Morgunblaðið - 20.10.1936, Blaðsíða 7
3>riðjudagur 20. okt. 1936.
MOKGUNBLAÐItí 7
' ■ ‘ ......... ■ -... -— ,.-r
Síðasti háskólafyrir-
lestur próf. Hallesby.
Prófessor Hallesby hjelt sjötta
og síðasta háskólafyrirlestur sinn
í Nýja Bíó á föstudaginn var.
Nefndi hann fyrirlesturinn „Liv-
ets risiko“, áhætta lífsins.
Allir menn, sagði hann, eru
sammála um, að lífið er áhættu-
samt. En sú hætta, sem fyrir flest-
um vakir, er í því fólgin, að menn
verði útundan í lífsins miklu
veislu.
Sjaldan hefir þessi áhætta hvílt
þyngra á mönnum en einmitt nú.
Síðan á hnignunardögum róm-
verska ríkisins hafa t. d. sjálfs-
morð aldrei verið fleiri en nú, svo
að lögreglan liefir heinlínis orðið
að fá bl’öðin til þess að leyna
sjálfsmorðunum. Svona þungt
hvílir þetta farg á mönnum.
Lífið hefir sín lögmál. Þau er
hægt að brjóta, en það er ekki
hægt að komast hjá því að hefn-
ast fyrir. Nefndi ræðumaður ýmis
kunn dæmi um það, hvernig yfir-
sjónir heimsækja menn dg konur
með sínum ógurlegu afleiðingum.
^ En voðalegasta áhætta lífsins er
]>ó hætta mannssálnanna. Þeirra
örlög eru ákveðin á vissum augna-
blikum, freistingastundunum, þeg-
ar fálmarar hins illa seilast eftir
þeim.
Arásir freistinganna koma eins
og vel undirbúin herhlaup. Alt
sálarlíf mannsins er undirlagt.
Tilfinningalífið logar af þrá eftir
hinu óleyfilega. En jafnframt
sljóvgast hugsunarlífið og viljinn
er eins og reyrður í bönd.
Freistingin beinir hugsun
mannsins inn á ,að afsaka það,
sem hún fær manninn til að gera.
Ef hann reiðist afsakar hann sig
með umhverfi sínu eða taugaveikl-
un o. s. frv.
Hver er þá hjálpin ? Hún er sú
ein, að guð sjálfur sigri freisting-
una. í lífi Jesú Krists sjáum við
þetta, og reynsla aldanna hefir
sýnt, að einstaklingarnir geta not-
ið þessarar guðlegu verndar. 1
Ijósinu frá honum sjá þeir bæði
sig sjálfa eins og þeir eru og
freistinguna eins og hún er. Það
er fyrsta skilyrðið. Bn auk þess
fær maðurinn kraft að ofan, bein-
línis kraft frá guði til þess að
sigrasf á freistingunni.
Og hafi maðurinn þannig á
freistingastundinni mætt Jesú, þá
hefir hann mætt lífsins mestu á-
hættu. Það er eins og Símon sagði
er hann sá Jesúbarnið: Þessi er
settur til falls og til viðreisnar.
Ef honum er á bug vísað þegar
hann býður hjálp sína, þá er það
glötun sálarinnar. En sje hjálp
hans þegin, þá er sigurinn unninn.
Að fyrirlestrinum loknum mælti
forseti guðfræðideildar nokkur
orð, þar sem hann þakkaði pró-
fessor Hallesby fyrir þessi merku
erindi, en áheyrendur tóku undir
með því að rísa úr sætum sínum.
M. J.
Síðastliðna laugardagsnótt fór
frarn símkapptefii á 8 borðum
milli Taflf jelags Vestmanuaeyja
og Taflfjelags Keflavíkur. — IT-
slit urðu þau að Taflf.jelag Vest-
mannaeyja vann með 7y% vinning
4 móti V‘2-
Mótstaða Litla-banda-
lagsins gegn Habs-
borg rjenun.
Schussnigg var
að sefa keis-
arasinna.
London í gær. FtJ.
að er álitið, að Schuss
nigg kanslari hafi
viljað friða keisarasinna
með yfirlýsingu þeirri,
sem hann gaf á fundi
öðurlandsfylkingarinn-
ar á laugardaginn um
það, að til mála gæti
komið að þjóðarat-
kvæðagreiðsla yrði lát-
in fram fara um væntan-
lega endurreisn Habs-
borgarakeisaradæmis-
ins.
Keisarasinnar höfðu orðið
fyrir mjög miklum vonbrigð-
um, er Austurríki gerði
sáttmálann við Þýskaland, og
töldu þá að öll von myndi úti
um endurreisn keisaradæmis-
ins.
Það var alment álitið í Aust-
urríki, að þótt það ekki væri
tekið fram í sáttmálanum, að
keisaradæmið skyldi ekki end-
urreist, þá myndi Schussnigg
hafa lofað Hitler því.
Blöð álfunnar ræða í gær og
dag talsvert um yfirlýsingu
Schussnigg.
Mótstöðunnar gegn endur-
reisn keisaradæmisins í Austur-
ríki hefir aðallega gætt innan
Litla-Bandalagsins, þ. e. Jugo-
Slavíu, Rúmeníu og Tjekkó-
Slóvakíu.
Það virðist nú nokkrum efa
bundið, hvort þau muni halda
áfram mótstöðu sinni. í Rú-
meníu virðist, eftir blöðum þar
að dæma, sem Rumenum muni
standa nokkurnveginn á sama,
hvort Austurríki verður keisara
dæmi, eða ekki. Tjekkó-
Slóvakía mun heldur vilja keis-
aradæmi í Austurríki, en eiga
á hættu, að Austurríki verði að
þýsku áhrifasvæði. Samkvæmt
frönskum blöðum, mun Júgó-
Slavía ein af löndum Litla-
Bandalagsins eindregið gegn
endurreisn keisaradæmisins í
Austurríki.
Dalafólk heitir skáldsaga sem
frú Unnur Bjarklind befir nýlega
gefið út. Verður bókarinnar nán-
ar getið hjer síðar.
SJÁLFVIRKt
bVOTTAEFNI
OJðrir.
/ mjallhvltana Aa
þ«s« «0 h«AA «j«
nuddiSir .« ð f
bl»lkjaður.
Dagbók.
I.O.O.F. = O b. 1 P. = 11810208‘/*
— T. E. — XX.
Veðrið (mánudagskvöld kl. 5):
Austanlands er hæg N-átt og veð-
ur víða bjart, en vindur orðinn S-
lægur vestanlands með þykkviðri
og sumstaðar rigningu eða slyddu.
Veldur því djúp lægð, sem er yfir
V-strönd Grænlands og nær aust-
ur í Grænlandshaf og hreyfist til
NA. Mun hún hrátt valda SV-átt
og mildara veðri hjer á landi.
Hiti er nú mestur 4—5 st. við SV-
strönd landsins, en á N- og A-
landi er alt að 1—2 st. frost.
Veðurútlit í Rvík í dag: All-
hvass SV. Rigning.
Sundlaugarnar verða lokaðar til
laugardags vegna viðgerðar.
Hjúskapur. Síðastl. laugardag
voru gefin sanián í hjónaband af
síra Bjarna Jónssyní, xmgfrii
Margrjet Þórarinsdóttir og Lárus
Jóhannsson vjelstjóri. Heimili
ungu hjónanna er á Seljaveg 3.
Kristniboðsvikan. Samkoma í
kvöld kl. 8l/2 í dómkirkjunni.
Efni: Á ekki að kristna ísland
fyrst ? Jóhann Hannesson talar.
Magnns Andersen syngur. Frjáls
samskot til kristniboðsins á eftir
samkomunni. Allir velkomnir.
Hjúskapur. Gefin voru saman í
hjónaband laugardaginn 17. þ. m.
ungfrú Borgliildur Tómasdóttir og
Runólfur Þorsteinsson bóndi á
Brekku, Þykkvahæ. Síra Bjarni
Jónsson gifti.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinber-
að trúlofun sína ungfrú Emilía
Lárusdóttir, Bjarkargötu 6, ög
ívar Guðlaugsson frá Boi'írarfirði.
Háskólafyrirlestrar^ á þýsku. Dr.
W. Iwan flytur næsta tyrirlestur
sinn í háskólanum í kvöld kl. 8.05.
Efni: Erfolg und Sorgen im K0I1L
enrevier. Öllum heimill aðgangur.
Hjúskapur. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Valgerður Björnsdóttir Arnórs-
sonar stórkaupmanns og stud.
med. Snorri Ólafsson, Daníelsson-
ar yfirkennara.
,,Armann“ heldur skemtifund í
kvöld. Verður þar margt til skemt-
unar. Konráð Gíslason, ritstjóri
íþróttablaðsins, flvtur erindi um
Olympíuleikana ’ í sumar.
Hjúskapur. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband af síra
Friðrik Hallgrímssyni ungfrú
Þóra Björnsdóttir frá Vatnsleysu
í Biskupstunguin og Karl' Magn-
ússon bifreiðastjóri. Heimili ungu
hjónanna er á Hallveigarstíg 9.
B.v. Gyllir fór á veiðar í fyrri-
nótt.
Lyra var væntanleg í nótt frá
Bergen og Færeyjum.
Markaðurinn í Grimsby í gær
(mánudag): Besti sólkoli 45 shíll-
ings pr. box. rauðspretta 60 sh.
pr. box, stór ýsa 38 sh. pr. box,
miðlungs ýsa 15 sh. pr. box, stór
þorskur 42 sh. pr. ‘20 stk. (score),
stór þorskur 12 sh. pr. box og
smáþorskur 8 sh. pr. box. (Tilk.
frá Fiskimálanefnd. — FB.).
Farþegar með Gullfossi til út-
landa í gærkvöldi: Rósa Her-
mannsdóttir. Ragúar Kvaran,
Bjarni Guðjónssön, Halldóra
Sveinbjarnardóttir, Guðríður Jóns
dóttir, Óskar Jónsson, Jón Björns-
son. Ásm. Sveinsson, Jónas Kristj-
ánsson, dr. Ben. S. Þórarinsson,
Hulda Mikkelsen, Guðrún Sigur-
jónsdóttir, Hulda Nordahl, Jóna
Guðjónsdóttir, Sveinbjörg Eras-
musdóttir, Björn Bessason, Ólafur
Elíasson, Sveinn Þorsteinsson,
Geir Agnar Zoega, Háraldur Gísla
son, Olöf Briem, Elín Jónsdóttir,
Jóna Kristófersdóttir, Svava Sig-
fósdóttir.
Knattspyrnuf j elagið Valur helt
aðalfund sinn 18. þ. m. Stjórn
fyrir' næsta starfsár skipa: Frí-
mann Helgason formaður, Einar
Björnsson, Andrjes Bergmann,
Sigurður Ólafsson, Grímar Jóns-
son, Jóhann Eyjólfsson og Her-
mann Hermannsson. Undan end-
urkosningu báðust þeir, Axel Þor-
björnsson, Hólmgeir Jónsson og
Jóhannes Bergsteinsson, en þeir
bafa allir um margra ára skeið
gegnt stjórnarstörfum og öðrum
ábyrgðarmiklum störfum fyrir fjé-
lagið. F;þlagslíf Vals er gott, og
ákugi fyrir eflingu fjelagsins er
mikill. Fjelagið, sem á þessu ári
var 25 ára gamalt, hefir ráðist í
að fá hingað skotskan knatt-
knattspyrnukennara fyrir fjelags-
menn, er það í fyrsta sinn sem
knattspyrnufjelag hjerlendis, eitt
síns liðs, ræðst í slíkt þrekvirki.
Hlutaveltu er ákveðið að halda 1.
nóvember n.k. til þess að standast
kostnað við rekstur fjelagsins,
sem óhjákvæmilega verður mikill
á þessu ári.
Knattspymukappleikur var háð-
ur í Keflavík á milli knattspyrnu-
fjel. „Hauka“ í Hafnarfirði og
„Reynis“ í Sandgerði. Úr'slit urðn
þau að jafntefli varð: 2 mörk
gegn 2. Leikurinn var fjörugur
og skemtilegur, og hafa fjelögin
tekið miklum framförum frá því
í fyrra.
Próf. Hallesby og norsku stúd-
entarnir fóru til útlanda s.l. sunnu
dag. Síðustu ræðu sína hjer á
landi helt próf. Hallesby í dóm-
kirkjunni kl. 5 á sunnudag. Síra
Eriðrik Hallgrímsson sagði nokk-
ur orð áður en próf. Hallesby tal-
aði, en síra Bjarni Jónsson á eftir.
Stúdentarnir sungu í kirkjunni.
ísfisksala. Eldborg seldi í
Orimsby í gær bátafisk að austan,
1140 vættir fyrir 1426 stpd.
Útvarpið:
Þriðjudagur 20. október.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfr^gnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur: Norsk lög.
19.45 Frjettir.
20.15 Erindi: Læknisrannsóknir á
miðli í dásvefni (Einar H. Kvar-
an rithöf.).
20.40 Hljómplötur: Píanólög eftir
Brahms.
21.05 Erindi: Tónlistardagskráin
í vetur (Páll ísólfsson tón-
skáld).
21.20 Symfónía í F-dúr, eftir
Bramhs (plötur) (til kl. 22).
Unglingspiltur rjeðist í vinnu
hjá skoskum bónda.
— Þú verður að sofa í hlöð-
unni, sagði bóndi, og þú verður
að vera kominn til vinnu kl. 4 í
fyrramálið.
Pilturinn svaf yfir sig og kom
ekki fyr en kl. 4i/2 þangað sem
bóndi var að vinna. Hann studd-
ist fram á rekuna og hreytti úr
sjer:
— Hvað hefurðu verið að gera
í allan liðlangan dag?
með morgunkafíinu.1
Nýir kaapendur
fá blaðið ókeypis
til næstkomandi
mánaðamóta.
Hringið í sírna 1600
og gerisf
kaupendur.
Húsfr. Gróa Jónsdóttir
Kveðja.
f. 1. apríl 1855 -T d. 14. sept. 1936.
Þú hrein og djörf varst hefðar-
kona,
aldrei viMir láta;
glaða glöðust varstu,
gleðisnauðum kUnnir gráta.
Fljótt á vori vona þiuna
varð þjer lífið hart að kenna:
Því hamarinn kleifst sem Helga
forðum,
með hjálparvana sonu tvenna.
Síðar hlaustu gullnar gjafir:
góða dóttur, vini, maka.
Þú sóttir fram í sóla-rhafið,
í sortann aldrei leist til baka.
Trúin var þinn sterki stafur,
stuðlaberg þitt vissan hreina.
Drottinn blessar, Drottinn vakir,
Drottinn aldrei ljet þig eina.
Eftir langan ellivetur
er nú sál þín leyst úr dróma,
un þú sæl við endurfundi,
árdagsglit og sólarljóma.
Nanna frá Nesi.
Kona ein í Buenos Ayres eign-
aðist þríbura um daginn. Einn
fæddist þar sem konan átti heima,
annar í sjúkrabifreiðinni á leið-
inni í sjúkrahúsið og sá þriðji
fæddist í sjúkrahúsinu.
Tækifæriskaup.
Rex rafmagnsvog, rafsuðu
vjel og rafmófor i
Heildverslun Garðars Gíslasonar.
sem hlut þinn
,hjá- þeim
með