Morgunblaðið - 18.02.1938, Síða 6

Morgunblaðið - 18.02.1938, Síða 6
< MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 18. febrúar 1938 Umræðurnar um mjólkur- málið í bæjarstjórn FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. Þessir voru tilnefndir og hlúttt kosningu: Gunnar Thoroddsen, Guðrún Guðlaugsdóttir og Ársæll Sigurðsson. Jakob Möller hafði framsögu í málinu. Hann sagði m. a.: Eftir þeim tillö,gum, sem fram eru komnar, virðist það vera sam- eiginlégt álit flokkanna, að stefna Bijólkurverðlagsnefndar sje röng, sú, að einblína á hækkun útsölu- verðs mjólkurinnar, til að vega á ipóti auknum framleiðslukostnaði, Úg með því að auka neyslu mjólk- urinnar muni nást sami árangur fyrir framleiðendur, en neytendum óneitanlega hagkvæmari. En það sem greinir afstöðu Sjálfstæðismanna frá hinum tillög- unum er það, að við tökum afstöðu gegn mjólkurskipulaginu, og þá einkum gegn því, eins og frá því var igengið á síðasta þingi, þar sem ákveðið er að verð mjólkur skuli vera það sama af öllu hinu víð- áttumikla verðjöfnunarsvæði, án tillits til þess, hvort hægt er að koma mjólkinni óskemdri hingað sem neyslumjólk. Með þessu fyrirkomulagi eykst Verðjöfnunarþörfin, eftir því sem mjólkurframleiðslan vex í fjar- sveitum, og af því leiðir sífeld til- hneiging skipulagsmanna til hækk unar á útsöluverði. En af því leiðir aftur, að mjólkurneyslan fer, að öðru jöfnu, minkandi. Þessir agnúar eða rjettara sagt svikamylla er skipulaginu að kenna. En draga má.úr óheilla- afleiðingum þessa til bráðabirgða, ef takast mætti að auka mjólkur- neysluna, sem er hjer þegar óeðli- lega lítil, nemur ekki y2 lítra á mann á dag. Er enginn efi á, að anka má hana að mun, ef rjett er að farið. Því förum við fram á, að verðið verði lækkað aftur, dreif ingarkostnaður verði minni og mjólkurmeðferðin betri. Leggjum við því til, að skipuð verði 3 manna nefnd, sem vinni að þessu í samvinnu við mjólk- ursölunefnd, sem hefir í höndum þau g.ögn, er með þarf til að rann- saka málið“. Aðrir, sem tóku þátt í umræðum þessum, voru: Guám. Ásbjörns- son, Guðrún Jónasson, Guðin. Ei- ríksson, Ilelgi H. Eiríksson, Jón A. Pjetursson, Soffía Ingvarsdótt- 5r, Hjeðinn Valdimarsson, Ársæll Sigurðsson og Björn Bjarnason. Hjéðinn Valdimarsson er 1. vara- maður A-listans og kom því á fund vegna fjarveru St. Jóh. Stefáns- sonar. Jón A. Pjetursson var sá eini, sem reyndi að mæla skipulaginu hót, nfma hvað frú Soffía Ing- varsdóttir hjelt því fram, sem s’vakti kímni áhevrenda, að henni þætti samsölumjólkin óaðfinnan- leg. En Jón ympraði á því, að . verðhækkun mjólkur væri eðli- leg, vegna tíðarfarsins í sumar og hækkaðs framleiðslukostnaðar. En að skipulagið fæddi af sjer hækk- un útsöluverðs, fjekk hann sig ekki til að viðurkenna,' enda vildi hann ekki mótmæla skipulaginu. Aftur á móti lýsti Hjeðinn því yfir, að Framsóknarmenn hefðu svikið lieykvíkinga um þá lækkun á mjólkurverði, er Framsókn lof- aði, er Alþýðufl. fjelst á skipu- lagið. Hjeðinn vildi halda því fram, að afstaða Sjálfstæðismanna í mjólk- urmálinu væri látalæti, því Sjálf- stæðismenn vildu hugsa hæði um framleiðendur og neytendur. Guðm. Ásþjörnsson benti honum á, að það væri vissulega engin látalæti hjá rauðliðum, að þeir með því skipulagi sem þeir hjer hafa framfylgt, hafa gert mjólkina dýrari og verri en hún ætti og þyrfti að vera, og þeir hefðu með oddi og egg unnið að því að eyðileggja mjólkurfram- leiðslu Reykvíkinga, sem nam er skipulagið hófst 2% milj. lítra á ári og igaf bæjarhúum 1 milj. kr. atvinnutekjur árlega. Jón A. Pjetursson mintist laus- lega á breytingartillögu Guðm. Eiríkssonar í mjólkurverðlags- nefnd, er miðaði að því að draga úr fyrirhugaðri hækkun Framsókn armanna, og sagði, að ef Guðm. Eiríksson hefði aðeins greitt at- kvæði gegn hækkuninni, hefðu hin ir 3 Framsóknarmenn aldrei sam- þykt neina hækkun. En er Guðm. Eiríksson skýrði frá meðferð nefndarinnar á þessu máli, fjellu þessar staðhæfingar Jóns Axels alveg niður. Komst Guðm. að orði á þá leið, að hann teldi rjett að beita áhrif- um sínum til þess að draga úr ó- hæfunni, í stað þess með máttlausu minnihluta atkvæði sínu að horfa upp á, að óhæfan yrði meiri. Ársæll Sigurðsson upplýsti, að Páll Zophóníasson hefði skýrt svo frá, að samkvæmt útreikningum hans mætti lækka útsöluverð mjólkurinnar um einn eyri fyrir hverja 1000 lítra, sem salan í hæn- um ykist á dag, án þess að fram- leiðendur bæru minna iir býtum. Frú Guðrún Jónasson lýsti skað- ræði því, sem stafaði af því, hve mjólkin væri gömul og slæm, sem blandað væri saman við betri mjólkina. En Helgi H. Eiríksson minti m. a. á, hvílík fásinna það væri, að Framsóknarmeirihlutinn hefði ekki hækkað útsöluverðið, þó einn fulltrúi Sjálfstæðismanna í nefndinni hefði greitt atkvæði gegn því. Þeir hafi ekki verið feimnir við það Framsóknarmenn að gera það sem þeim hefir sýnst í mjólkurmálinu. Sundráð Reykjavíkur stendur fyrir fyrsta sundmótinu á þessu ári, sem fer fram í Sundhöllinni dagana 15. og 17. næsta mánað- ar. Þeir, sem ætla að keppa, eiga að hafa tilkynt T. S. t. það brjef- lega fvrir 8. mars. Niræðuf verður i dag: Jón Jónsson frá Melum }ón Jónsson frá Melum á Kjal- arnesi, nú til heiilis í Páls- húsurn á Bráðræðisholti, er 90 ára í dag. Jón er fæddur að Norður- Gröf á Kjalarnesi 18. febrúar 1848. Ólst hann þar upp til full- orðinsára. Tók hann þá við búi eftir föður sinn og bjó þar í 8 ár. Fyrstu 2 árin með systur sinni, Kristínu. Árið ^.1874 giftist Jón Kristbjörgu Sigitrðardóttur frá Káranesi ,í Kjós, og árið 1880 fluttú þau búferlum að Melum á Kjalarnesi. Þar bjuggu þau í 16 ár, en þá brugðu þau búi og flutt- ust til Reykjavíkur árið 1894 Þau hjónin eignuðust 10 börn og 9 af þeim komust til fullorðinsára. Jón misti konu sína, Krist- björgu, og dóttur sína, Margrjeti, þá 19 ára að aldri, í taugaveikis- faraldrinum, er geysaði hjer í Reykjavík árið 1898. Næstu 2 árin bjó Jón með syni sínum, Jóni„ en árið 1900 tók hann sjer ráðskonu, Ólöfu Hansdóttur að nafni, er hún föðursystir Sig- urjóns Pjeturssonar á Álafossi og þeirra bræðra. Hafa þau búið saman í samfleytt 37 ár. Ólöf er núna 82 ára að aldri. í þau 16 ár er Jón bjó að Mel- um, stundaði hann sjó, jöfnum höndum við búskapinn, svo sem venja var, þar sem ómegð var mikil. Jón var og er mikill mað- ur vexti, hár og þrekinn, oig rammur að afli hefir hann verið á sínum bestu árum, enda hefir það komið sjer vel fyrir margan alþýðumanninn, er þurft hefir að nota þrek sitt og þor í lífsbarátt- unni. Jón er stillingarmaður mik- ill, prúðmenni hið mesta og trygg lyndur með afbrigðum, hann er þjettur bæði á velli og í lund. Rúmlega tvítugur byrjaði Jón formensku á opnum bátum og skipuhl. Mun hann fyrst hafa verið fökmáður fyrir Kblbein í Kollafirði. Var hann fyrir skipum hjá Kolbeini í 10 ár. Frá Bakka- koti á Seltjarnarnesi reri Jón í mörg ár, þá er útgerð Seltirninga stóð í rnestum blóma. Jón reri líka í mörg ár frá Bieringstanga á Vatnsleysuströnd og var þar þá mikil útgerð eða um 20 skip, en á fiskleysisárunum var aflinn ekki altaf að sama skapi mikill og út- gerðin. Eitt árið til dæmis hafði aflahæsta skipið 80 fiska í hlut að vertíðinni lokinni. Þegar þil- skipaútgerðin bvrjaði í Reykja- vík var Jón í mörg ár á skútum. Auk sjómenskunnar stundaði Jón alla algenga vinnu. Hrognkelsa- veiði hefir Jón stundað fram á síðustu ár eða á meðan heilsa ent- ist, en fýrir mötgum árum varð Jón fyrir áfalli, og bilaði heilsan j svo, að dregið hefir úr vinnuþreki. | Hið mikla þrek sem honum er i gefið ásamt heitri trú hefir borið j hann áfram, og er óhætt að segja. j að margur ‘hefði verið búinn að I leggja árar í bát, en hinn þrek- mikli gamli maður ýtti á flot, er veður leyfði og aflanum skifti hann í fjörunni er að landi var komið. Vegna.áfalls þess, er hann varð fyrir, hefir hann um 25 ár ekki komist um bæinn. Hann hefir ekki sjeð hafnarmannvirkin, sem hann sem gamlan sjómann langar ef- laust til að sjá. Hann hefir ekkert sjeð af þeim nýju byggingum er bygðar hafa verið í þessi 25 ár annað en turninn á Landakots- kirkjunni, sem hann sjer heiman að frá sjer. Jón hefir altaf haft fótavist og næstum daglega fer hann út o:g lítur til veðurs. Haun er enn vel ern og- furðanlega Ijettur á fæti, þrátt fyrir 90 árin, sem að baki erti, en sjón og heyrn eru heldur farin að daprast. Mikla ánægju hefir Jón af útvarpinu og fylgist hann vel með öllu sem gerist. Vafalaust munu vinir hans senda lionum hlýjar blessunarósk- ir á þessum afmælisdegi hans og óska honum sömu óskar er Roeke- feller óskaði sjálfum sjer, að hann mætti verða 100 ára. Vinur. miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiyi 1 Hafnfirðingar | Hrossakjöt í buff 75 aura 1/> kg. | Frosið kjöt Saltkjöt Hangikjöt § Bjúffu | Svið | Hákarl, | | Kjötbuð [ | Vesturbæjar| Sími 9244. | iiTiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiinitimiiiÍf Goliat. Minningarorð um Jón Snorra Árnason Idag verður jarðsunginn hjer í Reykjavík Jón Snorri Árua- son trjesmiðameistari og kaup- maður. Jón var fæddur á Ilarastöðum í Vesturhópi í Húnaþingi 20. febrl 1871. Faðir hans, Árni Snorrason, hreppstjóri í Klömbrum, bjó fyrst á Harastöðum og síðan í Gröf á Vatnsnesi. Olst Jón upp hjá fokr eldrum sínum, Árna og konu hans Hólmfríði Jónsdóttur, þar til hann fór til trjesmíðanáms til Magnús- ar snikkara og verts í Flatey. Lauk Jón trjesmíðanámi hjá hon- um, og fór skömmu síðar til Isaj- fjarðar og settist þar að. Á Isafirði var Jón öll þroskar ár sín, eða nál. 30 ár. Stundaði hann þar húsasmíðar, en rak jafn- framt verslun í allstórum stíl, að- allega með byggingarvörur. Jafn- framt rak hann húsgagnavihnu- stófu og hafði í þjónustu sinni bæði nemendur og sveina um lailgt árabil. Var Jón á þeim árum einijt af gildustu borgurpm ísafjarðarj- kaupstaðar. Þekkja hann allir ís- firðingar, sem nú eru miðaldra menn ’eða eldri, og áreiðanlegá flestir að góðu. Jón varð, á þessum árum, f jái’1- hagslega vel stæður maður. En skömmu eftir fimt.ugsaldur misti hann heilsu, dróst þá saman at- vinnurekstur hans og fjárhagur þrengdist. Seldi hann þá verslun sína og eignir og flutti til Reykja- víkur. Bjó hann hjer í Reykjavík síðasta áratug æfi sinnar alger- lega þrotinn að heilsu. Jón var maður stórbrotinn í » lund, mikill vinur vina sinna og skar ekkert við neglur sjer. Mun hann því minnisstæður öllum, er honum kyntust. Hann var fríður maður sýnum, og liinn mesti vask- leika- og kappsmaður, meðan heils an entist. Jón var tvígiftur. Fyrri kona hans, lugibjörg, var dóttir hins þjóðkunna smiðs, Einars á Tann- staðabakka í Húnavatnssýslu. Síðari kona hans, Valgerðuir Sæmundsdóttir frá Hörgshlíð. Sigurður Kristjánsson. Háskólafyrirlestrar. M. Jean Ilaupt, fiakkneski sendikennar- inn, byrjar liáskólafyrirlestra sína í kvöld. Verða. þeir fram- vegis á föstudögum kl. 8.05— 8.50 e. h. Efni fyrirlestranna í vetur er: „Franskt mannfjelag í spegli bókmentanna“. Fyrsti fyr- irlesturinn er almennur inngang- ur og auk þess: Moliére og „Les, Préeieuses" (Hofróðurnar),

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.