Morgunblaðið - 23.09.1936, Blaðsíða 2
>?r>í!
2
MGRGUN BL4ÐIÖ
Miðvikudagur 23. sept. 1936.
-
—
JpUrgmtMaHft
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Ritstjórar: Jón Kjartansson og
Valtýr Stefánsson —
ábyrgttarmaTSur.
Ritstjórn og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Auglýsingastj6r|: E. Hafberg.
Auglýsin gaskrif stöf a í
Austurstræti 17. — Sími 3700.
Heimasímar:
Jón Kjartansson, nr. 3742
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770.
Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánuði.
í lausasölu: 15 aura eintakib.
25 aura meö Lesbók.
Hrellingar
hjegómamanns.
Það getur komið fyrir bestu
menn að hlaupa á sig. Ep það
fyrnist furðufljótt yfir slíka at-
burði, ef menn hafa næga still-
ingu til að taka slysninni með
karlmensku. Haraldur Guð-
mundsson varð sjer til athlæg-
is við Háskólasetninguna. Það
va,r leiðinda atvik. En engum
var um að kenna, nema honum
sjálfum. Þess vegna, var ekkert
annað fyrir hann að ger^, en
bíta á jaxhnri og bölva í hljóði.
Þá hefði alt lagast von bráðar.
En Haraldur hefir verið svo
óheppinn, að láta særða hje-
gómagirnd sína hlaupa með sig
alveg í gönur.
Nú er svo komið, að hlátur-
inn sýður niðri í hverjum manni
— þessi meðaumkvunarblandni
hlátur, sem er svo hvímleiður
og értandi.
■ h
Haraldur er reiður við sjálf-
an sig, sem von >er. Það hefir
verið honum ótrplega mikið
metnaðarmál, að temja sjer ör-
ugga, heimsborgaralega fram-
komu. En nú varð broddborg-
arinn heimsborgaranum yfir-
sterkari. Því ekki er það annað
en broddborgaraleg viðkvæmni
fyrir eigin persónu, sem olli
hinni upphaflegu slysni hans
og áframhaldandi axarsköftum.
Haraldur „fjell út úr rull-
unni“ við Háskólasetninguna á
ákaflega neyðarlegan hátt.
Hann hefði getað bætt úr þessu
með ýmsu móti, t.d.- með því að
biðja Háskólann hreinlega af-
sökunar á framhleypni sinni.
En Haraldur bætir gráu of-
an á svart. í gær skrifar hann
Háskólarektor og Háskóláráði,
með þeim ódæmá rosta, að mað-
ur gæti 'hugsað, að hann væri
að leika IVfússolini eða Hitler.
Hann gerist sa,mkvæmt bestu
einræðisfyrirmyndum í senn
ákærandi og dómari. Að end-
ingu krefst hann þess, ,,að Há-
skólaráðið geri ráðstafanir til
þess, að sóma Háskólans verði
betur gætt eftirleiðis“.
Það, sem gerðist við Há-
skólasetninguna var ekki ann-
að en það, að maður, sem ekki
átti að tala þarna, heimtaði
orðið með mestu frekju, og var
synjað um það.
Einfaldasta ráðið ,,til þess að
sóma Háskólans verði betur
gætt eftirleiðis“, virðist vera, að
slíítur maður sýni sig ekhi oft-
ar við Háskólasetningu.
HAAGDÖMSTÖLUNN Á AÐ ÚRSKURÐA
UM YFIRRÁÐIN í ABYSSINIU.
Abyssiníumenn fá ekki sæti I Þjóðabandalaginu fyr en eftir úrskurðinn.
Mussolini hefir enga
fulltrúa sent.
Ilalir í Gemf
kallaðir lieini.
Abyssiniumenn geta ekki tekið sæti sín á
þingi Þjóðabandalagsins strax, heid-
ur verða þeir að bíða úrskurðar al-
þjóðadómstólsins í Haag, um það hvort þeim
beri enn sæti á þinginu eða hvort fulltrúar Musso-
lini geti mætt sem fulltrúar Abyssiniu. Ákvörð-
un um að skjóta þessari deilu til alþjóðadóm-
stólsins var tekin á fundi kjörbrjefanefndarinn-
ar í gærmorgun.
Þar til alþjóðadómstóllinn hefir kveðið upp
dóm sinn, fer kjörbrjefanefndin með málefni
Abyssiniu, eftir fyrirm^elum, sem nánar verða
ákveðin.
Mussolini er ekki ánægður með þessi málalok. Hann
hefir enga fulltrúa seij»t enn á þingið. Bíða fulltrúar
þeir, sem kjörnir hafa verið til þess að fara til Genf,
ennþá í Róm.
Opinberlega hefir ítalska stjórnin ekki látið neitt uppi um
afstöðu sína.
Lloyd George í Þýskalandi
En í gær hættu fulltrúar
ítölsku stjórnarinnar >starfi
á alþjóða útvarpsmálaráð-
stefnunni, sem nú stendur
yfir í Genf, og tilkyntu
stjórn ráðstefnunnar að
þeir gætu ekki lengur tek-
ið þátt í ráðstefnunni.
Það er álitið, að þeir hafi
fengið fyrirskipanir frá Musso-
lini um að hverfa heim, og að
þeir sje með þessu að lýsa óá-
nægju sinni yfir því, að abyss-
insku fulltrúunum skuli ekki af-
dráttarlaust hafa verið neitað
um að taka sæti sín á þingi
Þjóðabandalagsins.
í Lundúnafregn (F.tí.) seg-
ir, að kjörbrjefanefndin hafi
vprið á einu máii um úrskurð
sinn að vísa málinu til Haag.
Hefir verið skipuð lögfræðileg
undirnefnd, til þess að ákveða,
á hvern hátt málið skuli lagt
fvrir alþjóðadómstólinn, og
ennfremur til þess að ákveða að
hve miklu leyti ne/ndin skuli
hafa heimild til að fara með
mál Abyssiniu.
Lögfræðinganefndin er skip-
uð þeim . Politis, fulltrúa
Grikkja, Limbourg frá Hollandi
og lögfræðilegum ráðunautum
fulltrúanefnda Stóra-Bretlands,
Fraíklands, og Sovjet-Rúss-
lands; ennfremur sjerfræðing-
um Þjóðabandalagsskrifs> o^-
unnar um lögfræðileg mál.
(Skv. einkask. og F.Ú.).
Kosningarnar í Danmörku.
Sósíalistar
unnu
hlutkestið.
Stauning
getur afnumið
Landsþingið.
Sosíalistar unnu hlut-
kestið í Bornholm,
en á því valt, hvort
vinstriflokkarnir fengju
meirihluta í Landsþing-
inu.
Stjórnin hefir nú 38
þingsæti gegn 37 þing-
sætum stj órnarandstæð-
inga. Örlög Landsþings-
ins eru því ákveðin.
Kosningabaráttan var háð
um það hvort Landsþingið
skyldi afnumíð. Stauning barð-
ist fyrir afnámi þess, a. m. k.
í orði -kveðnu QfjT nú fær hann
vilja .sínum framgengt..
Hann getur ekki framar sef-
að hina róttækari flokksmenn
Mynd þessi er tekin í Múnchen, þegar Lloyd George lagði
blómsveig á minnismerki fallinna hermanna þar. Pökkklæddi
maðurinn, sem með honum er, er von Ribbentrop.
„Verkamenn
eru stórhrifnir
af Hitler
44
« Lloyd George.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KHÖFN í GÆR.
H
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
itler hefir ekki í huga að fara með
árásarstríð á hendur neinni þjóð,
heldur hervæðist hann aðeins til
þess að geta varið land sitt og þjóð“.
Þannig farast breska öldungnum Lloyd George orð, í sam-
tali við stórblaðið ,,News Chronicle“ í dag. Bæði Lloyd George
og News Chronicle fylgja frjálslynda flokknum og lýðræðis-
stjórnskipulagi að málum.
Lloyd George segir ennfremur:
,,Hitler hefir afrekað mörg
um stórvirkjum. Verka-
menn, einkum yngri kyn-
slóðin, eru stórhrifnir af
Hitler“.
Um samvinnu Breta og Þjóð-
verja segir Lloyd George:
Hægt er að koma á fullu
samkomulagi milli Breta og
Þjóðverja með heiðarlegum
skilyrðum. Með því myndi vera
hægt að tryggja friðinn í heim-
inum“.
Lloyd George hefir undanfar-
ið verið í heimsókn í Þýska-
landi og kom þá m. a. til
Múnchen. Hitler hitti hann á
sveitabústað hans í Bayern, og
átti við hann samtal tvisvar
sinnum í margar klukkustundir
í hvort skiftið.
Ferðaðist Lloyd George víða,
til þess að kynna sjer ástandið
í landinu.
Heræfingar
í Þýskalandi.
Heræfingarnar í Vestur-
Þýskalandi fara fram sam-
kvæmt ströngustu hérnaðar-
reglum, og með algerðri leynd.
I gær stóð yfir bardagi um hæð-
ir nokkrar, og er álitið að hon-
um sje enn ekki lokið.
Ríkisskip. Esja var á Kópaskeri
kl, um 5 í gær, ög Súðin á Bíldu-
dal um sama levti.