Morgunblaðið - 29.05.1938, Side 2
2
MORQlíNBLAriÐ
« *
«1111
I
3
B
3
1
a
- Austun fki —i
þung byrði I
London í gær. FO. |
| O amkvæmt grein, sem birt |
I er í þýsku tímariti um |
B
| verslunarmál, hefir samein-1
| iag Austurríkis og Þýska- |
| lands lagt Þýskalandi þunga \
| birði á herðar, frá sjónar- |
| miði viðskiftanna.
| Verslunarjöfnuður Þýska- 1
| lands útaf fyrir sig var hag-1
| stæður í apríl síðastliðnum, |
| en verslunarjöfnuður þýska I
i ríkisins að meðtöldu Austur- i
3 =
| riki, var óhagstæður um 7 |
| miljónir sterlingspunda.
| Er sagt í þessari grein, að \
| þess verði ef til vill langt að |
= bíða, að verslunarjöfnuðurinn |
| verði hagstæður fyrir bæði 1
| Austurríki og Þýskaland.
HmnmiiiiiiiHiiiiiiiiiiififiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiHiiiiu
Sókn Japana
I Suður-Kina
London í gær. FÚ.
FIMM hundruð manns
biðu bana, og jafn
margir særðust, í árás,
sem gerð var á Canton í
morgun, af japönskum
flugvjelum.
f tilkynninga, sem birt
er í Tokio í dag, segir, að
Japanir sjeu enn þá að
vinna á á Lung-Hai víg-
stöðvunum og að þeir hafi
tekið þar Lan-Feng, Tan-
Shan og Kweitei.
Kínverjar halda því enn
fram að þeir hafi náð Lan
Feng aftur úr höndum
Japana.
AIMðubifreiðar Hitlers
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Hitler lagði í gær homstein-
inn að nýrri bifreiðaverk-
smiðju, hinni svo nefndu al-
þýðubíla verksmiðju. — Verk-
smiðjan á að framleiða alþýðu
bíla, þ. e. bíla, sem alþýðu
manna er ekki um megn að
eignast, Þeir eiga að kosta
990 ríkismörk, og fást með
afborgun.
Þetta eru fjórsæta bifreiðar
og geta farið alt að 100 km.
á klukkustund. Þær eru mjög
eyðslulitlar á bensín.
Þegar Hitler komst til valda
1933, var það eitt af því fyrsta
sem hann setti sjer að marki,
að láta framleiða þessar al-
þýðubifreiðar (Volkswagen).
1 stað þess að nú eiga ekki
nema nokkur hundruð þúsund
manns bifreiðar í Þýskalandi,
er gert ráð fyrir að bílaeig-
endur verði innan skamms
orðnir 6—7 miljónir.
Guðfræðikandídatarnir Sigur-
björn Einarsson og Guðm. Helga-
son flytja prófprjedikanir sínar
í dómkirkjunni kl. 5 í dag.
Snnimdagnr 29. maí 1938.
Tiekkoslovakía: Annar hluti
Hernaðarsamvinna
Breta og Frakka
Frá frfettaritara varum.
Khöfn í gær.
AMVINNA Breta og Frakka í lofthernaðarmálum er
að hefjast. Yfirmaður franska loftflotans, Vuillemin,
kemur til London á morgun, ásamt fimm háttsettum for
ingjum. Opinberlega er látið í veðri vaka að þetta sje kurt-
eisisheimsókn, en í raun og veru er þetta upphafið að
hinni nánu hernaðarsamvinnu Breta og Frakka, sem sam-
komulag varð um, er Daladier og Bonnet voru staddir í
London í lok apríl.
Það er búist við að hinir frönsku hershöfðingjar fari í
kynnisför til bresku hernaðarflugstöðvanna í Englandi.
„Daily Herald“ skýrir frá því, að innan skamms muni
breskir flugmenn fara í heimsókn til Frakklands, til þess
að kynna sjer franskar flugstöðvar, þar sem enskar flug-
vjelar eiga að hafa bækistöðvar sínar í styrjöld.
Bæði árásar og vamarflugvjelar Breta fá bækistöð í
Frakklandi í ófriði.
kosninganna
Hættulegur áróður
Hjóðverja
Fré frf ettartíar* vrum.
Khöfn i gxr.
dag fer fram annar hluti bæjar- og
sveitastjórnarkosninganna í Tjekkó-
slóvakíu. Henlein hefir birt áskorun
til Sudeten-Þjóðverja um að varast árekstra við
Tjekka, svo að kosningarnar geti farið friðsam-
lega fram.
En nokkurs kvíða gætir í breskum blöðum um
horfumar. „Daily Telegraph“ skýrir frá því, að
þýsk blöð sjeu farin að gefa í skyn að Tjekkar láU
kommúnista fá vopn, og að her Tjekka sje óþveg-
inn skríll.
Tjekluur eru hræddir um að markmiðið með þessum
áróðri sje að telja fólki trú um, að ástandið í Tjekkósló
vakíu, sje eins og glundroðinn á Spáni.
„Berliner Tageb3att“ skrifar í dag, í sambandi rið þá fu!l-
yrðingu í öllum þýskum blöðum, að Tjekkar virði einskis loforð
sitt um að hindra að tjekknesfcar hemaðarflugvjelar fljúgi inn
yfir þýsku landamærin: „Stjómin í Prag hefir mist ált taúin-
hald og getur þess vegna ekki komið í veg fyrir bættúlega
árekstra.
Kommúnistar
og Stauning
Khöfn í gær. FÚ.
Kommúnistar í Danmörku
hafa gert nýja tilraun til
þess að koma á stofn samfylk-
ingu við jafnaðarmenn.
Stauning forsætisráðh. Dana
hefir vísað þessum samfylking-
armálaleitunum á bug, m. a.
með þeim rökum að svo fram-i
arlega sem játning kommúnist-
anna um hollustu sína við lýð-
ræðið sje ærlega meint, þá sjeu
þeir ekkert annað en klofnings-
flokkur, en ef þetta lýðræðis-
tal þeirra er ekkert annað en
yfirdrepsskapur þá er iaílt tal um
samfylkingu ekkert annað en
pólitískar brellur.
Hlutleysi
Norðurlanda
London í gær. FÚ.
Igær gáfu skandfinavisku
ríkin, Danmörk, ísland,
Finnland, Noregur og Svíþjóð
út sameiginlega jrfirlýsingu um
hlutleysisreg'Jur þær, sem fylgjá'
skyldi í þessum löndum, ef til
hemaðar kæmi. Eru reglumar
bygðar á Haag-sáttmálanum
frá 1907, en hafa verið endur-
skoðaðar með tilliti til nýrra
tækja í hemaði, svo sem kaf-
báta, flugvjela og útvarps.
Þessar saaneiginlegu hlutleys-
isreglur Norðurlanda höfðu
verið boðað á fundi utanríkis-
málaráðherra Dana, Svía og
Finna í vetur.
Hjúskapur. í gær voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Fann-
ey Oddsdóttir á Mosfelli í Mos-
fellssveit og Gunnar Daníelsson frá
Höfn í Borgarfirði, til heimilis
Laugarnesveg 69 í Rvík. Síra
Hálfdan Helgason gaf brúðhjónin
Fiskimjöl
til manneldis
i stórum stíl
Hiutafjelag stofn-
að til rekstursins
P21. maí var stofnað hjer
• blntafjelag til þess að not-
færa sjer nýjung Guðm. Jónsson-
ar verkfræðings um að framleiða
fiskimjöl til manneldis í stórum
stíl. Hefir Guðmundur unnið að
því máli um alllangt skeið og gert
tilraunir, sem gefa hinar bestu
vonir nm, að hjer geti orðið um
mikilsverða framleiðslu að ræða,
eins og áður hefir verið skýrt frá
hjer í blaðinu.
Hlutafjelagið, sem nú er stofn-
að, heitir h.f. Fiskur. Ern fjelags-
menn alls 23, hlutafjeð 40 þús.,
en heimild í lögum fjelagsins um
að auka megi hlutafjeð upp í 100
þús. kr.
í stjórn fjelagsins eru: Björn
Ólafs frá Mýrarhúsum, formaður
fjelagsins, Guðm. Jónsson, sem
jafnframt er framkvæmdastjóri og
Kristján G. Gíslason stórkaupm.
Undirbúningur er byrjaður að
því að koma npp vjelum, og er
búist við að starfrækslan geti
hyrjað í ágiíst næstkomandi. Er
ætlast til þess, að hægt verði að
vinna úr 5 tonnum af fiski á dag,
og verður mjöiið þá 1 tonn, sem
framleitt verður daglega.
Eins og áður hefir verið sagt
hjer frá, byggjast vonir manna
um framtíð þessarar framleiðslu
á því, að nýr fiskur er hjer svo
ódýr, að hægt verður að selja
manneldisfiskimjölið víðsvegar
um heim svo lágu verði, að það
verði lægra en samsvaran’di verð
er á nýjum fiski í viðkomandi
löndum.
London í gær. FÚ.
Þýsk blöð birta á framsíðum
eínum í dagr viðtal eem sagt
er að sje við Englending, sem
nýkominn sje frá Tjekkósló-
vakíu til Þýskalands, og fja'll-
ar það um vígbúnað þann, sem
Tjekkar hafa til undirbúnings
ófriði. Einnig birta þau nýjar
fregnir um flug tjekkneskra
hemaðarflugvjela inn yfir
landamæri Þýskalands.
Fyrir þetta hvortveggja gera
þau svo harðar árásir á stjóm-
ina í Tjekkóslóvakíu.
Ein frjett hermir að tjekk-
nesk flugvjel hafi flogið inn yf-
ir landamærin við Gmúnd. —^
Eiga sjónarvottar að hafa full-
yrt, að flugvjelin hafi aðeins
verið í 150 metra hæð, og að
maður er í henni var, hafi sjest
halla sjer út úr henni og beina
Ijó^myndavjel að ýmsum stoð-
um í nágrenningu. Hafi flug-í
vjelin sveimað um hríð yfir
staðnum, en síðan flogið inn yf-
ir tjekknesku landamærin með-
fram jámbrautarlínunni.
Berliner Tageblatt birtir
grein frá frjettaritara sínum
um viðbúnað mikinn sem nú
fari fram í Tjekkóslóvakíu, og
sýnir að þar er búist við að til
ófriðar geti komið þá og þegar.
Á veginum um Karlsbad eru
hlaðin vígi hvarvetna og á hæð
unum meðfram veginum, segir
frjettaritairi að komið hafi ver-
ið fyrir fjölda vjelbyssufylgsna
og að flestar þjóðbrautir við
landamærin hafi verið trygðar
með dynamiti. Víða hafi trje
verið feld þvers yfir vegi.
Dr. Hodza, forsætisráðherra
Tjekkóslóvakíu, hefir í dag átt
viðtal við nokkna af leiðtog-
um Sudetta, en þó ekki Hen-
iein.
Jarðarför Einars
H. Kvaran
Jarðarför Einars H. Kvaran rit
höfundar var mjög fjölm,enn.
^ar hvert sæti skipað í Fríkirkj-
tinni, enda þótt athöfninni þaðau
væri útvarpað.
Húskveðjuna að heimilinu á Sól-
vallagötu flutti samverkamaður
hans um mörg ár, sr. Kristinn
Daníelsson, en í kirkjunni fluttu
þeir ræður sr. Árni Sigurðsson og
sr. Jón Auðuns. Gáfu ræður þeirra
beggja mjög glögga og sfppa
mynd af rithöfundinum og mapn
vininum Einari Kvaran. ;
Þessir sálmar voru sungtj,ij'j í'
kirkjunni: „Þú Kristur ástviu ajls
sem lifir“ eftir Valdimar Snævarr,
„Þín náðin Drottinn nóg mjer
er“, eftir Einar H. Kvaran,
„Langt er flug til fjarra
stranda“ eftir Jakob Jóh. Smára,
og að síðustu Passíusálmurinn:
„Vertu Guð faðir, faðir ininn“.
Þórarinn Guðmundsson ljek ein
leik á fiðlu og Páll ísólfsson ein-
leik á orgelið.
Fjelagsmenn í Leikf jelagi
Reykjavíkur báru . kistuna í
kirkju, en frímúrarar úr kirkju.
85 ára verður á morgun, mánu-
dag 30. þ. m. húsfrú Soffía Magn-
úsdóttir frá Holti í Garði, nú bú-
sett, Brunnstíg 6 í Hafnarfirði.
Soffía er ennþá ern og úng í anda,
þrátt fyrir hinn háa aldur og
ýms ölduhvörf í lífsbaráttunni.
Hljómsveitin á Hótel ísland er
nú á förum hjeðan. Leikur hún
þar ekki lengur en til mánaða-
móta, og er því sjerstaklega vand-
að til hljómleikanna í dag í til-
efni af því.
Vigo, timburskip, er uýjtomið
með farm til timhurverslunarinn-
ar „Skógur“ og fleiri.
saman.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU