Morgunblaðið - 14.05.1936, Page 3
Fhntudaginn 14. maí 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Alþingi hefði felt
bráðabirgðalögin.
Samskonar lagaiMum neitað
i haustþinginu 1934.
Þin^ræðislirolið er
þvi alveg óhíræll!
f) að liggur fyrir yfirlýstur og skjalfestur þing-
vilji núverandi Alþingis um það, að stjórn
Síldarverksmiðja ríkisins skuli einmitt EKKI vera
skipuð á þann hátt, sem segir í bráðabirgðalögum
ríkisst j órnarinnar.
Bráðabirgðalögin um brottrekstur hinna þing-
kjörnu fulltrúa í stjórn verksmiðjanna, eru nú
komin fyrir almennings sjónir.
Manntjón og bátstapi
við Austurland.
Til þess að almenningur geti
sem best fylgst með þessu fá-
heyrða gerræði ríkisstjórnarinn-
ar, þykir rjett að birta hjer
bráðabirgðalögin í heilu lagi,
með ástæðum þeim, sem kon-
ungi hafa verið símuð með lög-
unum.
Bráðabirgðalögin eru svo-
hljóðandi:
Vjer Christian hinn tíundi o.
s, frv.
Gjörum kunnugt:
Með því að atvinnumálaráð-
herra Vor hefir þegnlegast tjáð
Oss, að tveir af hinum þing-
kosnu stjórnarnefndarmönnum
Síldarverðsmiðja ríkisins hafi
lagt niður umboð sín og að eigi
sje unt að fullskipa stjóm Síld-
arverksmiðjanna samkvæmt
núgildandi lagafyrirmælum, en
hinsvegar mjög nauðsynlegt að
stjórn þessa stóra ríkisfyrir-
tækis sje jafnan fullskipuð og
að því sje óhjákvæmilegt að
breyta til um fyrirkomulag á
skipun verksmiðjustjórnarinn-
ar og þyki þá af ýmsum ástæð-
um hentast að stjórnarnefndar-
menn sjeu að eins þrír, teljum
Vjer brýna nauðsyn bera til
þess að setja samkvæmt 23. gr.
stjórnarskrárinnar bráðabirgða
lög til þess að ráða bót á þess-
um vandkvæðum.
Fyrir því bjóðum Vjer og
skipum:
1. gr. 1. málsgrein 4. gr. laga
nr. 14, 9. janúar 1935 orðist
þannig:
Stjórn Síldarverksmiðja rík-
isins skal skipuð þrem mönnum,
sem atvinnumálaráðherra til-
nefnir til þriggja ára í senn, í
fyrsta sinn þó að eins til árs-
loka 1937. Á sama hátt skipar
ráðherra þrjá varamenn í
stjórnina til jafnlangs tíma.
Ráðherra skipar formann og
yaraformann stjórnarinnar.
2. gr. I stað orðsins „þrír“ í
3. málsgr. sömu lagagreinar
komi: tveir. ,
3. gr. í stað orðsins „þriggja"
í niðurlagi 4. málsgreinar sömu
íagagreinar komi: tveggja.
4. gr. Lög þessi öðlast þegar
gildi og skipar ráðherra stjórn
síldarverksmiðja ríkisins sam-
kvæmt þeim þegar eftir gildis-
töku þeirra. Fellur þá jafn-
framt niður umboð allra nú-
verandi stjómarnefndarmanna.
Eftir þessu eiga allir hlutað-
eigendur sjer að segða.
ÁstæÖan.
Brosleg er ástæðan, sem at-
vinnumálaráðherra færir fram
fyrir þessu fáheyrða þingræðis-
broti.
Ástæðan er sú, að tveir hinna
þingkjörnu fulltrúa í stjórn
verksmiðjanna hafi lagt niður
umboð sín, og þess vegna sje
ekki unt, að „fullskipa“ stjórn
verksmiðjanna.
Ursögn tveggja fulltrúanna
á m. ö. o. að rjettlæta það, að
umboðið sje með valdboði tek-
ið af báðum hinna þingkjörnu
fulltrúanna, sem eftir eru í
stjórninni.
Ráðherrann segir, að vegna
úrsagnar þessara tveggja full-
trúa, sje ekki unt að fullskipa
í stjórn verksmiðjanna sam-
kvæmt gildandi lögum.
Auðvitað er þetta bull og
vitleysa. Báðir fulltrúarnir, sem
sagt hafa sig úr stjórninni eru
kosnir af stjórnarflokkunum.
Þess vegna var það flokks-
stjórnanna að tilnefna menn í
þeirra stað og hefði enginn
haft neitt við það að athuga.
En þessi ástæða, úrsögnin,
er aðeins tylliástæða. Fulltrúar
stjórnarflokkanna hafa ekki af
frjálsum vilja sagt sig úr stjórn
verksmiðjanna — heldur var
þeim fyrirskipað að leggja nið-
ur umboð sín. Einræðisstjórnin
notar þá aðeins sem verkfæri
til þess að geta traðkað á þing-
ræðinu.
Þingviljanum
traðkað.
Lög þau, sem ríkisstjórnin
hefir hjer breytt með bráða-
birgðalögum, eru ekki gömul.
Anthony Eden ræðir við blaðamenn í liliðargöngum
Þjóðarbandalagshallarinnar í Genf.
Sænska sósíalista-
stjórnin völt f sessi.
Talin munft falla
Á laugardaginn.
KAUPMANNAHÖFN 1 GÆR.
EINKASKEYTI TIL MORGUNBLAÐSINS.
SÆNSKA blaðið „Nya Dagligt Allahanda*
gerir ráð fyrir að sósíalistastjórn Per Albin
Hanson í Svíþjóð, falli næstkomandi laugardag.
Stjórnarandstæðingar höfnuðu hrossakaupa-
tilraun stjórnarinnar um það, að ellistyrkir yrðu
hækkaðir um leið og nýrri skipun yrði komið á
strandvarnirnar.
ii
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
í þessari tilraun stjórnarinn-
ar kemur skýrt í ljós hversu
ríka áherslu sósíalistar
leggja á að beina þunga-
miðju stjórnmálanna frá
landvarnamálunum að f je-
lagsmálum.
Kosningar framundan.
Kosningar eiga að fara fram
í Svíþjóð í haust og sósíalistar
eru hrædcjir við að missa fylgi
á afstöðu sinni til landvarna-
málanna.
Þeir telja f jelagsmálin heppi
legri til kosningaáróðurs í
sumar.
Umræður um landvarnamál-
in eiga að fara fram í Ríkis-
deginum á laugardaginn, og er
gert ráð fyrir að stjórnin verði
að fara frá að umræðum lokn-
um. Páll.
Þrjá menn tók út -
einn druknaöi.
Ágætis gróður er koniinn á Aust-
urlandi, segir í símskeyti frá
frjettaritara Mbl. á Norðfirði. —
Enda skiftist þar 4 regn og hiti
daglega.
NORÐFIRÐI, MIÐVIKUDAG.
EINKASKEYTI TIL
M ORGUNBL AÐ^INS.
T veðurofsanum Austan-
A lands í fyrrinótt misti
vjelbáturinn „Hekla“ út
þrjá menn, en tókst að
bjarga inn tveimur þeirra.
Þriðji maðurinn, Ólafur
Tryggvason, druknaði.
Skipstjóri á „Heklu“ er Einar
Björnsson.
Veðrið skall á svo sltyndilega að
allii' bátarnir frá Fáskrúðsfirði
töpuðu meirihlutanum af lóðum
sínum og sumir öllum.
A mánudaginn var iafli sæmileg-
nr og komn bátar til Fáskrúðs-
fjarðar með 7—9 skpd.
Thulin.
-----<m>——
Aftaka suð- *
austanrok:
Bátur með fjögra
manna áhöfn
týndur,- »
REYÐARFIRÉfí f GÆR.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBEÁÐ6INS.
A ttast er um vjelbátinn
Kára frá Fáskrúðsfirði
með fjögurra manna áhofn.
Gerði aftaka rok af ( syð-
austan, Austanlands í fyrri-
nótt og stóð alla nóttina. —
Veðrið var svo mikið , að
gamlir fiskimenn telja að
það hafi verið annað versta
veðrið, sem þeir hafi lent í.
Veðrið hefir og valdið mann-
tjóni og sennilega bátstapa.
Vjelbáturinn „Kári“ jjrá Fá-
skrúðsfirði fór á veiðar á mámi-
dagskvöldið kl. 11, en síðan hefir
ekkert til hans spurst.
Var báteins leiiað í nótt og í dag
og tóku 7 hátar þátt í leitinni.
Þeir era nú komnir að landi og
hafa einskjs orðið varir.
Er því tabð aS báturinn hafi
farist með allri áhöfn., Skipverjar
á bátnum vorn :
Jón ÁsgrímSson, skipstjóri.
* Guðni Guðmundsson, vjelstj.
Ágúst Lúðvíksson, lváseti.
Guðmundur Stefártóson, háseti.
Thulin.
Norðfirðingar
tapa veiðarfær-
um í fárviðri.
NOIŒFIRÐI, MIÐVIKUDÁG.
EINKASKEYTI TIL
MORGUNBLÁhSINS.
N okkrir bátar rjeru, h j eðan í
' # ,1J. VPl’í . ■
fyrrinótt, en náðu allií'. landi und-
an suðvestanrokinu. Síðj^ti bMur-
inn kom að um miðnætti, v
Línutap hefir .orðijS
bátum, „Þór“ tapaði- 16 Mþióðipp»
,Magni“ 24, „Hilmir“ 9 0g „Bjöjn-
inn“ 10 bjóðum.
-IjS<
Tveir Akureyringar, sem verið
hafa við sjóróðra í vetur koiáu
fyrir nokkru hingað til |j}æjargis-
Þeir tóku sjer gistingu á (Hótel
Heklu. Annar þeirra fjelaga hafði
unnið sjer inn 185 krónur en hinn*
var snauður eftir vertíðina. —■ ^
fyrradag varð sá, sem pi'niiignna
átti, var við að 50 krónur höfðu
liorfið úr peningaveski hans. Þeg-
ar lögreglan hafði rannsakað málið.
kom í Ijós að hinn alslausi i'jelagi
mannsins hafði stolið 59 krónun-
um. Dómur var kveðinn upp í
máli hans í gær og va>' hann
dæmdur í 15 daga fangelsi, skil-