Morgunblaðið - 05.08.1936, Page 4
4
Ný 8 daga ferð
meO FerOafjalagi íslands.
\ ( ■ - ___________
Umhverfis Langjökul.
Um næstu helgi ráðgerir fjelagið tvær langferðir, auk
sfcuttra skemtiferða sem farnar verða þá, en aðeins um helg-
ar. önnur þessara ferða, ferðin kringum Langjökul, er síðasta
ferðin, af hinum svokölluðu sumarleyfisferðum, sem fjelagið
hefir gert út á þessu sumri. Verður lagt upp í hana á mánudag-
inn kemur. Er það átta daga ferð.
í hina ferðina verður haldið
af stað á laugardag. Og er
henni heitið til Mývatns, Ás-
byrgis og Dettifoss. Skal hjer
stuttlega skýrt frá aðalatriðun-
um úr áætlun þessara ferða
beggja.
Gullfcss, H'vítárvatn, Kerl-
ingafjöli, Þjófadalir, Hveravell-
ir, Arnarvatnsheiði, Surtshellir,
Húsafellsskógur, Kaididalur,
Þingvellir, Reykjavík.
Með þessum nöfnum er stikl-
að á því stærsta, sem þátttak-
endur þessarar ferðar fá að
sjá, og er þó margt ótalið. Far-
aráætlunin er í stuttu máli sú,
að mánudaginn 10. ágúst verð-
ur haldið hjeðan bílleiðis inn
að Hvítárvatni. Verður lagt upp
frá Bifreiðastöð Steindórs, kl. 1
e. m. og ekið um Gullfoss í
Hvítárnes, og gist í Sæluhúsinu
þar. Þriðjudaginn verður riðið
austur í Kerlingarfjöll og gist
þar í verinu við Ásgarðsá. Síð-
degis þann dag verður tæki-
færi til að ganga inn í hveragil-
ið eða upp í Kerlingarfjöll
eystri, ef veður leyfir. — En
næsta dag getur fararstjórinn
valið um hvort meira beri að
meta, að fara snemma morg-
uns vestur að sæluhúsi aftur og
skreppa þaðan í Karlsdrátt síð-
degis og aftur að Sæluhúsinu,
eða að sleppa ferðinni í Karls-
drátt. Fer það mest eftir veður-
útliti. — Fjórða daginn, fimtu-
dag, verður farið úr Hvítámesi
(Sæluhúsi) norður, vestan Kjal-
hrauns, í Þjófadali og þaðan á
Hveravelli. Verður komið þang
að snemma síðdegis og umhverf
ið skoðað þann dag. En hinn
næsta dag þurfa allir að vakna
snemma, því að morguninn eft-
ir, föstudag, stendur til að ríða
lengsta áfanga leiðarinnar, frá
Hveravöllum og vestur að Arn-
arvatni. Er það um 10 stunda
reið fyrir vana ferðamenn, en
getur dregist upp í tólf, ef eitt-
hvað bjátar á. Hins vegar er
næsti dagur, laugardagur, hvíld
artími þeim, sem ef til vill eru
þreyttir, því að við Arnarvatn.
verður staðið við þann dag all-
an. Á sunnudag verður svo
haldið af stað suður yfir Norð-
lingafljót, komið við í Surtshelli,
komið að Kalmanstungu og far-
ið niður að Húsafelli og gist þar.
Daginn eftir, sem er mánudag-
ur og áttundi dagur ferðarinn-
ar, verður svo riðið suður Kalda
<lal til Þingvalla, og geta þátt-
takendur ráðið því sjálfir, hvort
þeir gista á Þingvöllum um nótt
ina, eða halda áfram með bíl
til Reykjavíkur. — Farmiðar
að þessari fgrð verða seldir í
Bókaverslun Sigf. Eymundsson-
ar frá kl. 2 í dag. En þátttak-
endur verða að hafa gefið sig
fram fyrir næstk. föstudags-
kvöld. — Ferðin tekur alls átta
daga, og verður fólkið ríðandi
alla dagana nema einn.
Mývatnsferð: Akureyri — Mý-
vatn — Dettifoss — Ásbyrgi —,
Húsavík — Reykjavík.
Þetta er sjö daga ferð, og verð-
ur lagt upp í hana laugardags-
morgun 8. ágúst. Lagt upp kl. 8
árd. frá Steindóri og ekið fyrir
Hvalfjarðarbotn, um Borgarfjörð,
Holtavörðuheiði, og til Blönduóss
og gist þar um nóttina. ^aginn
eftir verður haldið til Akureyrar,
komið þangað skömmu eftir mið-
an dag og gist þar um nóttina.
Mánudag verður haldið áfram til
Skútustaða, komið þangað um há-
degi og farið um Mývatn á bát-
um, í Slútnes, gengið í Dimmu-
borgir, komið að Reykjahlíð og
dagurinn notaður sem best. Gist
um nóttina á Skútustöðum, eða
ekið til Húsavíkur um kvöldið,
eftir því sem Veðri hagar. Þriðju-
dag verður haldið áfram áleiðis til
Áshyrgis og Dettifoss, og gist á
Lindarbrekku, eða Húsavík ef ekki
hefir verið gist þar nóttina áður.
Miðvikudag verður ekið til Akur-
eyrar og komið þangað um miðj-
an dag, en síðari hluti dagsins
notaður til þess að skoða höfuð-
borg Norðurlands, og ef tími vinst
til, að aka upp að Grund og sjá
Eyjafjarðardalinn. Næsta dag
verður haldið heim á leið, að Reykj-
um í Hrútafirði fyrri daginn og
gist þar á skólasetrinu, en síðari
daginn farið suður í Borgarfjörð,
upp Reykholtsdal, komið við í
Reykholti og ekið síðan suður
Kaldadal, um Þingvelli til Reykja-
víkur. — Farmiða í þessa ferð
verður að kaupa fyrir lokunar-
tíma á fimtudagskvöld, í Bóka-
verslun Sigf. Eymundssonar. Á
listanum, sem þar liggur frammi,
sjást ítarlegri upplýsingar viðvíkj-
andi ferðalaginu.
Tomatar
Gulrætur.
Gulrófur.
Versl. Vfsir.
iýr lax.
lækkað verð.
Nýtt nautakjöt.
Nýreykt Kihdabjúgu.
Mðlnersbúð,
Laugaveg 48. — Síntí 1505.
MORGUNBLAÐI5
4
Dýralæknir segir álit
sitt á hundadrápinu.
Undanfarna daga hafa birst
greinar í blöðunum fjandsam-
legar hundunum. Mjer hafa
þótt þessi skrif vera andstyggi-
leg og það er lítt skiljanlegt
hvers vegna háttvirtir greina-
höfundar þurfa að leggja sig
niður við það að níðast á vesa-
lings dýrunum. Sumir greina-
höfundar hafa ekki látið þar
við sitja að úthúða hundunum,
heldur reyna þeir líka að gera
hundavinina, sem sátu fundinn
á dögunum, hlægilega í augum
almennings. Líklega var þessi
síðari leið valin vegna þess, að
ekki er hægt að færa nógu
sterk rök fyrir því að nauðsyn-
legt sje að drepa alla hunda í
Reykjavík.
Hundaeigendur telja sig ó-
rjetti beitta og það sjerstaklega
þegar þeir menn sem láta fram-
kvæma hundadrápið gefa eng-
ar skýringar og færa engin rök
fyrir því, hvers vegna þurfi að
gera þetta. Ekki er hægt að bú-
ast við að þessir hundafjendur
geti skilið það, af hverju mörg-
um hundaeigendum þykir sárt
að láta drepa hundinn sinn fyr-
ir sjer, sem þeim er farið að
þykja vænt um. Hundafjendur
Reykjavíkur munu líklega
hugsa eitthvað á þá leið, að
þessi lögreglusamþykt, sem fyr-
irskipar hundadrápið, gæti ver-
ið til fyrirmyndar úti um heim,
þar sem slíkar ráðstafanir eru
óþektar.
Jeg vil benda mönnum á það
að þessi hundadrápsráðstöfun
er alveg hliðstæð því að lög-
reglunni væri skipað á morgun
að fara inní hesthús borgar-
anna og skjóta alla svokallaða
lúxushesta eða góða reiðhesta,
enginn fengi skaðabætur nje
mætti veita mótstöðu, þá yrði
hann sektaður. Dýr, sem engin
verðmæti skapa og eru óþörf,
á að skjóta, munu hundafjend-
ur segja.
Aðalástæðan fyrir því að
drepa á hundana fyrir hunda-
eigendunum er sú, að þessir
menn eiga nágranna í kringum
sig, sem endilega þurfa að
skifta sjer af hlutum, sem þeim
raunverulega ekki koma við.
Hundaeigendur eru fúsir á
það að hlýða öllum settum
reglum um það hvernig þeir
eigi að gæta hunda sinna. Þeir
vilja stofna fjelagsskap sem
vinni að því í samráði við lög-
regluna hvernig koma má sem
best skipan á alt hundahald í
bænum. Hundaeigendum er
l:ka ant um það að öll heil-
brigðisákvæði, sem snerta
hundahald, sjeu haldin, því að
vanræksla á þessu sviði gæti
komið þeim sjálfum í koll.
Reykjavík, 29. júlí 1936.
Bragi Steingrímsson,
dýralæknir.
Skógarmenn — K.F.U.M. Fund-
ur verður haldinn í kvöld mið-
vikudag kl. 8y^. — Nýjum skóg-
armönnum fagnað. — Ræður,
„Lindin“, músík og kaffi.
Miðvikudaginn 5. ágúst 1936
—nimillTMBIMIIIMIIIIIBlBIMIMM—llliBII III III lll«llllll«I———■
i #
Útsvör - Dráttarvextir.
Siffustu forvoð
að grefða fyrsta lilula úfsvara
án drátfarvaxla eru á xnorgun,
flmtudaginn 6. þ. m.
Bæjargjaldkerinn.
Til Þingvalla
kl. 10,30 árdegis, 1,30 og 5 sxðdegis.
Frá Þingvöllum
kl. 1,30, 6 og 7,30 sídegis.
Akðð I liivium þjéðfrægu
sólskinsbifreiðum §teindórs,
§ími 1580.
Timburverslun
P. W. Jaeabsen & Sfin.
StofnoO 1824.
Símnefiú: Granfum — CaH-Ludtgtde, Köbenkavn C.
S«lwr limbur i steerri og inuerrí Kndhpnn frá Kmmp-
nuuanahöfn. — Eik til ikqraMníða. — Einnij hala
skipafaraw frá Svíþjdð.
Hefi versl»ð við íeland í nae&r ea 80 ár.