Morgunblaðið - 21.01.1937, Blaðsíða 3
Fimtudagur 21. januar 1937
MORGUNBLAÐIÐ
Bæjar- og sveitarfjelögin verða
að fá nýja tekjustofna.
Páfi með
kardinálum
sínum.
Ríkið á að láta af hendi
fasteignaskattinn og
helming tekjuskattsins.
Síðustu árin hafa Alþingi borist háværar
kröfur frá bæjar- og sveitarstjórnum
allstaðar að af landinu, um nýja tekju-
stofna þeim til handa.
Þessar einróma og háværu kröfur urðu til
þess að haustþingið 1935 samþykti áskorun til
ríkisstjórnarinnar, að undirbúa frumvarp um
tekjustofna bæjar- og sveitarfjelaga og leggja
fyrir næsta þing.
______________________ Stjórnin skipaði þegar nefnd
í' málið, og áttu sæti í henni
alþingismennirnir Magnús Guð-
mundsson, Bernharð Stefáns-
son og Jónas Guðmundsson.
Enda þótt nefndin hefði
stuttan tíma til starfa, þar sem
Alþingi kom aftur saman í fe-
brúar 1935, hafði hún þó til-
búið frumvarp svo snemma að
þingið fekk það til meðferðar.
En það sýndi sig skjótt, að
frumvarp nefndarinnar myndi
ekki fá greiðan gang gegn um
þingið.
Fyrsti þröskuldurinn í vegi
málsins var sjálf ríkisstjórnin.
Hún tók málinu mjög dauf-
lega þegar í byrjun, og með
fullri andstöðu þegar á leið. —
Þar með var málið raunveru-
lega dauðadæmt.
Það fór og svo að frumvarp-
ið dagaði uppi í þinginu, eftir
að búið var að limlesta það
svo, að lítið sem ekkert var
eftir af því.
Halldór Kiljan
„stórfenglegur
og fínn“.
Gunnar Gunnars-
son jöfur í riki
skáldskaparins.
Khöfn í gær.
Ihátíðahöldunum í ríkisþinginu
danska í tilefni af 100 ára af-
mæli danska bóksalafjelagsins
tóku meðal annara þátt Staun-
ing forsætisráðherra Dana og
Sveinn Björnsson sendiherra.
Berlingske Tidende gaf út auka
blað í tilefni af afmælinu. í blað-
ið ritar Kjeld Elfert um- nýjar
bækur í Danmörku og segir þar
um „Graamand“ Gunnars Gunn-
arssonar, að hókin sýni.að Gunnar
sje jöfur í ríki skáldskaparins.
Politiken birtir og mjög lofsam
leg ummæli um Gunnar.
Forseti sambands enskra bóka-
útgefenda kom til Kaupmanna-
*
En ríkisstjórnin má ekki
halda að hún sje þar með leyst
frá öllum skyldum í þessu
máli. Með taumlausri skatta-
álögu sinni hefir ríkistjórnin
komið bæjar- og sveitarfjelög-
hafnar í tilefni af þesu afmæli um landsins á knje fjárhags-
og segir í viðtali við Politiken,
að norrænar bækur sje torvelt
að selja í Englandi, nema bæk-
ur eftir Halldór Kiljan Laxness.
Hann segir, að hin dásamlega
skáldsaga Laxness, Salka Valka,
hafi orðið afar vinsæl á Englandi,
enda sje Halldór Kiljan Laxness
hvorttveggja í senn, einn stór-
fenglegasti og fínasti rithöfund-
ur, sem nú sje uppi.
Hann segir ennfremur, að ver-
ið sje að þýða Sjálfstætt fólk á
énsku og komi sú bók bráðum út
undir nafninu Independent Pe-
ople. Hún er þýdd beint af ís-
lensku af Anderson Thomson.
Heilsufar páfa.
London 20. jan. FÚ. .
Páfinn naut lítillar hvíldar í
nótt, sökum þrauta, en lyfjum
var dælt í fót hans til þess að
lina þrautirnar.
lega. Hún hefir ráðist svo frek
lega á hinn eina tekjustofn
bæjar- og sveitarfjelaga, að
þau standa nú uppi gersamlega
ráðalaus.
Nú er svo komið, að allir
kaupstaðir landsins, nema
Reykjavík, og um helmingur
allra hreppsfjelaga hafa neyðst
til að taka kreppulán, vegna
fjárhagserfiðleika og skulda-
basls. Auðvitað verður ekki
langt að bíða þess að hin gef-
ist einnig upp, með sama á-
framhaldi.
*
Andstaðan gegn frumvarpi
hinnar stjórnskipuðu nefndar
bygðist einkum á því', að menn
voru óánægðir með að gengið
Var inn á tollabrautina til tekju
öflunar til handa bæjar- og
sveitarfjelögum.
Það verður að játa að mjög
er óheppilegt að þurfa að fara
inn á þessa braut. En eitthvað
Píus XI. (í miðju) ræðir við kardínála sína.
Tveir menn stdrslasast
FRAMHALD Á SJÖTTU SÍÐU.
3 toniia kælidunkar
fellu á þá.
TVEIR menn stórslösuðust í Mjóikurstöðinni
við Hringbraut í gærmorgun kl. 6, er kælii
dunkar, sem samtals vega um 3 tonn, fjellu
niður úr lofti.
Torfi Þorbjörnsson, Aðalstræti 18, fótbrotnaði ilia á
öðrum fætinum og er brotið mjög slæmt; einnig hlaut
hann meiri meiðsli.
Sveinn Jónsson, Blómsturvöllum, rifbrotnaði og
meiddist eitthvað innvortis.
Báðir mennirnir liggja á Landsspítalanum og eru
þungt haldnir.
í stöðinni eru tveir kæliklefar
og er 5 kælidunkum komið fyrir
í hvorum klefa. í kælidunkum
þessum eru geymdar fyltar mjólk
urflöskur.
Þeir Sveinn og Torfi voru báð-
ir að vinnu sinni inni í öðrum
kæliklefa Mjólkurstöðvarinnar.
Veggir kæliklefanna eru 3
metra háir, og er hinum fimm
kælidunkum komið fyrir upp und
ir lofti. Gegnum dunkana liggja
rör, sem tengja þá saman, og einn
ig iiggja frá þeim sver rör gegn
um veggi klefans.
Rörin vörnuðu því að dunk-
arnir fjellu alveg niður, en það
hefði orðið bráður bani beggja
mannanna, þar sem dunkarnir
eru allir um 3 tonn á þyngd.
Kælidunkunum var þannig fest,
að eftir lofti 1 kæliklefunum
liggja tveggja þunilunga trjebit-
ar. Vjnkiljárnum er svo aftur fest
í bitana að neðan og í gegnum það
eru kæliduukarnir festir í trjebit-
ana með 18 skrúfum, sem eru 5/8
úr tommu að þvermáli. En skrúf-
urnar sjálfar eru ekki lengri en
það, að þær ná aðeins um 1
tommu inn í trjebitana, sem eiga
að halda öllum kælidunkunum
uppi.
Sífeldur saggi er þarna í klef-
unum og hafa bitarnir fúnað
mjög síðan þeir voru settir upp
árið 1930.
Tveir danskir menn settu upp
þenna útbúnað, er stöðin var bygð
1930, og' var annar þeirr löggiltur
vjelauppsetningarmaður frá firma
því, sem seldi Mjólkurstöðinni
kælitækin.
Portúgalir vilja sjálfir
gæta spánskra landamæra.
London 20. jan. FÚ.
Stjórnin í Portúgal hefir sent
hlutleysisnefndinni ummæli sín
um tillögur nefndarinnar um
alþjóðlegt eftirlit við spánskar
hafnir og spönsk landamæri.
Stjórnin segist ekki mótfall-
in eftirliti við landamæri Port-
úgals og Spánar, svo framar-
lega sem það sje falið Portúgöl-
um sjálfum, en ekki annara
þjóða mönnum.
— Skemdarverk -
á bátum halda
áfram í Eyjum.
Þriðja íkveikjutilraUnm í
vjelbátnum „Gunnar Hámund-
arson“ í Vestmannaeyjum var
framin í fyrrinótt, þar sem
vjelbáturinn lá við bryggju.
Sáralítið brann í bátnum,
eða aðeins tvö borð í vjelar-
rúmi.
Það virðist, sem hjer sje um
hermdarverk að ræða, eða að
geðveikur maður sje að reyna
að vinna eiganda bátsins tjón.
í fyrravetur var tvisvar
gerð tilraun til að kveikja í
bát þessum, og fyrir skömmu
var sama bát sökt á Vest-
mannaeyjahöfn, ásamt öðrum
bát.
Rannsókn í málinu hefir
leitt í ljós, að xitilokáð ér að
eigandi bátsins liafi kveikt í
honum, m. a. vegna þess, að
hann hefði beðið mikið fjár-
hagslegt tjón, ef báturinn hefði
brunnið nú.
Lögreglunni í Eyjum hefir
ekki tekist að hafa upp á þeim,
sem valdur er að þessum
skemdarverkum á bátum í
Vestmannaey jum.
Heitið er 1500 króna verð-
launum af lögreglu Vestm.-
eyj a fyrir uþplýsingar í málum
þessum, sem kynnu að leiða til
uppljóstunar.
Enginn pústur
til Austurlands-
ins i 5 vikur!
Norðfirði, miðvikudag.
í gær komu hingað þrjú
skip: Goðafoss, Lagarfoss og
Súðin.
Voru þá liðnar 5 vikur frá
því' póstur kom hingað síðast,
eða með Esju 13. des. 1936.
Með skipum þessum kom ó-
hemju mikill póstur. Blöðin
þóttu þó sum nokkuð gömul.
Svona eru samgöngurnar við
Austurland á menningaröld-
inni! Þormar.
VARIST SNJÓSKRIÐ-
URNAR AF HÚS-
ÞÖKUM!
Stórhættulegt getur verið, er
snjóskriður falla af húsþökum,og
ættu menn að varast að ganga
fram hjá húsum, þar sem snjór
slútir fram af þakskegginu.
Einnig ætti fólk að gæta þess
að skilja ekki eftir barnavagna
við hús á meðan þessi hætta
vofir yfir. Landsbankinn tók
það ráð í gær að láta moka
snjónum af þaki bankans og
stóð lögregluvörður á götunni
á meðan verið var að moka af
þakinu. Fleiri ættu að taka
þetta ráð Landsbankans, þar
sem því verður við komið.