Morgunblaðið - 16.11.1937, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 16. nór. 1937,
Hitler hótaði að neita að taka
Stórborg (ibúar
1.000000) Iðgð
í rústir f Kfna
London í gær. PÚ.
Soochow (íbúar um
1 .OOO.OOO, borg
stærri en Kaupmanna-
höfn), sem Kínverjar
höfðu gert að miðstöð í
vöm sinni milli Shang-
hai og Nanking, var í
gær lögð í rústir af
sprengjum Japana.
Engar frjettir hafa
borist er gefi til kynna,
hve mikið manntjón
hefir orðið.
Sjö hundruð sprengjum var
tvarpað yfir borgina á sunnu-
daginnr en daginn áður hafði
fbúum borgarinnar verið gert
aðvart um yfirvofandi árás.
Vöm Nanking.
Kínverska herstjómin tegg
ur nú aðal-áhersluna á að
treysta vamir Nanking-
borgan
Nanking ðtendur við Yangt-
•e-fljót, og er skipgengt all-
langt upp eftir fljótinu. —■
Skömmu eftir að styrjöldin
hófst settu Kínverjar torfærur
á siglingaleiðina með því að
•ökkva bátum og smáskipum
þvert yfir um fljótið, og var
þetta gert til þess að herskip
Japana kæmust ekki til Nan-
king.
Japanir hafa gert ítrekaðar
tilraunir til þess að ryðja tor-
færum þessum úr vegi, en á-
rangurslaust til þessa.
í Tokio er gert ráð fyrir því,
•ð ekki Iíði á löngu þar til Jap-
anir ná valdi yfir Nanking.
JAFNTEFLI.
Sextándu kappskák þeirra
dr. Aljechin og dr. Euwe í
kepninní um heimsmeistara-
tign er lokið. Varð jafntefli.
Hefir þá dr. Aljechin 9Vs
vinning en dr. Euwe 6Yt- (FÚ)
Karlakór Reykjavíkur er nn
kominn til Vínarborgar og átti að
hafa samsöng þar í gærkvöldi. í
kvöld syngnr kóriwn í útvarp í
Vínarborg.
Olaf Hertzwig, umboðsmaður S.
í. P. í New York, hefir nýlega
verið sæmdur riddarakrosai St.
Olavs orðunnar noraku. Hann er
mjög þektur maður meðal Norður-
landabúa í New York og hefir uim
langt skeið tekið öflugari þátt í
ýmsum fjelagsskap þeirra.
Eimiskip. Gullfoss er á leið til
Leith frá Kaupmannahöfn. öoða-
foss fór vestur og norður í gær-
kvöldi kl. 8. Brúarfoss er á leið
til London. Lagarfoss kom til
Djúpavogs í gærmorgun kl. 6.
Dettifoss fór frá Grimsby í gær-
kvöldi á leið til Hamborgar.
á móti fulltrúa Breta
Missætt, sem nú
hefir verið jöfnuð
„Þjóðverjar vilja
ekki Eden“
10 ára frestur Hitlers
til að færa út kvíarnar
í Mið-Evrópu
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
Reiði Þjóðverja út af ummælum breskra
blaða, hafði í gærkvöldi nær leitt til
hess að hætt yrði við för Halifax
lávarðar til Berlínar.
I gærkvöldi gáfu þýskar frjettastofur út sam-
hljóða yfirlýsingar um það, að ráðlegast væri að
fresta förinni, eða hætta alveg við hana.
EKKI FRESTAÐ.
Samt sem áður hefir niðurstaðan orðið sú, að
Halifax fer til Berlín samkvæmt áætlun, á mið-
vikudaginn kemur.
Breska bla’ðið „Times“ reynir í dag að friða Þjóðverja
með því, að slá því föstu „að Halifax hafi engin spurn-
ingaskjöl meðferðis nje tillögur. Hann á aðeins að kynna
sjer, án skuldbindingar, hvar og hvernig hagsmunir
Breta og Þjóðverja rekast á og finna leiðir til þess að
jafna ágreining þeirra.
„Berlínarförinni verður ekki frestað“, segir „Times“.
„Þýska stjórnin hefir ekki óskað þess“.
SPURNINGASKJÖL HALIFAX.
Á ‘laugardaginn höfðu bresk blöð vakið gremju Þjóðverja,
með því að birta ýtarlegar fregnir af spurningaskjali, sem þau
sögðu að Halifax ætlaði að leggja fyrir þýsku stjórnina, þar
sem hún var spurð: 1) hvaða afstöðu Þjóðverjar tæki til Vest-
ur-Evrópu-sáttmála, 2) hve víðtækar nýlendukröfur Þjóðverja
væri, 3) hvað Þjóðverjar ætluðust fyrir um landvinninga í Mið-
Evrópu og 4) hvað markmiðið væri með þýsk-ítalsk-japanska
bandalaginu gegn alþjóðastarfsemi kommúnista í Sovjet-Rúss-
landi.
Sjerstaklega vakti breska síðdegisblaðið „Evening
Standard“ (»em annars hefir verið talið vinveitt Þjóð-
verjum, eign Beaverbrooks), ofsa Þjóðverja með því að
segja, „að búist væri við því, að Hitler myndi bjóða
Bretum tíu ára vopnahlje í nýlendumálunum gegn því
að Bretar samþyktu, að Þjóðverjar hefðu „óbupdnar
hendur“ í Mið-Evrópu“.
SVAR ÞJÓÐVERJA.
Með hinum „óbundnu höndum er átt við, segir „Evening
Standard), að Bretar myndu ekki skakka leikinn, þótt 1) Þjóð-
yerjar knúðu fraim þjóðaratkvæðagreiðslu í Austurríki,
aem sennilega myndi lyfta nazistum til valda eða 2) krefð-
ust þess að þýska þjóðabrotið í Tjekkóslóvakíu fengi tafarlaust
ajálfstjórn.
í hinu harðorða svari
þýsku frjettastofanna, sem
fyrst og fremst er stílað
til Evening Standard, segir
að Hitler hafi skýrt öllum
heiminum frá nýlendu-
kröfum sínum og í því
efni þurfi- engar frekari
skýringar.
Um þýsk-ítalsk-japanska
bandalagið segir „að Berlín-
Róm öxuliinn sje órjúfanlega
tengdur Japönum. Vinátta
Þjóðverja, ítala og Japana er
hafin yfir allar umræður“.
„Blaðamanna-
lygar“.
Ennfremur segir: Þjóðverjar
hafa komið skipan á sambúð
sína við þjóðirnar í Mið-Evrópu
með milliríkjasamninrum við
hverja einstaka þjóð.
Hinar uppblásnu lygafrjett
ir í Evening Standard eitra
andrúmsloftið, segir að
lokum og að „friðinum í
heiminum stafi hætta af
blaðamannalygum“.
Þetta reiðikast Þjóðverja
Eden og Chamberlain
á rððstefnu
FRAMH. AF FYRRA DÁLKI.
kom alveg á óvart og er talið
að yfirlýsing frjettastofanna
eigi rót sína að rekja til rót-
tækra nazistaforingja, sem
vilja fyrir hvem mun hindra
samkomulag milli Þjóðverja og
Breta.
Ekki Eden.
Þetta kom þeim irui. meir á
óvart, sem þýsk blöð hafa und-
anfarna daga verið látin
sleppa öllum áróðri gegn Bret-
um, sem þau birtu annars dag-
lega. Virtist þess vegna sem út
breiðslumálaráðuneytið væri að
L t dirbúa vingjarnlegar móttök-
ur fyrir Halifax.
Þjóðverjar kjósa miklu
heldur að sjá Halifax en
Mr. Eden, því að þeir hafa
ekki gleymt því, að engin
vinátta gat tekist milli
Edens og Hitlers þegar
þeir ræddust við í Berlín
fyrir nokkrum árum.
Þeir álíta, að Mr. Eden sje
ólæknandi Þjóðabandalags-
draumóramaður, sem oft hafi
tekið á sig skólameistarasnið
gagnvart Þýskalandi.
Halifax er aftur á móti kær-
kominn gestur Þjóðverja. Hann
er álitinn raunsæis-stjórnmála-
maður, sem sje vinveittur Þjóð-
verjum.
Mr. Eden kom í gærkvöldi til
London frá Briissel og fór strax
á fund Chamberlains. Ræddust
þeir við þrír, Mr. Eden, Cham-
berlain og Halifax lávarður.
Alliance francaise heldur fund
í kvöld kl. 9 í Oddfellow-húsinu.
Frk. Þóra Friðriksson flytur þar
fyrirlestur um heimssýninguna í
París og skuggamyndir þaðan
an verða 'sýndar. Ennfremur verð-
ur úthlutað verðlaunnm handa
þeim stúdentum, sem hæsta eink-
unn fengu í frönsku við síðasta
stúdentspróf.
Arabaupp-
reisn gegn
Franco ?
Kalundborg 15. nóv. F.Ú.
Ymsum fregnum sem bor-
ist hafa í dag, ber sam-
an um það, að Arabar í
Spanska-Marokko hafi víðsvejfr
ar gert uppreisn og hafi lent í
all-alvarlegum bardögum milli
Araba og spanskra manna.
Ástæða þessarar uppreisnar
er talin vera megn óánægja
Araba, vegna þess, hve margir
Arabar hafi verið sendir til
vígvallanna á Spáni til þesa aS
berjast í liði Franco, sem ekki
hafi komið aftur og engin greia
gerð fyrir afdrifum þeirra.
Italir studdu
Japani gegn
stórveldunum
London í gær. FÚ.
Italir greiddu atkvæði gegn
yfirlýsingu þeirri, sem full-
trúar Breta, Frakka og Banda-
ríkjamanna höfðu samið, og
lögð var fyrir fund Bryssel-
ráðstefnunnar á laugardaginn
var. Fulltrúar Svíþjóðar, Nor-
egs og Danmerkur sátu hjá.
Allar aðrar þjóðir samþyktu
yfirlýsinguna.
(Þar sem ekki náðist fult
samkomulag um yfirlýsinguna,
(sem var all-harðorð, og því
slegið föstu, að Japanir hefðu
gerst brotlegir við níu-velda-
sáttmálann og Kellogg-sáttmál-
ann, en það varðaði allar þjóð-
ir), þá mun yfirlýsingin verða
skoðuð sem aðeins álit nokk-
urra þjóða, en ekki orðsend-
ing frá Briissel-ráðstefnunni í
heild. Það má búast við því, að
Brussel-ráðstefnunni verði frest
að í nokkra daga, þar til sjeð
verður hverju Japanir svara).
Norðmenn og salt-
fiskssala til Franco
Khöfn í gær. F.Ú.
Norsk blöð og ýms f j©-
lög útgerðarmanna
skora um þessar mundir á
ríkisstjórnina að gera
gangskör að því, að senda
þegar í stað sjerstaka
sendinefnd til stjómar
Francos á Spáni, með það
fyrir augum, að takast
mættu greiðari verslunar-
viðskifti með saltfisk í
þeim hluta Spánar, sem
stjórn Francos hefir á
valdi sínu.