Morgunblaðið - 17.05.1938, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 17. maí 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
gauiiiaiiiiiiiiimiiiimiimiiiiiiiiimiiiKiiiiiiiMiiiiaiiiiiiHMiiii
•mHnimmuii imiiuiiiiiiiiiiii
Samkvæmt upplýsing-
um, sem Morgun-
blaðið hefir fengið hjá
manntalsskrifstofu Rvík
ur, var íbúatala bæjar-
ins við síðustu áramót
S6103 og eru það 803
íbúum fleiri en í árslok
1936.
Konur voru í allmiklum
meirihluta við síðasta manntal
hjer í bænum, eða 19403 tals-
í«b, en karlar 16700.
Alls voru 169 götur í bænum
við síðustu áramót. Eftirtaldar
ffötur höfðu yfir 1000 íbúa:
Laugavegur 2282, Hverfisgata
1532, Grettisgata 1311, Njáls-
gata 1303, Hringbraut 1213 og
Bergstaðastræti 1163. Fæsta
íbúa höfðu þessar götur: Vall-
arstræti 2, Defensorvegur 2 og
Borgarvegur 3.
Síðustu árin hefir mannfjöld-
inn í Reykjavík verið sem hjer
»egir:
1937 36103
1936 35300
1935 34231
1934 32974
1930 28304
1928 25217
1926 23190
1920 17679
Mannfjöldinn í Reykjavík
hetfir m. ö. o. meira en tvöfald-
ast síðan 1920.
Poul Reumert
kemur í dag
Lyra er væntanleg hingað kl. 9
f. h. í dag-. Poul Reumert
keinur með skipinu. Þetta er í
fjórða sinn sem hann kemur hing-
að til lands.
t fyrsta skifti kom hann hing-
að vorið 1929. Þá Ijek hann hjer
í þrem leikritum, í „Genboerne“.
BándinU, eftir Strindberg, „Galge-
manden“ og auk þess ljek hanú
ásamt Onnu Borg þætti úr „Tar-
tuffe“.
Næsta skifti sem hann kom
hingað ljeku þau frú Anna og
hann síðasta þáttinn af Faust.
Auk þess las hann hjer upp nokkr-
um sinnum. En í síðasta skiftið
sem hann kom hingað kom hann
ekki á leiksvið.
í þetta sinn leikur hann, sem
kunnugt er í tveim leikritum. For-
sala aðgöngumiða að fyrra ieik-
ritinu, „Það er kominn dagur“,
byrjar í dag kl. 1 í Iðnó.
Pundi Starfsmannafjel. Reykja-
víkur, sem átt.i að verða í kvöld,
er frestað þav til um næstu helgi.
Fiskaflinn 25 þús. tonn á
öllu lanðinu
niMiiiiiMiiiiiiHiHiuiMiiinnimiiMiiia«Mfii»iifniNtuiimiimiiMMUiniiiNiiiiiMMiiiiiRniiiiiiimiiiiiiitiimiiiiMiiiiiiiiiitMiiiiiiim«i
Drengur
blður bana af
slysförum
Sjö ára gamall drengnr á Siglu-
firði, Páll Kristjánsson, son-
ur hjónanna Aðalbjargar Pálsdótt
ur og Kristjáns Sigtryggssonar
trjesmíðameistara, varð nndir
siglutrje síðdegis á sunnudaginn
var og marðist til bana.
Var Plll litli að leika sjer, á-
samt fleiri drengjum, við Tynes-
bryggju og var þar stórt nýsmíð-
að siglutrje, er lá óskorðað á
undirstöðum.
Alt í einu valt siglutrjeð út af
undirstöðnnum og yfir Pál.
Annar drengur slapp nauðulega
undau siglutrjenn — ómeiddur.
(Samkvæmt FÚ.).
Helmssýningin
I New York
Thor Thors segir frá
1 slandskvikmyndinni
Undirbúningur þátttöku ís-
lands í heimssýningunni
í Ne.w York er nú í fullum
gangi. M. a. er nú verið að
vinna að kvikmynd þeirri, sem
ráðgert er að sýnd verði á sýn-
mgunni.
Morgunblaðið hitti Thor
Thors, form. sýningarnefndar,
í gær og leitaði frjetta hjá hon
um um kvikmynd þessa. Hon-
um fórust svo orð:
Eins og kunnugt er, h,efir ver
ið ákveðið að sýna íslandskvik-
mynd á heimssýningunni í New
York. Er ætlast til þess, að
kvikmyndin veiti sem glegst yf-
irlit yfir atvinnuvegi þjóðarinn-
ar, einkum landbúnað og sjáy-
arútveg, en auk þess sje synt
ýmislegt markvert úr þjóðlífi ís
lendinga og ýmsir fegurstu
staðir á landinu. Þessi kvik-
mynd verður svokölluð mjó-
filma, þar sem auðveldara er
og ódýrara er að koma við sýn-
ingu á slíkri filmu en hinum
venjulegu breiðfilmum, sem
mest eru sýndar á kvikmynda-
húvsum.
Efnið í kvikmyndina verður
tekið úr tveim kvikmyndum,
sem þegar eru að nokkru leyti
til. Er önnur þeirra af landbún-
aðinum, og hefir Vigfús Sigur-
geirsson tekið hana fyrir Sam-
band ísl. samvinnufjelaga.
Hin er af sjávarútveginum,
og hefir Loftur Guðmundsson
tekið hana.
Báðar þessar kvikmyndir
verða auknar nú á næstunni, og
verður síðan gerð ein kvikmynd
úr báðum eftir vali sýningar-
ráðsins.
Kvikmynd Lofts Guðmunds-
sonar ,er breiðfilma, og er ætl-
ast til, að hún verði fullkomin
kvikmynd af sjávarútveginum,
Frú Þóra
Magnússon
áttræð
Frú Þóra Magnússon, ekkja
Jóns Magmíssonar forsætis-
ráðherra, er 80 ára í dag. Hún
fæddist í Reykjavík 1858 og hefir
alið mestan hluta æfi sinnar hjer.
Var hún ein af mörgum börnum
Jóns Pjeturssonar háyfirdómara
og seinni konu hans, Sigþrúðar
Friðriksdóttur Eggerz. Hún var
um langt skeið fremsta kona lands
ins, er hún var forsætisráðherra-
frú, og gegndi þeim störfum, er
þá hvíldu á henni, með hinni
mestu prýði, enda er hún tíguleg
kona og göfuglynd.
Nokkrir nánustu ættingjar henn
ar og vinir gefa henui í dag mál-
verk, er þeir hafa látið gera af
manni hennar, Jóni Magnússyni,
og hefir Asgeir Bjarnþórsson mál-
að. Hefir hún ákveðið að gefa AI-
þingi mynd þessa eftir sinn dag.
Að eins 4 þús. tonn-
um meiri en í fyrra
FISKAFLINN á öllu landinu var þann 15.
þ. m. 25664 tonn, en 21781 tonn á sama
tíma 1 fyrra, sem var eins og kunnugt
er með aflarýrustu árum, sem komið hafa.
Þann 15. maí næstu árin áður var heildaraflinn þessi:
1936 21267 tonn, 1935 39593 tonn og 1934 47952 tonn.
Úrvalsflokkur
kvenna úr Ár-
manni til Oslo
Akveðið er að með „Lyru“ á
fimtndaginn fari hjeðan úr-
valsflokkur kvenna í fimleikum
frá Ármanni á fimleikamót, sem
haldið verður í Osló dagana 26.—
28. þessa rránaðar.
Norðmenn hafa boðið fimleika-
flokkmim, bæði karla og kvenna,
frá öllum Norðurlöndum á mót
þetta og taka þátt í því nokkul'
þúsund manns.
Útlit var fyrir að þátttaka ís-
lendinga, yrði engin í þessu fim-
leikamóti, en vegna þess hve Norð-
menn hafa lagt mikla áherslu á
að sendur yrði flokkur hjeðán var
ráðist í að senda kvennaflokk.
A laugardaginn var fór svo fram
kepni milli kvenflokka úr K. R.
og Ármanni og að henni lokinni
var ákveðið að senda Ármaims-
flokkinn. '
Stúlkurnar verða 15 sem fara
til Osló. Æfa þær tvisvar sinnum
á dag þessa dagana, en áður vo.ru
æfingar hjá þeirn 4 sinmim í viku.
Jón Þorsteinsson, sem er kennari
fimleikaflokks Ármanns, stjórnar
sýningum flokksins í Osló.
Rafveitulðnið
ö Akureyri:
Samþykt að
taka tilboðinu
Tregða með
rikisábyrgð
Bœjarstjórnin á Akureyri
samþykti síðastl. laugar-
dagskvöld &ð taka lánstilboð-
inu til rafveitunnar, sem
henni hefir boðist. — Er
það 2. milj. króna lán hjá Han-
delsbanken og dönskum firm-
um til 25 ára og afborgunar-
laust fyrstu 3 árin.
Raunverulegir vextir lánsins
eiga að vera 5V4%- Ráðgert er
að 1/4, hluti lánsins verði inni-
frosið danskt fje hjer á landi.
Ríkisábyrgð er tilskilin og
fyrsti veðrjettur í rafveitunni.
En nokkur tregða virðist vera
á því að ríkisábyrgðin fáist,
enda þótt Alþingi hafi samþykt
að heimila ríkisstjórninni að
veita þessa ábyrgð fyrir 80%
af lánsupphæðinni. Á bæjar-
stjórnarfundinum á laugardags
kvöldið var samþykt að gera út
sendinefnd til fjármálaráð-
herra, og voru kjörnir í þessa
nefnd Steinn Steinsen bæjar-
stjóri, Indriði Helgason, Jónas
Þór og Steingrímur Aðalsteins-
son. Sýslumennirnir í Eyjafjarð
arsýslu, Sigurður Eggerz, og í
I Inj eyjarsýslu, Júlíus Hav-
steen, starfa einnig með í nefnd
inni. Þeir komu hingað til bæj-
arins í gær. Hinír nefndarmenn
irnir eru væntanlegir í dag.
Auk 2. miljóna króna láns-
ins stendur Rafveitunni til boða
300 þús. króna lán af inni-
frosnu fje til 20 ára án ríkis-
ábyrgðar, gegn öðrum veðrjetti
í Rafveitunni, og er það lánstil-
boð gefið gegnum Handels-
banken.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefir fengið hjá
Fiskifjelagi íslands skiftist afl-
inn þannig milli verstöðvanna.
Til samanburðar ,er aflinn eins
og hann var á sama tíma í
fyrra:
1938 1937
Vestmannaeyjar 5729 3716
Stokkseyri 260 231
Eyrarbakki 58 64
Þorlákshöfn, Selv. 194 162
Grindavík 816 592
Hafnir 232 194
Sandgerði 1584 1169
Garður, Leira 595 573
Keflavík, Njarðvík 2843 2191
Vatnsl.str., Vegar 128 92
Hafnarfjörður:
togarar 2274 2422
önnur skip 709 281
Reykjavík:
togarar 4319 4055
önnur skip 529 856
Akranes 1776 1499
Stapi, Búðir 25 34
Sandur 183 222
Ólafsvík 136 89
Stykkishólmur 41 17
Vestfirðingafjórð. 2287 1679
Norðlendingafjórð. 432 744
Austfirðingafjórð. 514 911
Samtals 25664 21781
Svifflugfjelag íslands hefir sótt
um 1000 króna styrk úr bæjar-
sjóði til þess að koma xipp flug-
skýli á Sandskeiðinu. Bæjarráð
mælir með þessari heiðni.
Vertíðin hjer á Suður- og
Suðvesturlandi er nú að fjara
út. Flestir bátar eru hættir
róðrum og togararnir munu nú
vera í síðustu veiðiför sinni, ef
ekki glæðist aftur afli þeirra.
Er því bersýnilegt, að við er-
um nú að fá þriðja aflaleysis-
árið í röð. Og við erum nú
þeim mun ver settir en s.l. ár,
að nú eru engar gamlar birgð-
ir fyrirliggjandi, en þær voru
við fyrri áramótin um 10 þús.
tonn. , ,,„hr
Japanar komnir til
Suchow
London í gær. FU.
'"lapanar segjast hafa náð valdi
Jf yfi rLimg-hai-járnbrautinni
bæði austan og vestan við Su-
chow.
Kínverjar bera aftur á móti á
móti því að Japanar sjeu nokk-
ui’sstaðar komnir að járnbrautinni.