Morgunblaðið - 05.08.1936, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.08.1936, Blaðsíða 2
2 MORCiUNBLAÐIÐ Miðvikudaginn 5. ágúst 1938 ffiQVQntibh&ab Útgref.: H.f. Árvakur, Rerkjavtk. Rltstjörar: Jön KJartanason og Valtýr Stefánsson —• ábyrgB armaí ur. Rltstjörn ogr afgrelCala: Austurstrætl g. — Stml 1600. Augrlýsingastjörl: E. Hafbergr. Auglýsingaskrif sto f a: Austurstræti 1T. — Slml Í700. Hetmastmar: Jön KJartansson, nr. ST42 Valtýr Stefánsson, nr. 42Z0. Árnl Óla, nr. 3046. E. Hafbergr, nr. S7T0. Áskrlftagjald: kr. S.ðO á mánuCl. í lausasölu: 10 aura elntaklO. 20 aura meö Lesbök. Óhreina mjölið. Nú er mánuður síðan Extra- blaðið flutti greinina frægu, sem mestur hvellurinn varð út úr. 1 þeirri grein var sagt frá því, að fjárhagur íslands væri mjög bágborinn, og að verið væri að vinna að því, að Danir og Sví- ar hlypu undir bagga. Þetta gaf íslensku ríkisstjórninni tilefni til að senda kröftug mótmæli yfir þessu og þvílíkum „fjand- samlegum blaðaskrifum“. — Mönnum var ætlað að fyllast aðdáunar yfir þessum skjótu handbrögðum til upprætingar hneykslinu. En það kom bráðlega í ljós, að það var ekki viðkvæmnin fyrir hinu ,-,fjandsamlega“ um- tali danska blaðsins, sem rjeði aðgerðum stjórnarinnar, heldur viðleitnin að klína greininni á Sjálfstæðismenn, og var óspart talað um landráð í því sam- bandi. Danska blaðið upplýsti sjálft, hvaðan það hafði heim- ildir fyrir greininni, og fjell þá niður vindurinn í stjórnarblöð- únum. Síðan hafa önnur dönsk blöð rætt um fjárhag íslands mjög á sömu lund og Extrablaðið, og þó á „fjandsamlegri“ hátt. — Hafa íslendingar meðal ann- ars verið notaðir sem grýla á Færeyinga og talað um „ríkis- styrk til Islands. Islenska stjórnin hefir ekki fundið neina ástæðu til þess að mótmæla þessum skrifum. Blöð hennar hafa þvert á móti farið álíka svívirðilegum orðum um Sjálfstæðismenn fyrir að mót- mæla þessu, eins og áður, með- an þau voru að ljúga því að Sjálfstæðismenn hefðu staðið að greininni í Extrablaðinu. Stjórnarblöðin hafa talið það „óskynsamlegt“ að amast við aukinni íhlutun Dana um strand varnir hjer við land og um ut- anríkismál íslendinga. f Danmörku lýsti fulltrúi Framsóknar á norræna þing- mannafundinum því yfir, að á Islandi væri enginn áhugi fyrir sambandsslitum við Danmörku. Enda ætti tæplega svo að vera, ef Danmörk er slík, sem Jónas Jónsson lýsti henni í Álaborg- arræðunni í fyrrahaust. Þessi atriði, sem hjer hafa verið dregin fram, skýra það alveg augljóslega, hvers vegna stjórnarblöðin vilja koma sjer undan að ræða sjálfstæðismál- ið. Stjórnarflokkarnir hafa svo óhreint mjöl í pokanum, að þeir þola ekki, að við sje hróflað. SMASKÆRUSTRIÐ — ENGAR STÓRORUSTUR. Báða aðila vantar skotfæri og matvæli. „Krossferð Frakka til Madrid^byrjuö". Frakkar ðttast sigur uppreisnarmanna. FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN f GÆR. ■C1 RÖNSK blöð óttast, að hið utanríkismála- pólitíska markmið spönsku uppreisnar- mannanna sé, að innikróa Frakka milli fasista- ríkja. Ef uppreisnarmenn sigri þá sje hagsmunum Frakka í Evrópu og í Marokko voði búinn. Intransigeant (konservativt blað) bendir á þá hættu, að upp- reisnin á Spáni geti leitt til styrjaldar milli ítala og Frakka, þar sem ítalir styði uppreisnarmenn og Frakk- ar stjórnina. Oeuvre heldur, að uppreisnarmenn muni launa stuðning ítala við þá með því, að leyfa þeim að setja upp flotabæki- stöð á eyjunum Minorca og Ecusa. En með því yrði hags- munum bæði Breta og Frakka í vestanverðu Miðjarðar- hafi stefnt í hættu. F'ranska alþýðuf ylkingaa- stjórnin hefir nú leyft, að þau vopn, sem stjórnin í Madrid hafði pantað áðu en uppreisn- in hófst, verði afhent. — í skeyti til danska hlaðsins Poli- tiken, segir nm þetta, „að krossferð frönsku alþýðufylk- ingarstjórnarinnar til Madrid sje nú hafin. Jafnframt skýrir enska sunnu- dagsblaðið „Sunday Times“ frá því, að kommúnistar sjeu með leynd að úndirbúa að senda franskan kommúnistaher til Spán- ar. Blaðið segir, að fyrstu her- sveitirnar sjeu nú þegar komnar til Spánar. En samtímis er Leon Blum, forsætisráðherra Frakka að reyna að koma því til leiðar að Frakkar ítalir, og Bretar geri með sjer samning um það að gæta hlutleysis gagnvart því, sem er að gerast á Spáni. ! London 4. ágúst. FÚ. Var franska sendiherranum í | London tilkynt af hálfu bresku j stjómarinnar, að stjórnin væri þessu meðmælt í öllum aðalatrið- um. Sendiherrar Breta í Berlín og Róm hafa í dag farið á fund ut- ianríkisráðherranna, og átt tal við þá um þetta mál. Ciano greifi sagðist þurfa að ráðfæra sig við Mussolini, áður en hann svaraði þéssari málaleitan nokkru, en Mussolini er nú staddur í Fen- eyjum. Það hefir vakið mikla athygli, að franskar flugvjelar, sem sendar voru til Spánar samkvæmt beiðni franska sendiherrans þar, til þess að sækja franska borgara, sem vildu fara af landi burt, hafa ekki allar komið til baka. Lausafregnir hafa borist út um það, að þær sjeu notaðar í þágu stjómarinnar, sem sprengiflugvjelar. Flugmálaráðherrann var spurð- ur að því í franska þinginu í dag hvort nokkuð væri satt í því, að stjórnin á Spáni hefði tekið flug- vjelamar í sína notkun, og svaraði hann því, að hún hefði telrið sumar flug- vjelamar hernámi, eins og upp reisnarmenn hefðu gert með flugvjelar frá öðrum löndum, en annars væri þetta mál, sem kæmi utanríkisráðuneytinu við en ekki flugmálaráðuneytinu. Franco viðurkendur. Skeyti frá Tanger til Ritzau -Khöfn), hermir: Þýska herskipið Deutschland kom til Ceúta í Marokkó í gær. Það hefir vakið mikla athygli að foringjar herskipsins fóru í kurteisisheimsókn til Franco, uppreisnarforingjans, sem hefir aðsetur í þessari borg. Er stjómin að gefast upp? Hvernig valdashilt- ingin var ílgœiT’ FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN í GÆR. "O NGAR stórorustur er háðar á Spáni. Mat- arskortur og skortur á skotfærabirgð- um háir báðum aðilum og hefir breytt borgara- styrjöldinni í smáskærustríð. Stjórnin hefir sent aukinn liðsafla til Guadaramaf jallanna og sextán stjórnarflugvjelar hafa varpað sprengjum yfir Saragossa. Italska blaðið „Giornale d’Italia“ segir, að stjórnin hafi sent tilkynningu til allra erlendra sendiherra svohljóðandi: Stjómin getur ekki varist öllu lengur. ÞaS geta ekki liðið nema í mesta lagi 3 dagar áður en Madrid fellur. Ekkert er hægt að segja um, hvað tekur þá vi8. Stjórnin treystir sjer ekki til að vemda sendiráSin. Ósamhljóða frjettir; Lundúnafrjett til FÚ. segir: Stjórnin á Spáni hefir talið sjer í dag fleiri sigra en nokkru sinni síðan borgarastyrjöldm hófst, en aftur á móti hafa uppreisnarmenn ýmist borið á móti frjettum stjórnarinnar eða talið sjer nýja sigra. Stjórnin tilkynnir, að eftir 24 klukkustunda grimmilega orustu á Guadaramavígstöðvunum, hafi þeir unnið algeran sigur yfir her uppreisnarmanna á þessum slóðum. Stjórnin seg- ir, að af hennar liði hafi fallið S4, en 300 af liði uppreisnar- manna. Þá segir hún, að her sinn sje nú að umkringja Sara- gossa, og hafi borið sigur úr býtum í viðureign við sveit her- manna, sem uppreisnarmenn sendu á móti stjórnarliðinu. Næst ætlar stjórnin sjer að gera tilraun til að ná Burgos frá upp- reisnarmönnum. Loks segist stjórnin hafa eyðilagt tilraunir upp- reisnarmanna til að ná aftur Bilbao og Tolosa. Aftur á móti tilkynna uppreisnarmenn, að þeir nálgist óð- um höfuðborgina. Hersveit, sem hafi farið frá Se'villa áleiðis til Madrid hafi tekið allmarga fanga, og tekið herfangi flutn- ingabifreið, hlaðna sprengjum og skotfærum. Önnur hersveit sje að nálgast Madrid frá Palencia, á norður Spáni, og sú þriðja frá Zamora. Loks segja uppreisnarmenn, að stjórnarherinn hafi mist 200 menn í viðureign skamt frá Toledo. Ástandið i dag; Eftir því sem næst verður komist, standa sakir þannig: Stjórnin hefir á valdi sínu alla Cataloniu, og alla strand- lengjuna við Miðjarðarhafið frá Malaga og norðaustur að landa- mærum Frakklands. Þá hefir hún einnig Madrid og nærliggjandi hjeruð. Á norður Spáni hefir hún alla strandlengjuna frá landa- mærum Frakklands og vestur til Oviedo. Á vestur Spáni hefir hún fylkin sem liggja að (Portúgal, frá Huelva og norður fyrir Badajoz. — Uppreisnarmenn hafa á valdi sínu Saragossa, Burgos og Toledo, þrjár mikilsverðar borgir, suðurströndina frá Huelva til Malaga, norðvestur Spán, Spánska Marokko og flestar Balearic eyjarnar. Yfirleitt má segja, að þeir sjeu í meiri hluta í land- búnaðarhjeruðum Spánar, þar sem stjórnin aftur á móti hefir iðnaðarhjeruðin á valdi sínu. Á norðurströndinni hafa uppreisn- armenn enga hafnarborg í sínum höndum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.