Morgunblaðið - 28.03.1937, Side 3
Sunnudagur 28. mars 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
, 3
Verksmenn á Hesteyri
og I nágrenni mót-
mæla he;ferðinni
gegn Kveldúlfi.
ÞEGAR verkamenn á
Hesteyri og þar í
nágrenni frjettu um
frumvarp sósíalista um
gjaldþrotaskifti Kveld-
úlfs, hófu þeir undir-
skriftasmöiun til mót-
mæla gerræðinu.
Eftirfarandi símskeyti, sem
Morgunblaðinu hefir borist frá
Hesteyri, lýsir vel hug verka-
manna til ofsóknarherferðar-
innar gegn Kveldúlfi:
„Kveldúlfsfrumvarpinu er
mótmælt af nálega öllum verk-
fserum rnönnum á Hesteyri,
Sljettu og Sæbólshverfi, eða
allsstaðar þar sem undirskrift-
arskjal náði að ganga áður en
vitað var um afdrif frumvarps-
ins á Alþingi.
Á mótmælaskjalið hafa skrif
að menn jafnt úr ölium flokk-
um; þeir votta Kveldúlfi fylsta
traust og telja hann hafa verið
bjargvætt sveitarinnar. Þeir
telja ennfremur, að Alþingi
beri fremur skylda til að rjetta
KveldÚlfi hjálparhönd en að
leggja stein í götu hans. —
Áskriftarskjalið verður sent Al-
þingi í pósti“.
Breskir togarar eyði-
leggja veiðarfæri
vjelbáta.
Pann 19. þ. m. varð vjelbátur-
inn Álftin á Akranesi, for-
maður Valdemar Eyjólfsson, fyrir
því, að tveir enskir togarar drógu
vörpur sínar yfir línu hans rjett
við bátinil, þar sem hann var að
draga línun’á, seilaða af stórum
þorski.
Tóku togararnir allmikið af lín
unni og spiltu stórum veiði á því
sem eftir var.
Tókst bátverjum að uá nafni og
númeri af öðrum togaranum, en
númeri en ekki nafni af hinum.
Hefir forgiáðurinn á Álftinní kært
yfir , iþessu til. stjórnarráðsins og
krafist skaðabóta. Er þess að
vænta, að reynt verði að liafa upp
á sökudólgunum.
Er það mjög bagalegt, hve
fiskimennirnir við Faxaflóá eru
varnarlausir við slíkum yfirgangi,
þar sein þeir njóta engrar vernd-
ar af landhelgisgæslunni, sem
hjer fiska á djúpmiðum.
Lúðrasveit Reykjavíkur spilar á
Austurvelli k). 9 árdegis í dag, et'
veður leyf'ir.
Systirin frá Prag. Frumsýning
verður á þessari óperu, sein Hljóm-
sveit Reykjavíkur sýnir, á þriðju-
dagskv.öldið kemur kl. 8V2 í I8nó.
Önnur .sýning verður á miðviku-
dagskvöld. Margir hafa biðið sýn-
inganná ineð óþreyju. eii inflúens-
" an hftnilaði þvi áð þter gæti orðið
!f ýr’.1'1
\
Sigur Sjálfstæðisflokksins í viður-
eigninni við rauðu samfylkinguna
M. A.-Kvarlettinn 5 ára.
M. A. Kvartettinn: Þorgeir Gestsson, Steinþór Gestsson, Jakob Haf-
stein og Jón Jónsson.
í heimsókn hjá
M. A.-Kvartettinum
Igær var tíðindamaður blaðs-
ins staddur á Stúdentagarð-
inum. Úr hátíðasal stúdentanna
var að heyra söng- og hljóð-
færaslátt, er þegar vakti at-
hygli.
Þetta var M. A. kvartettinn,
sem nú er að unairbúa að nýju
að syngja fyrir Reykvíkinga,
og vjer notum tækifærið til að
hafa tal af þessum ungu óg
glaðværu söngvurum, kynnast
áformum þeirra og heyra hvað
,,í þeim syngur“.
. ,,Vi sjungar om kárlek, om
solsken och sáng ■—er það
fyrsta, sem við heyrum, er vjer
komum inn. Ráðumst vjer á
garðinn þar sem hann er hæst-
ur og snúum oss að 2.. bassa
um leið og vjer spyrjum frjetta.
,,Alt í lagi! Við verðum 5 ára
31. mars, og þá ætlum við að
syngja fyrir Reykvíkinga í
Gamla Bíó“.
Oss þykja það tíðindi, að
þessi vinsæli kvartett skuli
verða 5 ára um þessar mundir,
og leikur forvitni a að vita,
hvað þeir að þessu sinni hafa
að bjóða bæjarbúum.
,,Það er fyrsta nýbreytnin,
að nú syngjum við helming
söngskrárinnar með pianó-
undirleik Bjarna Þórðarsonar“,
segir 1. tenor., um leið og hann
rjettir oss söngskrána.
Það leynir sér ekki, að hún
er óvenju fjölbreytt, og lík-
legt að þar sje eitthvað fyrir
alla. Þar eru ljett og þíð lög,
glettin lög og fjörug, en jafn-
framt erfið viðfangsefni.
Vjer tökum straks eftir:
,,Vögguvísu Schuberts“, ,,Heim
í dalinn minn“ eftir Kaldalóns
og ,,Dísukvæði“.
þessar mundir, eins og ,,Ma-
zurka“, og svo Straussvalsar
— sem allir elska.
Þessi lög hefir hinn góðkunni
og snjalli pianoleikari á Hótel
ísland, Carl Billich, undirbúið
til söngs fyrir þá fjórmenning-
ana. Efumst vjer ekki um, að
margaii muni fýsa að heyra
flutning M. A. kvartettsins á
lögum þessum.
Að lokum getum vjer ekki
stilt oss um að biðja um ,,eitt
lag“ áður en vjer kveðjum.
— —- ,,Þegar afi og amma sofa
opna jeg í hálfa gátt.
Kondu,
en hafðu *ei hátt!“-------
hl.jómar um salinn.
F.jórmenningarnir kveðja —
ljéttir í lund, og biðja að
heilsa!
SMJÖRLÍKISGERÐ
GEFUR SKÍÐAMÖNNUM
VERÐLAUN AGRIP.
Innanfjelagsmót hefst á morg-
un í Siglufirði hjá Skíðafje-
lagi Siglufjarðar.
! Smjörlíkisgerðin Ásgarður
h.f. hefir gefið silfurskeifu til
verðlauna á móti þessu. Er silf-
urskeifan gerð af miklum hag-
leik.
Sá skíðamaður, sem bestur
reynist í kappgöngu og stökki
samanlögðu, hlýtur hana að
verðlaunum. Ef sami maður
vinnur hana þrisvar í röð vinst
hún til eignar, eða ef sami
maður vinnur alls 5 sinnum.
Skeifan var ekki tilbúin nógu
snemma til að hægt væri að
senda hana norður fyrir mótið,
og er hún til sýnis í sýningar-
glugga Morgunblaðsins, ásamt
mynd af skíðagörpunum úr
Skíðafjelagi Siglufjarðar, sem
Þá sjáum vjer;> að á söng-
skránni eru lög, sem eru á vör-
um flestra Reykvíkinga um hjer voru á dögunum.
Bjargar atvinnu
þúsund sjómanna
og verkamanna.
ME Ð lausn Kveldúlfsmálsins er unninn
fyrsti stórsigur Sjálfstæðisflokksins
í viðureigninni við samfylkingu rauðu
flokkanna.
Árásarherferðin gegn Kveldúlfi var hugsuð
af kommúnistum, og það voru þeir, sem rjeðu því,
að þetta mál var sett á oddinn.
Kommúnistar gengu vitandi
vits til verks í þessu máli. Þeir
sáu fram á, að ef það hepnað-
ist að leggja að velli stærsta
einkafyrirtækið á landinu, var
opnuð leiðin að öllum hinum
smærri atvinnufyrirtækjum,
sem einstaklingar starfrækja.
Þar með var rudd brautin að
allsherjar þjóðnýtingu atvinnu-
tækjanna.
Dökt útlit.
Á tímabili var útlitið ekki
bjart í þessu máli.
Eftir að flokksfundur sósíal-
ista tók í haust upp stefnuskrá
kommúnista, hóf blað Alþýðu-
flokksins látlausa herferð gegn
Kveldúlfi, og krafðist þess að
hann yrði lagður í rústir.
Þessi krafa. var strax tilkynt
samstarfsflokknum í stjórn
landsins, Framsókn, og það
með, að það myndi valda sam-
vinnuslitum milli stjórnarflokk
anna, ef Framsókn ekki gengi
að kröfunni.
Hófust nú brátt einnig skrif
um Kveldúlfsmálið í blöðum
Framsóknarflokksins, og á
þann veg, að ekki var sjeð ann-
að en að forlög Kveldúlfs væru
ákveðin. Blöð Framsóknar-
flokksins fóru ekki dult með
þá skoðun sína, að það væri
ekki aðeins rjett, heldur skylt,
að gera, Kveldúlf gjaldþrota.
Þannig stóð málið, þegar Al-
þingi kom saman um mioján
febrúar.
Bankarnir
grípa í
taumana.
Á m.eðan stjóniarblöðin kept-
ust við að búa þjóðina undir
það, sem í vændum var, stóðu
yfir samningar milli Kveldúlfs
og' bankanna um þetta mál.
Þeim samningum hefir nú lýkt-
að á þann hátt, sem alþjóð er
kunnugt, að bankarnir Rá|a ?
samþykt að ganga að tilbóði
Kveldúlfs, og fjelaginu er þar
með trygður framhaldandi
rekstur.
Og nú hefir það einkenni-
lega skeð, að Framsóknarflokk
urinn, sem áður virtist fylgj'a
niðurrifsmönnunum að nfiáli,
hefir skyndilega sjeð sig um
hönd og horfið frá sinni fyrri
fyrirætlun.
Hvað veldur þessum skyndi-
légu straumhvörfum Framsókn-
arflokksins? spyrja vafalaust
margir um þessar mundir.
Ekki er minsti vafi á, að það
er ákveðin og eindregin af-
staða bankanna, sem hefir
valdið straumhvörfunum.
Magnús Torfason, sem sæti
á í bankaráði Útvegsbankans,
lýsti yfir því í útvarpsumræð-
unum frá Alþingi á dögunum,
að það væri glaepur gagnvart
bönkunum og gagnvart þjóð-
inni, út á við, ef ekki væri
gengið að tilboði Kveldúlfs.
Nú vita það allir, að M. T, er
ekki pólitískur samherji þeirra
Kveldúlfsmanna, og ekki per-
sónulegur vinur þeirra. Um-
mæli M. T. verða þvl< ekki skil-
in á annan veg en sem berg-
mál af þeirri skoðun. sem hefir
ríkt í bönkunum um þetta mál.
<)if það er þettsi, hefir ver-
ið þess valdandi. aó Frainsókn-
arflokkurinn eða ráðamenn
hans urðu að hverfa fra sinni
fyrirætlun. J’eir þorðu ekki að
ganga í berhögg við eirulyeg-
inn vilja bankanna.
Sigurinn.
Með sigri Sjálfstæðisflokks-
ins í þessu máli hefir þegar
margt unnist, auk hins pólitíska
sigurs.
Það hefir unnist, fyrst og
fremst, að nú eru 7 togarar
Kveldúlfsfjelagsins farriir á
saltfisksveiðar, ogii»yggir það
atvirinu mörg húndíu® sjó-
manna og verkamarina'í Reykja
ví k. Ef kommúnistar hef ðu
komið fyrirætlun sihni .öfram,
myndi enginn Kveldúlfstdgari
hafa farið á saltfikkHveiðar á
þessari vertíð. ■ «:f-
Það hefir einnig, unnist, að
togarar Kveldúlfs verða áfram
sem hingað til reknir frá
Reykjavík. Ef Kveldúlfur hefði
verið gerður gjaldþrota, hefðu
fléstir, ef ekki allir, cogararn-
ir verið seldir burtu úr bænum.
Það var þegar búið að ráðstafa
4 togurunum. '■" ‘'v ■ '
Þá hefir það unnist, að nú
rís upp á Hjalteyri mikil og
voldug síldarverksmiðja, sem
veitir. 100 verkamönnum góða
atvinnu í vetur og fram á sum-
‘ar. Auk þess skapar verk-
smiðjan, þegar upp er komin,
FRAMH Á SJÖTTU SÍÐTJ.