Morgunblaðið - 23.09.1936, Qupperneq 7
M
Miðvikudagur 23* sept. 1936.
MOKG GN13LAÐ1Ð
'id 'WÖöf)
a
Heiðurssamsæti
Vilhjálms Stefánssonar.
FRAMHALD AF 3. SfÐU.
Þá talaði Alexander Jóhannes-
són, mintist á tilraunir þær er
hann starfaði að um skeið, til þess
að koma íslandi í flugsamband
við umheiminn og vonaði að dr.
Villriálmi mætti betur takast en
sjer.
I>á talaði Ásgeir Ásgeirsson
fræðslumálastjóri. Lýsti hann
fyrst einkennum dr. Vilhjálms
Stefánssonar sem landkönnuðar,
hve vel hann undirbyggi allar
framkvæmdir sínar, og ef nokkur
vandræði kæmu fyrir „eitthvað
sögulegt“, þá kendi hann altaf
því um, að nú hefði liann gert
eitthvað skakkt.
Ásgeir lýsti heimili dr. Vilhj.
Stefánssonar í New York, þar sem
hann hefir tvær íbúðir, og eru
allir veggir þaktir bókahillum,, en
3—\ skrifarar hafa nóg að starfa,
því að dr. Vilhj. er leiðbeinandi
og ráðunautur allra sem leggja
leiðir sínár í norðurveg.
Þá benti hann á hve líkir þeir
eru í viðmóti og viðkynningu
Lindbergh flugkappi og dr. Vil-
hjálmur, báðir hæglátir, yfirlætis-
lausir og stiltir vel, enda liafa
báðir slysalaust komist fram úr
miklum mannraunum.
Næstur talaði Ársælí Árnason
•og mintist norðurfara dr. Vilhj.,
skapfestu hans og stjórnsemi, og
<lrap á áhugamál sitt, innflutning
sauðnauta, er hann hafði, tekið
upp samkvænit bendingum dr.
Vilhjálms.
En að lokutn hjelt dr. Vilhjálm-
ur Stefánsson langa ræðu og
snjalla og kom víða við, bæði efni
fyrri ræðumanna og nokkrar bend-
ingar til íslendinga og þá einkum
hvernig þjóðin fengi best auglýst
sig og menning sína. En um það
síðar.
Hlutkestið
í Danmörku.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
sína, sem finst franikvæmd
sosíalismans ganga seint, með
því að Landsþingið hefti fram-
gang mála fyrir honum. Ráuð-
liðar fara nú með öll völd í
Danmörku.
Kjörmenn tveggja af þrem-
ur stærstu stjórnmálaflokkun-
um í Danmörku, íhaldsflokks-
ins og alþýðuflokksins (segir í
Kalundborgarfregn F.Ú.), hafa
nú lokið við útnefningu þing-
fulltrúa flokkanna, til Lands-
þingsins, en vinstri flokkurinn
hefir ennþá ekki útnefnt sína
fulltrúa og er búist við að drátt-
ur geti orðið á því, þar sem tal-
ið er, að hann muni ýiyggja á
samvinnu við Det Frie Folke-
parti.
□agbók*
Veðrið (þriðjudágskvöld kl. 5) :
Yfir N-landi er smálægð, en önn-
ur stærri fyrir austan land. Sunn-
anlands er V-læg átt, en N-læg á
N- og A-landi, veðurhæð víðast
3—5 vindst. Smáskúrir hafa verið
vestanlands og nokkur rigning
nyrðra. Hiti 5—8 st. Um 1700 km.
SSV af Reykjanesi er allstór lægð,
sem hreyfist til NA og mun valda
SA-—A-átt á morgun sunnanlands.
Veðurútlit í Rvík í dag: Bjart-
viðri fyrst en þykknar síðan upp
með SA- eða A-átt.
Silfurbrúðkaup eiga í dag hjón-
in Jensína Eiríksdóttir og Ásgeir
Guðnason, kaupmaður og útgerð-
armaður á Flatevri.
Hjónaband. Þann 20. þ. m. voru
gefin saman í hjónaband í Holm-
ens-kirkju í Kaupmannahöfn þau
Hulda Kristjánsdóttir frá Akur-
eyri og Viggo Jessen vjelstjóri á
Lagarfossi.
Knattspyrnukappleikur f ór fram
í gær á ísafirði milli Harðar og
Vestra (I. fl.) og lauk þannig að
Hörður sigraði með 5:2.
57.5C0 kr. var tilboð Diðriks
Helgasonar um byggingú Háskóla-
kjallara, en ekki 57.000, eins og
misritast hafði í Morgunblaðinu í
gær.
Drotningin kemur til Kaup-
mannahafnar frá Roykjayík á
föstudag.
Öskufalls hefir orðið, vart á
Möðrudalsfjöllum að undanförnu.
Er sennilegt að eldur sje uppi í
Kverkfjöllum eða VatnájÖkli norð-
anverðum þótt ekki sje úm stór-
gos að ræða.
Hjálparstöð Líknar fyrir berklu-
veika er opin ,á inánudöguiri og
miðvikudögum kl. 3—ú og föstut.
dögum kl. 5—6.
„Blindi farþeginn", sem kom
hingað með „Diana“, var yfirheyrð
ur í lÖgreglurjetfi í gær. Hann
er pólskur ríkisborgari, eii fædd-
úr í Ukraine, þeim hliita landsins,
sem lagður var undir Pólland
1918. Hann verður hafður í gæslu-
varðhaldi hjer jiangað til „Dania“
fer, en þá, sendur aftur með skip-
inu til útlanda.
Sigmundur Jónsson kaupmaður
á Þingeyri við Dýrafjörð verður
50 áfa á morgnn. En 30. þ. m. á
hann og kona hans, Fríða Jó-
hannesdóttír, hreppstjóra Ólafs-
sonar, 25 ára hjúskapafafmæli.
Lsfixr* liförtu
og svið.
Nýslátrað dilkakjöt og alls-
konar grænmeti.
Jóbannes Jóhannsson,
Grundarstí^ 2. Sími 4131.
Bankabyggsmjöl
fæst v
Nýtt blómkðl
^ulrætur, hnúðkál, hvítkál,
persille, salatblöð.
Verslunin Vfsir.
Togararnir, Tryggvi gamli, Sur-
prise og Kárí lögðu í gær afla
sinn á land í Djúpuvík. Aflinn
var um 160 smálestir á skipi. Tog-
arar jiessir liafa nú veitt yfir 2000
smálestir af karfa. Eru þeir íiú
hættir veiðum og' farnir heimleið-
is. (FÚ.).
Af karfaveiðum komu til Siglu-
fjarðar í gær: Ólafur með 160
smálestir, Þórólfur með 190, Gull-
toppur með 210 og Suorri goði
með 200 smálestir. Öll veiðin er
áætluð. (FÚ.).
í tilefni gullbrúðkaups jieirra
hjóna, Elinborgar Stefánsdóttur
og Páls Þorsteinssonar, fyrrum
bónda og hreppstjóra í Tnngu í
Fáskrúðsfirði, hjeldu börn þeirra
og tengdabörn þeim veglegt sam-
sæti að Tungu. Samsætið sátu um
150 manns. Hófst það með borð-
haldi kl. 6 síðd. Margar ræður
voru lialdnar undir borðum, en
síðan skemtu menn sjer við dans
fram eftir nóttu. Til merkis um
það, hve ern þau hjónin eru enn
og búskaparhugurinn mikill, má
geta þess, að þegar síðustu gest-
irnir voru farnir, kl. 6 um morg-
uninn, og heimafólk gengið til
náða, fóru þau og bundu og
hirtu 10 hesta af heyi, þar eð út-
lit var fyrir rigningu. Samsætið
sátu öll börn þeirra hjóna og
flest tengdabörn.
Hjálpræðisherinn. Auiiað kvöld
kl. 8.30 verður hin nýja skáta-
sveit vígð. Þetta er hin fyrsta
skátasveit drengja sem Hjálpræð-
isherinn hefir vígt hjer á landi,
en skátar Hersins eru nú þektir
um allan heim fyrir þá kosti, sem
góðum skátum ber að eiga. Állir
velkomnir til vígslunnar.
Útvarpið:
Miðvikudagur 23. september.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur: Ljett sönglög.
19.45 Frjettir.
20.15 Erindi: Fiskframieiðsla og
fisksala, II. (Sveinn Árnason
fiskimatsstjóri).
20.40 Hljómplötur: Tónverk eftir
Verdi (til kl. 22).
Vilhjálmi Stefánssyni
árnað fararheillar.
Einn af lesendum Mbl.
hefir beðið blaðið að birta
eftirfarandi:
Hefir þú sjeð Vilhjálm Stefáns-
son ? Þessi spurning hefir oft
heyrst undanfarnar vikur. Svarið
er ýmist já eða nei. Vilhjálmur er
einn af þeim mönnum, sem vakið
hefir eftirtekt í beiminum. Aliir
vita hvað því veldur. En hitt vita
færri, að Vilhjálmur vekur á sjer
eftirtekt allra, sem hann sjá og
honum kynnast, fyrir göfuga og
tígulega framkomu. Frá honum
stafar, ef svo mætti að orði kom-
ast, samúð og kærleikur, hvar
sem hann fer. Miklir vitsmunir
eru góð vöggugjöf. Lærdómur og
Jiekking koma oft að góðu haldi.
En hvorugt þetta gerir manninn
í sannleika rnikinn mann, þó
hann kunni að vekja eftirtekt á
sjer iyrh'. Hvort tveggja þetta
hefir Vilhjálmur iiJSlast?
Eitt er það enn, senr' einungis
fáum er gefið, en sem Vil-
hjálmur hefýr eignast, og það er
viska. Hanií, sem hefir lifað lífi
villimannsins, vaggað . sjer í hóg-
lífi menningárinnar ög þekt svo
að segja öll stig þess í milli, er
vitringur. 1
Island iniklast af að eiga fræg-
an mann fvrir son, en það getur
glatt, sig við, að þarna fylgist að
frægð og göfgi.
Vilhjálmur Stefánsson er á för-
um. Eftir þenna stutta tíma skil-
ur hánn eftir margar og góðar
minningar hjá öllum þeim, sem
hafa sjeð hann og heVrt. Vjer
óskum honum öll farsældar og
allrar blessunar í starfi sínu. Vjer
vonum‘, að hann eigi éftir að
dvelja lengur méðal vor næst,
jiegar hann heimsækir ísland.
H. Á.
*
| Bestu þakkir votta jeg öllum, sem sýndu mjer vináttu og £
£ kærleika með heimsóknum, heillaskeytum, gjöfum, og á annan £
.*. hátt, á 5(0 áxa afmæli mínu.
Hjálmar Þorsteinsson.
f
f
.<■ A A A
V**' V V '<rW WWWWWWWWW^
Mótorbálnr.
Yandaður mótorbátur, 18 smálestir að stærð, með
52/60 Hk. Tuxham vjel, er til sölu.
Eggert Kristiánsson & Co.
'jUf'./T* it
Vtdalfnsklaustur að Görðum,
hugleiðingar um menningarmál eftir Jens Bjarnason.
--- Verð kr. 1,00. -
Fæst í
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
og BÓKABÚÐ AUSTURBÆJAK BSE.
Laugavegi 34.
Nýtt dilkakjöt,
Lifur, i/örtu svið og mör.
Kjötbúðin Herðuitiiu,
Hafnarstr. 18. Símj 1575.
Sláturtíðin er byrjuð.
Hjer eftir seljum vjer því daglega:
KJÖT, í heilum kroppum.
SLÁTUR, send heim ef tekin eru 3 eða fleiri í senn.
MÖR, SVIÐ, LIFUR og HJÖRTU.
.,v. . '
Munið að tryggasta kjötið til söltunar er það, sem slátr-
að er hjer á staðnum.
Tökum að oss að spaðsalta fyrir þá er þess óska.
Heiðraðir viðskiftavinir eru beðnir að athuga, að slátur-
tíðin er stutt og að ómögulegt er að fullnægja þörfum
allra, síðustu dagana. Athugið því, að senda oss pantanir
yðar sem allra fyrst. Því fyr sem þær berast oss, því
meiri trygging er fyrir því, að vjer getum gert yður
til hæfis.
Virðingarfylst
Sláturfjelag SuQurlands.
Sími 1249 (3 línur).