Morgunblaðið - 17.08.1937, Page 6
6
Minningarorð um Magnús
Ólafsson, ljósmyndara.
í dag verður til moldar borinn
Magnús Olafsson, ljósmyndari,
sem andaðist 26. 8.1. mán. á Landa
kotsspítala, eftir stutta leg-u, 75
ára að aldri. Var hann meðal elstu
og þektustu borgara þessa bæjar.
Magnús var fæddur 10. maí
1862, að IIvoli í Saurbæ, Dala-
sýslu. Foreldrar hans voru þau
Ólafur jarðyrkjumaður Jónsson,
síðar lyfjafræðingur í Stykkis-
bólmi og Þorbjörg Magnúsdóttir
frá Skáleyjum í Breiðafirði.
Systur Ólafs voru þær Sigríður,
móðir Björns ritstj. Jónssonar og
systkina hans, María móðir sjera
Jóhanns Lúters próf. að Hólmum
í Reyðarfirði, — Sesselja móðir
þeirra skáldkonanna Herdísar og
Ólínu Andrjesdætra, og Kristín,
amma Guðmundar Jóhannessonar
gjaldkera á Landsímanum í
Reykjavík og þeirra systkina.
Þorbjörg inóðir Magnffear var
dóttir þeirra Magnúsar Einars-
sonar bónda í Skáleyjum, bróður
Eyjólfs dbrm. í Svefneyjum og
konu hans Sigríðar Einarsdóttur
systur Þóru móður Matthíasar
skálds og Guðmundar prófasts á
Breiðabólsstað. Eru báðar þessar
ættir hinar merkustti.
Magnús giftist ungur Guðrúnu
Jónsdóttur Thorsteinssep bókb.
Árnasonar Thorsteinssen sýslum.
Snæfellsnessýslu, hinni merkustu
konu, sem ljest hjer í Reykjavík
árið 1926. Var hjónaband þeirra
mjÖg farsælt. Eignuðust þau 7
börn, eitt sem dó á unga aldri, en
6 fullorðin eru á lífi, þau: Asta,
ríkisfjehirðir Rvk., Ólafur kon-
angl. ljósmyndari Rvk. Karl hjer-
aðslæknir Hólmavík, Pjetúr banka
fulltrúi Landsbankanum Rvk.,
Tryggvi verslunarstjóri Edinborg-
ar Rvk., og Karólína skrifstofu-
stúlka Rvk.
Áður en Magnús giftist eignað-
jst hann einn son Guðjón skósmið
Rvk.
Bræður átti Magnús 3, Eirík og
Guðlaug, sem eru dánir, og Júlíus
búfræðing búanda á Miðjanesi
Reykhólasveit.
Magnús fluttist á unga aldri til
Stykkishólms með foreldrum sín-
am og nam þar verslunarfræði. 23
ára fluttist hann til Akraness og
var þar verslunarstjóri við verslun
Th. Thomsen í 15 ár. Var það um
skeið stór og umsvifamikil verslun,
og var Magnús ágætlega látinn í
því starfi, af öllum sem við hann
áttu skifti, enda mátti hann ekki
vamm sitt vita í heiðarleik og öllu
því er betur mátt fara. Gaf hann
sig jafnframt að opinberum mál-
nm, á því skeiði, og var um nokk
ur ár oddviti Akranesshrepps. Enn
fremur var hann fjárhaldsmaður
kirkjunnar og sóknarnefndarmað-
ír í mörg ár. Ilann var einn af
forgöngumönniim að stofnun bincP
indisfjelags á Akranesi, áður en^
nokkur goodtemplara-stúka var til
hjer á landi. Söngfjelag stofnaði
hann og tók á allan hátt mikinn
þátt í fjelagslífi kauptúnsins, og
mátti segja að hann væri hrókur
alls fagnaðar, þar sem hann kom.
Árið 1901 hætti Thomsen versl-
un sinni á Akranesi, og fluttist þá
Magnús til Reykjavíkur og lagði
fyrir sig ljósmyndagerð. Þótti það
víst ekki öllum álitlegt hjer, mað-
ur svo að segja með tvær hendur
tómar og 6 börn, flest í ómegð, en
úr því rættist betur en áhorfðist.
Magnús fór þegar utan og fullnum
aði sig í ljósmyndagerð hjá einum
besta ljósmyndara í Kaupmanna-
höfn, keypti sjer fullkomin áhöld
og setti upp ljósmyndastofu í
Reykjavík, sem hann svo starf-
rækti hjer um langt skeið, við hinn
besta orðstýr, enda ljek þessi list
í höndum Magnúsar eins og flest
annað er hann tók sjer fyrir
hendur.
Snemma fjekk Magnús áhuga
fyrir þeirri grein Ijósmyndafræð-
innar, er að landlagsmyndum laut,
enda var hann frábærlega smekk-
vís á því sviði. Feraðist hann síðan
árum saman á hverju sumri, svo
að segja, um landið þvert og endi-
langt og tók myndir, og varð hann
af því kunnur maður víða um
landið. Var hann brautryðjandi á
þessu sviði. Vann hann síðan úr
þessu steroskopmyndir, sem voru
mjög útbreiddar og vinsælar um
langt skeið, og skuggamyndir, sem
mikið voru sýndar bæði hjer á
landi og erlendis. Hafa víst fáir
unnið meir að því að opna augu
manna fyrir náttúrufegurð íslands
og útbreiða þekkingu á f jölbreytni
hennar, bæði hjer á landi og er-
lendis, heldur en Magnús heitinn
gerði með mýndum sínum, og ligg-
ur eftir hann mikið og þjóðnýtt
starf í þessum efnum, þó ekki
verði það metið til peninga.
Mynda- og plötusáfn sem hann læt
ur eftir sig, er eins og að líkum
lætur bæði stórt og merkilegt.
Magnús byrjaði fyrstur manna á
því að lita stækkaðar lósmyndir,
aðallega með vatnslitum (aqvarell)
og voru þær margar mjög fagrar
og listrænar. Hann var teiknari
svo góður, að vafalaust hefði hann
komist í fremstu röð listmálara,
hefði hann getað lagt’ það fyrir
sig, en það gat ekki samrýmst
þeim kröfum sem lífið gerði, að sjá
borgið stóru heimili og koma á
legg 6 mannvænlegum börnum.
Magnús var auk þess svo hag-
ur á trje, að alt smíði Ijek í hönd-
um hans, og myndavjelar sínar
smíðaði hann að meira eða minna
leyti sjálfur, á síðari árum. Hug-
vitsmaður var hann mikill, og ligg
ur fleira en eitt eftir hann á því
sviði, þó ekki sje það almenningi
kunnugt.
Hann var ágætlega, söngnæm-
ur og söngelskur, lærði ungur til-
sagnarlaust undirstöðuatriði söng-
fræðinnar, og Ijek á harmonium og
á síðari árum á fiðlu sjer til
gamans.
.. Má vfirleitt segja, að Magnús
var með afbrigðum fjölhæfur mað-
ur, einkum á alt sem iistrænt var
og fagurt.
Hann var hugljúfi hvers manns,
sem kynntist honum, sakir val-
mensku sinnar og priiðmensku í
framkomu allri. Yfirlætisleysi var
áberandi þáttur í fari hans, hann
var stiltur í skapi, trygglundaður,
góðviljaður og hjálpsamur. Heimil
isfaðir var hann aila tíð konu
‘umujoqnujnq 3o uimuoq ‘ntuis
MORGUNBLAÐIÐ
---------Miljóna-----------
t|ón í Noregí.
Osló í gær.
Margra miljón króna tjón hlaust er stöðvarhúsið
með öllum vjelum í Svelgfoss orkuveri, skamt frá Not-
odden (Noregi) brann til kaldra kola í gærkvöldi. Eld-
urinn breiddist út með feikna hraða og varðmennirnir
gátu ekkert að gert, nema stöðva vjelarnar, áðwr þejr
björguðu sjer út úr stöðinni. (NRP—FB).
Magmús Ólafsson.
svo góður, að reyndin ein getur
lýst því. Magnús var meðalmaður
á hæð, vel vaxinn og limaður,
fríður sýnum og framkoman öll
prúðmannleg.
Síðustu 10 árin dró hann sig
mjög í hlje, sakir þess að bilun á
heyrn bagaði hann tilfinnanlega.
Dvaldi hann alla tíð á heimili
sínu og barna sinna, uppkominna
hjer í bænum, þar sem hann naut
ástríkis þeirra og umönnunar,eins
og best getur verið. Yar hann sí-
starfandi heima fyrir, enda næst-;
um altaf heilsuhraustur, þar til
hann kendi sjúkdóms þessa, hjarta
bilunar, sem leiddi hann til bana
eftir stutta legu.
TILLÖGUR ÞINGVALLA-
FUNDARINS.
FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
Kristmundur Þorleifsson, bókari,
Björn Magnússon dósent, Nikulás
Friðriksson, umsjónarm., Brynleif
ur Tobíasson, kennari, Jónas Tóm
asson, kaupm., Pjetur Ottesen,
alþm., Friðrik Á. Brekkan, rif-
höf., Helgi l’ómasson, dr. med.,
Valdimar Snævarr, skólastjóri.
Samkvæmt tillögu menningar-
og siðgæðismálanefndar skipaði
forseti þessa þrjá inenn til að taka
sæti í nefnd, er vinni að stofnun
landssambands menningar- og
bindindisfjelaga, ásamt fyr-
greindri nefnd:
Björn Magnússon, dósent, Frið-
rik Á. Brekkau, rithöf., og Bene-
dikt Waage, kaupm.
FLÖTTINN FRÁ
SHANGHAI.
FRAMH. AF ANNARI SfÐU.
skrásetja tvö þúsund konur og
sextíu börn, bresk, og verður
þetta fólk flutt til Hongkong á
morgun og á miðvikudaginn.
Bandaríkjastjórn hefir leigt
tvö 3kip til þesS að- flytja am-
eríska borgara í burtu frá
Shanghai og verða þeir fluttir
til Manila á Filippseyjum. Að
líkindum fara þangað milli tvö
til þrjú þúsund manns. Frakk-
ar hafa einnig gert ráðstafanir
til þess að flytja franska borg-
| ara í burtu frá Shanghai.
KÍNA - JAPAN.
FRAMH. AF ANNARl SÍÐU
Japanir hafa nú lofað því, að
láta orusturnar ekki berast suð
ur fyrir Soochaw-lækinn, sem
rennur í gegn um borgina, norð
an við hinn svo kallaða breska
borgarhluta.
Loftárásir, sem flugvjelar
Japana gerðu í dag, hafa þó
valdið miklu tjóni, aðallega
eldsprengjur flugvjelanna, í
aðal viðskiftahverfi Shang-
hai.
Tuttugu japanskar flugvjel-
ar hófu í morgun loftárás á
Lunghua (?) f lughöf nina, en
síðar bættust stöðugt fleiri og
fleiri japanskar flugvjelar í
hópinn, og lá alt hjeraðið milli
Kínagwan skotfærageymslimn-
ar og alþjóðahverfisins að lok-
um undir sprengjuregni Jap-
ana.
Hjeraðið er nú ein rúst.
72 FLUGVJELAR KÍN-
VERJA EYÐILAGÐAR.
Japanska flotamálastjórnin til-
kynnir, að í árásum þeim, sem
japanskar flugvjelar gerðu á flug
stöðvar Kínverja við Shanghai,
Nankin og Hankovr á sunnudags
nóttina, hafi þær eyðilagt sjötíu
og tvær flugvjelar fyrir Kínverj-
'um, en aðeins tapað 8 flugvjelum
sjálfir.
Síðar reyndu kínverskar flug
vjelar að hindra það, að Japanir
settu á land liðsauka og þutu
sprengjur Kínverja og kúlurn-
ar úr loftvarnabyssum Japana
um loftið.
Kínverjar segjast hafa rekið
Japani út úr bækistöðvum þeirra
í Hong-Kew, og úr baðmullar-
verksmiðjnnum í úthverfi Shang
hai, en þær eru eign Japana.
Japanir hafa notað bæði flug-
vjelar og stórskotalið gegn Kín-
verjum — flugvjelar að baki þeim
og fallbyssur á brjóst.
Japanskt skip skaut í dag á
fjögra hæða hús í kínverska hverf
inu og varð það fjölda fólks að
bana.
FLUG YFIR ATLANTS-
HAF.
London í gær. FÚ.
Imperial Airways flugbátur-
inn Caledonia flaug í gær vest-
ur um Atlantshaf á 16 klukku-
stundum og 32 mínútum og
hrepti mótbyr og rigningu mest-
alla leiðina.
Clipper III. er lagður af stað
í tilraunaflugi um Azore-eyjar
til Lissabon.
Þýski flugbáturinn, sem á
laugardaginn lagði af stað frá
; bissabon um Azor-eyjar til
l Bandaríkjanna, hefir nú lent
I heilu og höldnu í Port-Was-
hington í New-York ríki.
Þriðjudagur 17. ágúst 1937,
FRÁSÖGN SIGURÐAR
NORDAL.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU
að er na að prentaðar sjeu á bók-
fell.
En þetta eintak er að sumit
leyti frábrugðið öllu.ni öðrum ein-
tökum, sem til eru af þessari Jó»s
bókar-útgáfu. Aftan við það er vi#
bætir, sem prentaður er 1580.
Eintakið er bundið árið 1709.
Stendur það ártal á annari spenn-
unni. En á hinni er fangamarkið
L. C. G., sem vafalaust er fanga-
mark eigandans, sem Ijet binda
bókina. Getur varla verið um ann
an mann að ræða en Lanrite
Christjansson Gottrúp, er lögmað
'ur var að norðan og- vestan 1695
—1714.
Ekkert er bssgt að segja uu
það að svo komnu, hvernig e»-
tak þetta befk- komist til Þýíkca-
lands.
Má óhsett fullyrða, að þetta ein-
tak sje merkilegast og fágsetast
íslenskra bóka, sem nm langan
aldur hefir verið til sölu. Það
mundi hafa verið þjóðarhneisa, ef'
það hefði lent annars staðar e»
á Landsbókasafninu, enda var það
ósk dr. Mnnkgaards, þó að marg-
ir væru um boðið. Því miður hef-
ir safnið lítil fjárráð til þess að
kaupa svo dýra bók (hún kostar
1660 krónur), en landsbókavörð-
ur, dr. Gnðm. Finnbogason, hefir
samt ekki hikað við að panta
hana þegar símleiðis, og er von-
andi, að alþingi á sínnm tíma
bæti safninu það upp með dálít-
illi aukafjárveitingu.
irtFiwiir'HiPieiwriPifiPir inru-irinpipipiririnr
vrai3OO13UIJI3uU13uwl3Lr>Jl3umjMUI3ri30i
MiLARDTNiGSSKRIFSTOFA
Si
Sigurður Guðjónsson
lögfræðingur.
Aust. 14. — Sími 4404.
innririnrinnririnr ipinripinrinnriwririni-
JijIjí SlJi-TI jIjO JOU1313l31JUUIjMi>nJMMIrfMi
EGGERT GLAESSENT
hæstarjettarmálaflutningsmaður.
Skrifstofa: Oddfellowhúsið,
Yonarstræti 10.
(Inngangur um austurdyr).
Amaförfoto.
Kopiering — Framköllun
F. A.THIELE
Austurstræti 20.