Morgunblaðið - 08.01.1938, Síða 6
Laugardagur 8. janúar 1938.
MORGUNBLA ÐIÐ
Kjöt
af fullorðnu,
Lifur, Svið,
BuffQullasch
Laugaveg 48. Sími 1505.
í matinn;
Kjöt af fullorðnu á 45
au. % kg. Saltkjöt af-
bragðsgott. Hangikjöt.
Svið. Hvítkál. Rauðróf-
ur o. m. fl.
Jóh. Jóhannsson
Grundarstíg 2. Sími 413L
—>iPnnp«PiwmitHHiiwr iwnpiriwiwririfiwp
3l'JI317un3ili7t7uiuiduul 7JaT3! jTjtji 3ulal Jwui
Saltkjöt. |
KLEIN,
S* Baldursgötu 14.
Sími 3073 og 3147.
œ i
icur inrir Lngir torii; ipru: ineu; igiEirigincigie
aKnauriai aiaun Tisni auiai arnun 3fi3i
íslenskar ágætar
kattöflur
í pokum og lausri vigt.
Versl. Vísir
il
Laugaveg 1.
ÚTBÚ, Fjölnisveg 2.
Súðin
fer í strandferð vestur og norð-
nr (í stað e.s. ,,Esja“) miðviku-
dag 12. þ. m. kl. 9 síðd.
Tekið á móti flutningi á mánu-
Þegar kommúnistar
gleyptuAlþýðuflokkinn
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Alþýðublaðið segir í gær frá
úrslitum fundarins á fimtudags-
kvöld, en fer um þau tiltölu-
lega fáum orðum. Sama daginn
og þessi ákvörðun var gerð í Al-
þýðuflokknum birti blaðið mikið
heldur fróðlega grein um rauna-
sögu Alþýðufylkingarinnar í
Frakklandi. Þar er frá því sagt,
að aðalritari alþjóðasambands
kommúnista, Dimitrov, hafi grip-
ið óþægilega í taumana, velt sjer
yfir sósíaldemokratana og sagt,
að orð Stalins hafi sannast í
Frakklandi, þau, að „ómögulegt
væri að útrýma auðvaldinu, nema
að útrýma fyrst jafnaðarstefn-
unni í verkalýðshreyfingunni“.
Það má segja, að „útrýming."
jafnaðarstefnunnar hjér á íslandi
hafi gengið allgreiðlega eftir að
Alþýðublaðið flutti þessa orðsend
ingu. l>ví nokkrum klukkustund-
um seinna var það samþykt í
sama húsi og Alþýðublaðið er
prentað, að Alþýðuflokkurinn
gæfi upp sjálfstæða tilveru hjer
í bæ, jafnaðarstefnan yrði lögð
á hilluna, en flokkurinn samein-
aðist „verkfærum“ Stalins.
Hjeðinn fjekk 37
atkv. af 71.
Hinn sameiginlegi listi er þann-
ig skipaður, að 18 menn eru tekn-
ir úr flokksbroti Alþýðuflokks-
ins og 12 frá hinum, kommúnist-
um. Segir Alþýðublaðið frá því,
að á fundinum hafi verið greitt
atkvæði um 7 menn á listanum
og þess getið, hve mörg atkvæði
hver þeirra fjekk.
Var það sem hjer segir: Stefán
Jóh. Stefánsson fjekk 65 atkv.
Soffía Ingvarsdóttir 51 atkv. Jón
Axel Pjetursson 58 atkv. Hjeð-
inn Valdimarsson 37 atkv. Har-
aldur Guðmundsson 62 atkv. Þor-
lákur Ottesen 37 og Guðjón B.
Baldvinsson 33 atkv.
Það vekur alveg sjerstaka
athygli, að Hjeðinn Valdimars-
son hefir ekki fengið nema 37
atkvæði, en 71 hafa verið á
fundinum, samkvæmt tölu
þeirra, sem greiddu atkvæði
með og móti sameiningunni og
getið er um hjer í upphafi.
En auk þess átti hinn uppgefni
flokkur að tilnefna 11 menn á list
ann, og eru þeir nefndir í blað-
inu, en þess getið um leið, að
eigi hafi fengist leyfi frá þeim
öllum um það að setja nafn þeirra
á listann.
dag.
Pantaðir farseðlar óskast sóttir
degi fyrir burtferð.
»\A/inhmanrL«
lálc* * ifopCLMoloP
om um boijmuíur^
<)/j í Ci l'V cl V' -
(?q\Y S.
Enginn málefna-
samninffur.
Bkki minnist Alþýðublaðið í
gær einu orði á neinn málefna-
samning, sem gengið hafi verið
frá, um leið og sameiningin var
gerð, rjett eins og hann hafi eng-
inn verið.
Bnda gæti vel verið, að svo
hafi ekki verið, því svo fast sóttu
þeir Hjeðinn og fjelagar hans að
koma sameiningunni á. Það voru
þéir, sem fóru bónarveg að komm
únistum og báðu þá um að fall-
ast á sameininguna. Það er þetta,
sem gerir ósigur og hrakfarir Al-
jýðuflokksins fyrverandi og
smán svo sjerstaklega eftirminni
lega.
3500 króna
þjófnaðurinn upplýstur
Annar þeirra f jelaga, sem áttu 3500 krónurnar, sem stolið
var á Bergstaðastíg 8 í fyrradag, játaði seint í gær-
kvöldi að vera valdur að þjófnaðinum. Er það Kristvin Guð-
brandsson, en hann átti peningana með mági sínum Jóni Guð-
laugssyni fisksala.
Kristvin hefir setið í gæsluvarðhaldi síðan í fyrradag.
Hann skýrði svo frá að í fyrradag er hann fór til vinnu um
morguninn hafi hann stolið peningunum sem voru í þremur
umslögum. Sína peninga tók hann líka til þess að grunur
fjelli síður á hann. Kristvin faldi peningana í Flosaporti (við
Klapparstíg) milli togarahlera og vísaði á þá þar. Þegar lög-
reglan fór að leita í portinu var búið að snúa öllu við þar
vegna þess að viður hafði. verið fenginn þar til brennunnar á
íþróttavellinum. Lögreglan fann samt 3200 krónur, en um-
slag, sem í voru 300 krónur, fanst ekki í gærkvöldi.
Framboðslistinn
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
fundarmanna og Sjálfstæðis-
manna alment, sem nú ganga
ótrauðir út í baráttuna.
*
Að þessu sinni er ekki ástæða
til að fara mörgum orðum um
þenna lista Sjálfstæðisflokksins.
Plest nöfnin á listanum eru svo
kunn bæjarbúum, að kynning er
óþörf.
Pimm fyrstu sætin eru skipuð
fulltrúum úr fráfarandi bæjar-
stjórn, og eru það nöfn, sem
hver einasti kjósandi í hænum
kannast við. Br það nauðsynlegt,
Vegna samhengisins S störfum
bæjarstjórnar, að jafnan sitji á-
fram einhverjir hinna gömlu full-
trúa. En hitt er líka jafn nauð-
synlegt, að nýir kraftar hætist í
hópinn, og eru næstu fjögur sæt-
in skipuð nýjum mönnum, sem
allir hafa haft meiri eða minnr
afskifti af opinberum málum.
Að sjálfsögðu hefði verið
æskilegt, að fleiri af hinum
gömlu fulltrúum Sjálfstæðisfl.
hefðu fengist til að starfa á-
fram í bæjarstjórn, en þess var
enginn kostur. Nægir í því sam-
bandi að minna á þá Jóhann
Ólafsson heildsala og Hafstein
Bergþórsson skipstjóra, sem
báðust undan að taka aftur
sæti í bæjarstjórn. En það er þá
líka ánægjulegt, að í þeirra sæti
hafa valist úrvalsmenn, þar
sem eru Jón Björnsson kaupm.
og Sigurður Sigurðsson skipstj.
Dr. Halldór Hansen læknir
hefir ekki, sakir annríkis getað
sint störfum í bæjarstjórn und-
anfarið. Þótt það væri að sjálf-
sögðu ósk Reykvíkinga, að
bæjarstjórn fengi að njóta
starfskrafta dr. Halldórs, mun
engin æskja þess, að hann
breyti til og hverfi af spítal-
anum og læknisstofunni, til
þess að geta starfað í bæjar-
stjórn.
Af öðrum, sem nú ganga úr
má minna á Ragnar Lárusson,
sem unnið hefir mikið og gott
starf í hæjarstjórn, en er nú
önnum kafinn við fátækramál
bæjarins, svo og Sigurð Jónsson
rafvirkja.
*
Það er einkum tvent, sem
vekja mun eftirtekt í sambandi
við þenna lista Sjálfstæðisflokks-
ins. Annað er það, hversu marg-
ir ungir, efnilegir menn skipa
örugg aðal- og varasæti á list-
anum. Þar eru fjórir fulltrúar frá
Heimdalli, fjelagi ungra Sjálf-
stæðismanna, þeir Bjarni Bene-
diktsson, Gnnnar Thoroddsen,
Signrður Jóhannsson og Björn
Snæbjörnsson. Það hefir Býnt sig
við kosningar undanfarið, að
æskan fylkir sjer um stefnu
Sjálfstæðisflokksins. Þessa hefir
flokkurinn minst nú, með því að
fela æskumönnum meiri hlutdeild
í stjórn bæjarmála en áður hefir
tíðkast.
Hitt aðaleinkenni þessa lista
Sjálfstæðisflokksins er, hversu
margar konur skipa þar sæti.
Fjórar konur skipa örngg aðal-
og varasæti listans, og hefir ekki
í langa tíð verið horinn fram
listi með jafnmörgum konum á
og þessi listi Sjálfstæðisflokks-
ins.
Hinn mikli og glæsilegi sigur
Sjálfstæðisflokksins hjer í Reykja
vík og Hafnarfirði við alþingis-
kosningarnar s.l. sumar var
sennilega hvað mest að þakka
hinni ótrauðu og ötulu starfsemi
kvenfólksins, sem skapaðist með
stofnun Sjálfstæðiskvennafjelag-
anna Hvatar í Rvík og Yorboðans
í Ilafnarfirði.
Sjálfstæðisflokkurinn vill nú í
verki votta konunum þakkir fyr-
ir þeirra mikla og heillaríka
starf.
*
Þegar Iitið er yfir þenua lista
Sjálfstæðisflokksins munu menn
veita því eftirtekt, að þar eru
úrvalsnöfn úr öllum stjettum.
Með þessu vill flokkurinn enn á
ný undirstrika sitt gamla og
góða kjörorð: Stjett með stjett.
Er það gagnstætt kjörorði hinna
sameinuðu — en þó sundruðu —
rauðu flokka, sem hafa kjörorð-
ið: Sjett gegn stjett.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki
stjettaflokkur. Hann er flokknr
allra stjetta. Hann er flokkur
allrar þjóðarinnar.
Frá stefnunni: Stjett með stjett
víkur Sjálfstæðisflokkurinn ald-
rei. Undir merki hennar hefir
hann unnið sína sigra. Og und-
ir merki hennar mun hann nú
vinna sinn stærsta og glæsileg-
asta sigur.
Næturlæknir er í nótt Jón Nor-
land, íngólfsstræti 21. Sími 4348.
ANDUTSDRÆTTIR.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
á þá, ef Nýja Dagbl. óskar. En
að sinni skal það látið lesendun-
um eftir að finna þá og virða
fyrir sjer.
í andlitinu, sem snýr inn á
við, eru margir nýir drættir, og
sumir ekki lítilfjörlegir. Gamla
andlitið var fremur sljett og
unglingslegt. Það mótaði t. d.
ekki fyrir atvinnuleysisböli í því
andliti. í nýja andlitið hefir það
sett djúpan drátt, því atvinnu-
leysið er orðið eitthvert alvar-
legasta þjóðarböl Islendinga.
Þá hafa sveitimar fengið sinn
andlitsdrátt, svo sem Nýja Dag-
hlaðið bendir á. Einmitt nú þessa
dagana berast þær frjettir úr
flestum sveitum landsins, að
varla hafi á þessum vetri þurft
að gefa sauðfje nje hrossum strá.
En jafnhliða er það talið örðug-
asta viðfangsefnið að finna ráð
til að bjarga hændum landsins
frá því að flosna upp af jörðum
sínum og flýja á mölina. Og
meirihluti allra sveitarfjelaga
landsins hefir gefist upp við það,
að sjá þurfalingum sínum far-
borða, jafnhliða því að þau hafa
orðið að leita hjápar ríkisins til
þess að bjargast frá gjaldþroti.
Fagur og framsóknarlegur and-
litsdráttnr!
Þegar Framsókn og fjelagsfl.
hennar tóku að móta svip lands-
ins, áttu útgerðarmenn skuldlaus-
ar eignir, er svöruðu til allra út-
gerðartækja og fiskverskunar-
stöðva í landinu. Nú er sá and-
litsdráttur það breyttur, að tal-
ið er að útgerðin í heild eigi ekki
fyrir skuldum.
Ófrelsi, dýrtíð og skattaáþjáni
hafa sett svip sinn á nýja and-
litið. Ríkissjóðnr heldur fari sínu>
ofansjávar með skyndilánum, sem
lenda í vanskilum, og með nál. 4
miljón kr. brennivínssölu á ári.
Þetta fagurskapaða brennivínsnef
mun eiga að teljast höfuðprýðin
á nýja andlitinu.
„Ekki er nú lítið um dýrðir“,
sagði hóndinn forðum.
Óska ekki Reykvíkingar eftir
nýju andliti á bæinn sinn eftir
þessari fyrirmynd 1
Setulið Framsóknar hefir lengl
borið hlýjan hug til Reykjavík-
ur og Reykvíkinga, svo sem mörg
ummæli þess og verk sanna.
Mundi það vera forsjárlegt að
neita tilboði þess um nýja and-
litið!
BARMAT í BELGlU.
FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
ist þess strax að lík J. Bar-
mats yrði krufið, til þess að fá
úr því skorið hvort um sjálfs-
morð gæti verið að ræða eins
og almenningur í Belgíu heldur
fram.
Opinberlega er því haldið
fram að Barmat hafi látist úr
hjartabilun.
VAN ZEELAND
ILONDON
Van Zeeland sat 4 klukku-
stundir á fundi með Chamber-
lain forsætisráðherra Breta í
dag.
Eimskip. Gullfoss kom til Leith
í gærmorgun. Goðafoss er í
Kaupmannahöfn. Brúarfoss fer
frá Kaupmannahöfn í dag. Detti-
foss kom til Hull í gærmorgun.
Lagarfoss er í Kaupmannahöfn.
Selfoss er í Reykjavík.