Morgunblaðið - 13.10.1937, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 1S. okt. 19tf.
lapanir skjóta aftur á breska
Frakkar og
sjálfboöaliðar
á Spáni.
Mikilvæg tíðindi.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
TVÆR næsta ótrúlegar fregnir hafa ver-
ið birtar í dag eftir áreiðanlegum heim-
ildum um alþjóðaviðhorf út af Spán-
armálunum.
Báðar bera með sj.er, að ástandið í Evrópu hafi aldrei
verið jafn hættulegt og nú, — eftir að Mussolini hefir neitað að
taka þátt í þríveldaráðstefnu um brottflutning sjálfboðaliða
frá Spáni — síðan að refsiaðgerðirnar gegn Itölum í Abyssiníu-
styrjöldinni voru í algleymingi.
Báðar þessar frjettir snerta Frakka. Önnur er: að
Frakkar ætli að leggja undir sig eyna Minorca, — sem er ein
af Baleareyjunum, — með samþykki stjórnarinnar í Val-|
encia, en Minorca er spánsk eyja. Mussolini hefir á valdi'
sínu Mallorcaeyna, sem er stærst af Baleraeyjunum, og nú
óttast Frakkar, að hann kunni að freistast til að leggja einn-
ig undir sig Minorca til þess enn að styrkja aðstöðu sína í
í vestanverðu Miðjarðarhafi. Frakkar eru sagðir vilja verða
fyrri til.
En ekkert sýnir þó betur hve ástandið er ískyggilegt, en uppá-
stunga, sem fram er komin af hálfu eins talsmanns franska
utanríkismálaráðuneytisins, á þá leið, að flotar Breta og
Frakka í Miðjarðarhafi taki að sjer að koma í veg fyrir
flutninga hermanna og hergagna til beggja stríðsaðila á
Spáni.
erinöreka
I
Þessi tillaga er ekki opin-
berlega fram komin frá
frönsku stjóminni, en tals-
maður utanríkismálaráðu-
neytisins ljet svo um mælt,
að hjeðan af yrði að teljast
útilokað, að samkomulag næð
ist um brottflutning sjálfboða
liða frá Spáni, og þar sem
Bretar og Frakkar gætu ráð-
ið lögum og lofum í Miðjarð-
arhafi, væri ekki útiíokað, að
samkomulag gæti náðst um
tillöguna.
ÁKVÖRÐUN I DAG.
Það er bú.ist við, að endan-
leg ákvörðun um það, hvaða
ráðstafanir Frakkar og Bretar
ætli að gera til þess að knýja
fram þá kröfu sína, að íhlutun
Itala í Spánarstyrjöldinni verði
stöðvuð, og útlendingar fluttir
frá Spáni verði tekin, er breska
stjórnin kemur saman á ráðu-
neytisfund á morgun. Það, sem
einkum ýtir undir bresku stjórn
ina, að taka þetta mál föstum
tökum, eru frjettirnar um á-
framhaldandi hersendingar It-
ala til Libyu. Þangað hafa nú
verið fluttir 24 þús. ítalskir her
menn síðustu daga, án þess að
nokkuð hafi verið látið uppi
um erindi þeirra.
ÓSAMKOMULAG.
Síðustu dagana hefir oft ver-
ið rætt um „fransk-breska öx-
ulinn“ í Spánarmálunum, en í
dag viðurkennir breska Reuter-
frjettastofan, að stjórnirnar í
París og London sjeu að vísu á
í Kína.
annað sinn hafa flugvjelar, sem fullyrt
er, að hafi verið japanskar, skotið á
bifreiðar, greinilega merktar breska
fánanum, og sem í voru breskir sendisveitarfull-
trúar, nálægt Shanghai. Engir af farþegum bif-
reiðanna særðust.
Bifreiðarnar voru þrjár, og voru eign sendi-
sveitarskrifstofu Breta í Nanking. Meðal farþeg-
anna var sjerfræðingur sendisveitarskrifstofunn-
ar í flugmálum, Murray. Ennfremur var í einni
bifreiðinni aðstoðarmaður við Sovjet-rússnesku
sendisveitarskrifstofuna í Nanking, sem bifreiðin
hafði tekið upp á leið sinni.
BRESK YFIRVÖLD I NANKING HAFA LÝST YFIR ÞVÍ,
AÐ HERSTJÓRN JAPANA HAFI VERIÐ TILKYNT (SKV.
LUNDÚNAFREGN FÚ), AÐ BIFREIÐAR SENDISVEIT-
ARINNAR MYNDU VERÐA Á FERÐINNI MILLI NAN-
KING OG SHANGHAI, OG UM HVAÐA LEYTI. Á ÞAK
BIFREIÐANNA VAR MÁLAÐUR SAMBANDSFÁNI
BRESKA RÍKISINS.
Bifreiðarnar voru skamt frá Shanghai, er sex flugvjelar,
sem fullyrt er, að hafi verið japanskar, rjeðust að þeim og hófu
skothríð á þær.
Strax og árásin hófst, fóru farþegarnir úr bifreiðunum, og
leituðu sjer hælis fyrir skothríðinni.
eitt sáttar um endatakmarkið,
en greini á um aðferðir.
SAMNINGAR.
London í gær. FÚ.
Eden kom til baka til London
í morgun og átti einnar klukku-
stundai' viðræðu við Chamberlain
forsætisráðh. Síðan tók hann á
móti Corbin, sendih. Frakka í Lon
don. Sendiherra Breta í París fór
í gærkvöldi á fund Delbos utan-
ríkismálaráðherra Frakka.
Fransk-spönsku
landamærin.
Enda þótt flugufregnir hermi,
að franska stjórnin ætli sjer að
opna fransk-spönsku landamærin,
e;r meðal stjórnmálamanna talið
ólíklegt, að hún hafi ennþá tekið
nokkrar ákvarðanir um það mál.
Blöð hægri flokkanna ráða henni
til að bíða með það, en blöð vinstri
flokkanna krefjast þess, að landa
mærin sjeu opnuð tafarlaust.
ítalir . . .
Blöð sem stauda nærri ítölsku
stjórninni láta í veðri vaka, að
ítalir telji það litlu máli skifta,
hvort landamæri Frakklands og
Spánar sjeu opnuð á ný eða ekki.
En í „Popolo D’ Italia“ birtist
í dag grein, sem sumir álíta að
sje eftir Mussolini sjálfan, þar
sem Bretar og Frakkar eru sak-
aðir um að hafa í undirbúningi
rof á hlutleysissáttmálanum, en
vera þó á sama tíma með nýtt
samningsbrölt.
Heimdallur.
ur í kvöld kl.
lagshiisinu.
Full trúaráðsfund-
8y2 í Mjólkurfje-
Sumir telja, að japanska her-
stjórnin hafi álitið, að hátt-
settir kínverskir embættis-
menn hafi verið farþegar í
. . bifreiðunum. (I því sambandi
rifjast það upp, að árásin
á kínverska sendiherrann
Knatchhull-Hugessen var
gerð, að sögn Japana, til að
hæfa Chiang-Kai-Shek, yfir-
hershöfðingja Kínverja, sem
álitið var, að væri í bifreið
sendiherrans).
Vissu ekki .. .
London í gær. FÚ.
Japanska herstjórnin er sögð
bera á móti því (skv. Lundúna-
fr&gn FÚ), að hún hafi fengið
tilkynningu um ferðir bifreið-
anna.
Aftur ber öðrum heimildum
saman um, að Japanir hafi vit-
að um bifreiðarnar.
Fr j ettaskeyti frá Central-
frjettastofunni í Tokio segir frá
þessum atburði, en staðhæfir,
að flugvjelarnar hafi verið kín-
verskar.
STRÍÐIÐ
í STUTTU MÁLI.
Japönsk herskip og flugvjel-
ar gerðu í morgun harðvítuga
árás á Chapeihverfið í norður-
hluta Shanghai, en hersveitum
Kínverja hefir verið boðið að
verja hverfið, hvað s,ém það
kosti . . . Samkvæmt frjettum
frá Japönum sjálfum, hafa þeir
nú Hopei-fylki í Norður-Kína
algerlega á valdi sínu . . . Stjórn
sú, sem Japanir hafa sett á fót
í Peiping, tilkynnir, að nafn
borgarinnar verði eftirleiðis
Peking, eins og það var áður en
Nankingstjórnin breytti því, ár-
ið 1928. (Peiping þýðir „höfuð-
staður norðanlands").
DÓMAR UM
LISTSÝNINGUNA
1 KHÖFN.
Y
Eiturgas.
SKelfing í Kína.
Það hefir vakið óhemju
skelfingu í Kína, að Japanir
eru nú famir að nota e,itur-
gas. Til þessa hefir eiturgas
þó aðeins verið notað í smá-
um stíl.
21 Kínverji lje.tu lífið af
völdum eiturgass í áhlaupi
Japana á Shanghaivígstöðv-
unum í gær, simar frjetta-
ritari vor.
Yfirforingi Japana við
Shanghai hefir lýst yfir (seg-
ir í FÚ. fregn), að Japanir
muni á næstunni safna þang-
að öllum þeim liðstyrk, sem
þeir geti og hef ja úrslitasókn.
Orustur blossuðu aftur upp
á Shanghaivígstöðvunum í
dag, með því að rigningunni
er að ljetta.
I
Khöfn í gær. FÚ.
MS dönsk blöð hafa birt
listdóma um íslensku sýn-
ingardeildina á Charlottenborg.
Berlingske Tidende talar að-
allega um Jón Stefánsson og
Júlíönu Sveinsdóttur, og kemst
blaðið svo að orði, að litir þess-
ara tveggja málara hafi eitt-
hvað af stórfengleik sjálfrar
náttúrunnar í sjer fólginn. Auk
þess fer blaðið lofsamlegum orð
um um Gunnlaug Blöndal, Jón
Engilberts, Finn Jónsson, Þor-
vald Skúlason og Gunnlaug
Scheving.
„Social-Demokraten“ segir, að
kunnir íslenskir málarar, eins
og Jón Stefánsson og ypgri mál
arar eins og Jón Engilberts og
Þorvaldur Skúlason, sýni það
greinilega á þessari sýningu,
með hvílíkri alvöru og dugnaði
íslensk málaralist brýst áfram
til meiri fullkomnunar.
Fjöldi þektra manna var
staddur, þegar sýningin
opnuð.
við-
vígr
HEFNDARVERK
í SÝRLANDI.
Flýr stjórnin
i Valencia til
Barcelona?
London í gær. FÚ.
FRJETT, sem birt er í París
.er sagt, að spanska stjóru-
in hafi í hyggju, að flytja sig
til Barcelona, en frjettaritarar
erlendra blaða í Valencia segja,
að þar i borg sj* akkert um það
vitað.
í opinberum tilkynningui*,
sem stríðsaðilar á Spáni hafa
gefið út í dag, er sagt frá því,
að uppreisnarmenn sæki fram
í austurhluta Astúríu-fylkjanna,
og að þeir hafi tekið bæ nokk-
urn, sem stjórnin segir, að þeir
hafi áður verið búnir að jafna
við jörðu með loftárásum, á
svipaðan hátt og Guernica.
Ritari Trotskys.
Osló í g’*r.
EINN af skrifurum Trotsky,
Erwin Wolf, sem bjó hjá
honum, er hann var í Hönefosa,
Noregi, hefir verið handtekina
á Spáni af rússneskum leyn,i-
lögreglumönnum. Wolf hafði
farið til Spánar ásamt unnustw
sinni, dóttur Knudsens ritstjór*
í Hönefoss.
Ungfrú Knudsen er þess fuH-
viss, að það sje rússneskir leyni
lögr.eglumenn, sem hafi hand-
samað Wolf. (NRP — FB).
FRÁ Berlín er símað, að
ameríski aðalræðismaður-
inn í Beiruth í Sýrlandi hafi ver
ið drepinn. Ungur Armeni, 25
ára að aldri, sem áður hafði
dvalist í Bandaríkjunum, en
verið neitað um leyfi til þess að
flytja þangað aftur, rj.eði hann
af dögum. (NRP — FB).
Jóhanna Guðmundsdóttir, Trað-
arkotssundi 3, er G7 ára í -dag.
Samkvæmt „Economist“ hafa
farmgjöld hækkað um 5% í
september, miðað við ágúst-
mánuð. Undanfarna 12 mánuði
hafa farmgjöld hækkað un
70%. (NRP — FB).
Hinn frægi fiðluleikari, Hu-
berman, sem særðist lítilsháttar
er farþegaflugvjel konunglega
hollenska flugfjelagsins fórst
um daginn á Java, er nú að
verða gróinn sára sinna. (FÚ).