Morgunblaðið - 09.11.1937, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 09.11.1937, Qupperneq 5
I>riðjtidti£ur 9. nóv. 1937. MORGUNBLAÐIÐ $ ÍTtgef.: H.f. Árvakar, Heykjavik. Ritstjórar: Jðn K'jartansson og Valtýr Stefi&nsson (ábyrgtSarroatSur). Auglý.singar: Árni Óla. Ritstjðrn, auglýsingar og afgreitSsla: Austurstræti 8. — Síroi 1660. Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánutSi. 1 lausasölu: 15 aura eintakiö — 25 aura metS Lesbðk. SAMSTARF STJORHARFLOKKAMKA Frá Suðurgötu 1839. Bókin um Reykjavík EFTIR kosningarnar í sum- ar beindi formaður Fram- sóknarflokksins því mjög ein- dregið til Alþýðuflokksins, að liann kvæði niður „sinn draug“, kommúnistana. Alþýðuflokkur- inn hefir nú svarað þessum til- mælum með því, að samþykkja á flokksþingi sínu tillögu sem málgagn flokksins gerir sjer vonir um að leiða muni til sam- einingar við „drauginn" innan mánaðartíma. Jafnframt þessu samþykkir flokkurinn svo tilboð um áfram haldandi samstarf við þann flokk, sem fyrir munn for- manns síns, hafði krafist þess að „draugurinn“ yrði kveðinn niður. Það er engin furða, þótt sauðsvartur almúginn innan stjórnarflokkanna eigi í fljótu bragði dálítið erfitt með að átta sig á því, sem hjer er að ger- .ast. Og þó bætist enn fleira við, sem síst er til þess fallið að greiða úr flækjunni. Stjórnarflokkarnir eru bygð- ir upp af tveim voldugum fje- Tagssamböndum, annarsvegar Alþýðusambandi íslands, hins- vegar Sambandi íslenskra sam- vinnufjelaga. Á Akureyri stendur yfir vinnudeila milli þessara tveggja aðila. Sú deila er í raun og veru milli Fram- sóknarflokksins og Alþýðu- flokksins. Alþýðusambands- þingið samþykti mjög ein- dregna brýningu til allra fje- laga innan sambandsins, að hefja þegar fjársöfnun til styrktar verkafólki því á Ak- ureyri, sem nú á deilu við at- vinnurekendur. Alþýðuflokkur- inn vill með öðrum orðum skatt- leggja flokksmenn sína til að standast herkostnaðinn við LFramsókn! Þótt ,,draugurinn“ eigi þannig að koma með í leikinn og þótt Framsókn og Alþýðu- flokkurinn eigi innbyrðis í hernaði, dettur engum manni í hug að efast um að stjórnar- flokkarnir muni halda áfram samstarfi. Tímadagblaðið flutti í fyrra dag hina ljúfmannlegustu sunnudagshugleiðingu um blessunina af samstarfi „hinna vinnandi stjetta“. Það var ekki minst á Akureyrardeiluna einu orði. Það var heldur ekki minst á, að stjórnarflokkarnir börð- ust innbyrðis við síðustu kosn- ingar um ekki smávægilegra atriði en þjóðnýtinguna. — Greinin var öll eins og opinn faðmur við flokknum, sem kvöldið áður hafði samþykt til- löguna um „herkostnaðinn“. Framsóknarmenn drógu þá ályktun af kosningunum, að kjósendur þeirra hefðu krafist „friðsamlegrar þróunar“ í þjóðfjelaginu. Sú „friðsamlega þróun“ á meðal annars að tryggjast með því að „draugn- um“ sje boðið að borðinu með stjórnarflokkunum. Og hún á ennfremur að tryggjast með því, að samstarfsflokkurinn skattleggi flokksmenn sína til þess að halda uppi hernaði við Framsókn. Enginn efast um að sam- starfið haldist. En þótt oft hafi virst skortur á heilindum í ís- lensku stjórnmálalífi, þá hefir aldrei verið róið í gruggugra vatni en nú. En eins og oft hefir verið sagt hjer í blaðinu: þótt stjórnarflokkarnir væru ó- sammála um alt milli himins og jarðar, þá mundu þeir altaf vera sammála um að sleppa ekki völdunum! Slátrun sauðfjár heldur enn áfram Miklu meira sláfrað en í fyrra Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið hefir feng- ið hjá formanni kjötverðlags- nefndar, er nú búið að slátra á öllu landinu sem hjer segir: 380 þús. dilkar með kjöt- magn um 5 milj. kg.; 14—15 þús. geldfje, kjötmagn um 320—340 þús. kg. og 25 þús. ær. Alls var slátrað í fyrra 355.728 dilkum, 9.741 geldfje og 15.325 ám. Er því á þessu ári búið að slátra um 10 þús. fleiri ám en í fyrra, 5 þús. fleira geldfje og dilkarnir verða vafalaust um 30 þús. fleiri, sem slátrað verð- ur nú en í fyrra. Slátrun er ekki lokið ennþá hjá Sláturf jelagi Suðurlands. Er enn slátrað hjá fjelaginu hjer í Reykjavík og einnig í sláturhúsum fjelagsins utan Rvíkur. En hvernig verður unt að selja öll þessi ósköp af kjöti? Það hjálpar mikið, að við fengum viðbótar-innflutning til Englands. Okkar innflutnings- magn var samkv. breska samn- ingnum um 1100 tonn af kjöti og 25 tonn af innýfli. Með við- bótinni, sem við fengum í fyrra og fáum einnig nú í ár, verð- ur okkar innflutningsmagn til Englands nú um 1700 tonn af kjöti og 40 tonn af innýfli. Þá er nokkur von til þess, að freðkjötsmarkaðurinn rýmkist eitthvað á Norðurlöndum eftir áramótin og að við munum þá geta selt kjöt þangað. Eins og horfur eru nú, eru því líkur til að takast muni að selja alt dilkakjötið. En það ru engar líkur til þess, að ær- kjötið seljist. Dr. Jón Helgason-. Reykja- vík. Þættir og myndir úr sögu bæjarins 1786—1936. ísafoldarprentsm. h.f. 1937. Þetta mikla skrautverk, sem ísafoldarprentsmiðja hefir nú sent á bókamarkaðinn, er í tveim þáttum. Fyrst er lesmáls- kaflí, 104 síður í fjögurra blaða broti, en því næst eru 232 myndir, prentaðar á gljápappír í sama broti. Skiftist bókin nálega til helminga milli þessara tveggja þátta. Lesmálskaflann allan hefir bisk- upinn, dr. Jón Helgason, samið. Eftir formála og inngang kemur aðalritgerðin, en hún er af bygg- ingarsögu bæjarins frá upphafi. Er sagan rakin eftir bæjarhlutum þannig, að fyrst er um Miðbæ- inn eða Kvosina, því næst Yest- urbæinn, og loks nm Austurbæinn, en saga hvers aðal bæjarhluta skiftist svo í ýmsa minni kafla. Er skýrt frá upphafi bygðar á hverjum stað og sagan því næst rakin í stórum dráttum þannig, að þess er getið, sem helst má vænta að menn hafi gaman af að vita. Lýsir þessi kafli allur hinum mikla fróðleik biskups um sögu bæjarins, og fæst af þessu yfir- liti mjög skýr þróunarsaga bæjar- ins, alt frá vöggTinni ’ við Aðal- stræti og það út um holt og hæðir þar til bærinn hefir fengið nú- verandi mynd sína. Þessi ritgerð er frá bls. 10 til bls. 69 í þessu stóra broti, svo að hjer er ekki um .veina smávægilega ritsmíð að ræða. Yfir aðalfyrirsögnum eru myndir (frísur) af bæjarhlutum þeim, sem kaflarnir fjalla um o. fl. Næst; er svo „ör lítill Reykja- víkur-annáll 1786-1936“, bls. 69- 89 og er mjög gaman að því að geta þannig í stuttu máli fengið yfirlit yfir það helsta, sem á dag- ana hefir drifið þessi 150 ár, þó að vitanlega sje jafnan nokkurt vafamál, hvað helst eigi að taka með og hverju sleppa. Loks eru svo nafnaskrá yfir mannanöfn, skrá yfir myndirnar í síðari parti bókarinnar (hefði vel mátt telja þar einnig myndirnar að fyrir partinum) og loks efnis- yfirlit. Þá tekur við síðari þáttur bók- arinnar, sá hluti hennar, sem vafa- laust vekur mesta athyglina, en það er hið mikla safn af ágætum myndum af Reykjavíkurbæ frá fyrstu tíð til vorra daga. Fyrst eru 83 „myndir úr safni höfundar", dr. Jóns Helgasonar. Hefir hann, eins og hann segir í formála, gert þær ýmist eftir fyr- irmyndum í blöðum og bókum eða á söfnum, eða eftir náttúrunni. En einstaka hefir hann gert eftir lýs- ingum einum saman. Hefir hann unnið að þessu afar lengi, jafnvel frá þeim tíma er hann var við nám í Kaupmannahöfn. Þetta safn höf. nær yfir alla sögu bæjarins, alt frá „innrjettingum" Skúla Magnússonar á ■ síðari parti 18. aldar og það til vorra daga, og geymir ótrúlegan fróðleik um út- lit bæjarins á ýmsum tímum og þróun hans. Vitanlega eru myndir eins og þessar, þar sem lögð er álierslan á að sýna hús og húsaskipun, að jafnaði ekki sjerstaklega fallnar til þess að vera „listaverk“, en ýmsar þeirra eru mjög duglega gerðar einnig í þessu efni, og sýna hve mikla hæfileika biskup vor hefir á þessu sviði. Yerður þetta verk alt, bæði ritgerðirnar og myndirnar honum til hins mesta sóma jafnframt því að það verður öðrum til skemtunar og fróðleiks. Þá tekur við síðari partur myndakaflans, „aðrar myndir“, og sýna þær bæinn frá síðari tímum og loks eins og hann er nú. Eru þar bæði yfirlitsmyndir yfir stór bæjarhverfi (t. d. margar af- bragðsmyndir teknar úr turni Kristskirkjunnar á Landakots- hæð) og einstaka götuparta og einstök hús. Eru þarna myndir af flestum hinum nýju stórhýsum og einnig af húsum einstakra manna. Loks er svo stuttur útdráttur á ensku, „An historical survey 1937“), gerður vegna þeirra út- lendinga, sem bókina eignast, en hún verður vafalaust kærkomin mörgum útlendingum, sem liafa gaman af að eiga góðar myndir frá Reykjavík og vita eitthvað urh sögu bæjarins. Bókin er prýðileg að ytra frá- gangi öllum, bundin í sveigjan- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Útsýn úr turni Landakotskirkju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.