Morgunblaðið - 23.03.1938, Blaðsíða 6
6
i u
Dr. Nielsen leysir
ráðgátur íslenskrar
jarðfræði
----
p^jöldi áheyrenda var í
1 Oddfellow í g;ær er
hlustaði á fyrs.ta fyrirlestur
dr. Niels Nielsen. Enginn
mun hafa iðrast eftir hví
að hafa farið hangað.
-
Með miklu fjori og fjölda
skugg-amynda hjelt fyrirles-
arinn athygli áheyrenda
fanginni allan tímann. Enda
var efnið mikið, marghætt,
skemtilegt. Hann bókstaf-
le^a opnaði mönnum útsýn
yfir, eða öllu heldur innsýn
í ráðgátur íslenskrar jarð-
fræði, svo ó^leymanlefft
verður öllum heim, sem hafa
veitt heim efnum nokkra at-
hygli.
í iipphafi mintist hann á hið
mikla og ómetanlega brautryð.j-
andastarf Þorvaldar Thoroddsen,
sem þó náði ekki lengra en það,
að hann fekk eigi útskýrt mó-
bergsmyndanirnar, er hylja nál.
% af flatannáli landsins. Bn svo
kom dr. Helgi Pjetursson. Hann
lyfti hlæjunni frá þessum leynd-
ardómum, og skildi þó eftir margt
órannsakað. En hann vísaði leið-
ina.
Síðan koma nokkrir erlendir
menn til sögunnar, m. a. Englend-
ingarnir tveir, sém benda á, að
eldgos eígi sjer stftð stundum und-
ir ægishjálmi jökla. Og svo hafi
verið á ísöldum landsins.
Svo taka þeir fjelagar við dr.
Nielsen, Pálmi Hannesson og Noe
Nyegaard og fá opin augu fyrir
margbreytileika móbergsins, ekki
aðeins hve margskonar það er,
heldur vegna hvers það er svona
geysilega mismunandi.
í þeim uppgötvunum sínum
tengja þeir saman nútíð og for-
tíð jarðmyndunarsögu landsins.
Þeir hafa landið fyrir sjer, eins
og það er, með eldfjöllum, hraun-
um, jöklum, fljótum, með upp-
blæstri, öræfum, veðrun bergteg-
unda, áreyrum, söndum, jökulöld-
um, malarkömbum o, fl. o. fl., og
hugleiða svo hvaða umbreytingum
yfirborðið tæki í dag, ef hjer
kæmi alt í einu' ísöld, og jöklar
niðuðu saman öllu lauslegu á
yfirborðinu, svo úr því verði hið
sambreyskta móberg, steingerðar
yfirborðsmyndanir, alla vega sam-
blandaðar. Og síðan hafa komið
hlý tímabil, og móbergið molnað
og möl og sandur ;|iust úr stað, til
þess á næstu isöld áð hnoðast sam-
an í öðruvísi móberg.
Er dr. Nielsen lýsti þessum um-
breytingum, sem land vort hefir
tekið, þessari óendanlega stórkost-
lógu efnasmiðju elds og íss, opn-
aði hann fyrir hugskotssjónum
svo fjölþættar Kngrenningar, svo
víðfeðma hugarhPima, að fátítt er,
að fá annað eins á stuttri stund.
Svo öfgakend er íslensk nátt-
úra í töfrasmíð sinni, að t. d.
austur í Mýrdal fundu þeir fje-
lagar gíg sem háfði brotist gegn-
um fornan sjávarkamb. I gos-
grjótinu sjálfu .fundust steingerð-
ar dýraleifar!
MORGUNBLAÐIÐ
Hið nýja leikrit
Leikfjelags Reykjavíkur
Tíðindamaður vor hefir átt tal
við Indriða Waage, sem hef-
ir með höndum leiðbeiningar við
hið nýja leikrit, sem Leikfjelag
Reykjavíkur hleypir af stokkun-
um nú í vikunni, og spurst fyrir
um leikritið.
— Hvað getið þjer sagt mjer
um höfundinn sjálfan?
— Oskar Braaten, segir I. W.,
er einn af þremur nafnkendustu
leikritaskáldum Norðmanna á vor
um tíma. Við hlið hans standa
Nordahl Grieg og Helge Krogh.
0. Braaten er ekki eingöngu leik-
ritaskáld, heldur og leikhúsmað-
ur eigi síður. Hann hefir meðal
annars verið forstjóri Þjóðleik-
hússins í Osló og getið sjer í því
sambandi mikinn orðstír.
Soffía Guðlaugsdóttir og Emilía
Borg.
— Hvað heitir þetta leikrit, sem
á að sýna hjer, á frummálinu?
— Den store Barnedaab er það
nefnt, en við höfum nefnt það
Skírn sem segir sex, til þess að
fólk rendi grun í, að nokkur skop
legur blær væri á leikritinu. Enda
er hann það svo um munar. Ev-
ensi 11 kirkjuvörð’ur (Brynjólfur
Jóhannesson), Tvíbreiða Petra
(Emilía Borg), Hjálpræðisher-
kapteinn (Soffía Guðlaugsdóttir),
Endurskírandinn (Ragnar E.
Kvaran) og Haraldur varabarns-
faðir (Indriði Waage) eru alt
persónur, sem heima eiga í hrein
ræktuðum skópleik. En þó fer það
fjarri, að leikritið hafi eigi fleiri
hliðar, Það hefði eigi farið slíka
sigurför um endilangan Noreg,
sem raun er á, og verið aúk þess
kvikmyndað og sýnt í mörgum
löndum (meðal annars hjer), ef
ekki i væri í því sú mikla alvara,
sem hefir valdið ]>ví, að Norð-
mönnum hefir fundist það eiga
verulegt og mikilvægt erindi til
þjóðarinnar í heild sinni.
— Iívert er þá aðalefni leikrits-
ins?
— Það fjallar um baráttu trú-
arflokkanna um hugi almennirigs.
Eins og kunnugt er hafa ýmsar
Brynjólfur Jóhannesson og Yalur
Gíslason,
heittrúarstefnur oft flætt yfir
Noreg og stundum skilið eftir sig
mikinn glundroða. Braaten skýr-
ir þetta mál nokkuð frá sjerstöku
sjónarmiði. I gegnum naprar á-
deilur hans á því, hvernig menn
gera sjer veikleika fólksins að
fjeþúfu, og hversu lítill skilning-
ur á lífi almúgamanna sje hjá
þeim, sem ríkið hefir falið foryst-
una um andlegar leiðbeiningar
hinsvegar, er dregið fram með
einkennilegri varfærni, hversu
mikil sje trúar- og hugsjónahneigð
hjá alþýðu manna, sem aldrei fái
hæfilega og eðlilega framrás. Nú
eru ástæður á íslandi að sjálf-
sögðu mjög ólíkar því, sem þær
eru í Noregi., en með því að góð
skáldverk eru aldrei staðburidin,
á þetta leikrit einnig erindi til
hugsandi manna hjer á landi.
Sumir menn finna í því mikið
hlátursefni — aðrir mutfn fara
heim alvarlega hugsandi...........
— Hvað getið þjer sagt frekar
um leikara, en þjer hafið þegar
nefnt?
— Af þektum leikurum hafa
Regína Þórðardóttir, Ingibjörg
Steinsdóttir, Þóra Borg, Arndís
Björnsdóttir og Yalur Gíslason
mikilsverð hlutverk. En auk þess
hafa ýmsir nýliðar fengið tæki-
færi til þess að reyna verulega á
sig. Skal þar sjerstaklega getið
Aagot Magnúsdóttur, Sigríðar
Arnadóttur, Ævars R. Kvaran og
Vilhelm Norðfjörð.
Leikritið verður sýnt í fyrsta
skifti á fimtudaginn kemur.
——»■■■»■-»---1—
| Póstferðir á morgun. Frá Rvík:
; Mosfellssveitar, Kjalarness, Kjós-
! ar, Reykjaness, Ölfuss og Flóa-
póstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Fagranes til Akraness. Lyra
til Vestmannaeyja, Fareyja og
Noregs. Lagarfoss til Austfjarða
og Kaupmannahafnar. Til Rvíkur:
Mosfellssveitar, Kjalarness, Kjós-
ar, Reykjaness, Ölfuss og Flóa-
póstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Fagranes frá Akranesi.
Miðvikudagur 23. mars 1938.
Háa kaupið
Kaup almennra verkamanria
hjá Síldarverlcsmiðjum
ríkisins á Siglufirði hefir und-
anfarin ár numið kr. 550.00 til
600.00 á mánuði yfir vinslu-
tímann að meðtalinni eftir-
vinnu. Fastráðnir verkamenn
hjá verksmiðjunum hafa kr.
325.00, sem mánaðarlaun og
þriggja klukkustunda fasta eft-
irvinnu á hverjum virkum degi,
sem greiðist með kr. 2.00 um
tímann, auk þess aðra eftir-
vinnu og #helgidagavinnu, sem
greiðist með kr. 3.00 um tím-
ann. Ennfremur hafa verka-
menn Síldarverksmiðja ríkisins
tveggja mánaða kauptrygg-
ingu.
Vinslutími Síldarverksmiðja
ríkisins á Siglufirði var s.l. ár
71 dagur. Yfir vinslutímann og
þann tíma, sem fór til undir-
búnings og til útskipunar frá-
gangs og þess háttar, að vinslu
lokinní, var 165 mönnum, sem
eru fastráðnir hjá verksmiðj-
unum yfir vinslutímann greidd-
ar að meðaltali í kaup kr.
2.690.40, eða samtals ca. kr.
444.000.00. Þar fyrir utan var
vinna við bygginguna á nýju
þrónni.
Það mælir engin sanngirni
með því að hækka kaup þess-
ara manna samkvæmt kröfu
verkamannafjelagsins „Þrótt-
ur“ um 10% og bæta þeirri
hækkun ofan á 50—56% fyr-
irsjáanlega lækkun síldarverðs-
ins til sjómanna og útgerðar-
manna, vegna hins gífurlega
verðfalls afurðanna.
Þegar verkamannafjeiagið
Þróttur hjelt fast við að koma
slíkri kauphækkun fram, á
kostnað þeirra sjómanna og út-
gerðarmanna, sem skifta við
Síldarverksmiðjur ríkisins var
það skylda stjórnar verksmiðj-
anna að hafna henni, og eðli-
legt að málið kómi til kasta
sáttasemjara ríkisins eins og
verksmiðjustjórnin hefir óskað
eftir.
Eimskip. Gullfoss kom til Kaup-
mannahafnar um miðnætti í nótt.
Goðafoss er á leið til Vestmanna-
eyja frá Kaupmánnahöfn. Brúar-
foss er í Kaupmannahöfn. Detti-
foss fór frá Hull í gærkvöldi á-
leiðis til Vestmannaeyja. Lagar-
foss er í Reykjavik. Selfoss fór
frá Hafnarfirði í gær áleiðis til
Vestmannaeyja og útlanda.
Fjórir Reykvikingar á
landsmótið á Siglutirði
Fjórir skíðamenn hjeðan tx
bænum tóku sjer far með
Dr. Alexandrine norður í gær-
kvöldi til að taka þátt í Skíða-
landsmóti í. S. 1, sem hefst á
Siglufirði um næstu helgi.
Með skipinu fóru einnig norð-
lensku og vestfirsku skíðamenn-
irnir, sem hjer voru á Thule-mót-
inu.
Fjöldi manns var saman kom-
inn í gær er Dr. Alexandrine lagði
af stað. Hrópuðu Reykvíkingar
ferfalt htirra fyrir skíðarnönnum,
en þeir svöruðu frá skipsfjöl.
Reykvíkingarnir, sem þátt taka
í landsmótinu, eru:
Björn Blöndal frá Skíðafjelagi
Reykjavíkur, Hjörtur Jónsson og
Karl Pálsson frá K. R. og Stefán
Stefánsson frá Ármanni.
Eins og skýrt hefir verið frá
var ætlunin að Gunnar Hannes-
son færi einnig frá Skíðafjelagi
Reykjavíkur, en hann meiddist á
fæti b.1. sunnudag og varð að
hætta við förina.
Japan:
Landvinningarnir
halda áfram
Kalundborg 22. mars F.Ú.
apanski hermálaráðherránn
ljet svo um mælt á þirigi
Japana í dag, að ennþá vseri
of snemt að gefa neinar yfir-
lýsingar um það, hve langt
Japanar mundu fara ’með her
sinn inn í Kína, eða hve mikið
af landi KínaÝeldis hann teldi
óhjákæmilegt að leggja undir
sig.
En hitt sagði hann að óhætt
væri að lýsa yfir nú þegar, að
Japanar mundu aldrei gefa eft-
ir einn þumlug af því landL
sem þeir þegar hefðu unnið í
Kína og ekki heldur neitt af
þeim rjettindum, sem þeir þann-
ig hefðu áunnið sjer.
I matinn.;
Kjöt af fiillorðnu á 45
au. 1/2 kg. Saltkjöt af-
bragðsffott. Hangikjöt.
Svið. Hvítkál. Rauðróf-
ur o. m. fl.
Jóh. Jóhannsson
Grundarstíg 2. Sími 4131.
Goliat.
kmdsáfian