóeirðir haida áfram,
KAUPMANNAHÖFN I GÆRKVÖLDI.
EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS.
bylting vofir yfir Spáni. 1
Engar ábyggilegar frjettir er hægt að fá
þaðan. Mikill hluti af dálkum dagblaðanna er
auður vegna ritskoðunar.
En frá Gibraltar herma skeyti að mikill kvíði
og uggur ríki í Madrid.
Liðsforingi einn úr hernum ljóstraði því upp
í nótt við spönsku stjórnina, að nokkrir háttsettir
herforingjar ,væri að undirbúa stjórnarbyitingu.
Hófst stjórnin undir eins handa og tók heríor-
ingjana fasta. Gerði stjórnin í flýti ýmsar aðrar
ráðstafanir, og er talið að hún geti nú mætt
hverju því, sem að höndum ber.
Verklýðsf jelögin hafa
einnig mikinn viðbúnað
til þess að berja niður
allar tilraunir hersins til
þess að hindra vinstri
fiokkanna í því, að fram
kvæma vilja kjósend-
anna.
Stjórnin segir af sjer.
Stjórn Valladeras sagði af
sjer í dag. Var tilkynning um
fráför stjórnarinnar gefin út
eftir að stjómin hafði setið á
ráðstefnu með Zamora forseta.
Azana mun leggja fram ráð-
herralista sinn í dag, eða á
morgun:
Búifst er við, að hvorki só-
síalistar nje kommúnistar
taki þátt í stjóminni, en
muni hinsvegar ljá henni
fylgi á þingi.
Óeirðir og uppþot.
Blóðugar óeirðir eru enn þá
í ýmsum borgum á Spáni.
Hafa margir verið drepnir og
fjöldi manns hefir særst.
Uppþot í fangelsum halda
áfram. Hópar manna hafa
gert aðsúg að fangelsunum
og reynt að brjóta þau upp
Einkum er það kvenfólkið
sem hefir sig mjög í
frammi.
í Valencia hefir herliði tek-
ist að kæfa fangelsisuppþotið,
sem þar braust út. Stóðu bar-
dagar þar í 15 klukkustundir.
Páll.
Ráðast samtímis á Holland
og Tjekkoslovakiu.
parkmiðið: Ukraine á að verða þýskt.
KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR.
EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS.
MADAME Tabouis hefir spáð heimsstyrjöld
árið 1937.
Uppljóstranir Madame Tabouis virðast miða
að því að skjóta nágrönnum Þjóðverja skelk
í bringu og vinna að því, að bandalagssamning-
um Frakka verði hraðað eins og unt er.
Nýjustu uppljóstranir maddömunnar um
styrjaldaráform Þjóðverja eru þessi:
Þjóðverjar hafa á-
formað að herja á Hol-
lendinga og Tjekkósló-
vaka á miðju sumri árið
1937.
Samtímis munu Japanir
fara með ófrið á hendur
Rússum.
Hvernig ófriðurínn
brýst út.
Merryvale, togari frá Grims-
by, strandaði í gær við John
O’Groats höfða í Skotlandi, og
hafði skipið liðast sundur fyrir
dögun. Enginn örmull hefir
fundist af skipshöfninni. Sjó-
gangur var ógurlegur á strand-
staðnum, og -við strendur Skot-
lands yfir höfuð. (FÚ).
Þetta mun vera sama skipið,
sem misti skrúfuna rjett hjá
Vestmannaeyjum í vetur.
Ófriðurinn brýst út, segir
Madame Tabouis, með þessum
hætti:
Þrjár þýskar herdeildir munu
ráðast inn í HoIIand fyrirvara-
laust og án þess að Hollending-
um verði sagt stríð á hendur.
Á einum sólarhring verður
alt Holland á valdi Þjóðverja.
Því naest munu Þjóðverjar
taka belgískar hafnarborgjr
herskildi. Á þann hátt munu
þeir reyna að stöðva allar sam-
göngur milli Englands og Frakk
lands.
Um sama leyti og þessu fer
fram á vesturlandamærunum,
munu pólskar og þýskar her-
sveitir ráðast suður yfir landa-
mæri T jekkóslóvakíu og
leggja undir sig tjekkneska lýð-
veldið á tíu dögum.
Þaðan munu Þjóðverjar
halda suður og austur um Rú-
meníu og freista þess að upp-
fylla draum Hitlers: að losa
Ukraine undan yfirráðum rúss-
nesku ráðstjómarinnar.
Fyrri greinar Tabouis.
Madame Tabouis hefir í fyrri
greinum sínum lýst því hvernig
Þjóðverjar muni ráðast með her
yfir Holland til Frakklands, og
ennfremur dregið athygli að
vígbúnaði Þjóðverja við landa-
mæri Hollands.
Páll.
Ras Desta
rekinn
í útlegð!
KHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS
Æfintýr frá Abyssiníu:
Flugumenn Haile Selassie
hafa nú haft upp á felustað
Ras Desta.
Hneptu þeir hann í hlekki
og dróu hann fyrir keisar-
ann í Dessiie.
Konungur konunganna jós
skömmum yfir hinn ógæfu-
sama Ras, fyrir ósigra hans
á suðurvígstöðvunum.
Var Ras Desta síðan gerð-
ur útlægur og fluttur til af-
skekkts fjalls. Þar verður
hann að telja harma sína í
vansæmd til dauðadags.
Páll.
Tollverðir finna smygl-
vörur í dönsku kola-
skipi hjer á höfninni.
SMYGLVÖRUR, svo
sem 48 þúsund blöð
af sígarettu-pappir,
400 vindlar, 120 spil, 12
flöskur af ákavíti, líkjör
flöskur og fleira fundu
tollverðir í fyrradag í
danska skipinu ,,Dana“.
Vörur þessar fundu tollverð-
irnir í klefa í vjelarrúmi skips-
ins, vandlega falið milli þilja.
— Ákavítisflöskurnar fundust
undir gólfi í hliðarklefa við
vjelarrúmið.