Morgunblaðið - 30.01.1938, Síða 5

Morgunblaðið - 30.01.1938, Síða 5
Siumudagur 30. janúar 1938. MORGUNBLAÐIÐ * JPlorgtmMaMð------------------------- Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavtk. Ritstjórar: Jón KJartansson og Valtýr Steffinsson (AbyrgOarsaaBur). Auglýslngar: Árni Úla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreltisla: Austurstrætl 8. — Slsai 1800. REYKJAVIK EflA STALIHGRAD Dagurinn í dag verður mæli- kvarði á þroska okkar, karla og kvenna. Innan 24 stunda verður kveðinn upp úrskurður um það, hvort við elskum landið okk- ar, hvort við leggjum rækt við minningar þjóðarinnar, hvort við metum framtak og atorku, hvort við í alvöru óskum að halda á- fram sjálfstæðri þjóðartilveru, hvort við metum frelsi og lýðræði meira en ofbeldi'og einræðisvald. Aldrei hafa slíkar kosningar farið fram á Islandi. Aldrei fyr hafa íslendingar átt úr því að skera, hvort landið skuli áfram heita eins og hingað til, eða livort það skuli framvegis heita Sovjet- ísland. Sá flokkur, sem sækir fram í broddi fylkingar gegn Sjálfstæðismönnum, hefir þetta mýja heiti, Sovjet-ísland, sem upp- haf og endi sinnar stefnu. Sovjet- Ísland ekki aðeins að nafni, held- nr og um allar framkvæmdir og stjórnarfar. íslenski fáninn, sem blaktað hefir við hún í tuttugu ár yfir hinu endurheimta sjálf- stæði íslensku þjóðarinnar, á að hverfa eins og hver önnur úrelt minning þeirra fávísu manna, sem elskuðu þetta þjóðartákn. 'Hamar og sigð á rauðum grunni. Það er liið nýja merki. Það má meira að segja mikið vera, ef liöf- uðborg íslands fái að halda sínu gamla heiti. Reykjavík — hvað er það á móti Stalingrad? Og Stalingrad væri einmitt •rjettnefni á borgina, ef Einar 01- geirsson og Hjeðinn næðu hjer völdum. Olafur Friðriksson hefir sagt, að Stalin væri rjettur til að kosta útgerð A-listans. Svona er nú álit eins elsta sósíalistans á Sslandi á samfylkingunni. Einar Oigeirsson hefir skrifað um sína hugljúfu framtíðar- drauma í Þjóðviljann. Hann lýsir :þar kosningum, eins og hann hugs- ar sjer að þær fari fram að 10 árum liðnum. Þá er Kommúnista- flokkurinn einvaldur. Hinir flokk- arnir eru lagðir niður. Foringj- ar Sjálfstæðismanna hafa verið gerðir íitlægir! Þetta er hugsunin, sem rauðu flokkarnir gæla sjerstaklega við. Hneppa fólkið í þá kúgunarfjötra, að það megi sig hvergi hræra, og gera sekan um landráð hvern þami, sem þorir að láta uppi nokkra aðra skoðun en þá, sem valdhöfunum þóknast. Allir eiga að sýna „skilyrðislausa hlýðni“, <og ef þeir spyrja, mega þeir gera það á eftir. Annars eru þeir rekn- ir úr landi eða skotnir upp við vegg! tEr þetta það, sem koma skal? Við getum auðvitað ypt öxlum og sagt, að þetta geti aldrei kom- ið fyrir hjer. En hví ekki? Við munum öll 9. nóvember 1932. Hverjir voru þar að verki? Voru það ekki einmitt sömu mennirn- ir, sem nú hafa gengist fyrir sam- fylkingunni? Það var ekki þessum mönnum að þakka, að friðsamir borgarar bæjarins voru ekki drepnir þann dag. Það var ekki þessuni mönnum að þakka, að lögreglan var ekki drepin. Það er ekki til neins að hugga sig við það, að þetta og þetta geti ekki komið fyrir hjer á landi. Við höfum reynslu fyrir því, að til eru menn hjer á landi, sem ekki láta það aftra sjer, þótt lífi manna sje hætta búin. Þessir menn eru að vísu ekki margir, en nú hafa þeir tekið höndum saman, studdir af erlendu stórveldi, sem einskis lætur ófreistað að koma á sínu: stjórnarfari út um löndin, með hvaða hugsanlegu móti sem er. Reykjavík er höfuðstaður landsins. Hún er höfuð landsins og á að vera. Hjeðan verða að koma þeir straumar, sem mestu varða á hverjum tíma. Reykja- vík er upphaf íslands bygðar. Götuslóði Iugólfs Arnarsonar heitir nú Aðalstræti. Við íslendingar þekkjum upp- runa okkar og sögu. Við liljót- um að líta ýmsa hluti alt öðrum augum en þeir, sem þekkja ekki „arfhelg-i þess eða hins“, sem fyr- irlíta slíkan hjegóma eins og hverjar aðrar úreltar kerlingar- bækur! Frændþjóðir okkar á Norðiu’- löndum hafa haft býsna náin kynni af kommúnismanum, alt frá byrjun. Framan af leit iit fyr- ir að þessi stefna mundi ná mikl- um tökum hjá nágrannaþjóðun- um. En þegar kynningin óx, sneru þær baki við Stalin og Moskva. Sama sagan hefir gerst lijer. Kommúnisminn hefir náð miklum tökum. En við íslendingar eigum eftir að sýna það með frændþjóð- unum á Norðurlöndum, að við hristum hann af okkur áður en hann nær kverkataki. Gerum það í dag, góðir Reykvíkingar. Kjósum C-listann! ORÐ OG ATHAFNIR. Tímamenn með Jónas Jónsson í broddi fylkingar þykjast í orði kveðnu vinna af alefli gegn Moskva-valdinu, og hata kommún- ista eins og pestina. En vilja sinn í verki sýna þeir með því, að fóðra kommúnista hjer í bæ með því að veita þeim vöru- innflutning, sem öðrum bæjar- mönnum er neitað um. Munið það Reykvíkingar. KJósendur athugið þetta: Kjósið C-listann Kjósið snemma í dag Kosningin hefst kl. 10 árd. í Miðbæjarskólanum Kosningaskrifstoía Sjálfstæðisflokksins •* - - • -yi ÍMRFQjTI V C*listan§ er ■ Vaiðarhúsinn Símar eru þessir: Bílaaigreiðslan 112 5 (6 linur) Vpplýsingaskrifstofa 14 0 0 (3 linur) SJÁLFBOÐALIÐAR! Sjálfboðaliðar við kosningarnar eru beðnir að mæta stundvíslega á til- settum tíma, hver á sínum stað. BÍLAR. Þeir Sjálfstæðismenn, sem ætla að lána bíla við kosningarnar, eru beðn- ir að koma með þá að Varðarhúsinu ( suðurdyr) til skrásetningar kl. 8 ár- degis í dag. FORINGJAR VARÐARFJELAGSINS. Foringjar Varðarfjelagsins, fulltrúar þeirra og aðstoðarmenn eru beðn- ir að mæta í ODDFELLOWHÚSIN kl. 8>/2 árdegis í dag. LEIÐBEININGAR FYRIR KJÓSENDUR. Kosningaathöfn Sjálfstæðismanna er í raun og veru innifalin í því einu, að setja kross framan við listabóksta finn C á kjörseðlinum. (Sjá sýnishorn af kjörseðlinum bls. 7). En heimilt er kjósanda að breyta nafnaröð á listan- um, sem hann kýs. Setur hann þá t. d. tölustafinn 1 fyrir framán það nafn, er hann vill hafa efst, töluna 2 fyrir f raman það nafn, er hann vill hafa annað í röðinni, töluna 3 fyrir framan það nafn, er hann vill hafa það þriðja o. s. frv. Kjósandi má EKKI strika við eða gera nein merki á þá lista, sem hann ætlar ekki að kjósa. Ef hann gerir það, verður kjörseðillinn ógildur. Ef kjósandi treystir sjer ekki til að greiða atkvæði sjálfur, sakir sjón- depru eða óstyrkleika, getur hann valið einhvern úr kjörstjóminni sjer til aðstoðar. Muniö: Kfósið C- listann! Kfódð snernma! listinn er listi Sj álfstæðismanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.