Morgunblaðið - 13.02.1938, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 13. febr. 1938.
REYKJAVÍKURBRJEF.
FEAMH. AF FIMTU SÍÐU.
Gamlar lummur.
að er einkenni á þeim, sem
gamlir eru og elliærir, að
þeir blanda saman nútíð og for-
tíð. Einkenni þessi hafa glögt
sjest á Framsóknarflokknum í
seinni tíð. T. d. lætur Tímadag-
blaðið ekki líða rikana á milli
þess, að endurteknar sjeu þar
hugleiðingar um, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi í janúar 1934
Terið í bandalagi TÍð nazista.
Þetta á að Tera sönmm þess, að
•nn sje hið sama bandalag milli
kægrivillunnar og Sjálfstæðis-
manna.
Eru slík bjánalæti þeirra Tíma-
manna til þess eins að sýna, hve
málstaður þeirra er slæmur. Því
kll þjóðin veit, að síðan 1934 hef-
ir nazistahreyfingin hjaðnað hjér
aiður eins og vindbóla, en nokkr-
ar eftirlegukindur hennar orðuðu
það við Sjálfstæðismenn fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar, að
þær fengju að hafa afskifti af
framboði og kosningaundirbún-
ingi Sjálfstæðisflokksins, en að
öllum slíkum málaleitunum var
þverneitað. Því sjálfstæðisflokkur-
iun er fyrst og fremst lýðræðis-
flokkur, sem neitar öllu samstarfi
við eínræðishröitendur, hverjir
sem eru.
Bandamenn.
ramsóknarflokkurinn og
kommúnistar vinna saman
víða Út um land. Það er stað-
reynd, sem ekki verður vjefengd.
Hjer í Reykjavík nefna Pram-
| sókúarmenn Kommúnistaflokk-
, inn „erléttt glæþavald“, þó ann-
v arsstaðar á landinu vinni þeir í
einingu andans með „glæpavald-
inu“. Slík 'éMw o&öilindi þeirra
Tímamanna. Og slík b.afa þau
altaf verið.
Til þess að viðra sig upp við
Framsóknarflokkinn kastar
„glæpavaldið“ yfir sig skikkju
lýðræðis og frjálslyndis, til þess
á þann hátt að geta unnið í skjóli
Framsóknarmanna.
I skjóli Tímamanna hafa sendi-
menn Rússa komist að upp-
fræðslu æskulýðsins, svo þokka-
leg sem hún er í höndum þessara
manna.
Hin pólitíska uppfræðsla þeirra
Moskvamanna er, Sém lcunnugt
er, í því fólgin, að vinna skuli
að sjálfstæði landsins með því að
gera Landsbankann gjaldþrota,
velmegun alþýðu með því að
stöðva atvinnuvegi landsmanna,
en þjóðmenning vorri á að vera
borgið, með því að kynbornir fs-
lendingar sæki fyrirmyndir í
orði og verki til hins æðisgengna
einræðis í Moska, þar sem vit-
firring ofstopanS lætur höfuðin
fjúka af hverjum maijni, er lyft-
ir tungu eða hendi gegn hinni
takmarkalausu harðstjórn. íslend
ingar, sem eru ofurseldir trú á
slíka óöienningu, eru haldnir and
legum sjúkdómi, sem getur drég-
ið þjóð vora út í opinn dauðann,
ef eigi er viðnám veitt í tíma.
Það er engin furða, þó flokk-
ur. eins og Framsóknarflokkur-
inn, sem hefir talið sig málsvara
íslenskra bænda og bændamenn-
ingar, skammist sín annað veif-
ið fyrir að vera í bræðralagi við
smitberana frá Moskva. , ,
Vlstaðahæli
hitað upp með
Sogsrafmagni?
Sigurður Sigurðsson berklayfir-
læknir hefir gert tillögu til
bæjarráðs um það, að Reykjavík-
urbær bjóði að hita upp Vífils-
staðahæli með rafmagni gegn því
að bætt verði við sjúkrarúmum.
Á fundi bæjarráðs í fyrrakvöld
var samþykt að vísa þessu máli
til rafmagnsstjóra og leita um-
sagnar hans í því.
Hjeðinn
Valdimarsson
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
fyrst verulega að harðna.
Hjeðinn Valdimarsson rær nú að
því öllum árum, að fá aukaþing
Alþýðusambandsins stefnt saman
hið fyrsta. Þar ætlar Hjeðinn að
fá úr því skorið, hvor stefnan
skuli sigra, hans eða Jóns Bald-
vinssonar.
Hefir Hjeðinn þessvegna reynt
að fá fjelög Alþýðusambandsins
víðsvegar úm land til þess, að
hraða sem mest kosningu fulltrúa
á Sambandsþingið. Var slíkur
fundur haldinn í verkamannafje-
iaginu Hlíf í Hafnarfirði á föstu-
dagskvold og urðu Hjeðins-menn
þar öfan á. Þeir fengu kosna alla
(6) fulltrúana á Sambandsþingið.
Emil, Kjartan Ólafsson og aðrir
fylgjendur Jóns Baldvinssonar
fjellu allir með tölu.
Á þessum sama fundi í „Hlíf“
var samþykt með öllum greiddum
atkvæðum, gegn atkv. Emils, til-
laga, þar sem lýst var, vanþókpun
á brottrekstri Hjeðins og van-
trausti á ritstjórn Alþýðublaðáins.
Af þessu öllu er ljóst, að enn
getur dregið til tíðinda innan AI-
þýðuflokksins. í dag er aðalfund-
ur Dagsbrúnar og þar verður
Hjeðinn kosinn formaður.
Sagt er, að Hjeðinn ætli fljót-
lega að halda fund í Jafnaðar-
mannafjelaginu og þar verða þá
fyrstu átökin milli hans og stjórn-
ar Alþýðusambandsins.
Hvað síðar á eftir að ske, verð-
ur framtíðin að leiða í ljós.
Farþegar með Gulifossi til út-
landa í gærkvöldi: Ellen Thom-
sen, Ágústa Hallgrímsson, Berg-
ljót Guðmundsdóttir, Jóhann Krist
jánsson, Lúðvíg Möller, Jón Krist
jánsson, Ragnhildur Ólafsdóttir,
Guðlaug Ágústsdóttir, Kristmund-
ur Sigfússon, Guðjón Magnússon,
Eymundur Sveinsson, Skúli Han-
sen, Jón Sætram, Jónas B. Jóns-
son og nokkrir útleridingár.
Vegir frá Laufásvegi
til Nauthólsvikur
Bæjarráð samþykti á fundi sín-
um í fyrrakvöld að hefja
undirbúning að vegarlagningu frá
Laufásvegi suður að hinu fyrir-
hugaða íþróttasvæði og taka í því
skyni nauðsynlegar spildur úr
erfðafestuleigu.
Þessi ákvörðun bæjarráðs mun
hafa mikla þýðingu til að flýta
fyrir framkvæmdum á byggingu
íþróttasvæðisins, auk þægindanna
sem verða af því að fá veg beint
frá Laufásvegi og suður að sjó-
baðstaðnum við Skerjafjörð.
M J ÓLKURNE YSLAN
HEFIR MINKAÐ.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
ingu á mjólkurlögunum, að greiða
skyldi eitt og sama verð fyrir
alla mjólk á ,verðlagssvæðinu.
Þessu jöfnunarverði á að ná með
sjerstökum skatti á neyslumjólk
ina, verðjöfnunarsj óðsg jaldinu
svonefnda. Hvernig halda menn
svo að útkoman verði, þegar
neyslumjólkin stendur í stað, eða
fer minkandi? Það sjá allir, að
verðhækkun sú á mjólkinni, sem
nú er ákveðin, nær skamt til þess
að jafna verð mjólkurinnar, þar
sejp miklu meira en helmingur
mjólkurmagnsins fer í vinslu.
Alt mjólkurskipulagið er bygt
upp á ramskökkum grundvelli.
Þessvegna þarf að gerbreyta skipu
laginu og leggja höfuðáherslu á
aukningu neyslumjólkurinnar.
En það verður vitanlega ekki
gert með hækkuðu mjólkurverði,
eins og nú er ákveðið. Slík ráð-
stöfun verður aðeins til að minka
neysluna og auka erfiðleikana og
vandræðin.
Þetta hafa stjóniarflokkarnir
aldrei skilið og þessvegna stefna
þeir nú út í hreina vitleysu.
Barnastúkan Æskan. Fræðsluer-
indi í dag á venjulegum fnndar-
tíma; stud. theol. Arelíus Nielsson
talar.
NÝJA BÍÓ
írska byltingarhetjan
Oeirðirnar í Irlandi 1921 eða
byltingartilraunir íra til að
losna undan yfirráðum Breta,
hafá gefið mörgum kvikmyndarit-
höfundinum efni í góða kvikmynd.
Efni slíkra mynda er jafnan
spennandi og fólki þvkir gaman
að þeim.
Hinir sögulegu viðburðir sem
fjallað er um eru svo nýir að
margir muna eftir þeim frá frjetta
skeytum eða greinum frá þeim
tíma er þeir gerðust.
Nýja Bíó sýnir nú kvikmynd,
sem bygð er á atburðum úr írsku
byltingunni 1921, og heitir myndin
„írska byltingarhetjan“. Aðalleik
endur eru hin fagra leikkona
Merle Oberon, sem allir kvik-
myndahúsgestir muna eftir frá
„Rauðu Akurliljunni“, þar sem
hún ljek á móti Leslie Howard.
Aðalkarlmannshlutverkið hefir á
hendi Brian Aherne.
Kvikmyndin segir frá íi'skum
þjóðernissinna . sem verður f ást-
fanginn í enskri aðalsmær og geta
ínenn gert sjer í hugarluúd að
eitthváð sögulegt hlýtur að spinn-
ast út frá því sambandi.
VORU ÞAÐ LYGAFREGN-
IR UM ÞÝSKALAND?
FRAMH. AF AHNARI SÍÐU.
Þessi ummæli og fleiri
gáfu hinum erlendu blaðamönn
um að því er virðist fullkomlega
rjettmætt tilefni til þess að
skýra frá því að gera ætti her-
inn nazistiskan, en þetta kallar
þýski blaðayfirmaðurinn nú
lygaáróður.
,,The Times“ segir í dag:
Fregnirnar um óeirðir í Þýska-
landi eiga rót sína að rekja til
leynimakks þýsku stjórnarinn-!
ar. Almenningur í Þýskalandi
hefir ekki hugmynd um að brúð
kaup von Blombergs varð upp-
hafið að breytingunum sem gerð
ar voru á hernum. Hann trúir
því þess vegna að hinum fimtán
hershöfðingjum hafi verið vikið
úr embætti af því að þeir hafi
ætlaö að brjótast til valda.
Merki Sjó-
mannastofunnar
seld á morgun
A/lig hefir nærri því furðað á
l’l þeim vinsældum, eem Sjó-
mannastofan á að fagna, ekki
aðeins hjá sjómönnunum sjálf-
um, heldur líka hjá öllunx
fjölda bæjarbúa. Ekki undrar
mig þetta vegna þess, að starf-
ið sje þess ekki vert eða það sj®
óvinsælt annarsstaðar, heldur
vegna hins, að starfið er svo
lítið og á margan hátt ófullnægj
andi hjer hjá okkur og erum
við þar langt á eftir öðrum
þjóðum. Kristilegt sjómanna-
starf á miklum vinsældum að
fagna um allan heim. Það er
elskað af sjómönnum og að-
standendum þeirra og víst af
öllum almenningi. Erlendir sjó
menn hafa sagt við mig: „Okk
ur finst brjefin okkar og acinað
sem gengur í gegnum sjómanna
starfið, ganga alt greiðaia og
betur en annarsstaðar".
„Þegar jólin nálgast og við
erum í siglingum, fjærri ætt-
ingjum og vinum, förum við að
reikna út, hvort við munum ná
höfn fyrir hátíðarnar, og geta
komið á sjómannaheimili um
jólin“.
Stundum koma brjef utan af
landi þar sem beðið er fyrir
unglinga, sem hafa farið til sjós.
Margir hafa sagt, bæði munn-
lega og brjeflega: „Sjómanna-
stofa er nauðsynleg. Það þarf
að koma upp fullkomnu heim-
ili, sem við getum vænst mikÍls
af og það þarf líka að styrkjæ
starfið vel“.
Margir hafa orðið til að
styrkja starfið á liðnum árum,
en fleiri þurfa að taka þátt í
því, svo að starfið geti vaxið
og gert enn meira gagn.
Auk þess sem einstaklingár
hafa lagt.fram hafa söfnuðirriir
í Reykjavík líka styrkt starfið
með samskotum í kirkjunum
einn sunnudag á vetri.
í dag verður leitað samskota
meðal kirkjugesta hjer í bæn-
um í þessu skyni. Einnig verða
merki stofunnar seld á götun-
um á morgun og þriðjudag.
Enginn vafi er á því að þátt-
takan verður góð í samskotun-
um og merki stofunnar seljast
vel, svo vinsæl er þessi stofnun
meðal almennings. Reynsla und-
anfarinna ára sýnir það. Og því
meira, sem gert verður fyrir
stofuna, því meira getur hún
orðið fyrir sjómennina og það
mun sýna sig, að vinsældir henn:
ar vaxa að sama skapi.
Sigurður Giiðmundssom
FUNDUR DANSK
ÍSL. FJELAGSINS
Khöfn í gær (FÚ.)
ansk íslandsk Samfund í
Kaupmannahöfn hjelt árs-
fund sinn í gærkvöldi. Stein-
grímur Jónsson rafmagnsstjóri
flutti erindi með skuggamynd-
um um rafmagnsnotkun og
vatnavirkjanir á íslandi. Urðu
umræður um það á eítir.
Forseti fundarins, Dr. Niels
Nielssen flutti hlýlega minning-
arræðu um Odd heitinn Rafnar.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Goliat.