Morgunblaðið - 29.07.1936, Side 5
JVIiðvikudaginn 28. kjfilí 1936.
K. R. sigraði Hítsvík-
inga meii 5:1.
Itesli kuaUspyrnu-
völlur landslnN.
Á mánudagskvöldið var liiuu
snýi knattspyrnuvöllur • Húsvíkinga
vígður með kappleik milli K. R.
<og Husvíkinga. Póru leikíar svo,
•að K. R. sigraði með 5:1. Pjöldi
;áhorfenda voru viðstaddir og er
mikill áhugi fyrir knattspyrnu-
íþróttinni á Húsavík. Hinn nýi
"völlur á Iíúsavík er rennisljettur
grasvöllur, 110 metra á lengd og
72 metra breiður. Sagði Guðmund-
ur Ólafsson þjálfkennari K. R. að
þetta væri áreiðanlega besti knatt-
-spyrnuvöllur landsins. Ilafa knatt-
spyrnumenn á Húsavík lagt mikla
vinnu í völlinn. K. R.-ingarnir
'komu aftur til Akureyrar kl. 4 í
ígærmorgun og hvíldu sig á Akur-
■eyri í gær. Lögðu þeir á stað heim-
leiðis í morgun kl. 6 og koma
hingað seint í kvöld. K. R.-ing-
tarnir eru stórhrifnir af hinum
ágætu móttökum sem þeir hafa
fengið Norðanlands.
"FIPK
[ ‘ í ■Aí sjálfvlrkt
bvottaefnt
i . , þvær tauiþ
yðar meðaw
| ;ú‘. Il\ þjer ssoffð ©g
hvílistu —
Reyktur fax,
1 Reyktur Rauðmagi,
Sardínur, dós 0,35,
Rækjur,
Glæný Egg,
fæst í
f* 5
Nýr lax
Nýtt bögglasmjör.
Kjötbúðin Heröubreið.
Möguieikarfyrir auknum útflutningi
sem nemur miljónum króna.
Islendingar háfa 'bestu
skilyrði í heim fyrir nið-
ursuðu sjávarafurða.
Þorvaldur Guðmundsson segir trá niðursoðnu
Tvœr myndir frá rækjuverk-
smiðjunni á Isafirði.
r
Reynið pakka af
4raba fjallagrasa-kaffibæti
fæst alstaðar.
Hár.
■-i. . Ji#
fiskmeti sem útflutningsvöru.
SLENDINGAR hafa allra þjóða best skil-
yrði til að framleiða fyrsta flokks nið-
ursuðuvörur úr aðalframleiðslu sinni, fiskinum.
Enginn vafi er á að ef rjett er á haldið má
skapa hjer nýjan atvinnuveg, sem veitt getur
þúsundum manna atvinnu og sem flytja má út
og selja á erlendum mörkuðum fyrir miljónir
króna árlega.
Margar fiskveiðiþjóðir, sem keppa um mark-
aði við Islendinga og sækja fiskinn á Islandsmið,
moka upp miljónum með því að sjóða niður
sjávarafurðir, sem þær hafa sótt upp að strönd-
um Islands. Margar fisktegundir, sem Islending-
ar hafa ekki litið við, en sem þó er nóg af hjer
við land, hirða útlend-
ir fiskimenn til niður-
suðu og selja síðan um
allan heim, jafnvel hing-
að til Islands.
EitthvaS á þessa leið fórust
Þorvaldi Guðmundssyni orð í
viðtali við Morgunblaðið í gær.
Þorvaldur er einasti fslending-
urinn, sem er sjerfræðingur í
allskonar niðursuðu. Hann er
nýkominn heim eftir langa dvöl
í Þýskalandi og Danmörku, þar
sem hann hefir dvalið til að
kynna sjer ált sem að atvinnu-
grein hans lýtur. Þorvaldur
Guðmundsson er ungur og á-
hugasamur maður, sem hefir
brotist áfram af eigin dugnaði.
Sjerstaklega hefir hann kynt
sjer niðursuðu á þeim matvæl-
um, sem gætu komið íslending-
um að gagni. Hefir hann bæði
unnið í verksmiðjum og rann-
sóknastofum, til þess að hann
gæti gert sjálfstæðar rannsókn-
ir á þeirri niðursuðu sem hann
hefir með hendi.
Þorvaldur hefir í sumar dval-
ið á Isafirði og haft umsjón
með rækjuverksmiðjunni þar.
En það er eins og kunnugt er
ný atvinnugrein, sem enn er á
tilraunastigi. Tilraunirnar hafa
gefist vel og þar eru nú fram-
leiddar rækjur. sem í engu
standa að baki samskonar er-
lendri vöru.
Morgunblaðið bað Þorvald að
segja frá því hvaða matvæli Is-
lendingar gætu helst soðið nið-
ur með tilliti til innlends og er-
lends markaðar.
Hefi altaf fyrirliggjandi hái við
íslenskan búning. Verð við aUrs
'hæfi.
Versl. Goðaloss.
Langaveg 5. Sími 3436.
Þorvaldur Guðmundsson við niðursuðupottinn í rækjuvérksmiðj-
unni á ísafirði.
Nýir möguleikar.
— Hægt er að sjóða niður
og reykja svo að segja allan,
fisk, sem úr sjó kemur, segir
Þorvaldur. f verksmiðju einni,
sem jeg vann í í Þýskalandi,
voru t. d. reyktar 16 tegundir
af fiski, sem veiðst hafði við
íslandsstrendur, má þar til
nefna skötusel, háf, steinbít,
karfa, skötu, síld o. fl.
Þá hefir veiðst mikið af hum-
ar í Jökuldjúpi, en sem enginn
hefir notfært sjer enn. Er eng-
inn efi á, að ef nægur humar
fæst hjer við land, má sjóða
niður og flytja út mikið af
þeirri vöru. Einnig hefir ekki
verið hirt nóg um að notfæra
sjer lostæti eins og krækling,
hrogn, rækjur o.’fl. Fyrir þessar
vörur eru miklir sölumöguleik-
ar um allan heim. Smásíld og
millisíld, sem veiðist hjer við
land má gera mikla peninga úr,
með því að reykja hana eða
sjóða niður.
Ef til vill höfum við íslend-
ingar þó mesta möguleika allra
þjóða í heimi til að sjóða niður
upsa og gera úr honum af-
bragðs vöru, sem Þjóðverjar
nefna Seelachs (sjólax).
Þjóðverjar hafa framleitt ó-
grynni af ,,Seelachs“ undanfar-
in ár og hafa fengið góðan
markað fyrir hann bæði í
Þýskalandi og erlendis.
Ástæðan fyrir því að íslend-
ingar geta framleitt besta ,,sjó-
lax“ í heimi, liggur 1 því, að
hjer fæst hráefnið (upsinn)
nýtt, en Þjóðverjar verða að
flytja það óravegu í ís, eða salti
og verður varan því aldrei eins
góð og þar að auki dýrari.
Reynsla íslendinga í
niðursuðuframleiðslu.
— Islendingar hafa fengist
nokkuð við niðursuðu á undan-
förnum árum, segjum vjer, hver
hefir reynslan af því orðið?
— Reynsla okkar Islendinga
er ákaflega lítil í þessum efn-
um, segir Þorvaldur. Fyrstu
niðursuðuverksmiðjuna á Is-
Stúlkurnar sem „pilla“ rækjurnar.
landi reisti Pjetur M. Bjarna-
son kaupm. á fsafirði skömmu
eftir aldamótin. En af einhverj-
um orsökum, sem mjer eru ekki
kunnar, lagðist hún niður eftir
nokkur ár. Verksmiðjuhúsið
stendur ennþá, þó ekki sje það
notað, og fekk jeg tækifæri til
að skoða það í sumar. Jeg varð
undrandi, er jeg sá hve verk-
smiðjuhús þetta var vel bygt,
því að það fullnægir svo að
segja öllum kröfum sem nú eru
gerðar til slíkra verksmiðja.
Sláturfjelag Suðurlands hefir
nokkur undanfarin ár soðið nið-
ur kjöt- og fiskafurðir, en svo
að segja eingöngu til sölu á
innlendum markaði.
K. E. A. á Akureyri framleið-
ir einnig fiskniðursuðuvörur. En
nýjasta niðursuðuverksmiðjan á
íslandi er á ísafirði. Verk-
smiðja þessi framleiðir eingöngu
rækjur, sem þykir mikið lost-
æti um allan heim, þó enn sjeu
þær lítið þektar hjer á landi.
Niðursuðuvörur eru •
oft betri en nýjar.
— Eru niðursuðuvörur jafn
hollar og góðar og þegar varan
er ný?
— Margar tegundir niður-
suðuvara eru betri en nýjar,
og heilnæmari. Liggur það í
hlutarins eðli, að t. d. fiskur
sem soðinn er nýr missi mikinn
„kraft“ við venjulega heima-
suðu. Niðursoðinn fiskur held-
ur aftur á móti öllum sínum
,,krafti“, þar sem soðið fer með
í dósirnar og notfærist þegar
fisksins er neytt.
í þessu sambandi vildi jeg
gjarna minnast á misskilning,
sem jeg hefi orðið var við hjer
á landi, segir Þorvaldur. En
hann er sá, að fólk er hálf-
hrætt við niðursoðin matvæli.
Margir halda að til niðursuðu
sjeu notaðir afgangar og slæm-
ur matur. En þetta er hin mesta
firra.
NiðursuSa matvæla byggist
fyrst og fremst á því að hrá-
efnið sje nýtt og gott og að alls
hreinlætis sje gætt.
Engin niðursuðuverksmiðja
getur starfað til lengdar án þess
að við hana sjeu rannsóknar-
stofa og sjerfræðingur, sem sjer
um að framleiðslan sje góð.
Framtíð niðursuðu-
vara á íslandi.
— Þjer álítið að íslendingar
gætu framleitt niðursuðuvörur
fyrir erlendan markað og orðið
samkepnisfærir á því: sviði?
— Á því tel jeg engan vafa.
En ef það á að takast, má 1
engu rasa um ráð fram. Niður-
suðuframleiðslan í heiminum er
nú komin á svo hátt stig að