Morgunblaðið - 20.10.1936, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.10.1936, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 20. okt. 1936. MOiiGUNBLAÐIÐ 3 Tveir merk' ustu stjórnmála- foringjarnir. Atvinnumálaiáðherra beitir rang- sleitni í flokkshagsmunaskyni. Stórfeldum misfertum sósialista á isafiiði stungið undir stól. Mowinckel forinai vinstrimanna. Nygaarvold foringi sósíalista. Nýfar kosningar ef Alþýiíufylk- ingln i Frakklandi klofnar — segir Leon Blum. Margir telja að óhjákvæmilegt sje að franska alþýðufylkingin klofni inn- an skamms. Leon Blum boðaði í ræðu í gær, að nýjar kosningar yrðu látnar fara fram, ef alþýðufylkingin klofnaði. I ræðu sinni reyndi Blum að sefa radikalsósíalista flokk- inn, sem talinn er vilja kljúfa alþýðufylkinguna hið fyrsta. Arsþing flokksins verður haldið innan skamms og mun Blum hafa haft þetta þing fyrir augum er hann flutti ræðu sína. Flísin í auga Vestmannaeyinga og bjálkinn í augum Hatntirðinga.; ¥-^að er síst að undra, þótt virðing manna I—/ fyrir lögum og rjetti fari þverrandi * og rjettarmeðvitund almennings ruglist, þegar sjálf ríkisstjórnin gerir sjer leik að því að misbeita á herfilegasta hátt því valdi, sem henni er fengið yfir málum borgaranna. Síðasta dæmi slíkrar misbeitingar af hálfu ríkisstjórn- arinnar er* meðferð hennar á kærum, sem henni bárust um stjórn tveggja bæjarfjelaga, Isafjarðar og Vest- mannaeyja. Jarðskjálfti í Italíu. LONDON í gær, FIT. Snarpur jarðskjálftakipp- ur fanst í hjeraðiníi Udine Belluno í Norður- Ítalíu aðfaranótt sunnudags. 23—24 mann hafa farist og mörg- hundruð hús hafa hrunið eða skemst svo að ekki verður í beim búið. Skriður Iiafá fallið úr fjöllun- um, og gert mikinn skaða á görð- um. f Bellunó, Vittorio og San Vito hafa hús verið rifin af ótta við að þau myndu hrynja og ef til vill valda manntjóni. Alls hafa 23 eða 24 mann farist. 1 dag fanst annar kippur á þess um slóðum, en ekki eins snarpur og sá fyrri. NÝIR VERSLUNAR- SAMNINGAR VIÐ BRETA Fór hann hörðum orðum um verksmiðjuránin, er verkamenn settust að í verksmiðjum þeim, sem þeir vinna í og talaði við- vörunarorðum til kommúnista. Pólitík Leon Blum hefir komið harðast niður á mið- stjettunum, sem greitt hafa radikal-sósíalista- fIokknum, atkvæði. Þaðan stafar óánægjan innan þessa flokks. Mikilsmetinn flokksmaður í radikal-sósíalistaflokknum hef- ir látið svo um mælt: „Verksmiðjuránin hafa í för með sjer að vegur Frakklands erlendis verður enginrf og koma algjöru sklpulagsleysi á fram- leiðsluna. Alþýðufylkingin mun leysast upp, ef núverandi stjórn leysisástandi heldur áfram“. Norges Handels og Sjöfarts- tidende birti í gær skeyti frá London þess efnis, að breska verslunarmálaráðuneytið hafi stofnað nefnd til þess að gera tillögur um breytingar viðkom- andi verslunarsamningum. Til þess að byrja með verðá teknir til athugunar samning- arnir við Noreg, Island, Svíþjóð, Danmörku, Finnland, Pólland og Lithauen. (Skv. F.Ú.). Keflavíkurþátar. Þessir bátar komu með síld á sunnudaginn: Baiigsi 75 tn. og Skógarfoss 13 tn. Á mánudag konni þessir: Ólafur Magnússon 20 tn., Hermóður 70 tn., Freyja 20 tn., Bragi 10 tn., Ingólfur 120 tn. Síidin var söltuð, liausskorin og slógdregin. Hún veiddist grnnt í Grindavíkursjó. Til Reykjavíkur komu í gær ,,Þor- steinn“ og „Jón Þorláksson“ með rúmar 100 tunnur hvor. Síldin var söltuð. Eimskip. Gullfoss fór til út- landa í gærkvöldi kl. 8. Goðafoss er á Akureyri. Brúarfoss er í London. Dettifoss er í Hainborg. Lagarfoss er á Akureyri. Selfoss er á leið til útlanda. Stungið undir stól. Haustið 1934 sendi þáver- andi bæjarstjóri Isafjarðar, Jón A. Jónsson, núverandi atvinnu- málaráðherra Haraldi Guð- mundssyni kæru á sósíalista í bæjarstjórn Isafjarðar og fyr- verandi bæjarstjóra (Ingólf Jónsson) fyrir óleyfilega og sviksamlega meðferð á fje bæj- arins. Eitt af því sem sósíalistar gerðu var það, að þeir sam- þyktu með atkvæðamagni sínu að taka 35 þús. kr. lán úr hafn- arsjóði handa sínu eigin fjelagi, sem þá átti ekki fyrir skuldum. Ekki hirtu þeir um veð handa hafnarsjóði, fyr en þeir voru búnir að taka veð handa sjálf- um sjer. Var því veð hafnar- sjóðs ónýtt. En sósíalistar ljetu sjer ekki nægja að taka 35 þús. kr. þann- ig úr hafnarsjóði handa sínu eigin fjelagi, heldur ljetu þeir fjelag sitt safna stórfeldum Iskuldum við hafnarsjóð og jnámu þær um 140 þús. kr. þeg- ar fjelagið fór á þessu ári í skuldáskilasjóð. Beint tap hafn- arsjóðs nam 118 þús. kr. og auk þess ótaidir vextir um 20 þús. kr. Þótt meðferð sósíalista á Isa- firði á fje hafnarsjóðs hafi þannig verið sviksamleg, sá Haraldur Guðmundsson ekki á- stæðu til að láta neina rann- sókn fram fara. <Hann stakk kæru Jóns A. Jónssonar undir stól. Vestmannaeyjar. Tvívegis hefir þessum sama at- vinnumálaráðherra, Haraldi Guð- mundssyni borist kæra frá Vest- mannaeyjum yfir stjórn og með- ferð hæjarmálanna þar. I fyrra skiftið var kæran frá minnihluta bæjarstjórnar. Ráð- herrann brá skjótt við; sendi hróð- ur sinn, Jón Guðmundsson endur- skoðanda austur í Eyjar. Hann framkvæmdi sína raunsókn, en fann ekkert at.hugavert. Þessum málalokum undu komm- únistar í Eyjum illa og nokkru síðar sendu þeir nýja kæru. Til þess nú að vera öruggir um ein- hvern árangur, báðu þeir ráðherr- ann um ákveðinn mann til að framkvæma rannsóknina. Þetta átti reyndar ekki að vitnast, en brjefið frá kommúnistum til ráð- herrans barst, til Eyja með plögg- um málsins og þannig komst þetta upp. En hver var svo maðurinn sem faiin var rannsókn eftir pönt- un 1 Það var Ingólfur Jónsson, hinn sami, sem lá undir fyrri ákærunni, sem. ráðherrann stakk nndir stól. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Borgarís fyrir Norðurlandi. Tveir jakar á fjöl- farinni skipaleið. Veðurstofunni bárust í gær fregnir frá enskum togara um tvo borgarísjaka á siglingaleiðum norðanlands. AírfÚir er stór og var í gær á norðiægri breidd 66 stig 34 mín. og vesturlengd 21 stig 25 mín. á 140 metra dýpi, en sá staður er á allfjölfarinni skipaleið á austan- verðu Strandagrunni nálægt. Reykjafjarðarál. Hinn jakinn er minni og var í gær á norðlægri bréidd 66 stig 12 mín. og vestur- lengd 20 stig 16 mín. á 80 metra dýpi, en sá staður er á fjöifarinni skipaleið út af Skagatá skamt undan landi. Kringum þessa jaka eru nokkrir smájakar. (FÚ.). - Myrti 15 konur. I skeyti frá Briissel segir: Belgisk tísku-saumakona, sem grunuð er um að hafa myrt fimtán konur með eitri, hefir verið tekin föst hjer í borginni. Áður en hún byrlaði fórn- arlömbum sínum eitrið, tók hún alt sparif je þeirra að láni. Bifreiðarslys á Siglufirði. Bifreiðarstjóri slasast. SIGLIJFIRÐI í gær. FÚ. Vörubifreiðin SI 16 í Siglufirði valt s.l. laugardagskvöld nið- ur afarháan, snarbrattan bakka og hlaut bifreiðarstjórinn, Jón Ein- arsson, allmikil meiðsl. Bifreiðin var á leið suður Hafn- argÖtu og mætti henni þá maður á reiðhjóli. Vjek bifreiðin þá svo snögt úr vegi, að henni tókst ekki að stöðva sig á götubrúninni og steyptist hún fram af hakkanum og niður á Tynesuppfyllingu. Kom hún niður á stýrishúsið og brotn- aði það. Jóni leið allvel eftir atvikum er síðast frjettist. Álftir spiila silungs- veiði í Mývatni. Stjórn Fiskifjelags Mývetninga staðhæfir í viðtali við Ólaf Sigurðsson ráðunáut, að á síðustu árum hafi farið mjög í vöxt, áð álftir tæti sundur riðsvæðin í Mý- vatni og jeti hrognin, enda þótt álftin sje grasbítur að eðlisfari, Segja kunnugir og athugulir menn, er stundað hafa silungsveiði í Mývatni um langt skéið, að fyrir nokkrum árum liafi fáeinar áiftir byrjað á því að éæiiá' hroghum, en síðan hafi þeim áiftum áltaf farið fjölgandi, sem grafi upp rið- svæðin og jeti lirogn, og virðist svo sem hver læri það af annari. Telja þeir að veiði í Mývatni stafi af þessu hiii mesta hætta. í sumar vorú svo mikil brÖgð að því, að álftir græfu upp rið- svæðin í vatninu, að botninn, sem á að vera sljettur 'eftir klakið, líktist á stóruln' 'svæðum þýfðri mýri eftir gröft álftarinnar. Dæmi er og til þess að úr maga einnar álftar, er var veidd og kruf in, kom iy2 lítri eða 20—30 þús. hrogn. Líta því margir svo á, að álftin^ sje orðin þar einn hinn skæðasti veiðivargur og a,ð einhver ráð þurfi að finna til þess að fælp hana burtu af vatninu, því rfLni er sem kunnugt er alfriðaður fugl. (FÚ.). ' ' ’ . •

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.