Morgunblaðið - 17.11.1936, Qupperneq 3
Þriðjudagur 17. nóv. 1936.
MOHGUNBLAÐÍÐ
L
Samfylkingiii er fjandiam-
leg frelsi og lýðræði.
Jarðrœktarlögin giýfu:
Mútmæli streyma frá
bændum af öllu landinu.
EFTIR því sem bændur
kynnast betur hinum
nýju jarðræktarlö£um vex
andstaðan gegn lögunum.
Búnaðarfjelögin nt um land eru
nú sem óðast að halda fundi til
þess að ræða þessi mal. Blaðið
hefir haft, fregnir af þessum
fuudum:
(
Árnessýsla.
Búnaðarfjelag Gnúpverjahrepps
helt fund 13. þ. m. Þar voru sam-
þykt með 21:4 atkv. mótmæli g'egn
nýju jarðræktarlögunum.
Einnig var ‘með sama atkvæða-
magni samþ. traustsyfirlýsing til
meirihluta Búnaðarþings og full-
trúa hjeraðsins, Páls Stefánssonar
á Ásólfsstöðum.
Bj.arni Bjarnason alþm. var á
þessum fundi og revndi mjög að
hafa áhrif á fundarmenn, en það
hreif ekki.
Búnaðarfjelag’ Hrunamanna-
hrepps hélt fund 14. þ. m., og
samþykti með 29:26 atkv. mót-
mæli gegu nýju jarðræktarlögun-
um.
Báðir þingmenn kjórdæmisins,
Bjarni og' Jörundur voru mættir
á fundinum. Bjarni kom á fund-
inn með mörg skrifleg atkvæði frá
bændum, og var leyft að þau yrði
með talin; erá þau innifalin í þeim
26 atkv., sem voru með jarðrækt-
arlögunum. En tregir og viljalitl-
ir hafa þessir bændur verið, þar
sem þeir vildu ekki mæta sjálfir,
enda þótt þeir hafi látið undan
þrábeiðni Bjarna og leyft, lionum
að fara með skriflegt atkvæði.
Múlasýslur.
Þar hafa fundir verið haldnir í
mörgum búnaðarfjelögum, og hef-
ir blaðið haft fregnir af þessum:
Búnaðarfjel. Fellnahrepps sam-
þykti með 17:5 atkvæði mótmæli
gegn jarðræktarlögunum.
Búnaðarfjel. Tunguhrepps sam-
þykti sömuleiðis mótmæli með
17:5 atkv. Þar varð búnaðarþings-
fulltrúinn, Björn Halldórsson, í
stórum minnihluta.
Búnaðarfjelag Skriðdals samþ.
sömuleiðís mótmæli með 13:5.
f Breiðdal voru að sögn 20—30
mætti og samþykt mótmæli með
% atkvæða.
í Jökuldal voru einnig samþykt
mótmæli með ýfirgnæfandi meiri-
hluta.
I Vallnahreppi urðu fylgjendur
jarðránsstefnunnar, stjórnarliðar,
ofaná. Á öðrum fundinum þar
voru samþykt meðmæli með nýju
jarðræktarlögunum með 7:6 atkv.
og á hinum með 7:5 atkv.
Dalasýsla.
í Saurbænum, þar sem hefir
verið aðalhreiður Tímaiiðsins, voru
samþykt með 10:8 atky. mótmæli
gegn jarðræktarlögunum.
I Hvammshreppi voru einnig
samþykt mótmæli með því nær öll-
um atkv.
í Miðdölum fór á sömu leið;
jarðránsmenn áttti þar ekkert
fylgi.
í Hörðudalshreppi voru einnig
samþ. inótmæli með nál. öllum at-
kvæðum.
Snæf ellsnessýsla.
Þaðan hafa komið fregnir úr
tveimur hreppum.
Á Skógarströnd, eiui hreppur-
inn í sýslunni sem Tímamenn háfa
átt ofurlítið fylgi, voru samþykt
með 14:2 átkv. mótmæli gegn
j arðræktarl ögunum.
í Helgafellssveit voru mótmælin
samþykt einróma.
Rangárvallasýsla.
í Austur-Eyjafjallahreppi voru
samþykt mótmæli gegn jarðráns-
stefnunni.
í Vestur-Landeyjahreppi sömu-
leiðis samþykt mótmæli.
í Rangárvallahreppi sömuleiðis
samþykt mótmæli, nál. einróma.
Akureyri.
Á fjölmennum fundi í Jarðrækt-
arfjelagi Akureyrar'á sunnudags-
kvöld var nær einróma samþvkt
fylgi við breytingartillögur meiri-
hluta Búnaðarþings. Var fundur-
inn fylgjandi meirihluia Búnaðar-
þings í öllum atriðum.
Það á að grafa und>
an inálðarMuðuin
þjóðfjelagsins.
Fyrsta sporið:
Togaraútgerðin í rústir.
Það er fengin ótvíræð og skjalleg sönnun
þess, að sósíalistar, sem hingað tii
hafa talið sig í hreinni andstöðu við
ofbeldis- og byltingaflokk kommúnista, hafa nú
tekið upp á sína stefnuskrá öll þau höfuðmál sem
kommúnistar hafa hingað til barist fyrir.
Þessi staðreynd hlýtur óhjákvæmilega að
hafa þær afleiðingar, að yfir lýðræðinu vofir nú
meiri og alvarlegri hætta, en nokkru sinni áður.
Þess vegna verður alvarlega að skora á alla sanna
íslendinga, sem unna frelsi og lýðræði, að taka nú
höndum sarnan til verndar lýðræðinu og sjálfstæði
þjóðarinnar í framtíðinni.
Drengur hrapar i fjalli
við Siglufjörð.
Fimtán ára gamall dreng-
ur, Sigurður Sófusson,
hrapaði um 400 metra lang-
an veg í fjallinu fyrir ofan
Siglufjarðarbæ s.I. sunnu-
dag.
Menn úr bænum sáu er Sigurð-
ur hrapaði og hröðuðu sjer þegar
honum til aðstoðar. Lý háún þá
meðvitundarlaus og blóðugur.
Var Sigurður strax borinn til
læknis. Hafði liaun hlotið mikil
meiðsli, sjerstaklega á liöfði, en
var þó hvergi brotinn. Sigurði líð-
ur nú vel eftir atvikum.
Sigurður var á leið upp í i
Hvanneyrarskál er hann hrapaði j
og vildi slysið til utan við Gimbra
kletta.
Harðfenni var í hlíðiuni, en auð
ir blettir á milli.
Yið ísiendingar höfum bygt
upp okkar þjóðskipulag á
grundvelli lýðræðis og þingræð-
is. Þetta þjóðskipulag vilja
kommúnistar leggja í' rústir, og
fá í staðinn nýtt, einræðis- og
harðstjórnarskipulag, að rúss-
neskri fyrirmynd.
Kommúnistar fara ekki 'dult
með þessa fyrirætlan sína. Svö
hreinskilnir eru þeir, að játa
það skýrt og afdráttarlaust, að
markinu ætli þeir að ná me'ð of-
beldi og byltingu.
*
Sósíalistar hjer á landi hafa
fram til þessa talið sig í fullri
andstöðu við stefnu kommún-
ista. Þeir hafa talið sig lýð-
ræðissinna og fordæmt vinnu-
aðferð kommúnista.
En nú hafa þau undur, ^erst,
að flokkur sósíalista, sem ’fer
með stjórn iandsins, hefir tek-
ið á sína stefnuskrá öll höf-
uðmál kommúnista, sömu mál-
in, sem sósíalistar hafa hing-
að til fordæmt og ekki viljað
Iíta við.
Hjer eftir verður flokkur
sósíalista því ekki talinn lýð-
ræðisflokkur, heldur ofbeldis-
og byltingaflokkur, fjandsam-
legur núverandi þjðskipulagi.
Það er ekki til neins fyrir
Alþýðublaðið, eftir það sem
gerst hefir, að ætla nú að af-
neita kommúnistum. Það er
heldur ekki til neins fyrir for-
mann Tímaliðsins að vera
að hampa því fram nú, að sósí-
alistar hafi „afneitað fjelags-
skap við kommúnista“. Þar
sem sósíalistar hafa tekið á sína
stefnuskrá öll höfuðmál komm-
únista, skiftir hitt engu máli,
hvort hann heitir Einar 01-
geirsson eða Hjeðinn Valdi-
marsson, sem forystuna hefir
með höndum. Enda virðist nú
aðeins eitt sem skilur þessa
fyrri fjandsamlegu flokka, og
það er; hver eigi framvegis að
hafa forystuna.
Málefnalega sjeð hafa
kommunistar sigrað, hvað sem
ofaná verður um forystuna í
framtíðinni.
*
Qll höfuðmál kommúnista
hafa verið sett á oddinn í hinni
nýju starfsskrá. Mest ber þar á
ofsókn á hendur einum at-
vinnuvegi, togaraútvegnum, og
reyndar sjávarútveginum yfir
höfuð.
• f •' i
Kommúnista-samfvlkingin
nýja krefst þess, að togaraút-
gerðin verði tafarlaust sett und
ir opinbera rannsókn. Slík
krafa stjórnmálaflokks á hend-
ur .atvinnuvegi, sem verið hef-
ir mesta lyftistöng þjóðarinn-
ar undanfarin 15—20 ár, er
vafalaust algert einsd’æmi.
Það er ekkert leyndarmál,
■
endá öllum kunnugt, að togara-
útgdrðin hefir nokkur síðustu
árin verið rekin með tapi. Þar
af leiðir að flest togarafélögin
standa nú höllum fæti fjár-
hagslega. Þetta tæksfæri vilja
rauðliðar nota til þess að knje-
setja þenna atvinnuveg.
Og það á að gera meira en
að knjesetja togaraútgerðina,
sem brauðfæðir hlutfallslega
flesta verkamenn á sjó og
landi, og veitir besta atvinnu
og mest öryggi. Það á að fang-
elsa þá menn, sem lagt hafa
fram. fje í togaraútgerð á ís-
landi!
*
Forseti Alþýðusambands ís-
lands, Jón Baldvinsson, er nú
bankastjóri í þeim bankanum,
sem þjóðin á það mest og best
að þakka, að togaraútgerð er
rekin í allstórum stíl hjer á
iandi.
Því verður vitanlega ekki
neitað, að bankarnir hafa
tapað miklu fje á togaraútgerð-
inni.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU,
EldsvoOt út frá
otfueldavjel. \
Eldur hatði læst sig
í þakið en slökkvi-
liðið kætði hann,
T7 ldur kom upp í Laug-
arnesbúinu í gær-
dag — húsi Þorgríms
Jónssonar á Laugarnesi.
Slökkviliðinu tókst að
kæfa eldinn skömmu
eftir að það kom á vett-
vang, en þá hafði elduT-
inn komist upp í þakið
og lítinn kvist á norður-
hlið hússins.
Eldsupptök voru þau, að
olíueldavjel, sem stóð uppi á
borði í eldhúsinu á lofthæð
hússins, fell niður á gólf. Um
leið og olíuvjelin fell, flóði olí-
an úr henni út um gólíið og
læsti eldurinn sig brátt um
alt eldhúsið. Ein stúlka var í
eldhúsinu þegar eldurinn kom
upp. Hugsaði hún um það eitt,
að bjarga út íarlama konu,
sem var í húsinu, og sem var
nýkomin af sjújcrahúsi.
Slökkviliðið fekk tilkynningu
um eldsvoðann kl. 3,15. Þegar
slökkviliðsmenn komu inn að
Laugarnesi var eldhúsið alelda
og eldurinn búinn að læsa slg í
þakið.
Nokkuð langt er þarna í
næsta vatnshana, eða niður að
Laugarnesspítala. Á meðan
nokkrir slökkviliðsmenn voru
að koma fyrir vatnssl'öhgum,
unnu aðrir að því að kæfa eld-
inn með handslökkvitækjum.
Hafði þeim tékist að slökkva
mesta eldinn þegar vatnið kom.
En því, hve slökkviliðið var
fljótt að vinna bug á eldinum,
þakkar slökkviliðsstj >ri samt
að vatnið kom.
Slökkviliðsmenn urðu að rífa
nokkuð upp af þakinu til að
komast fyrir eldinn.
Á Laugarnesi býr Þorgrímur
Jónsson og fjölskylda hans á
aðalhæð. En á lofthæð býr
Hjörleifur Sigurðsson og fjöl-
skylda hans. Það var í eidhús-
inu í íbúð Hjörleifs, sem eld-
urinn kom upp.
Eldhúsið brann alt að inn-
an en ekki breiddist eldurinn
frekar út á hæðinni, svo búslóð
Hjörleifs skemd i lítið, en hún
var óvátrygð.
Strax og eldsins varð vart,
var byrjað að bera út húsgögn
og aðra innanstokksmuni af
neðri hæðinni, hjá Þorgrími.
Mun eitthvað hafa skemst í
meðförum. Innbú hans var vá-
trygt. Nokkrar skemdir urðu
inni í húsinu af vatni, á vegg-
fóðri o. þ. h. Töluvert tjón er
því að bruna þessum, þótt eld-
urinn yrði skjótt kæfður.
B.v. Þórólfur fór á veiðar í gær.
Lyra kom frá Bergen kl. 1 í
nótt.