Morgunblaðið - 18.03.1936, Blaðsíða 3
Miðvikudaginn 18. mars 1936
MORCrUN BLAÐIÐ
Siglfirðingarlmótmæla
atvinnukúgun sósíalista.
Skora á Alþýðusambandið að stofna
ópólitfskt landssamband verkamapna.
Fjölmennur borgarafundur.
SIGLUFIHÐI, ÞRIÐJUDAG.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
LMENNUR borgara-
fundur var haldinn hjer
1 dag að tilhlutan bæjar-
stjórnar.
Fundnrinn s,tóð yfir í 3 klst.
og var fundarsalurinn (í bíó)
troðfullur iit úr dyrum, en fjöldi
varð frá að bverfa.
Eftirfarandi tillögur voru af-
greiddar á fundinum:
Tiílaga Kommúnista.
Kommúnistar báru fram svo-
bljóðandi tillögu:
„Almennur borgarafundur hald-
inn að tilblutan bæjarstjórnar
Siglufjarðar 17. mars 1936 lýsir
yfir megnustu andúð sinni á
skoðanakúgun þeirri, sem hafin
er hjer í bæ af forystumönnum
verkamannafjelagsins „Þróttur"
með tilraunum þeirra til að bei,ta
atvinnukúgun við pólitíska and-
stæðinga. Fundurinn telur þessa
tilraun „Þróttar“ sjerstaklega
rangláta, þegar tekið er tillit til:
1. að hjer á staðnum er annað
fjölment verkamannafjelag,
,2. að „Þróttur“ er deild í póli-
tískum flokki og í fjelaginu hafa
engir full rjettindi, nema fylgj-
endur þess flokks, og
3. að fjelagið er ekki opið öll-
um vérkamönnum.
Ftmdurinn heitir á alla, sem
varðveita vilja lýðræðið í landinu
og hins einföldustu mannrjettinda,
að kveða niður og kæfa í fæðing-
unni allar ofbeldistilraunir sem
þessa, er beinKnis brýtur í bág
við rjettindi hins íslenska ríkis-
borgara samkv. 6. kafla stjórnar-
skrárinnar“.
Tillagan var samþykt með 182:
76 atkvæðum.
Tillaga Sjálfstæðismanna.
Sjálfstæðismenn báru einnig
fram tillögu, svohljóðandi:
„Fundurinn mótmælir harðlega
þeirri tilraun til atvinnukúgunar,
sem komið hefir fram hjá verka-
mannafjelaginu „Þróttur".
og skorar á Alþýðusamband
íslands, að gangast fyrir
stofnun landssambands vinnu-
fjelaga, þar sem allir vinnu-
seljendur hafi jafnan rjett,
án tillits til pólitískra skoð-
ana“.
Fyrri hluti tillögunnar var sam-
þyktur með 214:47 a,tkv. Síðari
hlutinn var samþyktur með öllum
greiddum atkvæðum og tóku um
250 þátt í atkvæðagreiðslunni.
Tillaga „Þrótts“.
Frá verkamannafjelaginu „Þróft
ur“ (sem sósíalistar stjórna) kom
svohljóðandi tillaga:
„Þar sem ekki verður um það
deilt ,að fyrsta skilyrði fyrir því,
að alþýðusamtökin geti náð til-
æ,tluðum árangri er það, að öll
hin vinnandi alþýða sameinist í
eina órjúfandi samtakaheild, og
þar sem jafnframt er vitanlegt að
stórkostlega mikill meirihluti alls
verkalýðs við sjávarsíðuna er
skipulagsbundinn innan vjebanda
Alþýðusambands íslands, skorar
fundurinn á allan vérkalýð þe'ssa
bæjar að hugsa meira um hags-
muni heildarinnar In dægurþras
og valdadrauma örfárra eins,tak-
linga og sýna það í verkinu með
því að fylkja sjer undir merki al-
þýðusamtakanna í landinu“.
Þessi tillaga var feld með 195:
76 atkvæðum. Jón.
Lömunarveiki
á Akureyri,
5 ára drengurdeyr.
AKUREYRI ÞRIÐJUDAG.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLAÐSINS.
T ÖMUNARVEIKI hefir
komið upp hjer á Ak-
ureyri.
Fimm ára gamall drengur, sem
kom hingað með Brúarfossi síð-
ast ér skipið var hjer á ferðinni
veiktist s. 1. laugardagsnóft af
lömunarveiki. Drengúrinn andað-
ist í dag.
Talið er að hann hafi smitast
um borð í Brúarfossi.
*
Fyrir nokkru var skýrt frá því,
að komið hefði upp lömunarveilii
á Einarsstöðum í Kræklingahlíð.
En nú hefir komið í ljós að þefta
var ekki lömunarveiki, heldur
illkynjuð hálsbólga.
Börnin þrjú, sem veik voru eru
öll orðin frísk. Kn.
Stjórnleysi
og glundroði
á Spáni.
Þar sem sósíalistar
ráða ríkjum.
Berlín 17. mars. FÚ.
Óeirðir kommúnista á Spáni
halda áfram. Bændur hafa ráð-
ist á jarðeignir sjálfs ríkisfor-
setans, til þess að skifta þeim
upp. Frá öllum hjeruðum Spán-
ar koma fregnir um nýjar ó-
eirðir. I Asturíu hafa verka-
menn hótað allsherjarverkfalli.
Síldveiðin við Faxaflóa og
við suðurströnd landsins.
Getur orðið arðvænleg atvinnugrein í fram-
tiðinni, ef vel er á haldið. ■
Þingiályktunarllllaga til þess
að tryggp* þessa atvinnugrein.
OLAFUR Thors og Pjetur Ottesen flytja til-
lögu til þingsályktunar um að tryggja síld-
veiðina í Faxaflóa og við suðurströnd landsins, í
framtíðinni. ""d
Tillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjómina að hlutast til um:
a. Að síldarútvegsnefnd úthluti að minsta kosti 1/3 hluta
verkunar- og útfíutningsleyfa á matjessaltaðri síld til skipa,
er síldveiði stunda í Faxaflóa og fyrir suðurströnd landsins,
ef nefndin ákveður að takmarka útflutning á síld, SCm
þannig er verkuð.
Að síldraútvegsnefnd rannsaki og geri tillögur um, hversu
best verði að öðru leyti hagnýttir síldveiðimöguletkar í
Faxaflóa og við suðurströnd landsins, og hafi hún birt álít
sitt og tillögur fyrir 1. júní næstk.
Sogsdeilan
lögðjdóm.
Málaflutningi
lauk í gær.
QERÐARDÓMURINN í
Sogsdeilunni kom sam-
an kl. 6 síðdegis í gær.
Eggert Claessen brm. lagði þar
fram framhaldssókn í málinu f. h.
verktaka. Uinboðsmaður verk-
lýðsfjelaganna, Guðmundur Ó.
Guðmundsson lagði einnig fram b.
framhaldsvörn.
Þessu næst fóru fram nokkrar |
bókanir frá báðum aðiljum fyrir
gerðardómnum. Þar með lauk mál-
flutningnum og var málið lagt í
dóm.
Ekki var hægt neitt ,um það að
segja í gærkvöldi hvenær vænta
mætti úrskurðar gerðardómsins í
deilunni.
HITLER sagði í ræðu í Frank
furt í fyrradag: „Jeg spyr þig,
þú þýska þjóð, vilt þú leggja
riiður gamlan fjándskap við
Érakka fyrir fult og alt?“ —
Kvað þá við „já, já“, um allan
fundarsalinn. (FÚ).
I greinargerð segir:
Síldveiðar í reknet hafa um
alllangt árabil verið stundaðar
í Faxaflóa, og hefir hinni sí-
auknu beitusíldarþörf hjer við
flóann nú upp á síðkastið verið
fullnægt með heimaveiddri síld.
En þegar fullnægt hefir verið
beitusíldarþörfinni, en það hefir
oft verið gert á tiltölulega stutt-
rim tíma, þá hefir veiðunum ver
)ið hætt, oftast seint í ágúst eða
fyrst í september þrátt fyrir
mikinn afla oft og löngum, og
hefir þannig aldrei verið á þáð
reynt fyr en á s.l. ári, hvað síld
veiddist hjer lengi fram eftir
hausti. En reynsla sú, sem þ)á
fjekst af síldveiðunum í Faxa-
flóa, sýndi það, að hjer í ffó-
anum og fyrir suðurströndinni
var gnægð síldar fram á nýár. fl
Það bendir því alt til þess,: áð
síldveiði í Faxaflóa sje nokkurri
veginn árviss og að reknetaveiði -.
bregðist þar ekki frá því í apríl
og fram eftir hausti. sblöiý
i't'tvjÞ
Faxaflóasíld nam áð
verðmæti um 2.5 milj.
kr. á s.l. ári.
Á s.l. ári mun nær htímiá^-0
þeirrar síldar, bæði að magnf
og verði, sem flutt vaV söltúðl
á erlendan markað, hafa vérlð'
veidd í Faxaflóa og við súður-
strönd landsins. • uxtiðetH
(Hjer eru feldar 1' búrtii
skýrslur, sem sýna, að flútt
hefir verið út á s.l. ári Fáxa-
flóasíld fyrir 2 milj. 455 þús.
kr. úr 10 verstöðvum, og það
hvernig síldin skiftist niðút5 á
markaðslöndin eftir verkunar-
aðferðum).
Eins og þessi skýrsla ber með
sjer, er það ekkert smáræðis-
verðmæti, sem hafst hefir upp
úr síldveiðunum í Faxaflóa Otg
við suðurströnd landsins á s.l.
ári, og hefir nú reynslan sýpt
það mjög greinilega, að sú skoð
un, sem uppi hefir verið um
það, að Faxaflóasíld væri ekki
útflutningshæf vara, er ekki á
neinum rökum reist. Að vísu
mun grófsöltuð Faxaflóasíld
tæplega eða ekki samkepnisfær
á sænskum markaði við síld,
sem veidd er við Norðurland,
og því ekki ráðlegt að verka
síldina þannig, ef nóg framboð
er af norðansíld, en aftur á
móti reyndist matjessöltuð Faxa
flóasíld vel.Bendir þessi reynsla
til þess, að síld úr Faxaflóa sje
fult eins vel eða betur fallin til
FRAMHALD Á SJÖTTU SÍÐU.
Þýskt herlið kemur til Rín 7. þessa mánaðar.