Morgunblaðið - 08.01.1938, Síða 4

Morgunblaðið - 08.01.1938, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Stórfeld aukning á ítalska flotanmn London í gær. FÚ. Mussoiini býr sig nú undir það að geta fboðið flotaveldi Breta byrginn. Italska stjórnin til- kynti í dag, að hún hefði í hyggju að láta smíða 2 stór orustuskip, 35 þúsund smálestir hvort og auk þess 12 stóra tundurspilla og all- marga kafbáta. Er hjer um feiknarlega flota aukningu að ræða. ítalska stjórnin hefir einn- ig ákveðið að þegar Hitl- er fer til Italíu í maí í vor til að endurgjalda heim- sókn Mussolini frá því i haust, skuli fara kam stórmiklar hersýningar og flotaæfingar. Lundúnaútvarpið segir í sam bandi við flotaaukningu ítala að síðan 1934 hafi Mussolini látlaust verið að kenna ítölsku þjóðinni að flotastyrk hvers ríkis ætti undantekningarlaust að miða við hvað mikið það hefði á takteinum af orustu- skipum. Þegar hinir nýju kafbátar hafa verið smíðaðir, en tala þeirra er ekki látin uppi, má gera ráð fyrir að kafbátafloti Itala sje orðinn hinn stærsti í heimi. Hvers Þfóðverfar meta gfaldeyrinn Mussolini. Heilli her- dellð Francos tortlmt HEIL herdeild af liði Francos fórst í dag, er rauðliðar sprengdu í loft upp heila húsaröð í borg- inni Carabanchel, skamt fyrir sunnan Madrid. — Sprengingin kom Franco- mönnum alveg á óvart (símar frjettaritari vor). Stórorusta í aðsigi. London í gær. FÚ. Frá vígstöðvunum á Spáni er fátt að frjetta. í dag, ann- að en það, að báðir aðilar flytja stórkostlegt varalið til vígstöðv- anna við Teruel. I fregn frá Gibraltar segir, að stjórnin hafi einnig mikinn liðs- safnað á suðurströndinni, nálægt Almería, og er það lagt út á þá leið, að stjórnin þykist eiga von á árás af hendi nppreisnarmanna á þeim slóðum. London í gær. FÚ. ómur er fallinn í máli Arnold Bernstein forstj. gufuskipafjelagsins „Red Star“ í Hamborg og var honum gefið að sök að hafa farið í kring um gjaldeyrislögin. Hann var dæmdur í 30 mán- aða þrælkunarvinnu og 1.8 mil- jón króna sekt. Jólatrjesskemtun fyrir 500 boðs- börn hafði Verslunarmannafjelag Reykjavíkur inni að Hótel Borg í gærkvöldi. Hefir fjelagið haft það fyrir fasta reglu nú um 45 ára skeið að bjóða börnum á jólatrje, og þykja það bestu skemt anir, og mjög eftirsóttar. Konur, sem voru boðsbörn á fyrstu jóla- trjesskemtunum fjelagsins, koma nú þangað með börn sín og barnabörn. Heklur en ekki var glatt á hjalla í hótelinu í gær- kvöldi. Börnin fengu allskonar veitingar, súkkulaði, kökur, kon- fektpakka, epli o. s. frv. Illjóm- sveit ljek jólasálma og þjóðlög og var gengið syngjandi i hóp umhverfis jólatrjeð, en flokkur manna úr fjelaginu stjórnaði söngnum. Aðrir starfsmenn fje- lagsins sáu um að öll börnin Skemtu sjer, að ekkert vrði út- undan með veitingar. Á milli jóla og nýárs hafði Verslunarmanna- fjelagið tvær jólatrjesskemtanir fyrir börn fjelagsmanna, og voru þar um 700 börn. — Kuldinn — FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN í GÆR. Kuldinn í Mi8-Evrópu helst enn og fer vaxandi. ! Ung- verjalandi er 36 stiga frost. Síkin í Feneyjum eru öll lögð. íbúar í Alexandríu geta farið á skautum í fyrsta skifti síðan 1901. Xil að stóðva fólksfækkun ISvíþjóð hafa verið sett ný lög sem eru á þá leið, að hver hjón sem gifta sig, geta átt kost á að fá þúsund króna lán til 5 ára með 3*4% árs- vöxtum án npkkurrar ábyrgðar annarar en sinnar eigin. (FÚ) Skíðafæri. Um hádegi í gær var 5 st. frost á Hellisheiði og hríðarveður. Fólk, sem var uppi í Skíðaskála, sagði gott skíða- færi, en lítinn snjó, svo að fara yrði varlega. — Skíðafjelagið efn- ir til skíðaferðar upp að Skíða- skála., ef veður og færð leyfir. Lagt verður á stað kl. 9 að morgni. Áskriftarlistar hjá L. II. Miiller til kl. 6 í kvöld. \ Laugardagur 8. janúar 1938. „STAVISKYHNEYKSLI“ BELGA Belgiski þjóðbankinn lapaði 30 mil|. frönkum á Barmat Háttsettir menn flæktir I hneykslið ““ Tveir breskir liðsforingjar barðir “ Hvað breska Ijónið umber Japönum London í gær. FÚ. IShanghai bar það við í dag að tveir breskir lögreglumenn voru barðir af japönskum hermönnum. Hefir atburður þessi vakið óhemju gremju meðal Breta í Shanghai. Sjálfur yfirforingi breska liðsins, Schmollet, fór á fund hermálaráðunauts japönsku stjórnarinnar þar í borginni og tilkynti honum að ef slíkir atburðir endurtækju sig oftar, en þetta er í annað sinn sem slíkt hefir skeð, þá mundi það hafa hinar alvarlegustu afleiðingar sem hugsast gæti fyrir sambúð þessara tveggja ríkja. Hinir bresku lögreglumenn voru inn á bresku varnar- svæði, þegar þeir voru barðir og var orsökin til áreksturins sú, að þeir höfðu fundið að því við japanska hermenn hverni- ig þeir ljeku Kínverja sem þeir voru að handtaka. Hitler: ýÞskalands: Álit sendiherra Bandaríkjanna Londjn í gær. FÚ. „Hvað getur fulltrúi Banda- ríkjaima gert í landi, þar sem ekki er til neitt trú- frelsi, og í landi, þar sem alt vísindalegt og vitsmunalegt framtak er beinlínis bannað, og í landi, þar sem kynþátta- hatrið er ræktað daglega?“ annig svaraði Mr. William Dodd, sem undanfarið hefir verið sendiherra Bandaríkjaima í Þýskalandi, spurningu, sem blaða inenn lögðu fyrir hann, er hann kom heim frá Berlín til New Yorlt í dag. Spnrningin var: Ilversvegna Ijetuð þjer af starfi yðar í Berlín? Samkomnlagið milli William Dodd og þýsku •stjórnarinnar var orðið afar bágborið upp á síð- kastið og er orsökin talin vera sú, að livað eftir annað i ræðum sínum mælti hann með lýðræðinu sem sjálfsögðu stjórnarformi, og loks neitaði hann að sækja flokksþing nazista í Níirnberg síðastliðið hanst. Sendiherra í Berlín hefir verið skipaður Hugli R. Willson. Samvinna Breta og Bandaríkja- manna. Mikla athygli hlýtur það að vekja, að Bandaríkjastjórn hefir skipað sendiherra í London í stað Bingham, er ljest nýlega, Joseph Kennedy. Hefir hann verið einn af fram- kvæmdastjórum Roosevelts for- seta við ýms fyrirtæki, sem sett voru á laggirnar, samkvæmt við- reisnarlöggjöfinni. Er þessi útnefning talin bera vott um vaxandi samvinnu Breta og Bandaríkjamanna. Lyra fór frá Bergen í gær- kvöldi, í staðinn fyrir fyrrakvöld. Einræðið i Rúmenfu London í gær. FÚ. úmenska stjórnin hefir sett af allar borgarstjórnir og sveitarstjórnar í landinu og kipað bráðabirgðarstjórnir hliðhollar ríkisstjórninni. Síðar eiga kosningar að fara fram, en ennþá er ekkert til- kynt um, nvenær það muni verða. Stjórnin í Rúmeníu lýsir yfir því, að hin opinbera tilkynning sem birt var í Róm í gær, þar sem sagt var að Rúmenía hefði viðurkent Abyssiníu sem hluta hins ítalska keisaraveldis væri á missikilningi bygð. Enska í stað þýsku Kalundborg í gær. FÚ. rthur Engberg kenslumála- ráðherra Svía hefir skip- að nefnd manna til þess að rannsaka hvort ekki muni ráð- legt að enska verði tekin upp sem fyrsta útlent mál í æðri skólum ríkisins, en þýska hefir fram að þessu skipað þann sess. Málverkasýning Finns Jónsson- ar í Kirkjutorgi 4, hefir vakið almenna atliygli og verið fjöl- sótt. Var henni lokið, en vegna •margra áskorana verður hún opn- uð aftur í dag og verður opin á morgun í seinasta sinn. Þakkarorð. Betri þakkir en jeg hef vit á að binda í orð, vil jeg færa Oddfellowbræðrum fyrir jóla- gjöfina, sem flutti ljós inn í mitt langa myrkur — og ann- ara blindra hjer í Hafnarfirði. Hafnarf. á þrettándanum, Halldór Brynjólfsson. FRÁ FRJETTARITARA VOR.UM. KHÖFN í GÆR. rðrómurinn hefir fengið lausan tauminn við hið skyndi- lega fráfall fjárglæfra- mannsins, og rússneska hestaþjófsins fyrver- andi, Juliusar Barmats, sem ljest í fangelsi í Bel- gíu í gær. Andlát hans bar að rjett um það bil sem rjettarhöldin gegn honum áttu að hef jast. Ýmsir telja að í Bar- piat-hneykslið hafi eins og í Stavisky-hneykslið í Frakklandi á sínum tíma, verið flæktir hátt- settir menn, sem ljetu lífið á dularfullan hátt, áður en hægt var að yf- irheyra þá. í þessu sambandi er minst andláts Tilmonts, forstjóra, sem ljest skyndilega í nóvem- ber síðastliðnum, Etiennes hershöfðingja, er var stjórnarmeðlimur í belgíska þjóðbankanum. Hann framdi sjálfsmorð þegar hann fjekk skipun um að mæta fyrir rjetti, Francks, forstjóra belgíska þjóðbankans, sem ljest síð- astliðinn föstudag, daginn áður en hann átti að leggja niður embætti sitt. Tveir aðrir háttsettir menn, sem kallaðir höfðu verið sem vitni ljetu lífið á dularfullan hátt, áður en hægt var að yfir- heyra þá, og er talið að þeir hafi viljað koma í veg fyrir, að hneykslismálið yrði víðtækara en orðið var. 30 MILJÓNIR. í rannsókn sem fram var lát- in fara út af árásum belgískra nazista (hinna svonefndu rex- ista) á fjárreiður belgíska þjóðbankans, og sem að lokum höfðu í för með sjer lausnar- van Zeelands-ráðuneytis- ins, kom í ljós að Julius Bar- mat hafði fengið lán hjá þjóð- bankanum út á fölsk verðbrjef og nam tjón bankans út af þessum viðskiftum 30 miljónum franka. SJÁLFSMORÐ Hinn opinberi ákærandi krafð- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.