Morgunblaðið - 27.02.1936, Blaðsíða 3
MORG JNBLA3IÐ
Fimtudaginn 27. febr. 1936.
3
Italir ganga úr Þjóðahanda-
laginu,ef hertverðurárefsi-
aðgerðunum!
,Time»H spáir að Brefar munt
deyfast viO refsiaðgeiðirnar.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS.
A FSTAÐA Breta til refsiaðgerðanna gegn Itöl-
***■ um virðist enn vera reikul.
Þetta vekur mikla athygli vegna þess að nú
eru ekki nema 5 dagar þar til Þjóðabandalags-
ráðið kemur saman til þess að ræða refsiaðgerð-
imar. Ráðið kemur saman 2. mars.
Madame Tabouis ritar í ,,Oeuvre“, að málsmetandi menn
í Bretlandi krefjist þess að hert verði á refsiaðgerð-
unum og er jafnvel rætt um að kolaflutningar og
járnflutningar til Italíu verði bannaðir.
„The Times“ birtir aftur á móti skeyti frá Róm, þar sem
segir, að óttinn við það að Hitler og Mussolini segi
upp Locarnosáttmálanum og stofni nýtt Mið- og Suð-
ur-Evrópu-bandalag með þátttöku Þjóðverja, Itala,
Austurríkismanna, Ungverja og Pólverja muni hafa
deyfandi áhrif á refsiaðgerðapólitík Breta og Frakka.
„Þessar þjóðir“, segir í skeytinu, „munu kappkosta að fá
Mussolini til að halda fast við skyldur þær, sem á honum hvíla
samkvæmt Locarnosáttmálanum og StresasamkomuIaginu“.
Það er nú fullyrt að
sendiherra ítala í París
hafi tilkynt Flandin ut-
anríkisráðherra Frakka,
að ítalir muni ganga úr
Þjóðabandalaginu og
segja upp vináttusamn-
ing ítala og Frakka,
sem gerður var í janú-
ar í fyrra, ef hert verði
á refsiaðgerðunum.
Páll.
Fransk-rússneski samn-
ingurinn ogÞjóðverjar.
London, 26. febr. FÚ.
Atkvæðagreiðslu í franska
þinginu, um fransk-rússneska
vináttusamninginn, var frestað
í gærkvöldi þar til á fimtudag,
samkvæmt beiðni Flandin utan-
ríkisráðherra, í lok ræðu, er
hann hjelt um sáttmálann og
þýðingu hans, og þá einkanlega
afstöðu þá, er Þjóðverjar hafa
tekið gagnvart sáttmálanum.
Flandin bauðst til þess, í
ræðu sinni, að Frakkar skyldu
leggja vináttusamninginn við
Rússa fyrir alþjóðadómstólinn í
Haag, ef þýska stjórnin óskaði
þess, til þess að fá þar skorið
úr því, hvort sáttmálinn kæmi
í bága við Locarno-sáttmálann,
eða væri á nokkurn hátt hern-
aðarbandalag gegn Þjóðverjum
eða nokkurri annari þjóð.
Hann kvaðst harma mjög þá
afstöðu sem þýska stjórnin
hefði tekið í þessu máli, og það,
að núverandi stjórn Þýskalands
hefði hvað eftir annað slegið
hendinni á móti tilboðum ann-
ara þjóða um samvinnu og vin-
áttu, í stað þess, að sýna friðar-
hug sinn með því, að hjálpa til
að tryggja sameiginlegt öryggi
þjóðanna, sem eitt gæti komið
í veg fyrir stríð.
Þá benti Flandin á það, að
þessi vináttusamningur milli
Frakka og Rússa væri í beinu
áframhaldi af samningi þeim,
er gerður var á tíð Briands, um
að Frakkar og Rússar skyldu
ekki ráðast hvorir á aðra.
Hver einasti utanríkisráð-
herra Frakklands, síðan árið
1932, hefði átt sinn þátt í því,
að efna til þess samnings, sem
nú væri gerður, og það hefði
engum fyr komið til hugar, að
hjer væri verið að stofna hern-
aðarbandalag gegn Þjóðverjum,
nje rjúfa neina gerða samninga.
Vjelbátur
sckkur.
Maðnr druknar
JELBÁTURINN Eggert Ól-
* afsson sökk í fyrrinótt á
Stapavík.
Einn skipverja, Guðmundur
Sigurðsson, kvæntur maður,
druknaði.
Hinum skipverjunum bjargaði
vjelbáturinn Ásbjörn frá ísafirði.
Okunnugt er um nánari atvik
að slysi þessu.
Sfldarmjölsverð
fellur!
Khöfn, 26. febr. FÚ.
Norska blaðið Haugesunds
Dagblad skýrir frá því í dag,
að síldarmjölaverð falli nú svo
á Þýskalandi, að torvelt sje að
selja Þjóðverjum þessa vöru,
svo að framleiðslan svari kostn-
aði.
Skipstjórinn á
„Leicester Ci!y“
neiter að hafa
verið f landhelgi.
Rjettarhöld hóf-
ust í gær og halda
áfram í dag.
togaranum „Leicester City“,
sem Ægir tók undan Hafn-
arbjargi, hófust kl. 6 síðdeg-
is í gær.
Rjettarhöldin gátu ekki byrjað
fyr vegna þess að Ægir kom ekki
fyr en kl. 3 í gær. Því að eins og
frá var ekýrt í blaðinu í gær,
varð Ægir eftir til þe'ss að mæla.
stað þann, sem hann taldi togar-
ann hafa verið að veiðum. En
togarinn varð að halda beint til
hafnar, vegna þess að einn háset-
inn slasaðist stórkostlega, eins og
áður var frá skýrt.
Ragnar Jónsson fulltrúi, rann-
sakaði þetta mál.
Rjettarhöldin í gær stóðn lát-
laust í 51/2 klukkustund. Voru yf-
irheyrðir skipstjórinn á togaran-
um, stýrimaður og vjelstjóri.
Þeir neituðu allir harðlega., að
togarinn hefði verið í landhelg’i.
Hinsvegar lieldur skipherrann
á Ægi því fram í skýrslu sinni, að
togarinn hafi verið að veiðum fyr-
ir innan landhelgislínu. Hann hafi
að vísu vei'ið fyrir utan línu, er
hann var tekinn, en skipherrann
heldur því fram, að togarinn hafi
siglt út frá landi þegar Iiann
varð varðskipsins var.
Rannsóltn málsins v.arð ekki lok-
ið í gærkvöldi, hefst aftur kl. 1%
í dag.
SLASAÐI MAÐURINN.
Honum leið eftir öllnm vonum
í gær. En hann er stórkostlega
slasaður, því að tveir hálsliðir e'ru
brotnir, en ekki nein skemd sjá-
anleg á mænunni.
Námskeið á ísianöi
fyrir norrænu stúdenta
Norræna fjelagið, íslandsdeild-
in, gengst í sumar fyrir nám-
skeiði fyrir stúdenta, sem lesa
norræn fræði við háskóla á Norð-
urlöndum. Námskeið þetta er á-
kveðið að verði dagana frá 15.—
23. júní. 10 stúdentum frá live'rju
af Norðurlöndunum, nema 5 frá
FRAMHALD Á SJÖTTU SÍÐU.
Tveir svarnir óvinir.
KHÖFN í GÆR.
EINKASKEYTI TIL
M ORGUNBL AÐSINS
Talið er að Zamora forseti
Spánverja leggi niður em-
bætti þegar Þjóðþingið verð-
ur sett.
Zamora og Azana eru
svarnir óvinir. Þó er pólitískt
líf beggja skylt. Báðir eru
lýðræðismenn. Báðir hafa
sætt ofsóknum og setið í
fangelsi fyrir frjálslyndar
stjórnmál&skoðanir. Og þeg-
ar konungsveldinu var steypt
sneru þeir bökum saman 'í
sameiginlegri baráttu. ,
En nú mega þeir ekki
sjást. Sagt er að Azana hafi
lesið upp ráðherralista sinn
í síma fyrir Zamora.
Og þegar Azana þarf að
fá undirskrift Zamora undir
tilskipanir og bráðabirgða-
lög, sendir hann þau með
hraðboða til forsetahallarinn-
ar. Hraðboðarnir stinga
skjölunum gegnum rifu á
hurð forsetahallarinnar og
Zamora ritar undir! Páll.
Zamora.
Azana.
Frá Veslifianii^ieytoiti.
Sjómenn hræddir uni
að vertíð bregðísi
ABkomufólk
fær ekki nærri
alt vinnn.
Aílabrögð afar treg.
VESTMANNAEYJUM í GÆR.
600 hænsni
brenna inni.
,+
QEX hundruð hænsni
^ brunnu í hænsnabuinu
Sjómenn og útvegsmenn eru al-
ment farnir að óttast að veTtíðin
í ár ætli algjörlega að bregðast.
Aflabrögð hafa verið afar ljeleg
það sem af er, og véðrátta stirð.
í dag reru flest allir bátar, en
fengu lítinn afla, mést um 800
fiska á hát.
Aðkomufólk, sem hingað hefir
komið í atvinnuleit, er nú að bú-
ast heim á leið aftur vegna þess
að enga atvinnu er að fá hjer í
Eyjurn vegna aflaleýsk.
Fantoft, flutningaskip, kom
hingað í dag með 1100 tonn af
salti. Kom það sjer.vel vegna þess
að menn voru yfirleitt orðnir salt-
lausir.
Eggert Jónsson frá Nautabúi
hefir látið reisa hjer myndarlegt
hús til lýsisgeymslu.
Ætlar hann að ltaupa lifur af
Færeyingum, sem stunda veiðar á
Selvogsbanka á vorin. Lifrar-
hræðslufjelagið hjer ætlar að
bræða lifrina. Wium.
„Ásheimar“ á Selási í fyrri-
nótt. Hænsnakofar og íbúð
brunnu til kaldra kola. :—
Eigandinn var ekki heima,
og varð eldsins vart af til-
viljun.
í fyrrinótt, klukkan rúml. 12,
var slökkviliðið kallað upp Aað
Selási, skamt fyrir ofan A-sþæ.
Þe'gar þangað kom, var hænsna-
biiið „Ásheimar“ í björtu báji og
hænsnin öll brunnin, var engu
bjargað úr hænsnabúinu nje í-
búðinni.
Eigandi hænsnanna var Sveinn
Sveinsson, en J611 Gunnarsson átii
húsin. Sveinn var ekki heima
þegar eldurinn kom upp. Ekká er
kunnugt með hvaða hætti éldur-
inn hefir komið upp. Seinast var
gengið um búið kl. um 9 og þá
var slökt á gasluktum, sem loga
,venjulega í hænsnahúsunum. —
Talið er þó einna líklegast, að
eldur hafi komist í stopp í ,þak-
inu frá gaslukt.
Háskólafyrirlestrar á frönsku.
Franski sendike'nnarinn, lic. Fanny
Petibon, flytur í kvöld kl. 8,15
fyGrlestnr með myndasýningu í
háskólanum. Efni: „L’école rom-
antique“.
Maður, sem var að sækja læknir
varð eldsins var af tilviljun. Varð
hann að skila af sjer lækninum
áður en hann gæti tilkynt brun-
anti.
Fulltrúi bæjarfógetans í Hafu-
arfirði rannsakar rnálið.