Morgunblaðið - 21.01.1937, Side 5

Morgunblaðið - 21.01.1937, Side 5
Fimtudagur 21. janúar 1937 MORGUNBL A Ð IÐ y* Skift um hlutverk: Mussolini, Scipio, Hanni- bal og Haile Selassie. Stórkostleg kvikmynd til dýrðar Abyssiníuæfintýrinu. Italskar kvikmyndir hafa víst aldrei verið sýndar hjer á landi. Þann 21'. apríl n.k. — á afmælisdegi Róma- borgar — verður sýnd ítölsk kvikmynd í öllum borgum oe: borpum í Ítalíu (bar sem á annað borð eru kvikmynda hús), stærsta kvikmyndin sem gerð hefir verið í Ev- rópu, Scipio L’Africano. Þessa kvikmynd hygfg: jeg að marga muni fýsa að sjá hjer á landi. * Það er ekkert handahóf að ítal- ir skuli einmitt nú hafa gert mynd um Scipio L’Africano, rómverska -hershöfðingjann, sem sigraði Hannibal og lagði Karþago í rúst- ír. Hanxdbal er í þessari mynd færður í búning Haile Selassie Abyssiníukeisara og Scipio í bún- .áng Mussolinís. Myndin fjallar um viðburðina á -Arunum 207—202 f. Kr., en á þeim -árum hrakti Scipio Hannibal af höndum Rómverja, svo að Hanni- bal varð að flýja frá ftalíu og heið að lokum algeran ósigur fyr- ir Rómverjum í orustunni við -Zama árið 202 f. Kr. * Til marks um það, hve kvik- ’myndin nm Scipio L’Africano er stórkostleg, má geta þess, að tólf þúsund manns (þar af 4 þúsund riddarar) taka þátt í næst síðasta kafla myndarinnar, sem sýna or- ustuna við Zamua. í flestum köflum myndarinnar leika 6 þúsund manns. ítalír hafa ■auk þess orðið að draga að sjer (meðal annars) áttatíu fíla, sem þeir hafa fengið hvaðanæfa úr Evrópu. Fílarnir taka þátt í or- ustunum og gefur myndin m. a. góða hugmynd um þýðingu fíl- ■ anna í orustum Hannibals við Rómverja. * Fremstu sjerfræðingar ítala á öllum sviðum, í sagnfræði, fornfræði, hernaðarsjerfræði, trúmálafræði o. s. frv. hafa lagt fram sinn skerf til þess að gera þessa mynd, sem lík- -asta hinum sögulegu atburðum. En anda kvikmyndarinnar hef- ir Mussolini lagt fram sjálfur. Híkið kostar töku kvikmynd- arinnar. * Samhengið milli hinna fornu viðburða og þess, sem nú er að gerast í Ítalíu, liggur í aug- um uppi. Lítill flokkur manna, flokkur Scipios, hugdjarfur og þrunginn æskuþrótti, vinnur bug á deyfð, kjarkleysi og hug- leysi fjöldans, og æsir fólkið upp til þess að færa óhemju fórnir til þess að fá þvf fram- gengt, sem í fyrstu virtist há- mark fífldirfsku. Myndin fjallar um barátt- ana milli tveggja menningar- þátta: Öðru megin er Karþago, sundurþykk og siðspilt, og hin- um megin Róm, ung og full af lífsfjöri. Hún segir frá hin- um „æðsta dómi“, sem dæmir, að Karþago skuli afmáð og Róm byrjar nýtt tímabil eftir að Rómverjar hafa lagt undir sig öll löndin við vesturhluta Miðjarðarhafsins, tímabil heimsveldisins, sem stóð í sex aldaraðir. * Samhengið: Scipio í farar- broddi fyrir fámennum hóp hugdjarfra manna, ber hærra hlut yfir vandræðalegu hug- leysi senatsins — og svo aft- ur Mussolini, sem sigrast á var- færni herforingjaráðsins, sem taldi óráðlegt að leggja út í Abyssiníuævintýrið, vegna þeirra erfiðleika fyrir Itali, sem strið kynni að hafa í för með sjer í Evrópu. Enginn hef- ir lýst betur andófi herforingja ráðsins við Mussolini en de Bono, hershöfðingi í bók sinni um aðdraganda Abyssiníustríðs ins. Bók þessi kom út fyrir nokkrum mánuðum. Samhengið kemur aftur í ljós þegar fórnir fólksins eru sýndar; — við minnumst þess frá því í fyrravetur, er ítalska þjóðin kastaði gulldjásnum sínum í hermannahjálmana, til þess að ítalir gætu staðið af sjer refsiaðgerðirnar. Þegar hermennirnir eru sendir af stað til Afríku til þess að sigrast á Hannibal, þá dettur manni í hug herflutningarnir frá Nea- pel til Massawa og Mogadiscio í fyrrasumar. Þegar kallað er: „Hannibal er sigraður“, þá hljómar það eins og „Haile Selassie er flúinn“. Þannig má lengi telja. * Og svo loks síðasti kafli myndarinnar: Stríðinu er lok- ið. Scipio hefir lagt niður vopn- in. Hann býr með konu og ;börnum við lygnt stöðuvatn ná- lægt Literno. Það er um morg- un, sólin skín í heiði. Við húsið standa raðir af sekkjum með sáðkorni. Scipio stingur hend- inni á kaf í einn sekkinn og segir: „Þetta er gott hveiti, og á morgun munum við með guðs hjálp byrja að sá“.-------Hjer þarf ekki að benda á sam- hengið: Þarna er Mussolini jcominn, hann er staddur í Litt- oria eða Sabaudia og virðir fyrir sjer með sömu ánægju ávöxtinn af striti sumarsins. Farþegar með Brúarfossi til Vestfjarða í gærkvöldi: Seinumí Þorsteinsdóttir Patreksfirði. Krist inn Sigurðsson og frú Stykkish. Ingólfur Gnðmundsson Patreks- firði. Jóhann Eyjólfsson Stykkis- hólmi o. fl. o. fl. Úr kvikmyndinni Scipio L’Africano. Hjer sjást nokkrir af þeim 80 fílum, sem leika í myndinni. FBAMHALD AF 4. SIÐU' Benediktsson: Um Þannig er það, þegar ákveðin eru hlunnindi samlagsmanna, upp hæð iðgjalda, samningar við lækna, sjúkrahús o. fl. Um öll þessi atriði, sem öll af- koma trygginganna er undir kom in, ræður Tryggingarstofnun rík- isins og ráðherra endanlega hvað gert er, en hvorki Sjúkrasamlags- stjórn nje bæjarstjórn. Atvinnubótavinna. Þá fór ræðumaður nokkrum orð um um atvinnubótavinnuna og mintist í því sambandi á Vinnu- miðlunarskrifstofuna, sem þröngv að var upp á bæinn, og var sett til höfuðs Ráðningarskrifstofu Reykjavíkurbæjar, sein hafði reynst ágætlega. Hin nýja Vinniimiðlunarskrif- stofa hefði sætt allmikillar gagn- rýni frá verkamönnum, sem við hana þurftu að skifta. Stjórn þessarar stofu væri raunverulega í höndum ráðlierra, en bæjarsjóð ur yrði að greiða 20 þús. krónur árlega fvrir það, að úthlutun at- vinnubótavinnunnar er tekin af honum sjálfum og fengin í hend- ur þessari illa þokkuðu stofnun. Ingimarsskólinn og verkamannabústaðir. Til Gagnfræðaskólans í Reykja vík, hins svonefnda Ingimars- skóla, er bærinn skyldugur að greiða nú í ár 37,000 kr., og eru þó öll yfirráð þess skóla hjá rík- isstjórn, en ekki bæjarfjelaginu. í byggingarsjóð verkamannabú- staðanna verður bærinn nú að greiða 68,000 kr., en hefir alls engin umráð yfir því, hvernig fjenu er varið. Framfærslumálin. Um framfærslumálin væri að ýmsu leyti svipað að segja, þó að afskifti bæjarins væru þar meiri en um hin málin. Sjerstakur lagabálkur væri um þessi mál, þar sem ýtarlega væri tiltekið um rjettindi einstaklinga, sveitar og ríkis í þessum málum. Bæjar- stjórn getur ekki vikið frá þeim rækilegu regluin, sem lögin setja. Þannig væri t. d. með fram- færslulögunum frá 1935 stefnt að því vitandi vits, að stefna sem mestum framfærsluþunga yfir á Reykjavík. Afnám sveitfestisins hefði á sínum tíma verið kallað mannúð- armál. En hætt væri á, að þetta ætlaði að verða öðruvísi í raun- inni. Samkvæmt þessum lögum á maður þar sveit, sem hann er bú- settur, er hann þarf á styrk að lialda. Þetta leiðir til þess, að sveit- arfjelögin reyna að verða af með það fólk, sem líklegt þykir að muni þurfa að leita á náðir þeirra um framfærslu. Gott dæmi um þetta væri at- vik, sem nýlega hefði átt sjer stað, sagði ræðumaður: Piltur einn, sem áður hafði ver- ið á sveitarframfæri vegna las- leika, og þá dvalið uppi í sveit, fluttist til bæjarins á síðastliðnu ári. Síðastliðið vor rjeði hann sig svo austur í sveit og líkaði bar vel við hann, enda dvaldi hann þar fram á haust, en þá var lion- um ýtt til bæjarins, og var vitan- legt, að það var gert af ótta við, að hann kynni að verða veikur og ætti þá framfærslusveit aust- ur þar. Pilturinn sjálfur vill þó dvelja í sveit og óskar eftir því að komast á sama bæinn og hann dvaldi á í sumar. Bóndinn þar þarf á vinnukrafti hans að halda og líkaði vel við piltinn og vill því eindregið fá hann til sín. Hjer við bætist svo það, að pilt- urinn á samkv. læknisvottorði ein mitt að dvelja í sveit. Skyldu menn því ætla, að hjer mundi alf falla í ljúfa löð. En svo er ekki vegna þess, að það skilyrði er sett, vegna óttans við lasleika piltsius, að ef hann verði veikur, þá skuli Reykjavíkurbær bera all- an kostnað þar af. Hjer er þá af- leiðing laganna sú, að þeiin aðil- um, sem mest eiga í húfi og vilja semja, er gert það ómögulegt vegna ótta hreppsnefndarinnar við aukin sveitarþyngsli. Afnám sveitfestistímans verður þannig beinlínis til þess að koma í veg fyrir, að eðlilegar hjúaráðningar eigi sjer stað. Þetta er einungis eitt dæmi um það, hvernig styrkþegum er ýtt jrfir á Reykjavílturbæ, í fámenn- inu er þessu fólki gert ómögulegt að dveljast, með því að skapað er almenningsálit á móti því, og sjer það þá sitt ráð vænst að flýja til Reykjavíkur, þar sem fjölmennið kemur í veg fyrir svip uð óþægindi og það verður fyrir víða annarsstaðar. Framfærslulögin nýju stefna þannig að því að leggja nýjar og ófyrirsjáanlegar byrðar á herðar Reykjavíkurbæjar. Bæði vegna þeasa, en þó ekki síður vegna hins, að bærinn ræð- ur því ekki, hver fjöldi manna leitar sveitarframfæris á hverjum tíma, heldur fer það að langmestu leyti eftir atvinnuafkomu manna og efnahagsástandiuu í landinu, sem ýms atriði ráða, en nú orðið ekki síst ríkisstjórn og Alþingi, þá er það ekki nema að sára litlu leyti á færi' bæjarstjórnar að ráða við framfærsluupphæðina. Bæjarstjórn eða framfærslu- nefnd fyrir hennar hönd ber hins vegar að sjá um, að eltki fái aðr- ir styrk en þeir, sem þörf hafa á, og þeir fái ekki meira en þörf þeirra krefst, en þó svo mikið sem þeim er nauðsynlegt, og að upp- hæðunum sje iithlutað sem hag- FRAMHALD Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.