Morgunblaðið - 10.03.1936, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.03.1936, Blaðsíða 6
vW'ijdCWWán.- 6 MORGUNBLAÐIÐ Þríðjudaginn lö. mars 1936. 3‘ '6 Sterlingspunda lánið: FRAMHALD AF ÞRIÐJU SÍÐU. kæmi ekki í bága við neina yfirlýsingu, því hún hefði aldrei verið gefin. — En h^að það atriði snerti, hvort ö&rum hefði verið gefinn kost- úr á að lána á sama hátt og olíufjelögunum, kvaðst ráðherr ann geta upplýst það, að svo hefði ekki verið. Sigurður Kristjánsson skýrði frá því, að útgerðarmenn væru að spyrjast fyrir um það, hvort «jávarútvegsnefndir þingsins gætp ekki hjálpað þeim til þess afflfá flutta inn olíu til útgerð- arinnar; þeir fengju enga á- teeyrn hjá innflutningsnefnd, en þætti hart að þurfa að sæta verði olíufjelaganna. .En nú kæmi fjármálaráð- herra með þær furðulegu upp- lýsingar, að olíufjelögin, sem ættu hjer „innifrosið“ fje, ▼æru leyst úr öllum vanda. Þ^m væri trygð full greiðsla, hvað sem öðrum liði. Lán þetta væri auðvitað tekið í ísl. krón- um, er gfeiðast skyldi í pund- um. Um þetta þyrfti ekki að þræta, enda þótt hjer myndi ▼era um að ræða óþekt fyrir- brigði. Hitt væri ekki síður merki- legt, að þessi tvö erlendu auð- fjelög skyldu fá þessa sjer- atöðu um leið og útgerðar- mönnum væri neitað um gjald- SfTÍ fyrir nauðsynjar útgerðar- innar. Með þessu væri olíufje- íégunum sköpuð einokunarað- staða, sem gæti orðið dýrt fyr- ir útgerðina. ólafur Thors las nú yfirlýs- IHgu fjármálaráðherra 1934. Par . var því yfir lýst, að stjórn- M - myndi ekki, meðan núver- áhdí gjaldeyrisástand hjeldist, ^ka erlent lán eða stuðla á neinn hátt til slíkrar lántöku. Að því er þessa nýju lántöku hjá olíufjelögunum snerti, sagði Ólafur ennfremur, að stjómin væri á þrennan hátt ámælisverð fyrir hana: 1. Olíufjelögunum væri hjer ívilnað sjerstaklega, því vitan- légt væri, að aðrir ættu einnig „innifrosið“ fje hjer. 2. Sennilegt, jafnvel fullvíst væri, að hagkvæmri kjörum hefði mátt ná með því að bjóða lánið út. - 3. Meðan verðgildi krónunn- ar væri jafn óvíst og nú, væri fárhugavert af ríkisstjórninni, að gulltryggja þannig ll/2 miljón kr. fyrir erlenda auð- hringi 15 ár fram í tímann. Og hvað sem öðru líður, bætti 0. Th. við, víti jeg það, að slíkir samningar sjeu gerð- ír meðan Alþingi situr, að því fornspurðu. * Enn töluðu þeir Pjetur Hall- dórsson, Jón Ólafsson, Ólafur Thors og Eysteinn fjármála- ráðherra. Krisfínus Arndal. Eden biður nm trauitsyfirlýsingu breska þingsins. FRAMHALD AF ÞRIÐJU SÍÐU. hvort hann hefír neitað vinnu get jeg ekki borið um. Að hann hafi öðru hvoru unnið fyrir mig hjer í bænum eru einnig ósannindi. Hann vann fyrir mig í 3 daga, en þá ljest þú reka hann heim. Þú segir, að jeg hafi fengið 13 vikur í atvinnubótavinnu, en ekki 11. Þetta er ekki heldur rjett hjá þjer. Vinna mín síð- an í haust er: Atvinnubóta- vinna í „Síberíu" 4 vikur og 1 vika hjá vegamálastjóra, auk þess 3 vikur, sem stjúpsonur minn vann fyrir mig fyrir aust- an. Síðan hefi jeg tvisvar feng- ið 12 daga vinnu hjer í bæn- um. Ef að þetta eru 13 vikur eftir þínum útreikningi, þá er ein ástæða til, sem sýnir, að þú ert ekki starfi þínu vaxinn. Þú segir, að ekki hafi verið hægt að breyta vinnulistunum, þegar jeg kom til þín og bað um vinnu í Skúlagötunni í stað- inn fyrir í Eskihlíð, til þess að jeg gæti verið sem næst heim- arinnari ili mínu, þar sem konan mín lá með 41 stiga hita og börnin 3 gæslulaus. Getur þú ekki skil ið, að jeg gat ekki farið suður 1 Eskihlíð, þegar þannig var ástatt fyrir mjer heima? Viku seinna sendir þú mig svo vinnukort, einnig í Eskihlíð. Var ekki hægt að breyta vinnu- listunum með viku fyrirvara? Þú sagðir mjer þá, er jeg talaði við þig, að það væri ekki hægt að breyta til vegna þess, að sömu menn ynnu ætíð í Skúlagötunni, en það þarft þú ekki að segja mjer, því jeg veit að skift er um menn vikulega í Skúlagötunni að allverulegu leyti. Jeg hefi nú sýnt fram á, að London 9. mars. F.Ú. Anthony Eden, utanríkis- málaráðherra Breta, flutti langt erindi í neðri málstofu breska þingsins í dag, áður en hann lagði af stað til Parísar. Viðstaddur var fjöldi þing- manna og annara áheyrenda. Anthony Eden skýrði frá við- ræðum þeim, er hann hefði átt við' sendiherra Þjóðverja í London 6. mars. Kvaðst hann við það tækifæri hafa lagt á- herslu á, að það væri skoðun bresku stjórnarinnar, að tími væri kominn til þess að hefja umleitanir um loftflotasamn- inga. Degi síðar kvað hann sendi- herra Þjóðverja hafa afhent sjer 'boðskap þýsku stjórnar- innar, þess efnis, að Þjóðverjar teldu sig ekki lengur bundna af Locarno-sáttmálanum. — Komst þá Anthony Eden svo að orði: „Jeg tjáði sendiherranum þá þegar, að jeg harmaði mjög þessa ákvörðun þýsku stjórn- sem í raun og veru samsvaraði almennum samn- ingsrofum um milliríkjamál. Jeg minti hann á yfirlýsingu Hitlers, þá er hann gaf í við- tali við mig í fyrravor, þar sem Hitler tók það fram, að hann gerði mikinn mun á Versala- samningnum og Locarno-sátt- málanum, með því að Þýska- land hefði imdirritað hann af frjálsum vilja. Jeg sagði ennfremur við hann, að ef Þýskaland hefði ástæðu til að efast um lögmæti fransk-rússneska sáttmálans, þá væri ekki annað en að bera það undir dómstólinn í Haag. Ennfremur sagði jeg honum, að sú ráðstöfun þýsku stjómarinn- ar, að fara með her inn á Rín- Orð úr viðskiftamáli er ómissandi hverjum þeim *r kunna viil íslenskt versl ”na rmál. Nokkur eintök fást á af- greislu Morgunblaðsins. alt það, sem þú segir, eru blekk ingar einar. Verkamenn þekkja þig orðið of vel til að trúa þjer. Þú hefir sjálfur verið verka- maður og þurft að sjá fyrir heimili, konu og börnum. Nú ert þú búinn að fá bein hjá þeim herrum, sem þú áður for- dæmdir, en hefir nú um stund þjónað dyggilega. Nú getur þú brígslað göml- um fjelögum þínum um óreglu og drykkjuskap. Jeg verð kan- ske að lúta í lægra haldi fyrir þjef í baráttunni til að ná rjetti mínum. En jeg vil fara þess á leit við bæjarstjórn eða bæjarráð, að fram verði látin fara rannsókn — óhlutdræg rannsókn á út- hlutun vinnu við atvinnubóta- vinnuna. Mun þá koma í ljós, hvort sakir þær, sem jeg hefi borið á þig, eru órjettmætar. Reykjavík, 9. mars 1936. Sigurjón Kristjánsson, Sölvhólsgötu 14. Háskólafyrirlestrar á þýsku. — Þýski sendikennarinn, dr. Iwan, flytur í kvöld kl. 8,05 fyrirlestur í háskólanum um „Die deutschen Alpen“. arsvæðið, mundi hafa mjög slæm áhrif á almenningsálitið, bæði utanlands og innan“. Eden sagði ennfremur, að þó að búast mætti við því, að sá tími kæmi, að Versalasamning- urinn yrði g/eindur frá Þjóða- bandalagssáttmálanum, þá væri Þjóðabandalagið sá rétti vettvangur, til þess að taka á- kvörðun um það mál. Brot á Locarno-sáttmálanum og endurvopnun Rínarsvæðis- ins sagði Anthony Eden að hefðu mjög torveldað alt á- standið í álfunni og skapað stórkostlega hættu fyrir frið- inn í Evrópu. Taldi hann, að þessar ákvarðanir þýsku stjórn arinnar hefðu grafið undan allri stjórnmálabyggingu álf- unnar. • Ti! þess að fyrirbyggja all- an misskilning, kvaðst Anthony Eden óska að segja það fyrir hönd stjórnarinnar, að ef til árásar kæmi á Frakkland eða Belgíu, mundi breska stjórnin telja það skyldu sína, að við- lögðum heiðri BretaveldÍ3, a<5 koma þe3sum ríkjum til að- stoðar. Eden lauk máli sínu með þessum orðum: „Það hlýtur að vera öllum augljóst, að undir núverandi kringumstæðum eru vonirnar um breytingu frá slæmri for- tíð til betri framtíðar að engu orðnar. Þetta mál snertir ekki einungis yfirstandandi tíma, heldur miklu fremur framtíð- ina. Ef að þess á að vera kost- ur að tryggja friðinn, verður að byggja það upp á ný, sem nú hefir verið rifið niður. Á þessum alvarlegu tímum má ekki láta ganga sjer úr hönd- um neitt tækifæri til þess að koma á betra sambandi meðal þjóðanna“. Að þessu loknu bað hann alla flokka þingsins að veita sjer stuðning við þau erfiðu störf, sem á honum hvíldu. Þingfundurinn stóð yfir hálfa aðra klukkustund, og í fundarlok lýsti málstofan yfir samþykki sínu á skýrslu ráð- herrans. Breska stjórnin hefir látið gefa út „hvíta bók“, sem er þýðing á skjölum þeim, er sendiherra Þjóðverja í London afhenti Anthony Eden á laug- ardaginn var. Bókin ber titil inn „Þýskaland, Nr. 1, 1936‘ (Germany, Nr. 1, 1936). Fjölmennar skíðaferðir um heigina. Sænskum skíðakenn- ara finst Islendingar gapafengnir skiðamenn. Locarno: FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. þvert á móti boðið samninga. En því hafi Hitler svarað með því að rjúfa Locarno-samning- inn. „Hitler víggirðir vestur- landamærin“, segir Petinax í Echo de Paris, „til þess að geta farið sínu fram í Austurvegi. Það var tilgangiirinn!'* Rússar segja aftur á móti að Hitler sje að reyna að eyði- leggja vináttu Frakka og Breta, með það fyrir augum, að ráðast síðan á breska heims- veldið. Sendiherra Rússa í París hefir lýst því yfir við Flandin, að Rússar muni veita Frökkum allan þann stuðning, sem þeir geti, ef til ófriðar komi. Bretar hafa tekið upp þá stefnu, sem þeir eru kunnastir fyrir: „Wait and see“, bíðum og sjáum hverju fram vindur. Blöðin í Bretlandi hvetja t.il varfærni og benda á, að frið- urinn í Evrópu velti á samning- unum, sem nú fara í hönd. Sumir telja, að Eden muni reyna að fá Hitler til að end- urkalla eitthvað af herliðinu í Rín. Talið er víst, að Bretar muni neita því að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Þjóðverj- um. Afleiðing slíkra refsiað- gerða yrði óhjákvæmilega Ev- rópustyrjöld. Bretar eru ekki búnir að gleyma hiki Frakka við refsiaðgerðirnar gegn ítöl- um. Þeir álíta auk þess, að eðlis- munur sje á samningsrofi Mus- solinis og Hitlers, þar eð Hitl- Á áttunda hundrað manns vora á skíðum um síðustu helgi. Á annað hundrað manns fórw upp í Skíðaskála á laugardag og gistu um nóttina bæði í Skálanum og Kolviðarhóli. Ve'ður var hið ákjósanlegasta á laugardaginn, sól og ágætt skíða færi. Á sunnudagsmorgun fóru flest 'öll íþróttafjelög bæjarins í skíða- ferðir. Með Skíðafjelaginu fóm rúmlega 200 manns 1 11 stórum: bílum. Var ekið upp á Hellisheiði skámti UPP fyrir Skíðaskála. Þaðan var gengið inn í Instadal. Var þar^ kominn sænskur skíðakennarir Tufveson að nafni. Sýndi hann ligtji ir á skíðum og lærðu menn nokki uð af honum. Ilann var samt svo óheppinn að brjóta annað skíðið sitt. Auk þess sem fólk var á skíð~ um í Instadal voru mjargir í Fremstadal og brekkunum skamt frá Skíðaskálanum. Skíðafæri var dágott, en fann- koma var mest lallan daginn, en þó skemtu menn sjer hið besta.. Margir voru þarna sem aldrei höfðu komið á skíði fyrr. Skíða- fólkið var á öllum aldri, konur og- karlar, börn og unglingar. Sænski skíðakennarinn ljet svo» um mælt að margir væru duglegir á skíðum, en sjer virtist sem ís- lendingar væru full gapafengnir skíðamenn. Fjelög sem efndu til skíðafarai um helgina voru: Skíðaf jelagið, í. R., K. R., Ármann, Skátafje- lögin, Skiðafjelag Hafnarf jarðar og auk þess fóru nokkrir nemend- ur úr Mentaskólanum og Verslun- arskólanum. Heflmabruggan i Hattardal. ísafirði, mánudag. | EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. Grímur Jónsson hreppstjóri í' Súðavík gerði nýlega húsrannsókn hjá Jóni bónda Benediktssyni í Meiri-Hattardal. Fundust þar bruggunartæki og- nokkuð af heimabrugguð áfengi.. Arngr. er hafi aðeins lagt undir sig" þýskt land. Bretum er og áhugamál, a5 gerður verði loftvarnasáttmáli og að Þjóðverjar gangi aftur f Þjóðabandalagið og telja, að samningaboð Hitlers sjeu þýð- ingarmeiri en samningsrof hans, sem sje aðeins lögfræðis- legs eðlis. Þó viðurkenna Bret- ar, að Hitler hafi með samn- ingsrofi sínu dregið úr almennu trausti til alþjóðasamninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.