Morgunblaðið - 24.06.1936, Qupperneq 4
MO&GUNBLAÐIÐ
MsðvikHdaginn 24. júní 1936.
WTW** 1*-: ‘'iV,V-.H WIY'JVVWMJSflV* S- • . rjfflBWWW—
Stórstúka íslands er 50 ára í dagf.
»9
Aðílutningsbann á
með vafasömum
t.utiifií ';n
áfengi er þýðingarlitið
þjóðar meirihiuta".
„Bruggið fer
þverrandi í kaupstöðum“.
§amfal við stóflemplaf
Ffiðrik Á. Biekkan.
Idag er 50 ára afmæli Stórstúkuimar. í því
tilefni hefir hlaðið átt tal við Friðrik Á.
Brekkan. Hann hefir verið stórtemplar tvö síð-
ustu árin, og jafnframt er hann umsjónarmaður
stjórnarinnar um áfengismál.
Það hefir náttúrlega
margt borið við hjá
Reglunni á síðustu 50
árum og margs að
minnast segir stórtempl-
ar. Um stofnun Stór-
stúkunnar vil jeg segja:
Stórstúka Islands var stofnuð
í Alþingishúsinu 24. júní 1886,
þá hafði Alþjóða Regla Góð-
templara starfað hjer á landi
í rúmlega tvö ár eða síðan 10.
jan. 1884, og hafði fengið tals-
verða útbreiðslu, einkum fyrst
til að byrja með á Norður- og
Vesturlandi. 3. júlí 1885 var
stúkan „Verðandi“ stofnuð í
Reykjavík og litlu síðar „Morg-
unstjarnan“ í Hafnarfirði,
,,Framtíðin“ í Reykjavík, og
,,Eingingin“ líka í Reykjavík.
Allra fyrsta stúkan, sem hjer
var stofnuð, ,,ísafold“ á Akur-
eyri mun fyrstu mánuðinp hafa
verið undir vernd Stórstúku
Noregs, sem þá var nýlega til-
orðin, og var stofnandi stúk-
unnar Norðmaðurinn Ole Lied
umboðsmaður stórstúku sinnar
hjer á landi. En brátt eftir að
stúkum fjölgaði tók Ásgeir Sig-
urðsson, síðar ræðismaður
Breta, við yfirstjórn Reglunnar
hjer á landi, sém umboðsmað-
ur Alþjóða Hástúkunnar. Strax
eftir að Reglan tók til starfa
hjer sunnan lands mun braut-
ryðjendunum hafa þótt tími til
kominn, að hún fengi sína eigin
innlendu yfirstjórn. Er talið að
skáldin Jón Ólafsson og Indriði
Einarsson ásamt fleiri merkum
mönnum hafi átt mestan þátt í
því. Upp frá því hefir Stórstúk-
an verið miðstjórn og mið^töð
hindindishreyfingarinnar hjer
á landi.
Margir — eða jafnvel flest-
ir af stofnendum Stórstúkunnar
voru þá eða urðu síðar þjóð-
kunnir menn á ýmsum sviðum.
Mest ber þar, eins og vonlegt
er á Reykvíkingum, en það er
þó næstum því undravert, eins
og samgöngum þá var háttað,
að hingað til bæjarins voru
einnig komnir menn úr f jarlæg-
um hjeruðum og landshlutum,
f. d. vestan af fjörðum og af
Norðurlandi — alla leið af
Húsavík, sýnir það eitt út af
fyrir sig að áhugi hefir verið
mikill.
I fyrstu framkvæmdanefnd
Stórstúkunnar voru: Björn
Pálsson Ijósmyndari, sem þá
var víst fluttur hingað, en hann
var einn af þeim tólf, sem
stofnuðu Regluna á Akureyri,
og var stofnandi fyrstu stúkn-
anna hjer sunnanlands, það var
því ekkert undarlegt, að hann
var fyrstur kjörinn formaður
Reglunnar hjer á landi eða
Stór-Templar. Þá voru Jón Ól-
afsson skáld, Indriði Einarsson
skáld, Þórhallur Bjarnarson síð-
ar biskup, Magnús Einarsson
organleikari, sem þá var á
Húsavík, síra Magnús Bjarnar-
son síðar prófastur á Prest-
bakka, Sigurður Jónsson fanga-
vörður, Friðbjörn Steinsson bók
sali á Akureyri, Sigurður And-
rjesson, ísafirði, (faðir Ásgeirs
Sigurðssonar), Gestur Pálsson
skáld, og Skúii Thoroddsen. —
•Meðal annara fyrstu starfs-
manna má; nefna síra Þórð Ól-
afsson síðar prófast á Söndum
og Magnús Sigfússon Blöndahl
alþm. Síðan hafa verið stór-
templarar Jón Ólafsson skáld,
Guðl. Guðmuncjsson bæjarfó-
’geti (’86—’88), Ólafur Rosen-
kranz kennari 1891—1897,
Indrioi Einarsson skáld 1897—
1903, og aftur 1913—15, Þórð-
ur Thoroddsen læknir 1903—
11, Jón Pálsson bankafjeh.
1911—13, Guðm. Guðmunds-
son skáld 1915—17, Pjetur
Halldórsson borgarstj. 1917—
21, Þorv. Þorvarðarson prent-
smiðjustj. 1921—1923. Einar
H. Kvaran skáld 1923—1924,
Brynleifun Toþíasson kennari
1924—27, Sigurður Jónsson
skólastj. 1927—29, Páll J. Ól-
afson tannlæknir 1929—30.
Pjetur Zophoníasson ættfr.
1930—31. Sigfús Sigurhjartar-
son kennari 1931—1934 og svo
Friðrik Á. Brekkan, sem er það
nú.
— Hvernig hefir meðlima-
fjöldinn verið?
— Mestuj* var hann 1928, þá
voru í undirstúkum 6749 fje-
lagar og í barnastúkum 4625,
eða alls 11374. Nú eru fjelag-
arnir 2736 í 42 undirstúkum
Tilvonandi
forseti
Bandaríkjanna?
Hvað líður kærunni á
hendur forstöðumanni
áfengisverslunarinnar?
T. h. er landsstjórinn í Kansas, Alfred M. Landon, sem
verður í kjöri gegn Roosevelt í haust.
og 3107 í 46 barna- og ung-
lingastúkum, eða alls 5843.
— Hvernig hefir starfið ver-
ið rekið fjárhagslega?
— Á þessum árum hefir Stór
stúkan haft alls í ríkisstyrk
160 þús. kr., skattar og annað
frá undirstúkum verið 161 þús.,
gjafir 80 þús., seldar bækur o.
fl. 47 þús. kr. eða alls 448 þús.
kr., en gjöldin hafa verið Reglu
boðun 187 þús. kr. Fræðslu-
starf 46 þús., Blaðið 40 þús.,
Banngæsla 18 þús. Skrifstofa,
ferðakostnaður fulltrúa o. fl.
137 þús. Styrkir til húsbygg-
inga 20 þús., eða alls 448 þús.
kr. Eins og sjá má af þessu,
hefir meir en öllum ríkisstyrk
verið varið til regluboðunar og
hjer aðeins að ræða um það
fje, sem stórstúkan hefir með
höndum.
Mjer telst svo til, sagði stór-
templar, að auk þessa hafi aðr-
ar deildir reglunnar lagt fram
um íy^ miljón króna í beinum
fjárframlögum til starfsins og
er þá ekki talin vinna fyrir
regluna, sem einstaka menn
hafa int af hendi.
Eins og allir sjá, mælti stór-
templar, er hjer um mikið starf
að ræða, og hafa margir lagt
þar hönd á'plóginn án nokkurs
endurgjalds. Af þeim, sem hafa
átt sæti í yfirstjórn Reglunnar
hjer, auk fyrgreindra stór-
templara, vil jeg nefna Halldór
Jónsson bankafjehirðir, Björn
Jónsson ritstjóra, Harald Ní-
elsson prófessor, Borgþór Jó-
sefsson bæjargjaldkera, David
Östlund ritstj., Jónas Helgason
organista, Árna Eiríksson kpm.
og Ólafíu Jóhannesdóttur.
Af þeim, er starfað hafa að
yfirstjórn barnastúknanna má
nefna Sig. Júl. Jóhannesson
lækni, sem stofnaði fyrsta
barnablaðið Æskuna, JónÁrna-
son prentara, Guðrúnu Jónas-
son kaupm. og Magnús V. Jó-
hannesson fátækrafulltrúa.
— Hefir stórstúkan ekki haft
fleira en útbreiðslustarf bind-
indis með fundahöldum?
Jú, segir stórtemplar. Hún
gaf út blöð alt frá stofnun
hennar og til 1936. Á meðal
ritstjóranna vil jeg nefna Jón
Ólafsson, Björs Jónsson og Sig-
urð Jónsson skólastj. og Pjetur
Zophoníasson.
Annars hafa verið flest ár
í stjórn stórsútkunnar: Indriði
Einarsson 32 ár, Jón Árnason
24, Pjetur Zophoníasson 20 ár,
Borgþór Jósefsson 18 ár og Jó-
hann Ögm. Oddsson 17 ár, en
tveir þeir síðasttöldu hafa verið
stórritarar hver í 16 ár.
Þetta er nú um sögu Regl-
unnar, segir stórtemplar, og
hvers viltu spyrja frekar.
Og margt er það, er spyrja
mætti.
Hvaða áhrif hafði afnám
bannlaganna á starf Reglunn-
ar?
Jeg Iít svo á, segir stórtempl-
ar, að það hafi haft þær af-
leiðingar, að minni áhersla sje
lögð í gæslu laga en áður var,
en þeim mun ákveðnari bind-
indisskoðun.
— Er meira drukkið en áður
var?
— Já, drykkjuskapur hefir
vaxið. En því meir drykkju-
skapur eykst, verður Iíka meiri
árangur af bindindisstarfi að
því leyti að fjelögum fjölgar.
— Hvað er að segja um
bruggið?
— Eftir því, sem löggæslu-
mennirnir segja mjer, þá er það
mikið þverrandi í kaupstöðun-
um, einkum þó í Reykjavík og
þar í grend, þó það komi þar
fyrir, en í sveitum landsins á
það sjer víða stað, þó sennilega
minna til sölu, en áður var.
— Hvað er að segja um á-
f engisvarnanef ndirnar ?
— Jeg tel, segir stórtemplar,
að þær sjeu eitt merkasta atrið-
ið í núverandi löggjöf, til að
reyna að koma í veg fyrir of-
nautn áfengra drykkja, en eft-
ir þetta hálfa ár er ómögulegt
að dæma um þær.
— Hvað líður kæru áfengis-
varnanefndarinnar í Reykjavík
á forstöðumann Áfengisversl-
unarinnar?
— Jeg veit ekkert um hana,
segir stórtemplar, annað en
hún var send til lögreglustjór-
ans. Hver nefnd starfar alveg
sjálfstætt og því er mjer ekki
kunnugt um það. Hún getur
aldrei orðið takmark, heldur aS
eins meðal, og ef vel tekst
kröftugt meðal. Það þarf al-
menna bindindisfræðslu og al-
gilda menningarstarfsemi, segir
stortemplar.
— En hvað er þá um bann-
ið? Tekur stórstúkan það strax
upp?
— Jeg er bannmaður, segir
stórtemplar, en jeg tel að ekki
komi til máia að taka upp bann
starfsemi næstu ár, þótt full-
komin útrýming áfengra
drykkja til neysiu sje og verði
stefnuskrármál templara. En
eftir þeirri reynslu, er fekkst
af bannlögunum, tel jeg það
sýnt að þýðiiigarlítið sje að
koma upp banni á áfengi með
vafasömum meirihluta þjóðar-
innar, auk þess hygg jeg að
eins og verslunarháttum þjóð-
arinnar er nú hagað, þá sjeu
minni líkindi fyrir hreinu banni
en var, að halda þeim óbreytt-
um, er Spánarundanþágan var
gerð. Jeg vil ennfremur taka
það fram, segir stórtemplar, að
jeg tel mjög erfitt að halda
uppi bannlögum á meðan ná-
grannalönd vor og -viðskifta-
lönd taka ekki upp einhverja
svipaða löggjöf. En, heldur stór
templar áfram, með vaxandi
andlegum þroska, er jeg sann-
færður um að aftur koma bamr
lög á áfengi eða önnur jafngild
löggjöf. Og, segir stórtemplar,
einstakir menn, hvort heldur
eru templarar eða aðrir, þeir
geta unnið að banni eins og
hverju því öðru, sem þeir telja
þjóðinni til heilla.
— Hver verða hátíðahöld
Reglunnar í tilefni af 50 ára
afmælinu?
— Það verður samsæti í Odd
fellowhúsinu, sjerstök minning
í Stórstúkunni og svo verður
almennur bindindisdagur um
alt land næstkomandi sunnu-
dag. ’