Morgunblaðið - 27.02.1936, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.02.1936, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ M Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavfk. Rltstjórar: J6n KJartansson, Valtýr Stefánsson. Rltstjðrn og afgrelBsla: Austurstræti 8. — Sfml 1600. Auglýsingastjðri: H. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 1T. — Simi 3700. Heimaslmar: J6n Kjartansson, nr. 3742 Valtýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. 3045. H. Hafberg, nr. 3770. Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánuBi. í lausasölu: 10 aura eintakið. 20 aura meB Lesbök. Undir erlendum fána. jÞað var merkisviðburður í sjálfstæðissögu þjóðarinnar þeg ar-varðskipið Óðinn sigldi inn á Reykjavíkurhöfn um jóns- messuleytið vorið 1926. Við móttöku skipsins fórust Jóni heitnum Þorlákssyni — þáver- andi forsætisráðherra — orð á þessa leið: 7,Með þessu trausta og fal- lega skipi sjáum vjer uppfyll- ingu metnaðarfullra hugsjóna, margþráðra óska og vakandi vona leggja hjer að landi. Það hefir verið ein af hugsjónum mannanna, sem meta sjálfstæði landsins ofar öllu, að vjer tækj- um sjálfir gæslu fiskiveiðarjett- indanna í vorar hendur“. Óðinn hóf nú strandvörsluna undir stjórn hins ötula og prúða skipherra Jóhanns P. Jónssonar. Þá voru mörkuð tímamót í gæslu landhelginnar. Því hefir mjög verið hampað hve útgerð Óðins hafi verið kostnaðarsöm, og þá ekki dreg- ið úr kostnaðinum. Hinu hafa þeir menn, sem barist hafa fyr- ir sölu hans, gleymt, að Óðinn hefir einnig aflað stórkostlegra tekna. Alls mun sektarfje, þeirra skipa, sem Óðinn hefir tekið að ólöglegum veiðum nema um einni miljón króna — og er þá ótalið andvirði upp- tæks afla og veiðarfæra. Meira virði en hinar beinu tekjur af starfsemi skipsins, verður þó hitt að með komu þess tókst fyrst að ná veruleg- um árangri af starndvömunum. Á einu ári tók Óðinn 36 skip áð ólöglegum veiðum! Á þennan hátt var unnið að því að friða landhelgina fyrir ágangi veiðiþjófa. Nú er Óðinn seldur. Hann siglir í dag úr landi með erlend- an fána við hún. Þetta er orðið eftir af hinni „metnaðarfullu hugsjón" sem Jón Þorláksson talaði um við komu skipsins. Hjer skal ekki um það rætt, hvort ríkið er þess um komið að halda úppi strandvörslu samkvæmt þeirri metnaðarhug- sjón, sem hjer ríkti fyrir 10 ár- um. Ef svo er ekki er það að- eins ný sönnun þess, hvemig fjárhag vorum er komið. En á það skal bent að kaupverð Þórs, sem kendur er við fjöruna, var aðeins lítið lægra en söluverð Óðins nú. Mun mörgum þykja það „kröpp kaup“, að láta Óð- ipn en hreppa Þór. Smíði Óðins markaði farsæl tímamót í landhelgismálunum. Vonandi markar ekki sala hans önnur tímamót í gagnstæða átt. Fimtudaginn 27. febr. 1936. OFSTÆKISFULLIR HERN- AÐARSINNAR GERA UPPREISN í JAPAN! Myrða forsætls- og fjármálaráðherra Japana og Saito fyrveraodi forsætisráðherra. UPPREISNIN KÆFÐ í FÆÐINGUNNI. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. TAPANSKIR uppreisnarmenn myrtu snemma í morgun Okada forsætis- ráðherra, Takahashi f jármálaráðherra og Saito fyrverandi forsætis- ráðherra Japana. Uppreisnarmenn segjast ekki hafa ætlað að hrifsa völdin í sínar hendur heldur „aðeins að útrýma þeim mönnum, sem sjeu hættuleg- astir velferð Japana. Uppreisnin hefir nú þegar verið kæfð. Herlið stjórnarinnar hefir komið á aftur lögum reglu í Tokio. Utan Tokio urðu engar óeirðir. Keisari Japana. Að uppreisninni stóð herdeild, sem var um það bil að leggja af stað til Manchukuo. Her- deildin var því vel vopnum búin. Rjeðist hún snemma í morgun að bústað for- sætisráðherra og öðrum opinberum byggingum. Okada var skotinn til bana og auk þess Taka- hashi fjármálaráðhepra og Saito. Forstjóri her- mannaskólans særðist einnig mjög hættulega og er nú látinn. Skömmu síðar var landið lýst í hernaðará- standi og skeytasendingar til útlanda stöðvaðar. Símastöðin í Tokio lýsti því yfir að skeyta- stöðvunin stafaði af skorti á rafmagns- straum! Herliði var nú boðið út til að kæfa uppreisnina. Tók lífvarðasveit keisarans þátt í bardögunum með stjórn- inni. Blóðugir bardagar voru háðir á götum Tokioborgar. Talið er að 80 manns hafi verið drepnir áður en ró komst á. Kosningaósigur hægri flokksins. Uppreisn þessi er talin eiga rót sína að rekja til ósigurs Seiyukaiflokksins (hægri floklc- urinn) við kosningar sem fram fóru í Japan í síðastl. viku. Frjálslyndi flokkurinn, undir FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. SÍÐUSTU FRJETTIR Síðustu fregnir herma að Goto innanríkisráð- herra hafi tekið við störfum forsætisráð- herra. Páll. Fremri röð: Annar maður frá vinstri er Okada forsætisráðherra, næstur honum, Takahashi fjár- málaráðherra. Aftari röð: Þriðji m,aður frá vinstri er flotamálaráðhe'rrann Osumi, sjötti maður (frá vinstri) er Hirota utanríkismálaráðherra og sjöundi maður er hermálaráðherrann Hayashi. Slyrjöld Japana og Rúasa í vor! KAUPMANNAHÖFN I GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. UREGNINum upp- reisnina í Japan hefir vakið óhemju æs- ingar í Shanghai. Kínverjar líta. svo á, að afleiðing uppreisnar- innar verði ófriður milli Rússa og Japana. í Shanghai er því haldio fram að hjeðan af geti það ekki dreg ist lengur en til vorsins að ófrið- ur Japana og Rússa hefjist. Páll. Eden hefir í hótunum við Norðmenn! Vegna landhelg- isgæslunnar. Khöfn, 26. febr. FÚ. T TTANRÍKISMÁLARÁÐH. Breta, Anthony Eden, hef- ir í ræðu í neðri málstofu breska þingsins, hótað að hætta þátt- töku í samningaumleitunum viS Norðmenn um landhelgislínuna við Noregsstrendur, vegna þess að norsk varðskip hafi að ó- sekju ráðist á þrjá enska tog- ara fyrir utan hima svonefndu „rauðu Iínu“. Sendiherra Breta í Oslo hefir verið boðið að fá fullnaðarsvör um það hjá norsku stjórninni, hvort það sje áætlun hennar að virða að vettugi landhelgis- mörk. Utanríkismálaráðherra Norðmanna, Halvdan Koht, svarar fyrirspurnum um þetta á þá leið, að Noregur hafi aldrei skuldbundið sig til að viður- kenna þau landhelgismörk, sem FRAMHALD Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.