Morgunblaðið - 18.03.1936, Blaðsíða 2
2
)
MORGtJNBLAÐIÐ
Miðvikudaginn 18. mars 1936
igRotBirfiEbMft
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Rltitjðrar: J6n KJartansson,
Valtýr Stefánsson.
Rltstjðrn og afgreI8sla:
Ansturstrætl 8. — Slml 1600.
Auglýsingastjörl: B. Hafberg.
Auglýstngaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Siml 8700.
Helmastmar:
J6n Kjartansson, nr. 8742
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árnl Óla, nr. 3046.
B. Hafberg, nr. 8770.
Áskrlftagjald: kr. 8.00 & mánuQl.
1 lausasölu: 10 aura elntakiB.
20 aura meB Lesbök.
Tyllidagaa*.
TJifeir dagar á árinu eru hjart-
fólgnustu tyllidagar íslensku þjóð-
arinnar. Hinn 17. júní er hátíð-
legur háldinn í minningu þess, að
þann dag fæddist sá maður, seta
nefndur var „sverð og skjöldur“
íslendinga, þjóðhetjan Jón Sig-
urðsson. Hinn 1. des. er hátíðleg-
ur haldinn í miuningu þess, að
þann dag fekk fsiand fulla viður-
kepningu fsjálfstæðis síns.
Báðir þessir dagar marka at-
biiEði., sem hverjum sönnum ís-
lundingi er ljúft að minnast.
En k- síðustu árum hefir hópur
manna bætt við þriðja tyllidegin-
nm. Sésíalistar, bæði kommúnistar
og ktatar efna til hátíðahalda hinn
:9,; , nóvember. Hvaða atburður
liggur að baki þessum fagnaðar-
l^tum sösíalista? Gerðist eitthvað
það. S sögu þjóðarinnar þennan
dag,. sem veki þær endurminning-
ay, að ástæða sje til að minnast
jneðj, gleði f
'Tjl.efnið til mannfagnaðar sós-
íalista hinn 9. nóvember er það,
að æstur múgur rjeðist á lögreglu
höfuðstaðarins, meiddi og limlesti
fjölda manns, sem var að gegna
skyldu sinni, og fór svo fram að
liéþding ein rjeði, að ekki hlutust
af.
Það stingur ekki mjög í augun
þó.tt Einar Olgeirsson og hans
RÓtar finni ástæðu til hátíðahalds
þepnan dag. Það vekur heldur
e’kki mjög mikla athygli, þótt
virkir ofbeldisfrömuðir eins og
Hjeðinn Valdimarsson standi að
slíkri . blóðhátíð. En það kemur
óþægilega við mann, þegar borg-
aralegir friðsemdarmenn eins og
Jója. Baldvinsson og Stefán Jó-
bann,-koma vagandi á slíkar sam-
kundur. Slíkt skjall við „skrílsins
vammir“ hlýtur að draga dilk á
eftir sjet.
Pramsóknarmenn hafa, ekki enn
sem komið er gert 9. nóv. að
tyllidðgi sínum. En þeir hafa lýst
áhmúð með ofbeldisverkum dags-
ins óg stólfó.tahetjunum, sem að
þéM Stóðu. Þeir hafa náðað 9.
nóvembermennina alla með tölu.
f þéssu ljósi hljóta menn að láta,
s.íéi- fáíf' úm finnast, þegar dóms-
máláráðherrann sveiflar rjettar
og laganna sverði yfir nazista
stfákúnuih og lætur lögregluna
táka bús á þessum piltum. Engan
{/. nþvember eiga þeir að baki,
og' sángast að segja hafa þeir
ekki sfaðið sig svo vel í bardög
um hiugáð til, að mikil hætta sje
á að þeir vinni á lögreglunni. Þeir
gj.amma dálítið og þar við situr.
En. ísle'nska rjettlætisgyðjan
kjassa,r rakkann sem bítur, en
sparkar í hinn sem bara geltir.
ÞRÍVELDASAMNINGUR í STAÐ
LOCARNOSÁTTMÁLANS!
Anthony Eden reynir að miðla málum.
„Alsbald" stofnaði Evrópu-
friðnum i hættu.
Haile Selassie.
Abyssiníu-
menn
hafa teklð
Amba Alagi!
Gagnsókn
undir forustu
keisarans!
TVÆR fregnir frá Ab-
-*■ yssiníu benda til
þess að Abyssiníumemi
sjeu nú um það bil að
hef ja stórsókn á norður-
vígstöðvunum.
önnur fregnin hermir, að
Amba Alagi sje aftur fall-
in í hendur Aby&siníu-
mönnum. Þessi frjett er
óstaðfest.
Hin kemur frá Addis Ab-
eba og hermir, að Haile
Selassie hafi nú sjálfur for-
ystu f jölmenns hers, sem
ætlað er að stöðva fram-
sókn ítala, áður en regn-
tímabilið hefst.
Enn segir í abyssinskri frjett,
að 300 þús. vel útbúinna ab-
byssinskra hermanna sje nú á
leið til Makale.
Þá segir í frjett frá Addis
Abeba að ítalir haldi uppi
grimmilegum loftárásum á öll-
um vígstöðvum. 1 öllu umhverfi
Dessie hafa þeir dreift eitur-
gasi úr loftinu.
Abyssinsk Rauða Kross flug-
vjel var gereyðilögð í Quoram
síðdegis í dag, í loftárás af
hálfu ítala. Italskar flugvjelar
höfðu gert loftárás á Quoram
í morgun, og hurfu þá á brott,
en síðdegis í dag komu þrjár
flugvjelar aftur, og köstuðu
sprengjum á Rauða Kross flug-
vjelina.
(Samkv. FÚ).
Fransk-rússneska
sáttmálanum skotið
t
i
i
Eí úrskurður dóm-
stólsins er Frökkum
í vll, þá -
Þjóðverjar senda von
Ribbentrop til London.
KAUPMANNAHÖJFN í GÆR.
„ÐAILY TELEGRAPH" BYST VIÐ AÐ ANT-
HONY EDEN MUNI TAKAST AÐ KOMA ÞVÍ
TIL LEIÐAR, AÐ SAMNINGAR HEFJIST UM
SÁTTMÁLABOÐ ADOLFS HITLERS, MILLI
STÖRVELDANNA ÞRIGGJA, BRETA, —
FRAKKA OG ÞJÓÐVERJA.
Skilyrði þau, sem Flandin setur fyrir því, að
Frakkar taki þátt í þessum samningum, eru að
|>ví er blaðið telur, þessi:
1) AlþjóðadómstóIIinn í Haag* verði lát-
inn skera úr því, hvort vináttusamningur
Rússa og Frakka sje ekki samrýmanlegur
Lo carnosáttm ál anum.
2) Ef úrskurður dómstólsins verður á þá
leið, að fransk-rússneski samningurinn sje
ekki brot á Locamosáttmálanum, skuld-
binda Þjóðverjar sig til að kalla herliðið
á brott úr Rínárhjeruðunum.
3) Að öðrum kosti — ef Þjóðverjar neita
að hlíta úrskurði dómstólsins — verði
refsiaðgerðum beitt gegn þeim.
Friðarhorfur eru nú betri í Evrópu. I gær stappaði þ6
nærri, að allar sáttaumleitanir færi út um þúfur, en afleiðingar
þess hefðu orðið örlagaþrungnar.
Þý&ka orðiS „alsbald“ var orsök þessa eins og jeg gat um
í skeyti mínu í gaer. Strax og Hitler hafði gefið skýringu á orð-
inu og sagt að Þjóðverjar krefðust þess, að sáttmálahoð þeirra
yrðu rædd „við fyrsta tækifæri“, en ekki „undir eins“, rofaði
til aftur.
Blöðin í London skýra frá því, að orðið ,,alsbald“ sje meir
notað í Austurríki en Þýskalandi og af því sje hægt að draga
ályktun um það, hver hefir samið svar Þjóðverja til Þjóða-
bandalagsráðsins (Hitler er af austurrísku bergi brotinn).
Fundur Þjóðabandalagsráðsins hófst kl. 3.30 í gærdag. Á
fundinum var rætt um svar Hitlers og voru skoðanir mjög
skiftar. — Páll.
Skömmu eftir að fundurinn hófst var því lýst yfir (segir
FÚ), að fundurinn yrði haldinn fyrir lokuðum dyrum, um
stundarsakir, og allir áheyrendur beðnir að hverfa á brott.
Fjórum stundum síðar var fundurinn opnaður almenningi.
Las þá Bruce, forseti ráðsins, skeyti, er sent bafði verið þýsku
stjóminni. Var það á þá leið,
1) að ef Þjóðverjar sendu fulltrúa á ráðstefnuna, skyldi
honum gert jafn hátt undir höfði og fulltrúum Belga og
Frakka, en þessir þrír aðilar myndu þó ekki hafa at-
kvæðisrjett um kæru Frakka um samningsrof Þjóðverja,
2) um síðari kröfu Hitlers — að sáttmálaboð Þjóðverja
yrðu tekin fyrir á fundi þjóðabandalagsráðsins — lýsti
ráðið yfir því, að það væri ekki rjettur aðili til að ræða
þessi boð: þeim væri beint til Locarnoríkjanna.
Reuterfrjettastofan gerir ráð fyrir, að Hitler muni telja
svar þjóðabandalagsráðsins fullnægjandi og muni þiggja boð
ráðsins um að senda fulltrúa til London.
Hryllilegir
eldsvoðar.
London 17. mars. FÚ
í dag kom upp eldur í kín-
versku gufuskipi, sem var að
flytja börn úr skóla, og fór-
ust 300 börn.
Frá Tientsin kemur fregn
um það, að 200 manns hafi
farist í eldsvoða í nánd við
borgina. Hafðist fólk þetta
við í bráðabirgðaskýlum, er
komið hafði verið upp handa
því. Eldur kom upp í skýl-
unum og reyndist ógemingur
áð bjarga fólkinu.
Frakkar sáttfusari.
Skeyti frá United
Press hermir, að þýska
stjórnin hafi nú þegar
fallist á að senda full-
trúa á fund þjóðabanda
lagsráðsins í London
(segir Oslo fregn til F.
U.) Von Rihbentrop, er
áður hefir verið erind-
reki þýsku stjórnarinn-
ar erlendis, og er ráðu-
nautur Hitlers, um hera
aðarmál, verður for-
maður sendinefndarinn-
ar. Er ætlast til að hún
geti verið komin til Lon-
don á fimtudag.
Eftir að Bruce hafði lesið upp
skeytið, sem sent var þýsku
stjórninni, lagði Flandin fram
ályktun um það, að Þjóðverjar
hefðu gerst brotlegir við 43.
grein Versalasamninganna. —*
Ályktunin var ekki rædd á
fundinum í gær.
En orðalag ályktunarinnar
var ekki eins hastarlegt og
alment hafði verið búist
við, og þykir það benda
til þess, að Frakkar sjeu
sáttfúsari.
Er gert ráð fyrir að álykt-
unin verði samþykt, án nokk-
urra mótatkvæða. Þó er talið,
að Peter Munch, fulltrúi Dana,
sje andvígur ályktuninni, en
hafi bundist loforði við Frakka
um að greiða ekki atkvæði.
Sáttaumleitanir Edens.
Anthony Eden hjelt áfram
málamiðlunartilraanum sínum í
allan gærdag.
Fulltrúar Locarnoveldanna
komu saman á fund í gærmorg-
un (segir FÚ), en engin til-
kynning var gefin út um fund-
inn, og frönsku fulltrúarnir
fóru þegar heim á hótel sitt að
honum loknum, og ræddust þar
við.
FRAMIIALD Á SJÖTTU SÍÐU.