Morgunblaðið - 06.04.1937, Page 2

Morgunblaðið - 06.04.1937, Page 2
/ MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 6. apríl 1937. 2 HÝTT STJÚRNMÁLAHHEYKSU f RÚSSLANDI. Frá Spáni. Yfirmaður G P U lögreglunnar tekinn fastur. Sakaður um „glæpsamleg embættisafbrot“. FRA FRJETTARITARA VORUM: KAUPMANNAHÖFN I GÆR. Það er nú opinberlega viðurkent í Moskva, að Jagoda, fyrrum yfirmaður GPU- ríkisleynilögreglunnar, sem um 15 ára skeið var einn valdamesti maður í Sovjet- Rússlandi, hafi verið tekinn fastur á föstudaginn. Um afbrot Jagoda hefir ekkert verið tilkynt opinberlega, annað en „að hann hafi verið tekinn fastur fyrir glæpsamlega misnotkun embættis síns“. Þessi nýja ,,hreingerning“ Stalins virðist leiða í ljós (segir í skeyti frá Varsjá til danska blaðsins Politiken), ógur- legt fjármálahneyksli og stjórnmálaspillingu, sem jafnist á við hið alræmda Stavisky-hneyksli í Frakklandi, sem leiddi til blóðugrar uppreisnar í París 1934. Sakirnar, sem mælt er að bornar muni verða á Jagoda, eru um ógurlegan fjárdrátt, svik, smygl og undirróðurssta^fjseini gegn Stalin. ,£ ?'t -go Þegar Visjinski, hinn opinberi ákærandi,- „^tju^>nnr er íturv „málaferlunum" gegn Sinovjeff og Kameneff, ítadek og Spkolnil^off, las upp yfir Jagoda handtökuúrskurðinn, fell Jag- oda saman og grjet ákaflega. Varð að styðja hann út í bifreið, sem síðan flutti hann til Ljubankafangelsisins. Orustur á Baska- London 5. apríl F.Ú. ðalorusturnar á Spáni þessa daga virðast vera á Baska- og Cordoba-vígstöðvunum. Á fleiðinni til Bilbao segjast uppreisnarmenn hafa tekið Oshandiano, mikilsverðan stað í fjall lendinu. Eni inrr'miðjan dag í dag til- kynti Baskastjórnin að her- sveitir hennar verðust enn sunn- an við Oshandiano, en bærinn væri í rústum eftir fallbyssu- kúlur uppreisnarmanna. Báðir aðilar telja sig halda hæðunum vestan við þenna bæ. Madrid: Fr,á Madridvígstöðvunum er þaé eitt að frjetta, að uppreisn- armenn 'telja sig hafa hrundið árás' er stjórnarherinn gerði veStan'iýið bórílna. Stjórnin ' ” ' ' --'vir. að flugvjelar hennar hafi gert loftárásir á járnbrautarstöð- ina og setuliðsstöðvarnar , í Talavera og á herbúðir' upþ- reísna/tíiáþiia bæði í Guáda- rama-fjöllunum norðan við Madridpítóg í-áa Guadaljaravíg- stöðvuríu m norðá ustah- vi ð b o rgr iftaviiJi.) ■ ' --4 i- ••Lölös heldur hún því fram, að stjómaríherinn hafi slitið járn- brautarsamgöngum um Penar- rova í Cordaba-,hjeraði. <iC|j Jr 6 ._, , t Spor i ðttina til frjðlsari heims- viðskifta? Ixmdón 5. apríl F.Ú. Idag var tilkynt í Brussel, að stjórnir ‘ FPkkklands og Stóra-Bretlands, hefðu boðið Van Zeeland að ræða við sig um möguleikana á því að draga úr yÆrslunarhömlum, svo sem „kvóta“ ráðstöfunum, o. s. frv. Van Zeeland er þektur hag- fræðingnr. Beígíska stjórnin mun koma saman á fúnd á morgun og taka þá þetta mál til umræðu. Eimskip. Gullfoss er í Leith, Goðafoss er á leið til Vestmanna- eyja frá Hull. Brúarfoss fór frá Akureyri í nótL Dettifoss er á leið til Hull frá Vestmannaeyjum. Lag arfoss er í Kaupmannahöfn. Sel- foss er á leið til landsins frá Oslo. Þau fimtán ár, þar til í september í fyrra, sem Jagoda ríkti með harðri hendi yfir GPU-ríkisleyni- lögreglunni, virtist enginn geta boðið valdi hans byrginn. Öll rússneska þjóðin, jafn- y$l: embættismenn í æðstu stöð- um kommúnistaflokksins óttuð- _ijst, hann. ' Síðastl. haust, eftir málaferlin gegn Sinovjeff og Kameneff, var hann sviftur stöðu sinni, grunaður um að hafa haldið hlífiskildi yfir Trotskysinnum. Sumar fregnir herma, að Jagoda hafi myndað sellur innan GPU-leynilögreglunn ar gegn Stalin. Haegri kommúnisti. „Daily Telegraph“ skrifar í dag að Jagoda muni tæplega hafa verið í flokki með Trot- skysinnum,, heldur hafi hann stutt baráttu hægri arms kom- múnistaflokksins gegn þeirri stefnu, sem Stalin hefir tekið upp að breyta landbúnaðar- skipulagi í Rússlandi úr einstak- lingsrekstri í sameignarbú. ( Jagoda faldi spor sín, seg- ir „Daily Telegraph“ með því, að fletta um leið ofan af nokkrum samsærum Trotskysinna. Fjárprettir. Mælt er, að Jagoda hafi svikið „ríki Öreiganna“ um óg- úrlegar fjárhæðir, m. a. er full- yrt, að hann hafj stolið tveim miljónum króna þegar gersem-l ar rússnesku keisarafjölskyld- unnar voru seldar. Þá er hann sagður hafa gengið í bandalag við grískan kaupahjeðinn, Kallutz að nafni, og keypt fyrir ríkið grískar vör- ur fyrir lítið verð en síðan látið ríkið borga okurverð fyrir þess- ar sömu vörur. Gróðanum stakk Jagoda í eigin vasa. Gjaldeyrissmygl í stórum stíl. Þá rak hann gjaldeyrissmygl og neytti í því efni stöðu sinnar sem opinber embættismaður. Smyglvörunum kom hann yf- ir landamærin með því að setja á þær opinbert innsigli rúss- neskra erindreka erlendis. Það verður ekki sjeð að svo stöddu, hvaða dilk þetta nýja ,,mál“ í Rússlandi dregur á eft- ir sjer. Málaferlin í Rússlandi und- anfarið, hafa leitt í ljós slika spillingu, að nú er þaðan allra veðra von. Staunino „mesti stjórnmálamaður . Norðurlanda“. Furin til Englands. Kálundborg 5. apríl' F.Ú. taunihg forsætisráðherra Dana léggur af stað til London í kvöld og ér erindi hans opinberlega tilkynt vera það, að vera 'viðstaddur vígslu á húsakynnum danska klúbbs- ins í London. Baldwin, forsætisráðherra Breta, og Anthony Eden, utan- ríkismálaráðherra, munu báð- ir taka á móti Stauning meðan hann dvelst í London og hefir ■feden boðið honum til veislu ásamt fjölda kunnra manna. Ýms blöð í London gera komu Staunings að umræðuefni og telja hann meðal merkustu, stjórnmálamanna á Norður- löndum og sum, t. d. Sunday Dispatch telja hann langsam- lega fremstan norrænna stjórn- málamanna. Vínarbúar biðja um Otto keisara. London 4. apríl F.Ú. onungssinnar 1 Vínarborg fóru kröfugöngu mikla í dag til þess að sýna vilja sinn til þess, að fá Ottó hertoga fyr- ir keisara. Til kröfugöngunnar var stofn- að í sambandi við messu, sem sögð var í dómkirkjunni fyrir Karl I. keisara, en dánardægur hans var 1. apríl (1922). Þegar fólk af keisaraættinni kom út úr kirkjunni, hrópaði mann- fjöldinn „Heil Otto“ og „Vjer viljumOtto fyrir keisara,strax“. Franski fascista foringinn kallaður fyrir rjett. London 5. apríl F.Ú. e la Rocque ofursta, leið- toga franskra fascista hefir verið stefnt fjlrir rjett í París, ásamt varamanni hans á þingi og 4 öðrum mönnum, og eru þeir sakaðir um að hafa endurreist Eldkrossaf jelögin, er bönnuð voru með Iögum fyrir því sem næst ári síðan. Afstaða Suður-Afríku til Þjóðverja. London í gær. FÚ. ýska stjórnin hefir opin- berlega mótmælt ráðstöf- un af hálfu stjórnarinnar í Suður-Afríkusambandinu, sem sviftir alla aðra en breska borg- ara í Suðvestur-Afríku (sem áð- ur var þýsk nýlenda), rjettind- um til þess að starfa í þágu þess opinbera, og til þess að halda uppi stjórnmálalegum fjelags- skap. Þýska stjórnin heldur því fram, að ák'væði þessu sje beint eingöngu gegn þýskum borgur- um í þessari fyrri nýlendu Þýskalands, enda komi þau í bága við minnihluta-rjettindi þau, er Þjóðverjum sjeu trygð með löggjöfinni um umboðs- stjórn nýlendna. Úr Miðfirði er skrifað, að Deild- artunguveikin sje enn að drepa sauðfje í hjeraðin, en að minni brögð sjeu þó að henni nú en fyrri hluta vetrar. — Sauðfje hefir víðast verið á innigjöf frá því í byrjun jólaföstu og fram að þess- um bata. (FU.). j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.