Morgunblaðið - 09.11.1937, Page 3
Þriðjudagur 9. nóv. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Alþýðuflokkurinntekurupp
marxistiska stefnuskrá
Á grundvelli hennar býður
hann kommúnistum
sameiningu
Og Framsóknarflokknum fram-
haldandi stjórnarsamvlnnu!
EINS og skýrt hefir verið frá, samþykti
Alþýðusambandsþingið nýja stefnu-
skrá fyrir Alþýðuflokkinn eða hinn
sameinaða flokk sósíalista og kommúnista, ef úr
sameiningu verður.
Þar sem hin nýja stefnuskrá er beinlínis sam-
in með tilliti til sameiningarinnar við ko'mmún-
ista, gefur að skilja, að í stefnuskránni er mjög
gengið inn á hin kommúnistisku sjónarmið.
Rauði þráðurinn í hinni nýju stefnuskrá er marx-
isminn, enda segir berum orðum í stefnuskránni, að
flokkurinn byggi skoðanir sínar ,,á grundvelli hins vís-
indalega sósíalisma, marxismans".
Það mun vera ætlan Alþýðuflokksins, að taka upp hina
nýju stefnuskrá, hvort sem nokkuð verður úr sameiningu við
------------Hafnarfjðrður:-------------------
Annað gósenland sósfalista
Stefán Jóh. Stefánsson hrm. mun um langt skeið
hafa verið lögfræðiráðunautur Hafnarf jarðar-
bæjar. Það þótti því nokkrum tíðindum sæta, þegar bæj-
arfulltrúar Hafnarfjarðar fengu á dögunum heimsókn
stefnuvottanna, með svohljóðandi plagg til birtingar, frá
skrifstofu Stefáns Jóh. Stefánssonar:
SÁTTAKÆRA.
Hafnarfjarðarkaupstaður skuldar mjer undirrituð-
um kr. 6.362.02 að frádregnum kr. 3.000.00 samkvæmt
skuldaviðurkenningu dags. 4. september 1937.
Tilraunir mínar til að fá skuld þessa greidda, hafa
reynst árangurslausar. Jeg neyðist því til að snúa mjer
til hinnar heiðruðu sáttanefndar og beiðast þess, að hún
kalli bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar f. h. kaup-
staðarins fyrir sig, ásamt mjer, til þess að reyna að fá
hana til að sættast á f. h. kaupstaðarins að hann greiði
mjer skuld þessa ásamt 6% ársvöxtum frá 4. sept. 1937
til greiðsludags og allan kostnað af sáttatilraun þessari.
Reynist sáttatijraun árangurslaus, óskast málinu
vísað til aðgerðar dómstólanna.
Reykjavík, 26. okt. 1937.
V irðingar f ylst,
Guðm. Guðmundsson.
Sennilega hafa það verið óinnleystir „gulir seðlar“,
sem skrifstofa St. Jóh. St. hafði í höndum og vildi fá
greidda. Ef til vill hefir það verið greiðsla fyrir lögfræði-
lega aðstoð, en Stefán Jóhann kann betur við að fá sitt
í öðru en óinnleysanlegum „gulum seðlum“.
Málið kom fyrir sáttanefnd 29. f. m. og var sæst
upp á það, að krafan skyldi greidd fyrstu dagana í des-
ember.
Tveir menn stúrslasast
á dansleikJK.R.-húsinu
Lögreglan varð að slita samkomunni
ADANSLEIK, sem svonefndur „Eldri dansa
klúbbur“ hjelt í K. R.-húsinu s.l. laugardags-
kvöld, kvað svo ramt að ölæði, að lögreglan
neyddist til að slíta samkomunni tveimur klukkustundum
áður en hún átti að vera búin.
Meðal annars slösuðust 'tveir menn á dansleiknum svo að
flytja varð þá á sjúkrahús til að gera við sár þeirra.
kommúnista eða ekki.
En þar sem Alþýðusambands
þingið jafnframt lýsti yfir því,
að það vildi að Alþýðuflokkur-
inn hjeldi áfram að vinna í
stjórn landsins með Framsókn-
arflokknum, er það engan veg-
inn þýðingárlaust, að almenn-
ingur fái nú þegar fulla vitn-
eskju um það, hvaða stefnuskrá
samstarfsflokkur Framsóknar
hefir tekið upp.
Alþýðublaðið hefir einhverra
orsaka vegna ekki ennþá talið
heppilegt að birta hina nýju
stefnuskrá. En þar sem Morg-
unblaðinu tókst að ná einu ein-
taki af stefnuskránni, mun það
birta hjer á eftir aðalatriðin
í þessari nýju stefnuská, sem í
framtíðinni er ætlað að verða
tengiliðurinn milli sósíalista og
kommúnista.
Stefnuskráin sjálf er í 7 lið-
um, en aftan við hana er löng
skýring á því, hvernig flokk-
urinn hugsar sjer stefnuskrána
framkvæmda í einstökum atrið-
um.
NÝJA
STEFNUSKRÁIN
Hjer koma þá helstu atriði
hinnar nýju stefnuskár:
1. ,, Alþýðuf lokkurinn er
stjórnmálaflokkur íslenskrar
alþýSustjettar, sósíalistiskur
lýðræðisflokkur, óháður öllum
öðrum en meðlimum sínum, ís-
lenskri alþýðu“.
2. ,, Alþýðuf lokkurinn setur
sjer það höfuðtakmark, að
vinna bug á auðvaldsskipulag-
inu á Islandi og koma á í þess
stað þjóðskipulagi sósíalism-
ans, þ. e. frjálsu stjettlausu
samf jelagi allra vinnandi
manna í landinu, hvort sem þeir
vinna erfiðisvinnu eða andleg
störf; þjóðfjelagi, sem stjórn-
að sje af þeim sjálfum og þar til
kjörnum fulltrúum þeirra með
fullkomnu lýðræði í stjórnmál-
um og atvinnumálum“.
3. ,,Höfuðverkefni flokksins
er að vinna alþýðuna til fylgis
við grundvallarkenningar sósí-
alismans, að sameina hinar
vinnandi stjettir þjóðarinnar og
skipuleggja þær í almenn
stjettasamtök, verkalýðsf jelög,
samvinnuf jelög, fræðsluf jelög
og stjórnmálafjelög. Flokkur-
inn vill vekja sjálfstraust, vilja
og þrek hinna vinnandi stjetta,
sem eru yfirgnæfandi meiri
hluti þjóðarinnar, til að leysa
af hendi hið sögulega hlutverk
þeirra, baráttuna fyrir hags-
munum og frelsi alþýðunnar,
fyrir því að hún taki völdin til
fulls og vinni Iokasigur með
ðköpun hins sósíalitiska þjóð-
skipulags. Flokkurinn leggur í
þessu sambandi sjerstaka á-
herslu á að fræða alla alþýðu
um stefnu flokksins og þróun
þjóðfjelagsins, til þess að búa
hana sem best undir þetta hlut-
verk“.
4. „Flokkurinn starfar á lýð-
ræðisgrundvelli, innan vje-
banda sinna og utan, og telur
rjett þjóðarmeirihlutans ský-
lausan til að ráða málum þjóð-
arinnar, en álítur lýðræðinu í
sinni núverandi mynd mjög á-
bótavant, enda fullkomið lýð-
ræði aðeins hugsanlegt á
grundvelli sósíalismans.
Flokkurinn berst þó fyrir því
að bæta lýðræðið og fullkomna
það og vill koma í veg fyrir,
að því sje misbeitt gegn hinum
vinnandi stjettum. Jafnframt
telur flokkurinn eitt af höfuð-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Stjórnarsamvinnan.
ÁlþýðuflQKkurinn vill
halda stjúrnarsam-
vinnunni ðfram
Eftir að auka-þing Alþýðu-
sambandsins hafði sam-
þykt nýja stefnuskrá, sem er
reist á marxistiskum grundvelli
og síðan boðið kommúnistum
sameiningu, ákvað þingið að
leita framhaldandi samvinnu
við Framsóknarflokkinn í
stjórn landsins og á Alþingi.
Jafnframt taldi þing Alþýðu-
sambandsins æskilegt, að sam-
vinnan við Framsókn gæti orð-
ið víðtækari, þannig að hún
nái einnig til bæjar- og sveit-
arstj órnarmála.
Þing kommúnistaflokksins á
að koma saman um miðjan
þenna mánuð. Þar verður fyrst
formlega tekin ákvörðun um
sameiningartilboð Alþýðu-
flokksins. Að vísu gefur blað
kommúnista í skyn, að flokk-
urinn inuni hafna sameiningar-
tilboðinu, en óska eftir sam-
fvlkingu, fyrst og fremst við í
hönd farandi bæjarstjórnar-
kosningar og svo víðtækara, ef
hinir „vinstri“ flokkarnir vilja.
Þó að Kommúnistaflokkurinn
hafni sameiningartilboðinu, mun
það ekki stafa af neinuin veru-
legum ágreiningi í hinni nýju
stefnuskrá Alþýðuflokksins, þar
sem hún er bygð á marxistiskum
grundvelli og því fullkomlega í
anda kommúnista, heldur mun
það vera fyrirskipun frá Moskva,
að sameinast ekki fyrst um sinn.
En þar sem þing kommúnista
kemur fyrst saman um miðjan
þenna mánuð, er spurningin sú,
hvort Alþingi verði enn haldið
aðgerðalausu þar til formlegt svar
kommúnista er komið. Alþingi
hefir nú beðið meira en mánuð
eftir ákvörðun sósíalista og búið
að eyða 80—90 þús. kr. í einskis-
nýtt starf þar. Verður nú enn
beðið viku eftir ákvörðun komm-
únista? Eða hefjast nú þegar
samningaumleitanir milli Fram-
sóknar og Alþýðuflokksins um
framhaldandi stj órnarsamvinnu ?
Úr þessu fæst væntanlega skor-
ið næstu daga.
SPAACK TÓKST AÐ
MYNDA STJÓRN.
London í gær. FÚ.
Dr. Spaack liefir lokið við
stjórnarmyndun í Belgíu. í ráðu-
neyti sitt hefir hann valið sex
menn úr kaþólska flokknum, sex
jafriaðarmenn, þrjá menn úr frjáls
lynda flokknum og einn utan-
flokkamann.
Timburskip kom í fyrradag með
farm til Slippsins o. fl.
„Eldri dans klúbburinn“ hefir
undanfarna vetur haldið uppi
danssamkomum í K. R.-húsinu
um helgar og hafa danssamkom-
ur þessar að jafnaði verið fjöl-
sóttar.
Strax og húsið var opnað s.l.
laugardag fyltist húsið af fólki
og bar fljótt á ölæði og öðru sem
því fylgir.
Frá klukkan 10 um kvöldið og
til klukkan 2 um nóttina, er lög-
reglan sleit samkomunni, varð
fjórum sinnum að kalla á lögregl-
una til að stilla til friðar, auk
þess sem einn lörgegluþjónn var
að staðaldri á verði í húsinu.
Mennirnir, sem
slösuðust.
Oðrum manninum, sem slasað-
ist var hrint úr stiga, þannig að
hann veltist niður á gólf. Var
hann fluttur á Landsspítalann og
var þar um nóttina.
Hinn maðurinn meiddist á þann
hátt, að hann kreisti ölglas
í greip sinni og gengu glerbrotin
inn í hendina. Hlaut hann mikil
og djúp sár á hendina. Þessi mað-
ur var einnig fluttur á Lands-
spítalann, en fekk að fara heim
til sín eftir að biúð var að binda
um sárin.
Þegar hjer var komið fanst
lögreglunni nóg komið og ákvað
að slíta dansleiknum, var klukk-
an þá 2, en ákveðið hafði verið
að hafa hann til kl. 4.
Það tók klukkutíma að reka alt
fólkið út úr húsinu, og má geta
nærri, að það voru mikil læti og
hamagangur á meðan á því stóð.
Verkfallið á Akureyri stendur
við það sama, Dettifoss varð að
fara frá Akureyri, án þess að
vörum K. E. A. yrði skipað upp.
Ileyrst hefir, að vörunum; muni
verða skipað upp á Seyðisfirði,
því að Alþýðusambandið hafi fall-
ist á, að láta verkfallið aðeins ná
til verksmiðjanna, en ekki til
vöruflutninga S. í. S. og K. E. A.
alment.