Morgunblaðið - 18.02.1938, Page 2

Morgunblaðið - 18.02.1938, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 18. febrúar 1938 Tvær flug- vjelarkomn ar á (sjaka Rússanna Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Tvær flugvjelar frá ís- brjótunum „Taimyr“ og Murmanet lentu í gær á ísjaka Papanins og fjelaga hans, austur af Grænlandi. Önnur flugvjelin sneri aftur til „Murmanet", með öll vísindaáhöld Papanins, en hin varð eftir. Er búist við að hún mun innan skamms flytja Pap- anin og hina þrjá fjelaga hans um borð í ísbrjótana. Roosevelt við- búinn styrjöld við Japana London í gær. FÚ. Doósevelt hefir mælst til *-' þess að amerískir stjórn- málamenn forðist að láta í jjós opinberlega persónulegt álit sitt um það, hvað Bandaríkin eigi að gera í sambandi við styrjöldina í Kína. Þessi tilmæli eru framkomin vegna þess, að dagblöð í Japan háfa notað sjer ræður ýmsra slíkra manna, svo sem Nye öld- ungaráðsmanns og annara, til þess að sýna að Bandaríkja- menn þori ekki út í stríð gegn Japönum. Gyðingaofsóknir i Ítalíu London í gær. FÚ. T Ítalíu var í dag birt stefnu skrá ítölsku stjórnarinn- ar með tilliti til Gyðinga. — ítalska stjórnin ætlar sjer ekki að taka upp ofsóknir gegn Gyð- ingum, nje vísa þeim úr landi, en hinsvegar ætlar hún sjer að gæta þess, að völd þeirra og á- hrif verði ekki hlutfallslega meiri en tala þeirra rjettlætir. Ný árásar- tækni London í gær. FÚ. Cecil lávarður ljet svo um mælt í lávarðadeild breska þingsins í gær, út af því, sem gerst hefir í Austurríki undan- farið, að það væri að skapast ný árásartækni í stað innrásarstríðs í eldri merkingu þess orðs. Sú tækni sje í því fólgin að styðja hreyfingar innan „óvina- ríkisins“ sem eru fjandsamleg- ar stjórn þess, og koma þannig af stað byltingu. Mussolini getur ekki leng- ur hjálpað Austurríki -------Schusinigg---------------------------- sagði sjálfur frá: Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. ÆR fregnir, sem Morgunblaðið hefir birt undanfarna daga eftir breska stjórnarblaðinu „Daily Telegraph", um sam- tal dr. Schussniggs og Hitlers í Berchtesgaden, eru álitnar runn- ar beint frá dr. Schussnigg sjálfum. „Daily Telegraph“ heldur í dag fast við þá fregn, að þýsk- ar herdeildir sjeu enn hafðar viðbúnar við landamæri Austur- ríkis, nálægt Salzburg, þrátt fsrrir að hún hafi hvað eftir ann- að verið borin til baka í Berlín. Þegar er hafist handa um að brjóta Austurr. undir járnhæl nazismans. Fyrsta verk hins nýja innanríkismálaráðherra var að fara til Berlínar, sennilega til þess að fá fyrirskipanir frá Hitler, þótt opinberlega sje látið í veðri vaka, að hann hafi farið í erindum austurrísku stjórnarinnar til þess að skýra Hitl- er frá hvernig samningar hans og dr. Schussniggs hafa verið framkvæmdir. Jurue, einn af foringjum nazista var í dag tekinn í stjórn „Föðurlandsfylkingarinnar“, flokks dr. Schussniggs. Meðal fanganna, sem sýknaðir eru samkvæmt lögunum um sakaruppgjöf, sem austurríska stjórnin samþykti í fyrri- nótt eru morðingjar Dollfuss, og margir kunnir ofstopamenn úr flokki nazista. (Alls hafa skv. Lundúnafr. FU, á þriðja þús- und pólitískra fanga, þegar verið látnir lausir. Nokkrum þeirra hefir samstundis verið vísað úr landi. I morgun var dr. Taus, leiðtoga austurrískra nazista, er handtekinn var í síðastliðn- um mánuði fylgt inn yfir þýsku landamærin). Samkvæmt hinum sömu lögum um sakaruppgjöf, fær hin svonefnda „austurríska sveit“ í Þýskalandi, en það eru pólit- ískir afbrotamenn, sem orðið hafa að flýja frá Austurríki til Þýskalands, heimfararleyfi. I þessari sveit eru þrjátíu þúsund manns — þ. e. a. s. upp frá þessu verða 30 þúsund fleiri þjálf- aðir nazistiskir áróðursmenn fleiri í Austurríki en áður. ■itiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiini | Gagnrýni erlcndra blaða f iiimiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Ofbeldisaöferöir Austurríkísmenn leita til Breta Skyldur Þjóðabandalags- ins gagnvart Austurríki Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Austurríski sendiherrann í London gekk í dag á fund Mr. Anthony Edens og er talið að hann hafi leitað stuðnings hans til þess að vernda sjálfstæði Austurríkis. Um alla Evrópu, nema í Þýskalandi og ítalíu, vekur það, sem The Times kallar ,,diplomatiska ránsferð Hitlers“, hina megnustu gremju. Frönsk, tjekknesk, og rússnesk blöð óttast, að ekki líði á löngu þar til Hitler beiti Tjekkóslóvakíu sömu að- ferð. ÖSIGUR MUSSOLINIS. I Englandi undrast menn hvað mest afstöðu ítala til þessarar upphafs-innlimunar Austurríkis í Þýskalandi, og er alment talað þar um sigur Hitlers og Mussolini. „Manschester Guardian“ segir að afskiftaleysi Mussolini leiði greinilega í Ijós hve gersamlega Italir sjeu magn- lausir orðnir, vegna styrjaldarinnar í Abyssinu og á Spáni. Segir blaðið að þegar Austurríki og Þýskaland sjeu loks orðin eitt ríki, geti Þjóðverjar ráðið lögum og lofum í Suður-Tyrol og sje Triest þá hætta búin, því að Þjóðverjar muni sækja fram til Adríahafsins. YFIRLÝSING ITALA. London í gær. FÚ. Hin fyrsta opinbera yfirlýsing frá ítölsku stjórninni var birt í dag. í henni er sagt, að ítalska stjórnin líti á það sem gerst hefir sem eðlilega þróun í sambúð Austurríkis og Þýskalands á grund- velli sáttmálans frá júlí 1936. Þjóðverja London í gær. FTJ. TIMES í London segir, að í sjálfu sjer sje ekkert athugavert við það, að vinátta ríki milli Þýskalands og Austurríkis, eða við það, að þau stofni með sjer toll-bandaíag. En þegar stjórn annars ríkisins sje beitt öðru eins ofbeldi og augljóst sje, að Hitl- j er hafi beitt Schussnigg, þá beri það ekki mikinn vott um vináttu og menn hljóti að gruna að eitthvað felist á bak við sem ekki er látið sjá dagsljósið. Blaðið segir, að slíkt ofbeldi beri ekki vott um styrk, heldur um veikleika og skerði virðingu fyrir þeim er því beiti. FRÖNSK BLÖÐ KVlÐIN Frönsk blöð eru mjög kvíðin út af því, sem er að gerast í Austurríki. Þau líkja atburðum síðustu daga við sigur Prússa við Sadowa árið 1866, er Aust- urríkismenn urðu að lúta í lægra haldi. Frönsk blöð segja að samein- ing Þýskalands og Austurríkis sje byrjuð. í henni felist mögu- leikar til frekari útþenslu þýska ríkisins til suð-austurs, og telja blöðin að næsta skref Hitlers verði að kúga T.jekkóslóvaka. Grein í blaði Görings ,,Ess- ener Nationalzeitung“ hef- ir styrkt þessa trú, en í þessari grein er talað um það, ,,að atburð- irnir í Austurríki hafi fært draum Þjóðverja um Stór- Þýskaland, nær því að verða raunveruleiki“. Þarna fær Pan-germanisminn óhindrað að stinga upp höf- inu. BRETAR OG ROOSE- VELT. London í gær. FÚ. reska sendinefndin, sem á að ganga frá verslunar- samningunum milli Bandaríkj- anna og Englands, lagði af stað í morgun frá Southamton áleið- is til Washington. ítalska stjórnin lýsir yfir vel- þóknun sinni á því, sem gerst hefir, og segir, að það sje fjar- stæða að líta svo á, að vinátta milli Austurríkis og Þýskalands sje andstæð hugtakinu um sjálf stæði Austurríkis. BRETAR EKKI SPURÐIR Anthony Eden var spurður að því í neðri málstofu breska þingsins í dag, hvað væri hæft í þeim orðrómi að Schussnigg hefði snúið sjer til bresku stjórn arinnar og beðið hana um að- stoð til þess að hann gæti neitað að verða við kröfum Hitlers. — Eden svaraði því, að enginn fót- ur væri fyrir þeirri frjett. Hann sagði að sendiherra Breta í Vínarborg hefði verið tilkynt síðastliðinn föstudag að þeir Hitler og Schussnigg myndu ræðast við á laugardag- inn, en að breska stjórnin hefði hvorki verið beðin um aðstoð nje ráðleggingar í því sam- bandi. Eden sagði enn fremur, að breska sendiherranum í Berlín hefði verið falið að tilkynna þýsku stjórninni að breska stjórnin teldi það miklu máli skifta, að sjálfstæði Austurríkis væri á engan hátt skert. Hitler mun skýra frá því frá sínu sjónarmiði, hvað þeim dr. Schussnigg fór á milli í ræðu sinni í þýska rík- isþinginu á sunnudaginn. dr. Schussnigg mun (skv. FÚ) skýra sitt sjónarmið fyr- ir austurrísku þjóðinni í ræðu 23. þessa mánaðar (næst- komandi miðvikudag). SKYLDUR ÞJÓÐABANDA- LAGSINS Enn fremur sagði Eden, hefði Þjóðabandalagið ákveðnar skyldur gagnvart Austurríki, en breska stjórnin teldi ekki eins og sakir stæðu, að ástæða væri til að leita til Þjóðábanda- lagsins út af málum Austurrík- is. Þegar Eden var spurður að því, hvort breska stjórnin hefði snúið sjer til ítala og Frakka. sem ásamt Bretum stóðu að Stresa-yfirlýsingunni 1934, um hann, að hún hefði snúið sjer til sjálfstæði Austurríkis, svaraði frönsku stjórnarinnar. Sextugsafmæli á í dag frT Jakobína Torfadóttir, Laugave 43 R.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.