Morgunblaðið - 17.11.1936, Qupperneq 4
4
MORtíUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. nóv. 1936.
KVENDIÓÐIN 00 HEIAAILIN
Húsmóðir hefir orðið:
Skemtanalif
skólafólksins.
Hásmóðir ein hjer í bæ hefir
beðið Morgnnblaðið fyrir eftirfar-
andi:
Allir vita, að mikið er orðið um
skemtanir hjer í höfuðstaðnum,
svo að okkur fullorðna fólkinu
þykir nóg um og eigum fult í
fangi með að halda í hemilinn ;i
börnum okkar — dætrum og son-
um. — Alstaðar eru ögn úti —
kvikmyndahús, veitingastaðir og
dansleikir.
Sjerstaklega keyrir fram úr hófi
um helgar.
En hvað gera skólarnir og for-
ráðamenn þeirra, ,-til þess að beina
huga unga fólksins, skólafólksins,
í aðra átt?
í hverjum skóla eru svokallað-
ar dansæfingar a. m. k. einu sinni
í' hverjum mánuði, og- auk þess
^fiinn eða fleiri dansleikir á vetri,
auk „kaffikvölda“, funda o. fl,
Við þessu er ekkert að segja.
Fjörugt skólalíf, sem eykur við-
kynningu nemenda og fjelagshug,
er til góðs eins.
En þegar hver skóli leyfir nem-
endufh * *#llra annara skóla bæjar-
ins, , df»- jafnvel flpirum, aðgang að
flestum sínum skemtunum, fer að
vera fullmikið af því góða. Þá fer
að vera full nnkið á boðstólum af
skemtunum fyrir unga skólanem-
endur sem mikið eru fyrir að
skemta sjer, ef ekki þeim vitrari
menn, sem í þessu tilfelli ættu að
vera vfirmenn skólánna, hafa vit-
| ið fyrir þeim.
Jeg,yv«it, að það er ósk margra
annara en mín, að skólarnir legg-
ist á eitt me?f mæðrum og foreldr-
um um að unglingarnir verði fyrir
sem bestum áhrifum í uppvextin-
um. Skólarnir eiga að menta. Að
mínu áliti eiga þeir líka að ala
upp. En það verður ekki, meðan
... það fyrirkomulag helst í skemt-
analífi skólanna, sem nú er.
Húsmóðir.
M U N I Ð
-----að nauðsynlegt er að eiga
augnglas ' til þess að skola með
augun. Sjeu augnalokin rauð og
þrútin, er gott að baða þau úr
daufri bórsýrublöndu. t stað augn-
giass má eins nota lítið vínglas,
er það barmafylt, síðan er því
hvolft yfir augað, og augana depl-
að og rent til í vökvanum.
*
— — að við aumum og sárum
fótum er það gott ráð, að baða
fæturna úr saltvatni, með kolsúru
natron saman við.
*
-----að rúskinnsskór, sem hafa
blotnað, verða að þorna, áður en
þeir eru hreinsaðir. Ryk og ó-
hreinindi eru þá burstuð af þeim
með rúskinnsbursta, og skórnir
síðan dampaðir.
*
— — að frosin matvæli eru
þýdd í köldu vatni, en aldrei
heitu.
Smurl brauð. Hagsýni i fatakaupum.
Fallega |
framreitt. I
Lystugt
á að líta.
Smurt brauð er mjög í tísku um þessar mundir, ef svo mætti að
orði komast um mat. Gestir eru yfirleitt hrifnari af því að fá fallega
framreiddar smábrauðsneiðar, girnilegar á að líta, en ótal tegundir
af sætum kökum, eins og tíðkast hefir til skamms tíma að: bera á
borð við hátíðlegri tækifæri.
Nú er ekki svo að skilja, að | skorná éggjasneið með grænu sal-
smyrja eigi stærðar brauðsneiðar,
atblaði, kjöt með pickles eða soði,
með matarmildu áleggi, til þess j og fisk með þunnum sítrónusneið-
að bera fram í minniháttar te- um, sem skornar eru út eins og
fiðrildi, og margt fleira fyrirhafn-
eða kaffiboði. Nei, brauðsneið-
arnar eiga að vera smáar, kringl-
óttar, ferhyrndar eða aflangar,
eftir vild, og geta þær orðið mjög
svo skemtilegar á að líta, ef rjett
er að farið, þó að als ekki sje bor-
in nein ósköp í áleggið. En skraut-
legt verður það að vera.
Þannig fer
arlítið mætti nefna.
Það er skemtilegt verk að
smyrja þannig og skreyta smá
brauðsnéiðar, og spreyta sig á því,
að láta það líta sem snoturlegast
út. —
Húsmæður ættu að reyna það
t. d. vel á því að j einhverntíma, þegar þær hafa
skreyta tómatsneið með mayonn-1 „spilakvöld“ eða smákáffisam-
aise eða remouladesósu, niður- kvæmi.
Hjá Ing[iriði krónprinsessu.
Myndin sýnir hornið í einu herbergi þeirra Friðriks ríkis-
erfingja o glngiríðar krónprinser.su í tumarbústað þeirra, Grá-
steinshöll.
-----að seljurót verður fallega
hvít á lit, ef hún er látin liggja í
ediksvatni nokkra tíma, áður en
hún er soðin.
*
— — að geyma ekki matvæli
eins og kjöt, ost og smjör í tóbaks-
reyk. Bæði kemur óbragð af matn-
um við það, og ýms eiturefni geta
myndast í matnum í sambandi við
tóbaksreykinn.
Síld í mayonnaise.
Morgunblaðinu var fyrir nokkru
sent sýnishorn af beinlaúsri síld í
mayonnaise-sósu, sem framleidd er
í Verbúðareykhúsinu hjer í bæn-
um. Þessi nýja tegund af niður-
soðinni síld er ágætisfæða, Ijúf-
feng á bragðið og hentug, til þes's
að hafa á kalt borð.
Efni og snið.
Það borgar sig jafnau að kaupa
gott eíhi í fötin í upphafi og láta
góða saumakonu eða skraddara
sauma þau. Ein góð flík endist
miklu betur en tvær eða þrjár
miðlungs flíkur að efni og sniði,
og- fot, sem fara vel í fyrstu slitna
betur en hin.
Litaval.
Þegar keypt eru föt, kjólar eða
kápur, verður að velja lit á þeim
með tilliti til annara fata, sem
maður á fyrir. Best og hagsýnast
er að hafa einn aðallit á fötunum,
þannig, að ekki ]>urfi að kaupa
fleiri hatta, skó, hanska, hálsklúta
eða aðra dýra smáhluti, svo að
samræmi fáist í klæðaburðinum.
Það þarf ekki að vera dýrt að
lilæða sig smekklega, ef örlítil
hagsýni og fyrirhyggjusemi er
viðliöfð.
Góð meðferð sparar
margan skilding.
Að fara vel með föt sín sparar
margan skilding. Það ætti að vera
föst og ófrávíkjanleg regla að
hengja föt sín á herðatrje, um
leið og farið er úr þeim, og þau
endast miklu lengur en ella, ef
þess er gætt að ditta að þeim,
jafnóðum og eitthvað fer aflaga
á þeim og strjúka þau, pressa og
dampa við og við. Eins verður að
hlífa góðum untanyfirhöfnum í
rigningu og illviðrum. í okkar ó-
stöðuga veðurfari, má jafnan bú-
ast við skúr úr lofti, þó þurt sje
veður að morgni. Regnhlífum hafa
margir óbeit á,- enda illmögulegt
að nota þær í hvassviðri. í þeirra
stað koma hinar ljettu og tiltölu-
lega 1 ódýru regnkápur, sem hæg-
lega má bera á handleggnum, ef
svo ber undir, sökum þess, hve
litlar fyrirferðar þær eru. Og
sjálfsagt er að kaupa þær svo
stórar, að þær komist utan yfir
aðra kápu.
Fyrir húsmæSur.
Ný Hirschsprung-
Enn eina handbók hefir bóka-
forlag H. Hirshsprung í Kaup-
mannahöfn gefið út nú nýlega,
sem ætluð er húsmæðrunum. Er
hún sem hinar fyrri, ems og t. d.
„1000 húsráð“, „Smaa Fester —
Glade Gæster“, Engelsk Bagværk"
o. fl. hentug bók fyrir húsmæður
og aðgengileg sem handbók.
Bók þessi heijir „Saadan skal
du bo“, og leitast höfundur bók-
arinnar, Gudrun Egebjerg, við að
svara ýmsum «þeim spurningum,
sem jafnan koma fram, þegar
stofna á heimili, flytja, innrjetta
stofur, eða þó ekki sje nema kaupa
ný gluggatjöld, og leggur úhi leið
ýms heilræði.
í bókinni eru márgar. mýhd-
ir til skýringar, og er hún skemti-
lega og fjörlega skrifuð.
Y
l| í
ll í
Bf
Götuskórnir.
Góðir og þægilegir götuskór
auka ánægju hressandi gönguferð-
ar, og götuskó verður ekki hjá
komist að eiga. Samkvæmisskóna
notar maður aftur á móti sjaldn-
ar. Það borgar sig því betur
að kaupa sjer frekar dýra göngu-
skó og ódýra samkvæmisskó, en
öfugt.
Súrt eða basiskt
fannkrcm ?
Að bursta tennur er nú orðið
jafn algéngt og að þvo sjer, og
þeir munu fáir, ungir eða gamlir,
sem ekki nota tannbursta og tann-
krem jöfnum liöndum og sápu og
þvottapoka. Enda er ræsting á
tönmun, tannholdi og múnnkoki
jáfií úaúðsynlég frá hreinlætis- og
heilbrigðislegu sjónarmiði.
En þegar velja á tannkremið, er
spúrningin sú, á það að vera súrt
eða basiskt — á það aðallega að
innihalda sýrur eða sápu? Um
þetta eru læknar ósammála, enn
sem komið er, og verður hver og
einn að fara þar eftir sinni
reynslu. Þó mun heppilegast að
nota hvorttveggja jöfnum hönd-
um, meðan ekki er fengin full-
komin reynsla fyrir því, hvort er
í raun og veru betra.
Af súrum tannkremum mætti
nefna Pepsodent, af basiskum
Kolynos, og loks úlætti nefna
þriðju tegundina, sem er íslensk
og er að koma á markaðinn þessa
dagana. Hún heitir ASTRA og
hefir þann kostinn, að hún er bú-
in til í þremur gerðum, ýmist
basisk, súr, eða lítið eitt súr.
Astra tannkrem er framleitt hjá
Þorst. Seh. Thorsteinsson, lyfsala.
Eru umbúðir hinar snyrtilegustu
og hverri tannkrems-túbu fylgir
leiðarvísir um tannkrem og ræst-
ingu á tönnum.
Ný kindalifur,
Saltkjöt og ungkálfakjöt,
einnig; súr hvalur og allskoíi-
ar áskurður.
Búrfell
Laugaveg 48. Sími 1505.