Morgunblaðið - 31.07.1937, Side 4

Morgunblaðið - 31.07.1937, Side 4
■i MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 31. júlí 1937. IÞROTTIR Janaboree sett i dag. 24 þúsund skátar Irá öIIuekk londum heims sitja móliö. Idag mun Hollandsdrotning setja 5. alþjóðamót skáta „Jamboree“. Sendisveitir erlendra ríkja í Hollandi munu verða viðstaddir setninguna. Alls munu um 24.000 skátar sækja mótið frá eftirtöld- um löndum: Ameríka (U.S.A.) 1050, Armenskir skátar 50, Belgíu 860, Tjeltkó- slóvakíu 300, Danmörku 500, Egyptalandi 60, Eistlandi 15, Breska heimsveidinu 8000, Frakklandi 2400, Finnlandi 75, Grikklandi 40, Hol- landi 7000, Ungverjalandi 500, Iran 36, Islandi 30, Japan 10, Lett- landi 30, Liehtenstein 12, Lithauen 25, Luxenburg 375, Mexico 18, Noregi 410, Austurríki 100, Póllandi 750, Portúgal 25, Rúmeníu 200, rússneskir skátar 24, Síam 9, Svíþjóð 400, Sviss 540, Júgóslavía 50, Kína 20. Eins og áður er frá skýrt sendir Bandalag íslenskra skáta 30 skáta hjeðan frá íslandi til þátttöku í mótinu. Islensku skátarnir ferð- uðust til Ilollands yfir Noreg, þar sem þeir dvöldu nokkra daga meðal norskra skáta í Bergen, en undanfarna daga hafa þeir unnið að undirbúningi tjaldbúða sinna á mótstaðnum. Meðal annars hafa þeir reist við tjaldbúðir sínar hlið sem gert er úr hraunsteinum, er þeir höfðu með hjeðan að heiman og er búist við að það veki mikla athygli, sökum þess hvað það er sjerkenniiegt, en hver þjóð reynir að gera innganginn í tjaldbúðir sínar sem þjóðlegastar og bestar. A seinasta __ ,,Jamboree“ í Ung- verjalandi 1933, höfðu íslensku skátarnir gert víkingaskip með víking í stafni yfir hlið sitt sem vakti mikla athygli sýningargesta. Skátarnir munu og sýna íslenska glímu, setningu Alþingis 930, en til þess fluttu þeir með sjer nokk- ura af búningum þeim, er notaðir voru við sýninguna á Þingvöllum 1930. Einnig munu skátarnir halda | sýningu á myndum hjeðan frá ís- | landi. íslensku skátarnir munu á móti 1 þessu bjóða til tjaldbúða sinna' foringjum skátabandalaganna á Norðurlöndum og afhenda þeirrt gjafir frá Bandalagi íslenskra j skáta og ræða við þá þátttöku í fyrirhuguðu skátamóti hjer á Is- landi næsta ár í tilefni af að elsta skátasveit landsins „Væringj- ar“ í Reykjavík verða 25 ára. Á mótinu verða sæmdir heiðurs- j merki Bandalags íslenskra skáta: Aðmíráll J. <J. Rambonnet skáta- i höfðingi Hollands og mótstjórinn A. Diemont. Miklir markaðsskálar hafa ver- ið reistir í sambandi við mótið. j Islensku skátarnir munu hafa þar -opna búð og selja þar allskonar muni er þeir hafa smíðað svo og ( sútuð sauðskinn. Mótið stendur yfir til 10. ágúst enn að því loknu ferðast skátarn- ir til ýmsra borga í Ilollandi, enn eftir það búast íslensku skátarnir við að ferðast til Parísar og skoða | þar heimssýninguna og kynnast frönskum skátum. Þetta er í þriðja sinn er ís- lenskir skátar taka þátt í slíku móti, en það var í Danmörku 1924, þar var einn skáti íslensk- ur, 1929 sóttu 32 Jamboree í Eng- landi og til Ungverjalands fóru 22 skátar 1933. Skátarnir er dvelja í Hollandi núna er eins og áður er sagt 30, þar af 3 frá ísafirði, einn frá Akranesi, einn frá Akurevri. (Bandalag íslenskra skáta). Álafosshlaupið í kvöld. Alafosshlaupið er eitthvert hið mesta íþróttaafrek, sem hjer fer fram árlega, ,enda hafa íþróttamenn æft sig vel undir þetta mikla þolhlaup — og verið í góðu ásigkomulagi eftir hlaupið. Tíminn hefir ver- ið altaf hinn sami, rúmur klukkutími, sem hlaupararnir hafa þurft til þess að fara vega lengdina. Þegar tekið er tillit til þess, hvað hjer á landi er stuttur tími til þess að æfa sig og undirbúa undir allar íþrótta raunir, þá hafa allir hlaupar- arnir í Álafosshlaupinu sýnt hina mestu karlmensku, og eins mun verða að þessu sinni. Hjer koma vel þjálfaðir íþróttamenn til leikja, og er það mjög mik- ið gleðiefni fyrir alla, er unna íþróttalífinu. Að þessu sinni koma tveir ágætir þolhlauparar frá Vest- mannaeyjum. Það sýnist svo nú, að ungir menn, sem eru að þroskast í Vestmannaeyjum, noti frístundir sínar til þess að þjálfa sig líkamlega og eru það hin bestu þroskamerki fyrir Eyjabúa. Það verður mjög gaman að sjá, hvað þessir duglegu íþróttamenn geta 1 Álafoss- hlaupinu og á hvað stuttum tíma þeir geta hlaupið þessa vegalengd. A & B. Fimleika-kvenflokkur „Ármanns“ einstakur f sinni röð. Æfingar kvenna á slá. Alit Þorgeirs Sveinbjarnarsonar fimleikakennara. imleikaför Glímufjelags- * ins Ármann til Aust- ur- op; Norðurlands var hin mesta fræp;ðarför. Förin vai’ farin fyrir áesEjan síra Marinos Kristinssonar í Vallanesi, sem er formaður íþróttaráðs Austurlands. — Síra Marino var á skólaár- um sínum mikill íbrótta- garpur í frjálsum íjirótt- um. Hann hefir ávalt síðan haft hinn mesta áhuga fyrir íbróttum og unnið að út- breiðslu beirra. Hefir starf hans og borið góðan ár- angur. Morgunblaðið hefir átt tai við Jón Þorsteiirsson fimleikakennara, sem þjálfað hefir og kent fim- léikaflokkunum. Spurðum vjer hann um árangur ferðarinnar; les- endur blaðsins hafa áður fengið tækifæri til að fylgjast með ferða- laginu sjálfu. — Fyrsta skilyrðið til að ferða- lag eins og þetta geti tekist vel, segir Jón, er að alt sje vel undir- búið á þeim stöðum, sem sýningar fara frarn. Þetta skilyrði var alls staðar fyrir hendi þar sem við komum, og kunnum við þeim, er tóku á móti okkur bestu þakkir. Hvergi var þó undirbúningur eins góður og í Laugaskóla, enda voru þar skilyrðin einna best, góður salur og áhöld og áhorfendur vanir leikfimi. Jeg geri mjer góðar vonir um að ferðin beri þann árangur að menn á þeim svæðum er við fór- um yfir, fái áhuga fyrir iþrótt- um, en þá er líka tilganginum með ferðalaginu náð. Það vill nú svo vel til, segir Jón, að hjer er nú staddur Iijá mjer maður, sem talað getur af þekkingu um sýningar flokkanna, en það er Þorgeir Sveinbjarnarson fimleikakennari að Laugum. Ilann fvlgdist með okkur suður frá Laugum. Þorgeir er maður fróður um leikf'imi. Hann hefir stundað fimleikanám í Danmörku og var . á Olympíuleikunum í fyrrasumar til að kynna sjer þar helstu ný- mæli á sviði líkamsræktar. Álit fimleikakennara á fimleikaflokkunum. Um leið og Jón sleppir orðinu, kemur Þorgeir inn til okkar. Hann er fús til að segja sitt álit á fim- leikaflokkum Ármanns. — Fimleikaflokkarnir og þá sjerstaklega karlaflokkurinn eru nú svo kunnir bæði hjer og úti um * land að óþarfi er að fjölyrða um : þá, segir Þorgeir. í Þetta eru sjerstaklega rösklegir fimleikaflokkar og leikfimin fall- eg. Einkum fhist mjer leikfimi kvenflokksins eftirtektarverð. Um kvenflokkinn vil jeg segja að leikfimi hans er sjerstaklega lifandi. Floklturinn er vel sam- stiltur og hreyfingar allar kven- legar. Ef leikfimin á að ná tilgangi sínum bæði fyrir þann sem liana iðkar og eins fyrir áhorfandann, þarf iðkandinn að leggja eitthvað persónulegt í leikfimina sjálfur. En }>að er einmitt þetta sem kemur svo vel fram hjá nem- endum Jóns Þorsteinssonar, en sjerstaklega þó hjá kvenflokkn- um. Það er svo með góða leik- fimi eins og góða bók, að því oftar sem maður sjer hana, þess meirí ánægju hefir maður af henni. Svo fór fyrir mjer í ferðalagi mínu með flokkum Ármanns. Það, sem mjer þótti einna mest um, heldur Þorgeir áfram, voru æfingarnar á slánni. Það var hrein unun að sjá hve stúlkurnar voru æfðar. Aldrei kom það fyrir að þeim mistækist og það sýnir að taugarnar eru í lagi, því æfingar á slá eftir þreytandi ferðalag í bíl á mis- jöfnum vegum, bætir eklti aðstöð- una til að gera erfiðar jafnvægis- æfingar. Það sýnir aftur á móti betur en flest annað, að Jón Þorsteins- son hefir æft fimleikafólk sitt vel og rjett. Báðir fimleikakennararnir, Jón og Þorgeir, róma mjög áhuga sr. Marinos Kristinssonar og benda á hann, sem dæmi þess hve nauð- syulegt sje að mentamennimir sjeu íþróttaunnendur. Almenningur ber virðingu fyrir góðum embættismönnum og tem- ur sjer gjarnan þá siði og háttu sem þcir hafa. Fyrir útbreiðslu íþróttanna er það því mjög nauð- synlegt að embættismenn þjóðar- innar sýni skilning á þeim málum. „Davies Cup“ fór að þessu sinni til Ameríku. Urslitakappleikir fóru fram milli Bandaríkjanna og Englands. Áður höfðu Bandaríkin sigrað Þjóðverja með 3:2. í leikn- um milli U. S. A. og Englands sigraði Budge báða andstæðinga sína í einmenningsleik og Banda- ríkin unnu tvímenningsleikinn og höfðu þar með unnið ,Davies Cup‘. Borgarfjörður HreOavatn Þeir, sem ferðast í Borgarfjörðinn og vilja njóta ynd- islegrar náttúrufegurðar, fara helst að Hreðavatni. Þar eru grænar grundir, hraun, brekkur, hvammar, grænar hlíðar, og há fjöll. Þar eru blikandi vötn full af silungi og Norðurá með fögrum fossum, þar sem: „Leikur lax í hyljum, Ijett með sporðaköst“. Gcð músík og dans á kvöldin í Hreðavatnsskála. Söngvar fyrír alþýöu IV. Sálmalög eftir sr. Halldór Jónsson, er komin út. Verð kr. 3.50. Fæst hjá bóksölum. Bókawersl. Sigf. Eymundisonar og Bókabúð Austurbæjar B. S. E., Laugavegi 34.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.