Morgunblaðið - 26.05.1938, Side 7
Fimtadagur 26. maí 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Dagbók.
I.O.O.F. 5 = 1205262 = 0.
I.O.O.F. 1 = 1205278V2 9.0.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
WA- eða N-kaldi. Ejartviðri.
Veðrið í gær (miðv.d. ki. 17):
A-NA-gola eða kaldi er á flestum
•stöðum. Á N- og A-landi er sum-
staðar lítilsháttar úrkorna, og
sunnanlands hefir rignt dálítið í
dag. Hiti er mestur 9—10 stig á
Reykjanesi og í Rvík, annars 1—
9 st. Grunn lægð er skamt vest-
ur af Skotlandi á hreyfingu A,
en hæð yfir NA-Grænlandi.
Næturlæknir er í nótt Alfreð
Gíslason, Brávallagötu 22. Sími
3894.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Altarisganga í Hafnarfjarðar-
kirkju í kvöld. Sr. Garðar Þor-
steinsson.
Öll líkindi benda til þess, að
Baldur Magnússon cand. juris.,
sem fanst örendur í Skerjafirði í
fyrradag, hafi verið að taka sjer
sjóbað og fengið krampa af kuld-
anum, er hann druknaði. Lík hans
var afklætt þar sem það fanst og
lá á grúfu á sjávarbotni um 80
metra frá landi.
Sýning stendur nú yfir í Kenn-
araskólanum á teikningum skóla-
barna frá öllum Norðurlöndum.
Á sýningunni eru ca. 200 teikn-
ingar frá hverju landi (Noregi,
Svíþjóð, Pinnlandi, Danmörku og
Islandi) eftir börn á aldrinum 6—
14 ára. Teikningarnar hafa þeg-
Afmæli síra Friðriks
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
Um haustið fór jeg í 2. bekk
í Latímuskólanum. Er kom fram
á veturinn fór einn af fjelögum
mínum, Olafur Björnsson (síðar
ritstjóri) að tala um það við mig,
að jeg ætti að koma til hans sr.
Priðriks á kvöldm, er hann hjeldi
samkomur. Því það væru þau
skemtilegustu kvold, sem hann
þekti.
Næsta sumar varð faðir minn
i þráðkyaddmr. Daginn eftir kom
• *r. Priðrik heim til móður minn-
. ar. Síðan höfum yið verið vinir.
Er jeg í fyrsta sinn heimsótti
i’ hann hjerna á Skólavörðustígn-
ó> um: háifði jeg aldrei komið í eins
fallegt herhérgi og hans, með
' tmyndum og kertaljósum. Síðan
efu í suinar liðin 40 ár.
Síðan fakti ræðuihaður 'starf-
■emi K. P. U. M. í Melsteðsliúsi,
og eftir að bygt var við Ámt-
mánnsstíg, ri'fjaði upþ hve niikið
sr. Priðrik hefir verið fyrir fje-
t" lágsskáþmn, og alt gert sem hon-
:um hefir dottið í hug að gera
þyrfti. Þegar vantaði sálrna, þá
orti hann, þegar vantaði sálma-
lög. þá samdi hann þau, þegar
vantaði organista, þá'spilaði hann,
þegar gerð voru boð eftir að hann
ljeti starfsemi sína na til Hafn-
arfjarðar. þá hljóp hann mill
Rvíkur og Hafnarfjarðar í hvaða
veðri sein var. Og áður en nokk:
ur vissi var hann kominn til út-
landa. til Danmerkur, til Ame-
ríku, og hvar sem. hann hefir kom
ið, hefir starfið legið opið fyrir
honuih. Alstaðar hefir starfi hans
verið fagnað.
Hann er fæddur á Urbanus-
messu, á þeim degi sem nefndiur
«r eftir Urbanus páfa, þeim sem
hvatti til krossferða undir kjör-
orðinu: „Guð vill það“.
Með þetta kjörorð á vörum hef-
ir sr. Priðrik unnið sitt starf.
Þegar hann átti í baráttu við sjálf
an sig úta það, hvort hann ætti
að koma hingað heiin frá Dan-
mörku, þá hljómaði innri tödd í
sálu haný: „Guð vill það“. Og
síðan rákti ræðumaður í stórum
dráttum það mikla starf, sem sr.
Friðrik hefir unnið samkv. sinni
sterku innri köllun.
Að ræðu sr. Bjarna lokinni var
sunginn sálmurinn „Áfram Krists
menn krossmenn".
Þvínæst steig sr. Priðrik í ræðiu
stólinn.
Hann rakti m. a. nokkur at-
riði æfi sinnar, m. a. þau, sem
sagt er frá lijer á undan, með fá-
tæklegum orðum, en urðu á vörum
hans í þetta sinn um leið túlkun
hins mikla fagnaðar hans að hafa
orðið þeirrar lífshamingju aðnjót
andi, sem hann hefir hlotið fyrir
trú sína og starf í þjóniustu krist-
indómsins.
Hann komst að m. a. að orði
á þessa leið:
Jeg finn það vel, og jeg er
í dag - óendanlega þakklátur fyrir
það, hve mikillar hamingju jeg
hefi notið í lífinu, því vissulega
hefi jeg notið ríkari gleði en marg
ir aðrir.
Og ennfremur sagði hann:
Jeg er þakklátur vini mínum
sr. Bjarna fyrir að hann skyldi
í ræðu sinni hafa vitnað í kjörorð
krossferðapáfans mikla, „Guð vill
það“. Því grmndvöllurinn í starfi
mínu hefir verið einskonar hvöt
til krossferða, hvöt til manna að
frelsa það musteri, sem bygt er
í yður sjálfum, frelsa það frá van
trú, hálfvelgju, kæruleysi.
Það hefir verið mark niitt að
leiða menn til slíkra krossferða.
Þegar það hefir tekist, hafa það
verið sigurvinningar mínir.
Langt fanst mjer að bíða á 5.
ár fr| því jeg hóf starf mitt hjer,
þangað til jeg í fyrsta sinn lifði
þá stund, að einn af vinum mín-
um kraup við hlið mjer og baðst
fyrir svo jeg heyrði orð hans. Það
var sr. Bjarni Jónsson. Aldrei hefi
jeg frandið meiri yl fara um mig,
orðið þakklátari í starfi mínu.
Þá skýrði hann frá því, hvern-
ig hann á síðustu árum hefði dreg
ið sig í hlje í starfinu til þess að
láta yngri menn taka við, svo hann
gæti sjálfur sjeð með e.igin aug-
um að K. P. U. M. væri óhætt
þegar hann fjelli frá. Og að lok-
um bað hann bæn, en allir við-
staddír drupu höfði ög hlýddu
með andagt á hlýleikann, ástrík-
ið og trúnaðartraust hins sjötuga
æskuleiðtoga. V. St.
ar verið sýndar á öðrum Norðurl.
en ísl., við mikla aðsókn.
Væringjar þeir, sem ætla að
aðstoða við umferðarleiðbeiningar
í dag, eru beðnir að mæta kl. 1*4
á lögreglustöðinni.
Ylftngar Araa og Væringja.
Aliir Ylfingar ætia að mæta á
skrifstofu Slýsavarnafjelagsins í
dag kl. 2 e. h.
K. F. U. M. A.-D. Síðasti fund-
ur vorsins í kvöld kl. 8% í kvöld.
Sr. Pr. Priðriksson talar. Albr
karlmenn velkomnir.
Jarðarför Ingibjargar Gests-
dóttur ljósmóður fer fram á
morgun.
Knattspyrnuf jelag Reykjavík-
ur og Lúðrasveit Reykjavíkur
efna til skemtifarar upp á Akra-
nes næstk. sunnudag með s.s.
Súðin. Á Akranesi verða látnar
fara fram alskonar íþróttir svo
sem: Leikfimissýning (úrvals
leikfimisflokkur kvenna úr K.
R.), spjótkast (Kr. Vatnes),
víðavangshlaup (þátttakendur
hlauparar frá Akranesi og úr
K. R.), og verður kept um nýj-
an verðlaunabikar. Enn fremur
verður dansað í samkomuhús-
inu á Akranesi frá kl. 4—8 sd.
Lúðrasveitin spilar til og frá
Akranesi, einnig öðru hvoru
allan daginn. Hvergi á land-
inu er betri baðstaður en á
Akranesi, fyrir þá sem vilja
synda í sjó. Þar sem hjer ræðir
Ógurleg ólykt ætlaði alt að
drepa á Siglufirði í gær og var
þar varla komandi vit fyrir húss-
ins dyr, er símað að norðan. Orsök
in til ólyktarinnar var, að verið var
að flytja 7—8 þúsund mál síldar
úr 260 þús. króna síldarþrónni
hans Gísla Halldórssonar. Var
síldiu flútt í Hólmsbúið. Síldar-
verksmiðjur ríkisins gáfu búinu
þessa síld til að losna við hana
og greiddii þar að auki % af
flutningskoktnaðinum. Sílflarþróin
nýja kostaði ,260 þúsund krónur
og reyndist phæf -y;. nothæf þró
af sömu stærð myndi kosta nm
70 þúsund krónur.
Útvarpið:
(Uppstigningardagur).
9.45 Morguntónleikar: Tríó nr.
5, í G-dúr, og Divertimento í
Es-dúr, eftir Mozart.
19.20 Illjómplötur: Norðurlanda-
lög.
20.30 Hljómplötur: Ljett lög.
20.35 Erindi: Barnateikningar
(Ásgeir Ásgeirsson fræðslu-
málastj.).
21.00 Útvarpshljómsveitin leikur.
21.30 Hljómplötur-. Andleg tón-
list.
Föstudagur 27. maí.
19.20 Erindi umferðarráðsins:
Áfengið og u’.oferðarslysin
(Friðrik Á. Brékkan st.órt/'mpl-
ar).
20.45 Iiljómplötur:
a) Piðlusónata nr. 5, í f-moll,
eftir Bach.
b) Píanósónata, Op. 14, nr. 1,
eftir Beethoven.
Föstudaginii 27. mai vcrður
skrifslofu vorri og verksmiðju
lokað frá kl. 12 á hádegi, vegna
jarðarfarar.
Vinnufatagerð íslands h.f.
Altaf
sama
tóbakið
i Bristnl
Wmm
Sonnr okkar
Sigurður,
sem andaðist í Landsspítalantun 23. þ. m., verður jarðaður frá
Dómkirkjunni mánudaginn 30. þ. m. kl. 4. Athöfnin hefst með
bæn á heimili okkar, Fálkagötu 12 kl. 3. JarðaJð verður i Foss-
vogi. —
Anna Lárusdóttir. Önundur Jósopsson.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnmn, a& minn
elskaði faðir og eiginmaður
Bjarni Jónsson,
bóndi, Auðsholti, Biskupstungum andaðist á Landsspítalan-
um þann 24. þ. mán.
Vigdís Jónsdóttir og börn.
Jarðarför mannsins mins
Friðriks kaupmanns Jónssonar
fer fram föstudaginn 27. maí og hefst á heimili okkar Lauíás-
veg 49 klukkan 1 eftir hádegi,
Marta Jónsson.
Kveðjuathöfn yfir
Guðrónu Bjarnadóttur
frá Laugardælum fer fram. laugardaginn 28. þ. m. kl. 3.10 e.
hád., frá dómkirkjunni. Lílnð verður flutt ,út til bálfarar með
Brúarfossi sama dag. Athöfninni verður útvarpað.
Vandamenn.
Jarðarför
Ingibjargar Gestsdóttur
Ijósmóður fer fram frá þjóðkirkjunni og hefst frá heimili son-
ar hennar Bergstaðastræti 31 kl. 3y2 e. h. föstudaginn 27. þ. m.
. i ii Fyrir hönd aðstandenda
>' ■, ■_ ;í ‘Ut
Elísabet Arnadóttir.
*
Jarðarför mannsins míns, ,,
Einars Hjörleifssonar Kvaran
rithöfundar, fer fram frá fríkirkjunni laugardaginn 28. maí,
en hefst með bæn á heimilinu, SólvallagÖtu 3, kl. 1 e. hád.
Gíslína Kvaran.
Innilegt þakklæti fyrir alla þá miklu hluttekningu, sem
okkur hefir verið anðsýnd í sorg okkar og missi við lát eigin-
manns og föður okkar,
Pjeturs Páíssonar skrautritara.
Margrjet ísaksdóttir og böra.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, sem á einn eða
annan hátt vottuðu okkur samúð og hjálp við andlát og jarð-
arför litlu dóttnr okkar
Guðrúnar Jónu.
Sjerstaklega þökkum við hjónunum Guðrúnu og I»orsteini
Jónssyni og hörnum þeirra Sigríði og Bjaraa fyrir þeirra
miklu hjálp og samúð. ,> ,(í
Guð blessi ykkur öll.
Katrln Jónsdóttir. Guðmundur Kjartansson.
Nýlendugötu 11.