Morgunblaðið - 18.03.1936, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.03.1936, Blaðsíða 7
Miðvikudagiim 18. mars 1936 MORGUNBLAÐIÐ Þrjú þúsund ára gömul býli. Fornlcifafundur í Lapplandi. Höfn 17. mars. FÚ. í Lapplandi hefir með upp- greftri tekist að finna 32 býli steiinaldarmanna, sem fornfræð- ingar telja að lifað hafi um 3000 árum f. Krist. Á sama stað hafa fundist um 50 munir ■'úr tinnu, sem þykj gefa merki legar upplýsingar um lifnaðar- háttu þessa fombyggja Norður- landanna. Of ákafir blaðamenn — XAUPMANNAHÖFN I GÆR. EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS. EKSTRABLADET í Khöfn segir frá því í dag, að Munch, fulltrúi Dana á Þjóða- bandalagsráðsfundinum hafi mælt með því að Þjóðverjar hefðu fullan tillögurjett á fund- inum, ef þeir sendu þangað full- trúa. Segir blaðið, að Flandin hafi við þetta orðið fokreiður, og hótað að hverfa heim til Frakk- lands og senda franska herinn yfir landamæri Þýskalands. Munch hefir nú opinberlega mótmælt þessari frjett og sagt að hún sje uppspuni einn. Páll. Verfu sólarmegln. l»jer hafið lifað stundir, þegar hver mínúta var þrnngin sól og lífi. Þegar þjer lituð best út og líkami yðar var allur í samræmi, «ngin sella vann í ósamræmi við heildina. — Þetta ástand er því miður ekki altaf. All-Bran er dásamleg fæða, full af sól og líf3fjöri. Neytið hennar því sem oftast. Inniheldur B- vítamín og járn. Etið 2 matskeið- ar daglega í mjólk eða rjóma. Engin suða nauðsynleg. tíkyýt ALL-BRAN Dásamleg fæða. 1 ALL-BRAH 1 I 1 Radiógrammófónn til sölu. A. S. í. vísar á. 7 * Ævar Kvaran og Guðrún Hafstein í hlutv. Almavivo og Rosine. Leikkvöld Mentaskólans. Rakarinn í SevUla. Leikflokkur Mentaskólans ljek „Rakarann í Sevilla“ í Iðnó í fyrrakvöld. Eins og venjulega við skólasýningar Mentaskóla- nemenda var húsfyllir, og ómaði húsið oft af glaðlegum hlátri. Leikurinn er fyndinn og fjör- ugur. Er mesta furða, hve vel hin- um ungu og óvönu leikendum tókst, þegar tillit'er tekið til þess, að fæst þeirra hafa komið á leik- svið áður. Læknirinn, Bartholo, ljek Sig- urður Ólafsson, insp. scolae, méð tilþrifum og kímni, en vakti þó tæplega eins mikinn hlátur og Jón Árnason, í hlutverki söng- kennarans, Don Bazile. Gunnar Stefánsson ljek bragðarefinn, rak- arann Figaro, í litskrúðugum andalúsiskum þjóðbúningi. Hann var fjörugur, en tæplega nóg. Elskendurna, Rosine og Almavivo greifa, ljeku þau Guðrún Havstein og Ævar R. Kvaran. Rosine er fögur og sómir sjer vel í hinum spönsku búningum. Hún sýnir bæði skap og blíðu — en málfærið gæti verið betra. Ævar er fríður sýnum og hefir þekkilega söngrödd en virðist ekki kunna jafn vel við sig í öllum búningunum. Minni hlutverkin fóru leikendum vel úr hendi. Sveinungi og Árvakur, hin- ir skringilegu þjónar, sem leiknir voru af Þór Guðjónssyni og Helga Bergs, vöktu skellihlátur. Enda er það gömul „trajlon" að þeir eiga að vera sem allra skringileg- astir. Það ér eftirtektarvert við þessa skólasýningu, að einn skólanem- andi, Gylfi Þ. Gíslason, hafði sam- ið lögin og kvæðin, sem sungin eru í leiknum, og Intermesso milli 3. og 4. þáttar . Karl Runólfsson bjó lögin fyr- ir 5-manna hljómsveit sína, sem Ijek undir leiknum. Aðalfundur sænsk- Islenska fjelagsins. íslensk-sænska fjelagið „Sví- þjóð“ helt aðalfund sinn í Odd- fellowsalnum í fyrrakvöld. í stjórn þess voru kosnir: Ásgeir Ásgeirsson fræðslumálastjóri, Frey steinn Gunnarsson skólastjóri, Gunnlaugur Einarsson læknir (all- ir endurkosnir), Gústav E. Páls- son Garðprófastur og Pjetur G. Guðmundsson fjölritari. Stjórnin skiftir sjálf með sjer störfum. Nokkuð var rætt um leshring og kenslubókakaup o. fl., og síð- an flutti sænski sendike'nnarinn fil lic. Áke Ohlmarks snjalt er- indi um Wennerberg og Glunt- arna. Rakti hann ævisögu Wenn- erbergs í aðalatriðum og lýsti viðhorfi hans ,til samtíðar sinnar, og ríkjandi lífsskoðana á þeim tímnm. Þá skýrði hann. frá því hvernig Bellman hefði orðið hin andlega fyrirmynd Wennerbergs, og hvernig Gluntarnir urðu til án þess að Wennerberg slepti sjeT lausum sjálfur, eins og Gluntarn- ir gæfi þó tilefni til að ætla. Á eftir erindinu sungu þeir Árni Jónsson frá Múla og Jakob Havsteen stud. jur. nokkra Gluntasöngva. Einnig sungu þeir með Kristjáni Kristjánss. og Jó- hanni Sæmundss. lækni eitt lag. Síðar sungu þeir Árni og Krístján bæði einsöngva og dúeftta. Var geTður að öllu þessu hinn besti rómur og söngmönnum ó- spart klappað lof í lófa fyrir ágæta skemtun. Fjöldi manna var á fundinum og margir nýir fjelagar bættus,t í fjelagið. Grænmetið er komið. Verslunin Vlsir. Tómar Gólfáburðardósir, (ekki skóáburðardósir), ógallaðar, undan Hreins- gólfábnrði, kaupnm við. H.f. Hreinn, Barónsstíg 2. Dagbók. Veðrið (þriðjud. kl. 17): Fyr- ir norðaustan land er alldjúp lægð en önnur við S-Grænland. Vind- ur er V-lægur á S- og A-landi en norðanstæður á N- og V-landi með jeljaveðri og 3—9 st. frosti. Á SA- og A-landi er víðast bjart- viðrí og 1—3 s,t. frost. Veðurútlit í Rvík í dag: Mink- andi N-átt. Ljettir til. Föstuguðsþjónusta í dómkirkj- unni í kvöld kl. 9,05. Síra Frið- rik Hallgrímsson. Fösituguðsþjónusta !í fríkirkj- unni í kvöld kl. 8^2» síra Árni Sigurðsson. Jón Gíslason framkvæmdastjórí í Hafnarfirði, kom með Islandinu frá útlöndum síðast. G.s. ísland kom í gærmorgun frá útlöndum. Kári er nú að útbúa sig á veið- ar og fer sennilega í dag. Hjónaefni. Einar Kristjánsson söngvari í Dresden og ungfrú Martha Papafoti opinbeTnðu trú- lofun sína í fyrri mánuði. Guðrún Hermannsdóttir frá Breiðabólsstað, nú á Fjölnisveg 1, er 70 ára í dag. Músikklúbburixm. Vegna liljóm- leika Tónlistarskólans í dag verð- ur konsert Músikklúbbsins hald- inn á fimtudaginn, þ. 19., kl. 9 í staðinn fyrir í kvöld. Nýir kanpendur að Morgunblað- inu fá blaðið ókeypis til næstkona- andi mánaðamóta. Fyrri nemendhljómleikar Tón- listaskólans verða haldnir í Gamla Bíó kl. 7,15 í kvöld. 12097 pakkar af fiski fóru með flutningaskipinu Grana í fyrra- kvöld frá útvegsbændum af Suð- urnetejum, en ekki 1297 eins og misprentaðist í blaðinu í gær. Tonita. Gamla Bíó sýndi í fyrsta skifti í gærkvöldi kvikmyndina Tonita rauða brúðurin. Kvikmynd þessi er skemtilég og vel leilrínt Sjerstaklega er rómaður leiláé* Sylvíu Sidney, sem leikur hlut- verk Indíánastúlkunnar, Tonita. Stórhxíð var á Siglufirði í gænt kvöldi og var alt að fara á kᣠí snjó. Farþegar með g.s. íslandi frá út- löndum vöru m. a.: Brynjólfnr Stefánsson vátryggingastjórí, Carl Tulinius forstj., Helgi Guðmunds- son bankastj. o. fl. Útvarpinu var boðið að senda frjettamann sinn á Siglufirði á borgarafundinn, sem þar var haíd- inn í gærkvöldi, til þess að geta flutt fréjttir af fundinum. En út- varpið þáði ekki boðið. Rjettur — Rjettleysi nefnist umræðuefni það, sem næsti Varð- arfundur tekur fyrir og verður Guðbrandur ísberg alþingism. frummælandi. Varðarfundurinn verður haldinn á fimtudaginn kemur í Varðarhúsinu og hefst klukkan 8V2. AUir Sjálfstæðis- menn eru vélkomnir á fundinn 'meðan húsrúm leyfir. Útvarpið: Miðvikudagur 18. mars. 7,45 Morgunleikfimi. 8,00 íslenskukensla. 8,25 Þýsknkensla. 10,00 Veðurfregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. ,, 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Erindi: Reglugerð um út- varpsrekstur ríkisins (Utvarps- stjórinn). 19,45 Frjettir. 20,15 Erindi: Þorskurinn og veT- tíðin, II (Árni Friðriksson fiski- fræðingur). 20,40 Hljómsveit útvarpsins (dr. Mixa) : Symfónía í e-moll, eftir Torelli. 21,05 Föstumessa í Dómkirkjumti (síra Friðrik Hallgrímsson). (Dagskrá lokið um kl. 22.05). sem er vön a<5 aka bíl, óskar eftír ajtviimu. Tilboð ruerbt; ,jBáll“, sendist A. S. i AÐALSTÖÐIN Sími 1383. Sími 1383. verður ekki hentugast að sldftft við okkur? Opið dag og nótt. Leiðrjetflng. Auglýsing sú frá okkur, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, um að við hefðum fengið kápur og útikjóla, hafði misritast. Vegna inn- flutningsörðugleikanna, höfum við því miður alls ekki sjeð okkur fært að flytja slíkt inn. Auglýsingin átti að hljóða svona: Nýlísku ullarefni Bjarni Guðmundsson hefir ann- ast leikstjórn, með aðstoð Lárus- ar Ingólfssonar, sem sá um leik- tjöld og búninga, og Hallgr. Backmanns, ljósameistara. Var frágangur leiksýningarinnar vand aður, og þökkuðu áhorfendur sýn- inguna með dynjandi lófataki. Að leiknum loknum voru leik- stjórinn og sönglagahöfundurinn hyltir. Nýreykl hangikjöt. í kápur, dragtir og útikjóla. C HI €. Virðingarfylst. Verslunin Chic. Allskonar grænmeti, ísl. rófur og kartöflur. Kiöthúðin Herðubreiö Hafnarstræti 18. Sími 1575. fil ssölti. Lítil útborgun og góðir skilmálar. Allar nauðsynlegar upplýsingar á Vesturbrú 15, Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.