Morgunblaðið - 18.02.1938, Blaðsíða 7
Föstudagur 18. febrúar 1938
MORGUNBLAÐItí
7
Happdrætti
Háskðia íslands
Á þessú ári eru í fyrsta sinn
í umferð allir miðar, er leyfi-
legt er að gefa út samkvæmt
happdrættislögunum. Númera
talan er óbreytt, 25000, en
D-miðum hefir nú verið bætt
við A, B, og C af fjórðungs-
miðum. öllum þessum miðum
hefir nú verið úthlutað með-
al 64 umboðsmanna og er því
hætta á, að sumstaðar gangi
númerin til þurðar. Flýtið yð-
ur því að ná í happdrættis-
miða.
Frá starfsemi
Happdrættisins
1. Draumanúmer.
1934 'tók málari einn á Akur-
eyri að ganga m.jög fast eftir að
fá ákveðið númer, sem annar mað-
ur hafði þá. Haf'Si hann dreymt
númerið mjög skýrt og ljet ekki
laust fyr en hann fekk það. Á
þetta númer vann hann tvisvar 1935i
og aftur tvisvar 1936, en altaf
lægsta vinning. Síðastliðið sumar
kom númerið ekki upp, en A. hefir
tröllatrú á því, að það eigi eftir
að koma upp með stóran vinning.
2. Missti af 10.000 krónum.
Stjómmálamaður fekk sjer miða
1934 og fekk engan vinning á hann.
Arið eftir keypti hann ekki mið-
ann og var hann seldur fátækum
verkamanni, sem á 10 hörn, og
fekk hann 10,000 króna vinning, á
hann í fyrsta drætti, sem dregið
\ar.
3. Það er hættulegt að
sleppa númeri sínu.
Embættismaður úti á landi hafði
skift við umboðsmann í Reykjavík
og skrifaði honum í nóvember 1936,
a‘ð ef hann fengi ekki vinning á
f jórðungsmiða sína í 10. flokki, vildi
hann ekki hafa þá framvegis. Hann
fekk ekki vinning í 10. flokki og
hætti því við þá, en strax í 1.
flokki 1937 kom einn af þessum
miðum upp með 10,000 krónur.
Miði þessi var þá ððrum seldur og
var það tilviljun ein, að sá fekk
þetta númer, því að hann valdi
það ekki, en bað umboðsmanninn að
taka það út úr miðabúnkanum.
Ekki miisðr sá,
sem fyrsf fær.
TJmboSsmenn í Iteylcjavík eru:
■ Frú Anna Ásmundsdóttir & frú
Q-uðrvin Björnsdóttir, Túngötu 3,.
sími 4380. •
Dagbjartur Sigurðsson, kaupm.,
Vesturgötu 45, sími 2814.
Einar Eyjólfsson, kaupm., Týs-
götu 1, sími 3586.
Elís Jónsson, kaupm., Reyk.ja-
víkurveg 5, sími 4970.
Helgi Sivertsen, Austurstræti 12,
sími 3582.
Jörgen Hansen, Laufásvegi 61,
sími 3484.
Frú Maren Pjetursdóttir, Lauga-
veg 66, sími 4010.
Pjetur Halldórsson, Alþýðuhúsinu.
Stefán A. Pálsson & Ármann,
Varðarhúsinu, sími 3244.
Umboðsmcnn í HafnnrfirtSi eru:
Valdimar Long, kaupm., sími
9288.'
Verslun Þorvalds Bjarnasonar,
sími 9310.
Dagbók.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Allhvass SV. Dálítil rigning.
Veðrið í gær (fimtud. ld. 17) :
Emi er S-SV liláka iim alt land,
alt að 12—13 st. hiti á N- og A-
landi, annars 5—10 st. Hæðin
fyrir suðaustan land hefir þok-
ast vestur á bóginn. Lægð er yf-
ir vestanverðu Grænlandshafi á
hreyfingu NA, og mun vindur
ganga meira til V hjer á landi.
Næturlæknir er í nótt Páll Sig-
urðsson, Hávallagötu 15. Sími
4959.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Stúdentafjelag Reykjavíkur
hjelt fund á Garði í gærkvöldi.
Á fundinum var rætt um endur-
heimt Árnasafns og var Guð-
brandur Jónsson prófessor frum-
mælandi. Talaði Guðbrandur um
Árnasafn og íslenska fornginpi,
sem nú eru í höndum Dana. Að
lokinni ræðu sinni bar prófessor
Guðbrandur fram tillögu þess
efnis, að fjelagið skoraði á Al-
þingi að hefja nú þegar vinsam-
lega samningaumleitanir við Dani
um að þeir afhentu okkur Árna-
safn. Ef ekki væri hægt að ná
samningum á þessum grundvelli,
þá athugaði Alþingi hvað hægt
væri að gera til að ná safninu
hingað heim. Tillaga þessi var
samþykt með samhljóða atkvæð-
um fundamanna.
Síra Þórður Oddgeirsson, sókn-
arprestur á Sauðanesi, er nú
staddur í bænum. Hann mun
dvelja hjer fram yfir næstu
mánaðamót.
Slökkviliðið var kvatt á Ný-
lendugötu 22 laust fyrir klukkan
8 í gærkvöldi. Hafði kviknað í
sóti í reykháf, en eldurinn var
kæfður, er slökkviliðið kom á
vettvang, og skemdir urðu engar.
Björn Kristjðnsson
Hamburg.
Inn- og útflutnings verslun.
Skrif stofa:
Hamburg 8
Kl. Reichenstr. 1.
Sími: 33 06 80.
Símnefni: ISBJO.
Privat:
Hamburg-Rahlstedt
Am Gehölz 43.
Sími: 27 13 37.
STEFÁN STEFÁNSSON:
í kvöld sýnir Hljómsveit
Reykjavíkur aftur „Bláu káp-
una“. Yegna þess, að ekki var
möigulegt að fá húsið, hefir ekki
verið hægt að sýna óperettuna
síðan á föstudag. Eftirspurn eft-
ir aðgöngumiðum hefir verið
miklu meiri að „Bláu kápunni“
heldur en að „Meyjaskemm-
unni“ í sinni tíð. Sýnir það best
vinsældir þær, sem þessi óperetta
hefir aflað sjer hjer á skömmum
tíma. Myndin: Oskar Guðnason
sem Rambow greifi o,g Pjetur
Jónsson sem von Biebitz-Biebitz.
Rangæingafjelagið heldur fund
í Oddfellowhúsinu í kvöld kl.
8l/2. Nýir fjelagar eru velkomn-
ir á fundinn.
Dansleik heldur glímufjelagið
Ármann í Iðnó annað kvöid kl.
10 síðd. til ágóða fyrir skíða-
skála fjelagsins í Jósefsdal.
Bjarni Björnsson skemti í
fimta skifti í Gamla Bíó í gær-
kvöldi við mikinn fögnuð áheyr-
enda. Segja margir, að Bjarna
hafi aldrei tekist eins vel upp
Bjarni ætiar að endurtaka skemt
un sííia ienu sinni enn, á sunnu-
daginn, og verður það í síðasta
sínn.
Jóhann G. Möller hefir tekið
sæti á Alþingi í stajð Pjeturs
Halldórssonar borgarstjóra, sem
er í si.glingu.
Trúlofun sína opinberuðu 16. þ.
m. uugfrú Ingi bj örg Ásgeirsdótt-
ir og Vilhjálmur H. Vilhjálms-
son.
Eimskip. Gullfoss er á leið til
Kaupmannahafnar frá Leith.
Goðafoss fór frá Vestmannaeyj-
um í gær áleiðis til ílull. Brúar-
foss er í Reykjavík. Dettifoss er
á leið til Vestmannaeyja frá
Hull. Lagarfoss er á leið til út-
landa frá Seyðisfirði. Selfoss er
í Reykjavík.
Útvarpið:
20.15 Erindi: Höfuðstefnur í bók-
mentum á 18. og 19. öld, IV:
Raunsæisstefnan (Jón Magnús-
son, fil. kand.).
20.40 Einleikur á fiðlu (Theódór
Árnason).
21.05 Hljómplötur: Píanólög.
21.20 Útvarpssagan: „Katrín“ .
eftir Sally Salminen (XIII).
21.50 Hljómplötur: Harmóníku-
lög.
| Verðlag á kartöflum
Lágmarks söluverð á kartöflum til verslana er
ákveðið:
11. mars - 30. apríl kr. 26.00 pr. 100 kg.
11. maí - 30. júnl - 28.00 - 100 -
Smásöluálagning (við sölu í lausri vigt) má ekki
| fara fram úr 40%, miðað við hið ákveðna söluverð
| til verslana. — Heimilt er þó verslunum, er af ein-
| hverjum ástæðum kaupa kartöflur hærra verði en
| hinu ákveðna lágmarksverði, að haga smásöluálagn-
| ingu sinni þannig, að hún sje alt að 40% af inn-
| kaupsverðinu.
Hið setta verðlag er miðað við góða og ógallaða
| vöru. —
Verðlagsnefnd Grænmetisverslunar ríkisins.
Rúðugler.
Útvegum við bæði frá Þýskalandi og Belgíu.
Höfum það einnig fyrirliggjandi.
Eggert Kristjánsson & Co.
Sími 1400.
Rattæk|averslun Júlíusar
Bjðrnssonar verðnr lokuð Irá
kl. 1-4 e. fiiád. laugardaglnn 19.
þ. mán., vegna jarðarlarar.
Móóir mín
Rannveig Gísladóttir
andaðist í Farsóttahúsinn í Reykjavík 17. þ. m. Jarðarförin
ákveðin síðar.
Guðmundur Sveinbjömsson.
----------------------------------■-------------
Jarðarför konu minnar, móður okkar og tengdamóður
Halldóru Loftsdóttur
fer fram frá dómkirkjunni laugardaginn 19. þ. mán. kl. 2 e.h.
Guðmundur Helgason.
Þórdís Guðmundsdóttir. Helgi Guðmundsson.
Ingibjörg Guðmundsdóttir. Júlíus Bjömsson.
Loftveig Guðmundsdóttir. Gestur Gunnlaugsson.
Valgerður Hannesdóttir. Guðlangnr Guðmundsson.
Innilegustu þakkir vottum við öllum þeim mörgu, sem
með gjöfum og armarí aðstoð auðsýndu okkur hluttekningu
við andlát og jarðarför dóttur okkar og systur
Jóhönnu Filippusdóttur.
Biðjum við algóðan guð að launa þeim, er þeim mest á
liggur.
Guðrún Pjetursdóttir, Filippus Jóhannsson
og systir.
Plöntiiriiar
III. útgáfa
er komin út. Verð kr. 9.00.
Fæst hjá bóksölum.
Békaw©r§l. §fgf. Eymu ndssowar
og Bókabúð Austurbæjar B. S. E., Laugavegi 34.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við jarðarför
mannsins míns og fóstursonar
Ágústs E. Hansen
verslunarmanns.
Svava Jóhannesdóttir Guðfinna J. Hansen.