Morgunblaðið - 10.03.1936, Side 5

Morgunblaðið - 10.03.1936, Side 5
ÞriðjuJaginn 10. mars 1936. MORGtJNiBL^ÍÐ J5' Guðmundur skipstjóri á „Reykjaborg“. i>ú stendur í lyftingu stoltur og fríður, og stýrir dýrum knerri. Þó Ægir sje gustmikill glettinn og stríður, J)ín gifta er rík í sjóferð hverri. Og vegur þinn rís á hafinu hátt með hamingjudag, þú átt viljans mátt, og dáð sem hjá drengjum ei þve'rri. Þú sækir fremstur á fiskauðgu miðin. Og fagur dagur kemur. Og víðsýnið heillar um sæbjörtu sviðin, þú svipast um leiðir, dáðina fremur, og sækir í djúpið hinn dýrasta auð með drengjum, sem fólkið má þakka sitt brauð, við guð þú um gæfuna semur. Og hamingjudísir við stjórnvöl þig styðji, Og starfi þarfur andi, svo framtíðarvonirnar vegina ryðji, til vaxandi auðnu þjóð og landi. Og lifi hvert fley og framaverk. Á frelsisbraut, verði. þjóðin sterk. Og Loki ei landvættum grandi. Sem skipið þitt góða „Reykjahorg“ reynist. Þó Ránar gráni faldur. Og stýrðu hjá boða er löngum leynist, á leiðum brýtur þungur og kaldur. Og gjafmildúr verði þjer Ægir enn, við ungann dag geymi frónskir menn, þinn lofstýr um langan aldur. K. Ó. Hjálparbeiðni. Árið 1920 hjelt jeg fyrirlestur, sem prentaður var í Skíriii, um iækningarnar í Lourdes. Fjekk jeg út af því brjef frá mörgum, -isem báðu um freklari upplýsing- ar um þessar lækningar, þar á meðal var ung stúlka austur í Múlasýslu, er sagði mjer frá veik- indum móður sinnar, sem hafði þá verið veik 12 ár og árangurs- laust leitað lækninga bæði hjer og í Edinborg. Fyrir 13 árum fluttu þær mæðgurnar hje(r til Reykjavíkur og eiga heima á Loftskeytastöðinni. Allan þenna tíma eða 28 ár hefir dóttirin lagt alt í sölurnar fyrir móður sína og borið aðdáanlega umönnun fyrir að afla henni heilsubótar, en það hefir enn e'kki tekist. En nú hafa tveir læknar bæjarins gefið von um einhvern bata og annar lofað ókeypis læknishjálp, ef frú Jó- hanna Jónsdóttir gæti verið á sjúkrahúsi 1—2 mánuði. En til þess vantar efnin. Reykvíkingar eru manna hjálpfúsastir og vart mun nokkur betur komin að því, að þeim sje rjett hjálparrönd, en þessi langþjáða, þolinmóða greind arkona og hin fórnfúsa dóttir hennar. Fastan er vel til þess fallin að hugsa um þá, sem þjást, og vona jeg því, að góðir menn og konur láti e’itthvað af hendi rakna til þess að borga sjúkrahiískostnað- inn, og verður gjöfum til þess þakklátlega veitt móttaka á skrif- stofu Morgunblaðsins og í versl- uninni „París“, Hafnarstræti. Thora Friðriksson. Heitt blóð heitir þýsk kvik- mynd, sem Nýja Bíó sýnir í fyrsta sinn í kvöld. Hún gerist í Bosníu, í hrikalegu og fögru landslagi, þar sem fólk með eldheitt blóð í æðum gengur í einkennilegum þjóðbúningum og hefir alt aðra háttu heldur e'n vjer þekkjum. Þar sjást hópgöngur og söngur og hljóðfærasláttur sem er sjerkenni- legur fyrir Bosníu, ómar í eyrum. Einkennilegar eru og byggingarn- ar, liinar grönnu brýr, kirkju- turnarnir og fyrst og fremst fólk- ið sjálft. Það munu margir hafa gaman af að kynnast þessum fjallabúum þarna suður við Mið- jarðarhaf. Alt Heidelberg verður leikið í Iðnó í kvöld kl. 8. Verð aðgöngu- miða er lækkað. í Hafnarfirði heldur 0. Frenn- ing samkomu í kvöld kl. 8 í Góð- templarahúsinu. Allir velkomnir. Sextugs afmæli. Jón Björnsson f rá Svarfhóll kaupmaður í Borgarnesi er sex- tugur í dag. Jón er af kunnum ættum í Borgarfirði og frænd- margur þar. Foreldrar lians, Björn Ásmundsson og Þuríður Jónsdóttir, bjuggu um langan aldur rausnarbúi á Svarfhóli í Stafholtstungum. Komu þau börn- um sínum vel til manns, og eru þau Svarfhólssystkin víða kunn. Jón fór að heiman ungur að aldri og tókst á he'ndur verslun- arstörf í Borgarnesi. Setti hann þar brátt á stofn eigin verslun og hefir kaupmenska síðan orðið æfistarf hans, þótt margt annað hafi hann lagt á gjörva hönd. Póstafgreiðslumaður var hann í Borgarnesi um langt slteið, og eftir að Borgarne's var gert að sjálfstæðum hreppi varð hann fyrstur hreppstjóri þar. Fórust honum þessi trúnaðarstörf sem öll önnur vel úr liendi. Jafnan hefir Jón notið vinsælda hjá við- skiftamönnum sínum. Hafa þeir fundið, að þar var við góðan dreng að skifta. Jón frá Svarfhóli er með af- brigðum ve'l látinn maður. Er ekki ofsagt, að hann sje hvers manns hugljúfi. Valda því mann- kostir hans, prúðmannleg fram- koma og sívingjarnlegt viðmót, við hvern sem í hlut á. Hefi jeg engan vitað óvildarmann hans, en marga vini, og þá besta, sem þektu hann glegst. Skapfestu- Jón Björnsson. maður er Jón eins og hann á ætt til. Er það á orði, að aldrei hafi hann sjest bregða skapi, þótt snögglega hafi á móti blásið. Jón er kvæntur Ragnhildi Jón- asdóttur frá Sólheimatungu, glæsilegri gáfukonu. Hafa þau hjón verið samhent um að skapa þann fyrirmyndarbrag, er ávalt liefir ríkt á heimili þeirr;a. Borg- arnes er í þjóðbraut og er oft gestkvæmt hjá þeim hjónum, bæði af innan- og utanhjeraðs- mönnum, en gestrisni þeirra, rausn og hjálpsemi er .við brugð- ið. Veit je'g, að á þessum tíma- móturn í æfi Jóns frá Svarfhóli muni mikill fjöldi vina þeirra hjón'a, nær og fjær, hugsa hlýtt til þeirra, og árna þeim gæfu og gengis á ókomnum árum. Þórður Eyjólfsson. Thorvaldsensfjelagið. Fundur í kvöld kl. 8,30 í Oddfello'whúsinu. Náttúrufræðingurinn Nokkrir nýir kaupendur Náttúrufræðingsins fá ritið frá byrjun, fimm árganga, fyrir hálfvirði, eða aðeins 15.00 kr., þó aðeins gegn staðgreiðslu, og með því skilyrði að þeir verði kaupendur ritsins framvegis, og greiði um leið 6. árgang þess. En vegna þess að sum heftin í fyrstu árgangana eru næstum þrotin, er mjög æskilegt, að þeir, sem vilja eignast Náttúrufræðinginn frá byrjun, gefi sig fram sem fyrst. Náttúrufræðing- urinn kemur út f jórum sinnum á ári, tólf arkir samtals. Ritið er prýtt fjölda mynda, og árangurinn kostar 6 kr. Afreiðslumaður og gjaldkeri er Ólafur Bergmann Erlingsson, prentari, Njálsgötu 76. Sími: 3048 í ísa- foldarprentsmiðju. Heimasími: 4875. Á fimm árum hafa komið út af Náttúrufræðingnum 60 arkir í Skírnisbroti, svo hjer er um að ræða bók, sem er 960 bls. 1 Náttúrufræðinginn hafa ritað rúmlega 60 höfundar, í honum hafa birst um 300 greinar, og um 280 myndir. Allar þær greinar, sem birtast í Náttúrufræðingnum, er reynt að hafa í þeim búningi, sem hyerjum manni, meira að segja hverju barni, sje auðskilinn. En við hlið þeirra greina, sem Náttúru- fræðningurinn færir lesendum sínum til fróðleiks og skemtunar, hefur ritið opnað dálka sína fyrir hagnýtum viðfangsefnum, sem ætlast er til að komi að praktiskum notum. Aðalgreinarnar 1 næsta hefti Náttúrufræðingsins, sem kemur út eftir fáa daga, eru: >r Urelt líffæri á mannslíkamanum, Rjúpan, ætt hennar og óðall, Marhálmurinn, Rækjur og rækjuveiðar, Fjörugrös og hrossaþari. Auk þess margar smærri greinar, um ýmis efni. Fjörugrös. Kaupið Náftúrufræðinginn handa sjálfum yður. Kaupið Náftúrufræðinginn handa liörmiiii yðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.