Morgunblaðið - 29.05.1938, Side 8

Morgunblaðið - 29.05.1938, Side 8
8 MORGHNBLAÐIÐ Sunnudagur 29. maí 1938. Lágvaxinn og rólyndur náungi sótti um næturvarðarstöðuna við verksmiðju eina. — Jeg er hræddur um, sagði forstjórinn, að þjer sjeuð ekki heppilegur í þessa stöðu. Við þurf- um á manni að halda, sem er stór og sterkur og sem ekki lætur sjer alt fyrir brjósti brenna. Hann verður að vera tortrygginn og sofa með opin augun ef svo mætti að orði komast, og vaknað við minsta hávaða. Við höfum not fyrir mann sem er hættulegur ef því er að skifta. — Nú skal jeg sækja konuna mína!, sagði manntetrið er hann hafði hlustað á ræðu forstjórans. ★ —Hvernig gengur það með pilt- inn, sem þú varst svo dauðskotin í við fyrstu sýn á dögunum? — Það var bannsettur svindl- ari. Heldurðu ekki að jeg hafi komist að því að húsbóndi hans átti bílinn sem hann ók! ★ Johnny Weissmúller leikur Tarzan aftur. Hann hefir ekkert leikið síðan Metro Goldwyn Mayer fjelagið seldi rjettmn til þess að kvikmynda Tarzan fyrir þrem ár- uni. Þessi ár hefir Johnny Weiss- múller ekkert haft að gera nema að hirða laun sín á hverri viku. Ennúhefir M. G. M. keypt Tarz- an-rjettinn aftur og Johnny fær aftur að róla sjer í trjám frum- skóganna sem Tarzan. Síðan 1918 hafa verið teknar 18 Tarzan-kvik- myndir. ★ Nýjasta tíska hjá leikurum í Hollywood er að taka börn, helst drengi, til uppeldis. Nýlega aug- lýsti Joan Crawford eftir töku- barni og fekk vitanlega fjölda tdboða. Meðal þeirra var 25 ára! gamall maður, sem vddi gerast uppeldissonur leikkonunnar, en umsókn hans var ekki sint. ★ ' — I hvað eyðir þú kaupinu þínu? — 30% fara í húsaleigu, 30% í föt, 40% í fæði og 20% í skemt- j anir. — En þetta eru 120%. — Já, því miður. 'k Demantasmyglari var handtek- inn nýlega á landamærum Júgó- slavíu og Austurríkis. Hann hafði dúlbúið sig sem grískavi prest og geymt demantana í fölsku skegg- inu. ★ Ahorfanda að reiptogi varð að orði: „Er ekki miklu fljótlegra að skera reipið með hníf, piltar ?“ ★ — Jeg á fjórar dætur en engan tengdason. — Jæja, jeg á aðeins eina dótt- ur, en aftur á móti hefi jeg átt fjóra tengdasyni. ★ Kennarinn: Það er aðeins einn nemandi í þessum bekk, sem ekki segir ósatt. Jón (segir lágt): Það er jeg. Kennarinn: Sagðir þú nokkuð, Jón? Jón: Nei. ★ MÁLSHÁTTUR: Kvinnan góð, kann hún flest að bæta. Stúlka vön saumaskap ósk- ast nú þegar. Smart, Kirkju- stræti 8 B. Sími 1927. ----i--------.--------------- Garðvinna, fljótt og vel af hendi leyst; lögum lóðir. Van- ir menn. Hringið í síma 2709, frá kl. 12—3. Útsvars og skattakærur skrif- &r Jón S. Björnsson, Klappar- stíg 5 A. Húsmæður, athugið: Rjettu hreingerningarmennirnir eru Jón og Guðni. Sími 4967. Sólrík stofa, með laugarvatns hita, til leigu, Barónsstíg 25. Ef vill aðgang að eldhúsi. ÍUC&yntibruftw Betania. Almenn samkoma í kvöld k!i. 814. Frú Guðrún Lárusdóttir talar. Allir vel- komnir. Heimatrúboð leikmanna, — Bergstaðastíg 12 B. Samkoma í kvöld kl. 8. Hafnarfirði, Linn- etsstíg 2. Samkoma í dag kl. 4 e. h. Allir velkomnir. d Hreingerning í fullum gangi. j Filadelfia, Hverfisgötu 44. Vanir menn að verki. Munið a8; Samkoma í dag kl. 5. Kristín Cyrol, hinn eini rjetti áburð- ur á gúmmídúk, hreinsar veL eg gerir hann gljáandi. Einnig- ágætur á linoleum. — Munið- ódýra bónið í lausri vigt. Þor- steinsbúð. Hringbraut 61, sími 2803. Grundarstíg 12. Sími 3247. Kaupi gíimían . Vald. P^ntmen, Klapparstíg 29 Húsmæður. Athugið, Fisk- búðin, Barónsstíg 59, hefir á- valt nýjasta og besta fiskinn.. Sími 2307. Hremgerningar, loftþvottur Sími 2131. Vanir menn. hjer er hinn rjetti Guðni G. Sigurðsson málari, Mánagötu 19. Símar 2729 og 2325. Otto B. Arnar, löggiltur út varpsvirki, Hafnarstræti 19. — Sími 2799. Uppsetning og við gerðir á útvarpstækjum og loft netum. Sokkaviðgerðin, Hafnarstrætl 19. gerir við kvensokka, stopp- ar 1 dúka, rúmföt o. fl. Fljót af- greiðsla. Sími 2799. Sækjurn, sendum. Geri við saumavjelar, skrár og allskonar heimilisvjelar. H. Sandholt., Klapparstíg 11. Sími 2635. Sjálfblekungaviðgerðir. — Varahlutir í sjálfblekunga á- valt fyrirliggjandi. Allar við- gerðir á sjálftílekungum. OrkinI P^PP\aS-D6~BVtANGA-VtMUjNH Sæmunds og Eric Ericson, á- samt fleirum, vitna. Allir vel- komnir! Friggbónið fína, er bæjarins bfcsta bón. Slysavarnafjelagið, skrifstofa Hafnarhúsinu við Geirsgötu Seld minningarkort, tekið móti gjöfum, áheitum, árstillögum Tjöld og tjaldsúlur fyrirliggj- andi, einnig saumuð tjöld eft- ir pöntun. — Ársæll Jónasson — Re.iða- og Seglagerðaverk- stæðið. Verbúð nr. 2. — Sími 2731. Úrval af kjólum og blúsum. Saumastofa Guðrúnar Arn- grímsdóttur, Bankastræti 11. Sími 2725. Vjel&reimar fást bestar hjá Poulsen, Klapparstíg 29. sái&j íbúöir stórar og smáar, og her- bergi, Leigjendur einhleypa og heimilisfeður, Stúlkur í vist, Kaupendur að hverju því, sem þjer hafið aS seíja. Muni sem þjer viljið kaupa. Nemendur í hvaða námsgrein sem er. Smá- auglýsingar Morgunblaðsins eru lesnar í hverju húsi. Best að auglýsa í Morgunb1 aðinu. FAITH BALDWIN: EINKARITARINN. 53. Mig langar til þess, að þjer finnið“, sagði hann og rödd hans varð djúp, „að jeg er vinur yðar“. „Að jeg elska yður!“, hrópaði hjarta hans, „mun altaf elska þig, Anna!“ Anna hafði engan að leita til. Ekki gat hún talað við foreldra sína. Eða Ted? Hún vissi, hvað hann myndi segja. Og ekki gat Betty Ho- ward kjálpað henni, þó að hún væri góð vinkona henn- ar. Henni fanst hún vera algerlega hjálparvana. Hún gat ráðið fram úr ýmsum erfiðleikum á skrifstofunui fyrir Fellowes. En hún gat ekki ráðið fram úr sínúm eigin vandamálum. Hún fann, að hún gat ekki barist ein, og þessi maður var sterkur og keilbrigður í hugs- unarhætti. Hún gat -treyst honum. Og hún elskaði hann. Hún byrjaði að segja honum alla söguna, stamandi, rneð tárin í augunum. Og að lokum sagði hún honum samtal sitt við Dolly, eða rjettara sagt nokkuð af því. „Hún gaf mjer loforð sitt“, sagði hún. „Af því að hún varð skelkuð. En ef hún sjer hann, eða heldur, að jeg fari með rangt mál, veit jeg ekki, hvað hún kann til bragðs að taka. Hún er mjög þrá, M,r. Fell- owes“. Fellowes hlustaði á hana með alvörusvip og sagði síðan. „Þjer verðið að koma henni úr þessum fjelagsskap. Gætuð þjer ekki búið með henni í bænum, leigt íbúð fyrir ykkur tvær?“ „Mjer hefir aldrei dottið það í hug“, svaraði Anna hugsi á svip. „En myndi hún fallast á það?“ „Já, það hugsa jeg. Við erum mjög samrýmdar. Ef jeg gæti fengið íbúð og gert hana, eins og henni lík- aði-----sagði Anna vongóð. „En ef þjer gerið það, skuluð þ.jer ekki vera of ströng við hana, nema viðvíkjandi þessum eina manni. Hún er vön frjálsræðinu“. „Jeg veit það. Bara, að hann færi burt úr hænum, þá held jeg, að alt myndi lagast af sjálfu sjer“. „Sjáum nú til. Reynið að fá að vita fult nafn hans. Jeg á áhrifamikla vini í lögreglunni. Jeg hugsa, að það megi auðveldlega koma því svo fyrir, að hann fái aðvörun frá lögreglunni, um að hafa sig á burt úr New York þegar í stað“. „Ef þjer gætuð það — ef hann færi burt“, sagði Anna og glaðnaði heldur yfir henni, „myndi Dolly fara með honum“. „Það væri ennþá hetra. Reynið að fá að vita nafn hans í kvöld. Þjer getið síðan símað heim til mín og látið mig vita“. „Jeg er yður mjög þakklát“. „Það megið þjer ekki vera. Jeg geri ekki nándar nærri nógu mikið fyrir yður“. Iljarta hans barðist af viðkvæmni. Hann hafði aldrei sjeð hana frá þessari hlið áður, svona hljúga og skelk- aða. En hún var honum enn kærari en áður fyrir bragðið. Þegar hún var farin, leit hann á hönd sína, sem hann hafði ósjálfrátt kreft, og undraðist stórum, að hann skyldi hafa getað stilt sig um að taka hana í faðm sinn og hugga hana — og sjálfan sig. Þegar Anna kom til Kathleen um kvöldið var hún óþreyjufull og iðraðist eftir loforðið, var á verði gegn Dolly, og öllu, sem hún hafði sagt; þóttist viss um, að það væri ósatt. Anna fekk hana þó til þess að lofa því að hitta ekki manninn í næstu tvo daga. Hún komst, líka eftir því, að hann gekk undir hinu tilgerðarlegá nafni, d’Argent, og fór út, td þess að segja Fellowes það og lieimilisfang hans í síma. Tveimur dögum síðar fór Mr. Georgie d’Argent skyndilega úr borginni, án þess svo mikið sem 'að senda Kathleen kveðju. En Anna fekk noklcrar línur frá Dolly: „Jeg skil ekki, hvernig þú hefir komið því til leið- ar“, skrifaði hún. „Georgie og jeg förum burt frá New York sitt með hvorri lest. Hann hefir lofað að hegða sjer vel. Jeg sendi þjer sneið af brúðarkökunni —- meðan hann er í þessu skápinu vill hann kvænast mjer,/Og er feginn í tilbót. Jeg er búin að fá loforð f.yrir atvinnu“, sagði hún að lokum „og' er í sjöunda liimni“. Brjefið var undirskrifað með fjólubláu blekk „Þín hamingjusama Dolly“. Anna sýndi Kathleen brjefið. Hún las það, fleygði því á gólfið og trampaði ofan á það. „Hún er lævís eins og köttur“, sagði hún grátandL „Hann getur ekki hafa elskað þig mjög heitt“, sagði Anna, særandi af ásettu ráði. En Kathleen flýði inn í svefnherbergi sitt og lokaði sig inni. Anna ljet hana í friði um tíma eftir þetta. En hún talaði við foreldra sína og sagði þeim, að liún ætlaði að flytja til borgarinnar. Þrátt fyrir tár Molly og nöldur Murdoeks, hjelt hún fast við sinn keip. „Kathleen líður ekki vel með þessum vinkonum sín- um“, sagði hún. „Hún getur ekki verið heima, þar sem það er miklu hentugra fyrir hana að búa í borginni. En það er ekki gott fyrir hana að búa ein, svo að það er best fyrir okkur að leigja saman. Þú mátt ekki gráta, mamma. Jeg kem oft heim. Það er í raun og veru betra fyrir mig að búa í New York, fyrst jeg vinn svona oft á kvöldin“. Seinna spUrði Molly af sinni gömlu skaípskygni-. „Hefir Kathleen gert eitthvað af sjer?“ „Nei, góða mamma“; svaraði Anna. „En Ltin er ung, og mjer líst ekki á þá kunningja, sem hún umgengst. Hún flytur ekki heim aftur, svo að það er betra, að við búum saman“. Móðir hennar kinkaði kolli, hughraust að venju.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.