Morgunblaðið - 10.10.1937, Side 3
ðtumiidagiir 10. okt. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
3
SETNING ALÞINGIS í GÆR
011u frestað eftir
kosningu forseta
sameinaðs þings.
ALÞINGI var sett í gær og fór sú athöfn
fram með sama hætti og áður. Sendi-
herrar og ræðismenn erlendra ríkja
voru viðstaddir.
Klukkan 12.45 söfnuðust þingmenn saman í Alþingishúsinu
•g gengu þaðan í Dómkirkjuna, en þar hófst guðsþjónusta
klukkan 1 e. hád.
Síra Björn Magnússon dó-
sent prjedikaði. Á undan prje-
áikun var sunginn sálmurinn:
„Þú guð, ríkir hátt yfir hverf-
leikans straum“. Síra Björn
lagði útaf Mattheusarguðspjalli
6. kap., 25.—-33. versi: „Verið
ekki áhyggjufullir um líf yðar,
kvað þjer eigið að eta eða hvað
þjer eigið að drekka, ekki held-
■r um líkama yðar, hverju þjer
•igið að klæðast?“ o. s. frv.
Á eftir prjedikun var sunginn
sálmurinn: „Faðir andanna“.
I SAMEINUÐU
ÞINGI
Að lokinni guðsþjónustu
komu þingmenn saman í neðri
áaildar sal Alþingis.
Það vakti athygli hve marg-
ir lögregluþjónar vóru við-
staddir. Stóðu þeir í tveimur
röðum, maður við mann á svæð-
inu frá dómkirkjunni til þing-
hússins, ‘meðan þingmenn
gengu inn í þinghúsið, en á-
horfendur voru fáir.
Athöfnin í þinghúsinu hófst
með því, að forsætisráðherrann
las upp boðskap konungs um
að Alþingi væri stefnt saman
og setti þingið í umboði kon-
angs.
Bað forsætisráðherra því
aæst þingmenn að minnast ætt
jarðarinnar og konungs. „ís-
lenska þjóðin og konungurinn
kfi!“, hrópaði þá Jörundur
Brynjólfsson og risu þingmenn
úr sætum og tóku undir með
f-erföldu húrra. Sósíalistar
(nema Ásgeir) og kommúnist-
ar sátu kyrrir í sætum sínum.
Haraldur ráðherra smeygði
sjer út úr þingsalnum meðan
þessi athöfn fór fram.
Þegar þessu var lokið risu
kommúnistarnir þrír úr sætum
sínum og Einar Olgeirsson hróp
aði: „Minnumst frelsisbaráttu
íslensku þjóðarinnar!“ og hróp
uðu þremenningarnir ferfalt
húrra um leið og þeir sýndu
þingheimi kveðju kommúnista,
sem er kreptur hnefinn.
MINNING
LÁTINNA
ÞINGMANNA
Þessu næst bað forsætisráð-
herra aldursf orseta þingsins,
Ingvar Pálmason 2. þm. Sunn-
mýlinga að stýra fundi uns kos-
ian væn forseti sameinaðs
þings.
Aldursforseti mintist fyrst
þriggja fyrv. þingmanna, er
látist höfðu eftir að síðasta
þingi lauk. Þeir voru: Guðm.
Björnson fyrv. landlæknir, sem
var þm. Reykvíkinga 1905—07,
konungkjörinn þm. 1913—15,
og landskjörinn þm. 1916—24;
síra Sigfús Jónsson, er var þm.
Skagfirðinga 1934—37; Jón
Ólafsson bankastjóri, sem var
þm. frá 1927—37, fyrst Reyk-
víkinga og síðan Rangæinga.
Þingmenn risu úr sætum sínum
til virðingar um hina látnu.
PRÓFUN
KJÖRBRJEFA
Þvínæst skiftust þingmenn í
3 deildir, eftir hlutkesti, til þess
að prófa kjörbrjef og kosn-
ingu þingmanna. Var veitt hálf-
tíma fundarhlje til þessa.
Ekkert þótti athugavert við
kosningu þingmanna, engin
kæra lá fyrir og var kjör þeirra
allra samþykt. Framsögumenn
kjördeilda voru: Bergur Jóns-
son, Gísli Sveinsson og Magnús
Guðmundsson.
FORSETI
SAMEINAÐS
ÞINGS
Þá fór fram kosning forseta
sameinaðs þings, og var Jón
Baldvinsson kjörinn forseti
með 25 atkv., 18 seðlar voru
auðir. Við forsetakosninguna
komu þannig ekki frarn, nema,
43 atkvæði, en 46 þingmenn
voru mættir. Munu kommúnist-
ar ekki hafa tekið þátt í kosn-
ingunni.
Var nú ekki fleira aðhafst og
þingsetningu frestað til morg-
uns.
Við þingsetningu vantaði
þrjá þingmenn, þá Thor Thors
og Bjarna Ásgeirsson, sem eru
á heimleið frá útlöndum, og
Jóhann iJósefsson, sem er í
Vestmannaeyjum. Þeir eru allir
væntanlegir með Goðafossi í
dag.
Ffú Þóra Sigfúsdóttir
kona Garðars Gíslasonar stór-
kaupmanns, andaðist í gærmorg-
\in. —
Karl Sig. Jónasson læknir hefir
verið viðurkendur af lieilbrigðis-
stjórninni sem sjerfræðingur í
handlækningum.
Þingmálalundur
i Eyjum.
Eindregið fylgjandi
SjálfstæðisfioKKnum
Jóhann Þ. Jósefsson alþm.
boðaði til almenns þiníí-
málafundar í Vestmannaeyj-
um" á föstudag'skvöld og
mættu þar um 400 manns.
Fimdurinn var eindregið fylgj-
andi Sjálfstæðisflokkrium. Sjálf-
stæðismenn báru fram á fundin-
um 10 tillögur um lands- og hjer-
áðsmál og vortr þær allar sam-
þyktar með samhljóða atkvæðum
allra fundarmanna.
ísleifur Högnason helt á dögun-
um þingmálafund í Eyjum, en þar
mættu g,ðeins 60—70 manns og
átti þetta þó að heita almennur
fundur. Voru k'ommúnistar gratn-
ir vfir þessu áhugaleysi Eyjar-
skeggja. Ætlaði. svo Jón Rafns-
son að reyna að rjetta hlut komma
nú á fundi Jóhanns og kom þang-
að ineð tillögurnar frá ísleifsfund-
inum. En fundarmenn fengu megn
asta viðbjóð á framkomu Jóns og
gáfu honjim það ótvírætt til
kvnna. Þegar tillögur kommúnista
voru bornar upp, voru margir
farnir af fundi, enda hafði hann
þá staðið í 4^/2 tírna. Með tillög-
unum fengust 12—14 atkv., en
flestir fundarmenn hundsuðu svo
gersamlega tillögurnar, að þeir
vildu ekki greiða atkvæði um þær.
Fekk -Jón Rafnsson hina lierfileg-
ustu útreið, bæði hjá ræðumönn-
um Sjálfstæðismanna og hjá fund-
aririöttnum.
íbúðarhús brennur.
Annað íbúðarhúsið í Flekkuvík
á Vatnsleysuströnd, eign
Úlfars Bergssonar, brann til
kaldra kola í fyrrakvöld. Eldur-
ihn kviknaði laust fyrir miðnætti.
' Engirin var í húsinu sem brann,
en í öðru húsi, sem stendur rjett
hjá, voru húsbændurnirr fjarver-
andi, en aðeins bornin heima, elst
18 ára gömul stúlka.
Vaknaði hún við hjarmann frá
eldhram' og gat bjargað einhverju
lítilsháttar út, en annars brann
mestalt sem inni var. Stúlkan gat
bjargað út kanínum, sem inni
voru, en hundur, sem hún hafði
náð, slapp inn í húsið aftur og
hrann inni.
Menn frá næstu bæjnm o veg-
farendur, er komu að, gá’ með
naumindum varið hitt húsið. Elds-
upptök eru ókunni. (FÚ.).
Hjónaband. í gær voru gefin
samari í hjónaband af síra Garð-
ari Svavarssyni ungfrú Valborg
Karlsdóttir og Þórðnr Jóliannsson.
Heimili þeirra er að Bjarnastöð-
um Grímsstaðaliolti.
Yvon Delbos utanríkismála-
ráðherra Frakka, sem hefir í
hótuniun að opna fransk-
spönsku landamærin á morg-
un.
Þrjú bflslys
á einum degi.
rjú bifreiðaslys urðu hjer í
bænum í gærdag, frá hádegi
til klukkan rúmlega 5. í öllum
slysunum urðu menn fyrir nokkr-
um meiðslum, en þó ekki alvar-
legum.
Slys við Varðarhúsið.
Um hádegi varð verkamaður,
Sigurjón Viktor Finnbogason,
Bergþórugötu! 15 A, fyrir bíl á
torginu fyrir framan, Varðarhúsið.
Var Sigurjón á reiðhjóli. Fell
hann af hjólinu og hlaut. áverka
á enni, einnig marðist hann tölu-
vert. á öxl og fæti.
Sigurjón var fluttur á Lands-
spítalann og leið hornnn sæmilega
í gærkvöldi.
Bíll ekur á bifhjól.
Annað slys varð um kl. 4, á
gatnamótum Suðurgötu og Skot-
húsvegar. Ók bíll á riiótorhjól og
evðilagðist það.
Stúlka, sem var farþegi á mót-
orhjólinu, Svanborg Símonardótt-
ir frá Vatnskoti í Þingvallasveit,
meiddist nokkuð við áreksturinn.
Sendisveinn
verður fyrir bíl.
Þriðja slysið vildi til klukkan
rúmlega 5 í gærdag. Sendisveinn,
sem kom á reiðhjóli sínu austur
Vesturgötu, varð fyrir bíl, sem
var að koma frá bensínsölu Sliell.
Hjólið Ararð undir bílnum, en
sendisveinninn slapp án verulegra
meiðsla.
Eimskip. Gullfoss fór til Leith
og Kaupmannahafnar í gærkvöldi
kl. 10. Goðafoss var væntanlegur
til Vestmannaeyja á miðnætti í
nótt, og hingað kl. 2 e. h. í dag.
Brúarfoss er í Stykkishólmi. Detti-
foss er á leið til Hull. Lagarfoss
fór frá Blönduósi í gærmorgun.
Selfoss er væntanlegur til Rotter-
dam í dag.
Frá Vestmannaeyjum.
w
Utgerðarmenn
byggja
olíugeymi.
í 1 tþerðarmenn í Vest-
mannaeyjum hafa stofn-
að með sjer fjelagsskap til
innkaupa á olíu og ætla í
því skyni að láta reisa stór-
an olíugeymi í Eyjum.
Eru Yestmannaeyingar fyrstir
til að taka olíumálin þessum tök-
um hjer á landi.
Kristján. Gíslason járnsmiður í
Reykjavík sjer um byggingu
geymisins og inun liann fara hjeð-
. an í kvöld með Gullfossi til Eyja
til að byrja á verkinu.
Eiðinu bjargað.
Á þingi í fyrra bar Jóhann Þ.
Jósefsson aíþingismaður fram
þingsályktunartillögu þess efnis
að hafist væri handa um að bjarga
Eiðinu sem lækkaði stöðugt vegna
sjávargangs og stóð böfninni
hætta . af. Þmgsályktunartillaga
Jóhanns var samþyktr og er nú
hafist handa á verkinu. i Hefir
Finnbogi R. Þorvaldsson stjórn
verksins með liöndum fyrir liönd
vitam álaskrif stof unnar.
Var ekki seinna vænna að haf-
ist væri handa nm þetta verk, því
í síðustu viku gekk sjórinn al-
veg yfir Eiðið inn á höfn og hefir
slíkt sjaldan eða aldrei komið fyr-
ir áður. Sýnir það hest nauðsyn,
þess verks, sem nú er hyrjað á.
Dýpkun hafnarinnar.
Unnið hefir verið að dýpkun
hafnarinnar í Eyjum í alt sumar
og hefir verkið gengið vel.
Er nú svo komlð að jafnauð-
velt er fyrir skip serii rista 16 fet
að komast inn á höfnina, eins og
áður var fyrir skip, sem rista 13
fet.
Unnið liefir verið fyrir um 40
þúsund krónnr.
Netagerðin gengur vel.
Netagerðin, sem Vestmannaey-
ingar hyrjuðu á í fyrra, gengur
ágætlega. Afköst netagerðarinnar
crii 50 net á sólarhring. Netin
þykja ágæt og standa síst að baki
erlendum netum, þau eru gerð iir
besta ítalska hampi, sein fáanleg-
ur er. Mun netagerðin ekki að-
eins geta fullnægt kröfum Vest-
mannaeyinga, heldur og geta selt
net til annara verstöðva.
Fleiri lýsisgeymar.
Lifrarsamlagið er nú að láta
smíða fjóra nýja lýsisgeyma í við-
hót við þá sem fyrir eru. Hinir
nýju • geymar^ munu taka samtals
ri;m 100 tonn.
Samkomuhús
S j álf stæðism anna.
Hið veglega samkómuhús Sjálf-
stæðismanna Verður fullbúið nm
áramót. Lokið er Víð áð „pússa“
steypuna að. ntan og innán og er
nú verið að ganga frá Ijósaútbún-
aði, miðstöð og þ. h.
Sundhöllinni verður lokað kl. 3
í dag fyrir baðgesti vegna sund-
meistaramótsins.