Morgunblaðið - 18.09.1936, Side 3
Föstudagur 18. sept. 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
Fárviðrlð á Veslfjörðum.
Báta saknað af Bíldudal
og Patreksfirði.
FlóOalda „sem hðr veggur"
ð RauOasandi.
Tjón á húsum og skipum
um alla Vestfirði.
FÁRVIÐRIÐ aðfaranótt miðvikudags
geisaði um alla Vestfirði og olli gífur-
legu tjóni. I skeyti frá Bíldudal, segir
að veðrið hafi verið meira en aldamótaveðrið, ár-
ið 1901, sem var versta veður þá um mannsaldra.
Frá Rauðasandi í Barðastrandarsýslu er Morgun-
blaðinu símað að annað eins veður hafi ekki orð-
ið síðan um aldamót. Þar kom geysistór flóðalda
sem skall alveg upp að túnum á Rauðasandi og
alla leið að Straumhól. Sást til bylgjunnar eins
og hún væri gríðarhár veggur.
Frá ísafirði er Morgunblaðinu símað um mikið tjón af völd-
um fárviðrisins, bæði á húsum og skipum. (Sjá skeyti á öðrum
stað í blaðinu).
Mannskaði mun þó hvergi hafa orðið nema á Bíldudal.
Þar er saknað trillubáts, sem var að smokkfisksveiðum.
Á bátnum voru þrír menn: Eiríkur Einarsson, frá Otra-
dal (giftur, 1 barn), Ólafur Jónsson frá Bíldudal (17
ára) og Ríkarður Sigurleifsson (12 ára).
Reru fimm bátar á smokkfisksveiðar frá Bíldudal á þriðju-
dagskvöldið og hafa allir náð landi nema bátur Eiríks.
Á Bíldudal lágu 12 bátar
og skip á höfninni, þegar
óveðrið skall á um 11-leytið
á þriðjudagskvöld.
En eftir storminn var aðeins
einn bátur eftir, vjelbáturinn
Ægir.
Línuveiðarana tvo, Geysi og
Ármann, rak yfir fjörðinn. Rak
Geysi á land hjá Aauðkúlu
og er hann lítið skemdur. —
Ármann dró akkerið og tók botn
framundan Lónseyri og liggur
þar á floti.
Við Auðkúlu rak einnig á land
handfæraskipið Geysi og skemd-
ist mikið. Er óvíst, hvort það
næst út aftur. Skipið er 30 smá-
' lestir.
Verið er að reyna að ná upp
þrem bátum, sem sukku, og þrír
bátar eru reknir fyrir utan
Tjaldaneseyrar. Víða er rekið
með fjörunni ýmislegt úr róðr-
arbátum, svo sem árar, vjelahús
o. fl. (segir FÚ).
Miklar skemdir hafa orðið á
húsum á Bíldudal. Rafleisðlur
eru allar mikið bilaðar og er
þorpið rafmagnslaust.
Aðrar frjettir úr Arnarfirðin-
um eru:
Frá Stapadal tapaðist vjelbát-
ur og tveir árabátar brotnuðu
þar í spón. í Lokinhömrum brotn
aði vjelbátur og tveir árabátar.
Þar tók einnig þak af hlöðu.
Á Rafnseyri brotnaði bátur og
járnþak tók af hlöðu og hey of-
an veggja. Á Laugabóli brotnaði
vjelbátur. Á Ósi tók þak af bæn-
um og hjallur fauk. Auk þess
urðu meiri og minni skemdir á
húsum og hey fauk og eldiviður
skemdist. (Skv. FÚ).
Á Patreksfirði hvesti mjög
snögglega af suðri um 10-leytið
á þriðjudagskvöld. Togararnir
Gylfi og Leiknir lágu þá báðir
við bryggju, Gylfi við afferm-
ingu, en Leiknir utan á honum,
og beið affermingar. Þegar svona
snögglega hvesti, var samstund-
is kallað á skipshafnirnar til þess
að bjarga skipunum. Löskuðu
þau nokkuð bryggjuna, áður en
tókst áð ná þeim frá. Fárviðrið
var mest milli 1 og 4.
Tveir trillubátar sukku og
vjelbátinn Ellen rak á land;
skemdist hann frekar lítið.
Vjelbátinn Orra rak á land
og gereyðilagðist hann.
V.b. Þröstur dró legufæri sín
og var rjett, kominn á land, er
veðrinu slotaði.
Skemdir á húsum á Patreks-
firði urðu litlar, aðeins fauk járn
af einu húsi og rafljósaþræðir
slitnuðu að einhverju leyti. Mörg
erlend skip leituðu til Patreks-
fjarðar undan óveðrinu.
Áð Sauðlauksdal fauk þak af
hlöðu og fuku þar 80 heyhestar.
Á Hvallátrum skemdust hús
meira og minna.
Frá Guðmundi Kristjánssyni,
Breiðuvík tók trillubát úr nausti.
Rak hann á land mölbrotinn;
Vjelbátsins Þorkels
mána (O iiienii)
saknað.
Aðrir bátar hafa komið fram.
Dr. Vilhjálmur
3
m:
Maður íerst af Gottu (Vestm.).
EKKERT hefir enn spurst til vjelbátsins Þor-
kels mána frá Ólafsfirði (6 manna áhöfn).
Von manna er, að hann hafi leitað skjóis
undir Grímsey.
Togarinn Garðar fór um hádegi í gær frá Siglufirði að leita
þeirra báta, sem þá var saknað. Voru það: Anna (frá Akureyri),
Valur (frá Akureyri), Höskuldur (frá Siglufirði) og Þorkell mánt
(frá Ólafsfirði).
Allir þessir bátar liafa komið fram, nema Þorkell máni. Garðar
bitti „Önnu“ 10 sjómílur undan Grímsey og kom báturinn til Siglu-
fjarðar í gærkvöldi.
Garðar helt áfram til Grímseyjar.
Frá Ólafsvík frjettist í gær, að Kristbjörg (frá Vestmanna-
eyjum) liefði verið undir Ólafsvíkurenni í fárviðrinu, og hefði fariö
þaðan í morgun. Báturinn var væntanlegur til Rvíkur.
Um eitt skeið í gær var óttast um Grænlandsfarið „Snorra
goða“, en um miðjan dag í gær heyrði loftskeytastöðin í bátnum.
Hann var væntanlegur í nótt.
Það slys vildi til í gær, að tveir menn fjellu út af vjelbátnum
Gottn frá Vestmannaeyjum, og druknaði annar þeirro. Nánari at-
vik voru þessi (segir í FÚ-fregn):
Bátnrinn fjekk á sig mikinn sjó, þar sem hann lá hjá netum
sínum úti fyrir Siglufirði í gærmorgun. Var báturinn lengi í ka.fi
og skolaði öllu lauslegu út af þilfarinu. Tók út tvo menn, þá Guð-
mnnd A. Guðmundsson og Svein Björnsson. Guðmundur náðist mik-
ið meiddur á höfði, en Sveinn druknaði. Var hann um tvítugt, ein-
hleypur maður. Guðmundur var fluttur á sjúkrahús og líður nú
sæmilega.
Gotta kom til Siglufjarðar í gærkvöldi kl. 19.
HVALVEIÐABÁTS SAKNAÐ.
varð engu náð nema vjelinni. í
Kollsvík fauk þak af hlöðu.
í Tálknafirði fauk alt hey, sem
úti var, og þak af hlöðu í Norð-
urbotni. Hús hvalveiðastöðvarinn-
ar á Suðureyri skemdist tölu-
vert. Vjelbátinn Alpha rak þar
á land og eyðilagðist að mestn
leyti.
Hvalveiðabáturinn Estelle var
við Suðureyrarbryggju og var að
gera ketilhreinsun. Skemdist
hann allmikið og er óvíst, hvort
hann getur farið aftur á hval-
veiðar á þessu ári án viðgerðar.
Af hinum hvalveiðabátnum, Bus-
en, hefir ekkert frjest.
Tjón í Dýrafirði .urðu helst
þessi (skv. FÚ):
í Hvammi fuku 200 hestar heys,
í Haukadal 100 hestar og í ein-
um bæ í Mýrarhreppi, Fremri-
Hjarðardal, 70 hestar. Auk þess
sópuðust víða burt hey, er úti
voru.
Kristján Einarsson bóndi í
Hvammi misti þak af hlöðu og
það hey, sem ekki fauk, liggur
undir skemdum. Ólafur bóndi á
Múla hafði baðstofuhús í smíð-
um. Þessi bær gerónýttist svo, að
tóftin ein stendur eftir.
I Haukadal var samkomuhús
einnig í smíðum. Fjell húsgrindin
til grunna og nokkuð af viðnnm
brotnaði, en snmt faulc á sjó út.
Þar fulcu og þrír bátar og hús
skektust á grunni. Þak fauk af
geymsluskúr og Ólafnr bóndi Há-
konarson misti fjárhús sitt og
þalc af hesthúsi.
Við norðanverðan Breiðafjörð
var í fyrrinótt aftaka sunnan rok
og sjógangur. Urðu víða skemd-
ir. í Króksfjarðarnesi fauk þak
með öllum viðum af nýju haugs-
húsi og fjósi og 3 bátar hrotnuðu
allmikið. Á Reykhólum brotnaði
einnig bátur.
Dr. J. Charcot var eion
af víðfrægustu og vin-
sælustu landkönn-
uðum í tieimi.
Morgunblaðið hitti í
gær dr. Vilhjálm Ste-
fánsson og bað hann að
segja frá áliti sínu í
stuttu máli um dr. Char-
cot. Hann komst að orði
á þessa leið:
Dr. Charcot var einn af fræg-
ustu landkönnuðum síðari tíma,
er fengist hafa við rannsóknir
heimskautalanda. Hann var og
einhver sá vinsælasti þeirra. —
Allir, sem kyntust honum fengu
hinar mestu mætur á honum.
Jeg heimsótti hann í skipi
hans tveim dögum áður en
hann fór hjeðan.
Hann var þá sem fyr, með
eldheitai^ áhuga fyrir starfi
sínu; bæði í sambandi við þessa
síðustu rannsóknaför hans, og
eins þegar hann talaði um
framtíðarfyrirætlanir sínar á
sviði rannsókna og visindaiðk-
ana.
Jeg get ímyndað mjer, að af
öllum landkönnuðum heims á
þessu sviði, væri einskis jafn
mikið saknað og hans.
Þegar jeg heimsótti hann að
þessu sinni, sagði hann mjer m.
a. frá síðustu ferð sinni til
Grænlands á þéssu sumri. Á
þeirri ferð fyrirhitti hann það
sem enginn gat ímyndað sjer
að komið gæti fyrir.
Meðfram allri strandlengju
Austur-Grænlands, þar sem
hann fór, sá hann ekki einn
einasta lagnaðarísjaka. Allur
hafís, sem þar var, var þorg-
arís frá skriðjöklum. En q,f
borgarísnum var meira,, en
venja er til.
Hann sagði, að mikill vís-
indalegur árangur hefði orðið
af þessari ferð, enda vann hann
af kappi, ásamt samstarfs-
mönnum sínum, að því að rita
um rannsóknir þessar.
Dr. med. Skuli Guðjónsson hef-
ir nýlega verið skipaður í al-
þjóðanefnd, sem starfar að ránn-
sókn ryksjiíUdóma og vörnum
gegn þeim. Sýnir þetta meðal ann
ars hve mikils trausts hann nýt-
ur.
Vatnið, sem hljóp., fram hjá
Pjetursey úr ánni Rlifandi, er nú
að mestu horfið og vegurinn fær.
Nokkrar skemdirt hafa orðið á
vegum í Mýrdal bæði við Múla-
kvísl ' og Jökulsá! Eiiinig hefir
Klifandabrúin laskast' lítilsháttar.
Viðgerð er nú liafin á öllum þess
um stöðum og verður lienni yænt
anlega lokið í þessari viku, FÚ.
Á Akureyri hluttist talsvérðar
skemdir af ofsarólíinú, er gúisáði
síðastl. miðvikudagsnótt. RÖskuð-
ust reykháfar á húsum og trje
brotnuðu í görðum. Vjelskipið
Liv, er lá á höfninni, slitnaði upp
og rak á grynningar og 3 trillu-
bátar sukku., Náðist.Liv: út þegar
í gærmorgun og trillubátarnir
eru nú einnig liomnir á flot. FÚ.
t