Morgunblaðið - 24.06.1936, Síða 7
Miðvikudaginn 24. júní 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
Guðni Hjörleifsson
hjeraðslæknir
í Vík í "Mýrdal andaðist á Lands-
spítalanum síðdegis í gær.
Hann kendi lasleika í byrjun
maímánaðar. Var síðan fluttur í
ajúkrabíl hingað til Reykjavíkur,
því læknar, sem hans vitjuðu,
voru í vafa xim, hvað að honum
gekk. Eftir nákvæma rannsókn
hjer kom í ljós, að sjúkdómur
hans var ólæknandi.
Hann var síðustu dagana all-
þungt haldinn.
Þessa vinsæla læknis og ágæta
manns verður getið nánar hjer í
blaðinu síðar.
Valur og
úrvalsliðið 4:2.
Yal«ir vel kominn
að sigrinam.
Bændur f Reykjadal
gerðu verkíall
i sýsluvegavinnu,
Mótmæltu verk
stjóranum.
Húsavík, þriðjudag.
XJændur í Reykjadal gerðu
verkfall við aðgerð sýslu-
vegar í dalnum. 40 menn stofn-
uðu fjelag, sem gekk í Alþýðu-
samband Island og naut styrks
þess í verkfallinu.
£’ Ástæðan til verkfalisins var
sú, að nýr verkstjóri, Sigfús
Jónsson, var af vegamálastjóra,
áð tilhlutan ríkisstjórnar skip-
aður yfir meirihluta vegarins
í hreppnum.
Bændur töldu sinn ganila
verkstjóra, Hjálmar Jónsson,
Ljótsstöðum ekkert hafa til
saka unnið, en Sigfús ekki
starfinu vaxinn.
Bíll fór hjeðan í morgun
hlaðinn mönnum til aðstoðar
fjelagsskap Reykdæla.
Samningar hafa nú náðst við
vegamálastjóra þannig, að Sig-
fús hætti verkstjórn í kvöld og
Hjálmar haldi áfram verk-
stjóm í sumar. En eftirleiðis
verði opinber vinna í Reykja-
dal framkvæmd í samráði við
oddvita hreppsins, Björn Sig-
tryggsson. Egill.
Kappleikurinn milli Vals og ,úr-
vals‘-liðsins fór þannig, að Valur
sigraði með 4:2.
„Urvals“-liðið var þannig skip-
að, að 4 menn vantaði af þeim,
sem í liðinu áttu 'að vera. Þessir
menn vorn: Jón Sigurðsson og
Jón Magnússon (úr Fram), sem
ekki gátu mætt vegna lasleika.
Ennfremur Sigurjón Jónsson úr
K. R., sem einnig- tilkynti forföll.
Tvo inenn vantaði enn, þá Þorst.
Einarsson og Gísla Gnðmundsson
(úr K. R.), sem skoruðust undan
að spila. (Hver var ástæðan?)
Leikurinn hyrjaði stundarfjórð-
ungi eftir anglýstan leiktíma og í
byrjun Ijeku aðeins 9 menn í úr
vals-liðinn, enda bar fljótt á yfir-
burðum Vals.
Leikurinn var allfjörugur og
sæmilega leikinn, þó betur af
VaL Valur var vel kominn að
sigrinum.
Fyrri hálfleik lauk með sigri
Vals, 2:1 og síðari hálfleik
einnig 2:1.
Ahorfendur voru margir,
vonbrigði urðu mikil að keppend-
ur skyldu ekki allir mæta. Er það
vítavert, ef engin ástæða er fyrir
hendi.
Dómari var Guðjón Einarsson.
ísfirðingar veittu K. R.
góðar viðtökur.
K. R. 3. fl., er nú kominn
heim úr ísaf jarðarför sinni. —
Róma þeir mjög móttökur ís-
firðinga og segja þær með af-
brigðum góðar. Aftur á móti
voru þeir hinir harðsnúnustú
þegar á knattspyrnuvöllinn
kom, og sigruðu K. R.inga í
báðum leikjunum. Þann fyrri
með 3—1 og þann síðari með
2—0. Hafa .ísfirðingar mörg
góð knattspyrnumannsefni í
þessum aldursflokki, enda
vinna þeir Reykjavíkurfjelög-
in hvert sumarið eftir annað,
svo það lítur út fyrir að það
verði ekki Iangt að bíða að þeir
fái vel sambærilegan 1. aldurs-
flokk við bestu fjelögin hjer. X.
Valsmenn fara
til ísafjarðar. -
Knattspyrnufjelagið Valur fer
boði íþróttaráðs Vestfjarða til
ísafjarðar með Goðafossi í kvöld,
og keppir við úrvalslið ísfirðinga
Gert er ráð fyrir að keppa 2 eða
3 leiki.
í förinni verða þessir 16 menn
úr Val: Hermann Hermannsson
Sigurpáll Jónsson, Grímar Jóns
son, Sigurður Ólafsson, Sigurður
Steinsson, Guðm. Sigurðsson
Hrólfur Benediktsson, Egill Krist
björnsson, Jóhannes Bergsteins
son, Ellert Sölvason, Björgólfur
Baldursson, Gísli Kjærnested
Magnús Bergsteinsson, Þórir Berg
steinsson, Kristján Kristófersson
og Þórarinn Þorkelsson.
Heim koma Valsmenn aftur
með Goðafossi 30. þ. m.
Dagbók.
K. F. U. M. Vatnaskógur. —
Akveðið er, að 3 sumardvalaflokk-
ar fari í Vatnaskóg í júlí eins og
undanfarin sumur, 2 viknflokkar
og 1 tíudaga-flokkur. Þeir, sem
ætla að verða í 1. flokki, sem fer
3. júlí, og ekki hafa gefið sig fram
ennþá, verða að gera það fyrir 27.
þ. m. Drengir geta látið skrifa sig
í flokkana á hverju kvöldi kl. 8
—9 þessa viku, í húsi K. F. U. M.
Kaffisamsæti hjeldu nokkrar
konnr á laugardaginn var í Odd-
fellovvhúsinu, til minningar um að
50 ár eru liðin síðan þær vorn í
Kvennaskóla Reykjavíknr.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ,
afh. af Sn. Jónssyni áheit frá N.
N. 1 króna, frá Sigurjóni Björns-
Veðrið í gaar (þriðjud. kl. 17) :
Fyrir sunnan ísland og yfir land-
inu er hæð, en grunn lægð yfir
Grænlandi á liægri hreyfingu NA.
Vindur er hægur hjer á landi,
lokuveðnr og dálítil súld, sums-
staðar vestanlands með 9—12 st.
hita, en 11—15 st. á N- og A-
landi og þurt veður. Á A- og SA-
landi er víða bjartviðri, og hiti er
20—22 st. á Fagurhólsmýri og
Kirkjubæjarklanstri.
Veðurútlit í Rvík í dag: Hæg
SV-átt. Dálítil rigning eða súld.
Fjelagið Germanía hjelt skemti-
fund síðastliðið mánudagskvöld
og bauð þangað prinsinum af
Waldeck og Þjóðverjum þeim, er
hjer hafa verið á ferð með honum.
Formaður fjelagsins, Knútur Arn-
grímsson, ávarpaði gcstina með
snjallri ræðu og mælti á þýska
tungu. Karlakór Reykjavíkur und
ir stjórn Sigurðar Þórðarsonar
söng nokknr lög, þar á meðal
þjóðsöngva Þýskalands og Is-
lands. Hafði prinsinn orð fyrir
gestunum og þakkaði móttöknm-
ar og lýsti ánægju sinni yfir
þeirri viðkynningu, er þeir liefðu
fengið af landi og þjóð. Loks var
stiginn dans fram yfir miðnætti
Skátadrengir. Eins og ykkur er
kunnugt, stendur nú landsmót ísl.
skáta yfir á Þingvöllum. Þeir
skátar, sem eru í bænum, hafa á
kveðið að heimsækja skátana fyr-
ir austan um næstu lielgi. Þátt-
taka tilkynnist til deildarforingj-
ans fyrir fimtudagskvöld. Skátar !
„Skundum á Þingvöll og treyst-
um vor : heit“.
Heiðursmerki. Magnús Pjeturs-
son bæjarlæknir hefir verið sæmd
ur heiðursmerki Raúða Krossins
þýska. »
Farþegax n*eð Gúllfossi iSi út-
landa' í gær: Dr. Heígi Tóinassonl,
Þorsteinn Þorstcinsson, Frú Ólöf
Nordal, Arthur Gook, frk. Marí-
grjet Hjaltested, frk. Elly Þorláks
son, frú Storr með dóttur, Laugfe
Koch, frk. Margíjet Borghild Haf-
stein, frk. Helga Jóhannsdóttir,
frú Petra Jónsdóttir, frú Jórunn
Grímsdóttir, frk. Ágústa Þorkels-
dóttir, Jóhann Þorkelsson læknir,
Guðm. Daníelsson, Þórarinn Þór-
arinsson, Garðar Þorstéinsson
fiskifr. og fjöldi útlendinga.
Háskóli íslands. Misprentast
hefir í blaðinu í gær, að kensla í
háskólanum byrji í haust 1. sept
Háskólinn hefst í haust og fram-
vegis 15. septemher, eða 2 vikum
fyr en hingað til hefir verið.
Vigfús Gestsson járnsmiður
Hafnarfirði verður 75 ára í dag
Gullbrúðkaup áttu 18. þ. m
þau Sigríður Hallgrímsdóttir og
Hallgrímur Níelsson á Grímsstöð
um í Mýrasýslu. Sóttu þau heim
vinir og ættingjar, nær 100
manns, sem færðu þeim skrautrit
að ávarp, ásamt heiðnrsgjöf, und
irritað af 140 manns, viðstöddum
og fjarstöddum. Dagurinn leið við
laum og gleði. Hafði hálfur kjall
ari liússins verið klæddur innan
og gátu setið þar í einu að snæð
ingi 60—70 manns. Bóndinn þar
Tómas, sonnr hjpnanna, bauð
gesti velkomna. Undir borðum
fluttu síðan ræður af gestanna
hálfu: Bjarni Ásgeirsson alþingis-
maður, er mælti fyrir minni lieið-
ursgestanna, Hallgrímur Sveins-
son, Guðmundur Björnsson sýslu-
maður, Ásgeir Bjarnbórsson og sr.
Björn Magnússon. Úr því klukkan
var 2 um nóttina hjeldu margir
gestanna lieim, en sumir biðu
næsta dags. Þau Sigríður og Hall-
grímur eru bæði við góða heilsu
Athiigfð breytiogana.
Símanúmerin við verslun míiia eru:
1491 (3 línur). f
Verslunin No. 1491
Kristján Zoega — 1493
Sig. Þ. Skjaldberg — 1494
heimasími — 2991
Sig. Þ. Skfaldbérg.
Búðugler.
Höfum venjulega fyrirliggjandi rúðugler einfalt og
tvöfalt, einnig 4,5 og 6 mm. „v
EggErt Krlstjánssan B Co.
syni 10 krónur. — Með þakklæti
móttekið. — Guðm. Gunnlaugsson.' og hin unglegustu.
Vörubíll til sðla
(Ford IV2 tons). Bíllinn er í ágætu standi og á nýjum
éúmmíum. — Tækifærisverð.
Rögnvaldur Sveinbjörnsson
íþróttakennari.
Bergþórugötu 9. Sími 4242 frá kl. 12y2—2 og eftir
kl. 8.
Timburversiun
P. W. Jacobsen & S6n.
Stefnoð 1824.
Símnefm: Gmnfnro — C«4-Lrad(gada, Kilkeebavn G.
Selur timbur i stserri og nawrri to&pn frá Kaup-
mannakofn. — Eik til tkipasndSk. -— Ehflg Itcila
frá S^tjó*.
i meir m 8® ár.
Hefi verslað við
• •
• •
• •
• •
• •
• •
•,*
•»
• •
• •
::
••
• •
••
••
*•
••
••
• •
• •
• •
• •
• •
• •
::
• •
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
mtfiqt
Aðalfundur í. S. í. byrjar a
morgun og hefst kl. 8% í Odd-
fellowhúsinu. Fulltrúar eiga að
mæta með kjörbrjef.
Brúðkaup sitt hjeldu síðastlið-
inn laugardag ungfrú María Thor-
lacíus og Kristján Sveinsson augn-
læknir.
Silfurbrúðkaup eiga í dag Hlíf
Skúladóttir Hansen og Valdemar
Hansen forstjóri.
Esja var tekin úr Slipp í gær
og leggur af stað áleiðis til Glas-
gow á föstudaginn kemur.
Eimreiðin, II. hefti þ. á., apríl
— júní, er komið út. Efni er m. a.:
Jón Gauti Pjetursson: Er ættar-
kjarna sveitafólks hætta búin ?
Kristmann Guðmundsson: Um ný-
ustn bókmentir Norðurlanda;
Steindór Steindórsson: Blaða-
menska Matthíasar Jochumssonar,
og margt fleira, bæði ritgerðir,
kvæði og sögur.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ,
frá Gesti 50 kr.
Útvarpið:
Miðvikudagur 24. júní.
10.00 Veðurfregnir.
10.15 Messa í Fríkirkjunni. Sett
stórstúkuþing (sr. Björn Magn-
ússon).
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðnrfregnir.
19.20 Erindi: Stórstúkan-. 50 ár
(Friði'ik Á. Brekkan Stórtempl-
ar).
19.45 Frjettir.
20.15 Upplestur og hljóðfæraleik-
ur.
21.15 Hljómplötur: a) Norræn
sumarlög; b) Gamlir dansar (til
kl. 22).
Athlets er ekki ávalt í góðu
skapi í símanum, það getur
mörgu verið um að kenna.
Fáir eru í góðu skapi, sem
líður illa í maganum.
Það er örugt ráð við heil-
brigðan maga að láta hann
hafa mátulega mikið að
gera, við að melta.
Einhver hollasta fæðan, sem
maginn fær við að odíma er
ALL-BRAN. — Neytið þess
daglega í mjólk eða rjóma,
engin suða nauðsynleg.
Fæst í hverri matvörubúð.
ALL-BRAN
tT
Básamleg fæða.
1
1 ALL-BRAN
% yíj
161
Næturvörður verður þessa viku
í Ingólfs Apoteki og Laugavegs
Apoteki.