Morgunblaðið - 01.07.1938, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagnr 1. júK 1938.
Hore Belisha, hermálaráSherra
Breta
Hergagnasend-
ingar Þjóðverja
til Kína
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Til viðbótar við þá kröfu
(sem þýska stjórnin hefir
þegfar orðið við) að kaila heim
þýska hernaðarsjerfræðinga, er
starfað hafa með Chiang Kai
Shek í Kína, krefjast Japanar
þess nú, að Þjóðverjar viður-
kenni stjórnina í Peking, sem
er vinveitt Japönum eða nokk-
urskonar leppstjórn þeirra.
Einnig krefjast Japanar þess,
að Þjóðverjar hætti að selja
’Kínverjum hergögn.
En Þjóðverjar hafa frá því
að styrjöldin í Kína hófst, selt
Chiang Kai Shek hergögn og
hafa þau verið send bæði sjó-
leiðina um Hong Kong og land-
leiðina um Rússland. Þjóðverj-
ar.hafa fengið allmiklan gjald-
eyri í aðra hönd.
Þjóðverjar virðast hafa lof-
að> því að draga úr vopnasöl-
unni, en vilja þó ekki alveg
missa af gulli Chiang Kai
Sheks.
En Þjóðverjar hafa neitað að
viðurkenna stjórnina í Peking.
SKÓLASKIPS SAKNAÐ
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Blöð í Gautaborg skýra
frá því, að menn sjeu
farnir að óttast um skóla-
skipið „Admiral Karpfan-
ger“, sem er eým Hapag-
línunnar. Fimtí^æiærlingar
eru um borð.
Skipið fór fram hjá Kap
Horn í mars síðastliðnum
og var á leiðinni frá Suður-
Ástralíu til Evrópu.
Síðan hefir ekkert til
þess spurst.
Frá Rauða Krossi fslands. Nýr
formaður er kosinn, Gunnlaugur
Éínarsson, læknir, en varaformað
ur, Sigurður Sigurðson, berkla-
yfirlæknir, í stað þeirra dr. Gr.
Claessen og próf. Guðm. Thorodd
’^en, er báðir sögðu af sjer 30.
júní. (Tilk. frá R. Kr. ísl. — PB.)
verður Schuschnigg látinn
Hundruð manns larast I jarð-
skjálftum og mesta ofveðri sem
komið hefir f Japan f 60 ár
•
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
örg hundruð manns hafa farist og hálf miljón
orðið heimilislausir í ofsaveðri, sem geysað hef-
ir í Japan undanfarna tvo daga. Ofan á fellibyl
og skýfall hafa í dag bætst jarðskjálftar í Tokio og Yoko-
hama. Mörg hundruð hús hafa hrunið.
Annað eins óveður og geysaði í gær og í fyrradag hef-
ir ekki komið í Japan í undanfarin sextíu ár.
Rigningarnar hafa valdið óhemju vatnavöxtum, og
liggja stór svæði undir vatni. Hrísekrur hafa e.yðilagst og
samgöngur stöðvast. Tokio er að heita má einangruð.
Hundrað og fimtíu þúsund hús, sem liggja lágt, í To-
kio, eru undir vatni. Á e,inum stað hafa sextíu lík verið
grafjn undan húsi, sem hrunið hafði til grunna.
Á öðrum stað hefir jarðhrun orðið 40 mönnum að bana.
Jarðhrun hafa orðið á 107 stöðum.
Tjón á mannvirkjum er metið á mörg hundruð miljón-
ir króna.
„sæta ábyrgö
gerða^inna“
Ljet taka 13 manns
af líftí ólöglega
— segir sendimaður Hitlers.
London í gær. FÚ.
iirckel sendimaður Hitlers í Austurríki
sagði við hlaðamenn í dag, að ekki
væri nema sanngjarnt að dr. Schusch-
nigg fyrverandi kanslari yrði kallaður fyrir rjett
og látinn sæta áhyrgð gerða sinna.
Hann sagði að dr. Schuschnigg væri 1 Vín-
arborg. i ' «
Það væri ekki á sínu valdi að skipa málshöfðun gegn
Schuschnigg, en í stjórnartíð hans hefði Schuschnigg látið taka
ólöglega af lífi 13 menn fyrir pólitískar sakir og myndu 30 aðr-
ir menn hafa verið teknir af lífi á sama hátt, ef almenningsáljt-
ið hefði ekki komið í veg fyrir það. IL
Breski þingmaðurinn
verður ekki kallaður
fvrir.herrjett
London í gær. FÚ.
. ... £4. . . .»•*.. trm !'
Nefndin, sem í gær var skip-
uð i neðri málstofu breska
þingsins, til þess að atktiga
hvort gengið hefði verið 1%,,
rjett þingsins og Mr. Sandys
sem þingmanns, með því að
skipa honum að mæta í rann
sóknarrjetti í einkennisbún-
ingi sínum sem liðsforjngi í
breska hemum, hefir þegar
skilað áliti sínu. Nefndin
komst að þeirri niðurstöðu,
að herstjórnin hefði ekki haft
neina heimild til þess að
kveðja Mr. Sandys á þennan
hátt fyrir herrjett.
Engin lagafyrirmæli eru þó,
sem ná til mála sem þessa.
Mr. Chamberlain, forsætis-
ráðherra, sem tilkynti niður-
stöðu nefndarinnar, skýrði
frá því um leið, að það eina,
sem nefndin hefði haft við
að styðjast, væri úrskurður
frá árinu 1641, þar sem tek-
ið er fram, að þingmenn
megi ekki nota sjerrjettindi
sín á þann hátt, að það geti
orðið til tjóns fyrir ríkið.
Hore Belisha, hermálaráðherra,
sagði að í brjefi því, sem
honum barst frá Mr. San-
dys, hefði verið nákvæmlega
skýrt frá því, hvar koma
skyldi fyrir landvarnarbyss-
um, hve margar þær skyldu
vera, og hvaðan þær skyldu
fengnar. Brjefið hefði borið
með sjer, að þingmaðurinn
hefði fengið vitneskju um at-
riði, sem hvergi er að finna
nema í leynilegum skjölum
herforingjaráðsins, sem
merkt eru „leynileg“ og eiga
að vera undir lás.
Brjefið hefði ennfremur borið
með sjer, að þingmanninum
var kunnugt um breytingar,
sem gerðar hefðu verið á hjn
um upphaflegu ráðstöfunum
um tölu og gerð á landvarn-
arbyssunum. Mr. Sandys
hefði beðið sig að tilkynna
sjer skriflega, hvort þéssar
tölur væru rjettar.
Hermálaráðherrann kvaðst
hafa farið með þetta brjef
til forsætisráðherrans og for
sætisráðherrann boðið hon-
um að leggja það fyrir dóms
málaráðherrann með fyrir-
mælum um, að rannsaka á
hvern hátt uppljóstrunin um
þetta atriði hefði átt sjer
stað.
Attlee hóf umræður út af úr-
skurði nefndarinnar, og Sir
Archibald Sinclair, leiðtogi
frjálslynda flokksins, talaði
á eftir honum. Þeir Iögðu
báðir áherslu á það, að það
væri óþolandi að þingmenn
hefðu ekki fullan rjett til
þess að gagnrýna ekki ein-
ungis gerðir stjórnarinnar,
heldur og herforingjaráðs-
ins. Þingið hefði æðsta
valdið.
Winston Churchill, sem er
tengdafaðir Mr. Sandys,
sagðist hafa verið innanrík-
isráðherra, þegar lögin um
leyndarmál hins opinbera
voru samin. Tilgangurinn
með þeim hefði eingöngu
verið sá, að vernda landvarn
irnar, en ekki sá að skýla
þeirri stjórn, sem vanrækti
þær. Þeir, sem vissu hvernig
háttað væri um landvarnir
Breta, hlytu að hafa áhyggj-
ur af ástandinu og stjórnin
þyrfti ekki að halda, að er-
lendum ríkjum væri ekki
ennþá kunnugra um það en
Bretum sjájfum.
Búrckel ræddi við blaðamenn
um ástandið í Austurríki yfir-
leitt.
Hann sagði meðal annars, að
alls hefðu verið teknir fastir
3700 pólitískir fangar og væru
um helmingur þeirra Gyðingar.
Hann sagði að innan skams
mundi verða gefin út lög, varð-
andi Gyðinga, og að þeir yrðu
epgum ólögum beittir, enda
hefði verið farið að öllu lög-
lega gagnvart Gyðingum í Aust
urríki fram til þessa.
Þýskar Junker-
flugvjelar áSpáni
London í gær. FÚ.
Ifrjett frá spönsku stjórn-
jnni er skýrt frá því, að
6 Junker-flugvjelar hafi í dag
varpað sprengjum í grend við
Tarragona og hafi allmargir
menn særst. 10 Junker-flugvjel-
ar segir stjórnin að hafi gert
árás á Badalona, skamt fyrir
utan Barcelona, og 36 manns
farist, en 75 særst.
Loks ,er sagt, að Denia hafi
orðið fyrir loftárás í morgun,
en ekkert manntjón orðið þar.
Sagt er að 6 Junker-flugvjelar
hafi tekið þátt í þeirri loftárás.
HEFIR HÚN
HERNAÐARLEGA
ÞÝÐINGU?
Spánska stjórnin hefir sent
breska utanríkismálaráðuneyt-
inu tilmæli um að óháð nefnd
verði send til Blanes á Spáni,
til þess að rannsaka hvort þar
sjeu nokkur mannvirki, sem
hafi hernaðarlega þýðingu.
Blanes varð fyrir loftárás
snemma í morgun og biðu 9
manns bana, en 34 særðust.
Blanes er smábær á austur-
strönd Spánar, um 50 km. fyrir
norðan Barcelona.
„Lyra“ fór í gær kl. 7 áleiðis
I til Bergen.
—Djoflaeyjan—
ekki lengur fangaey
London 30. júní. FÚ.
ranska stjórnin gaf í dag
út tjlskipun um það, að
leggja skuii niður franskai"
fanganýlendur í Guiana í
Suður-Anierík«. Frægust
þessara nýlendna er Djöfla-
ey- .
Verða engir fangar flutt-
ir til þessara nýlendna hér
eftir, en þeir, sem þegar erú
komnir þangað, verða látn-
ir vera þar út hegningae-
tíma sinn.
í greinargerð fyrir þéss-
ari ráðstöfun segir, að dvöl-
in í fangabúðunum hafi eng
in betrandi áhrif á fangana
og hjálpi þeim ekki á neinn
hátt, til þess að verða nýtir
menn að fangavistinni lok-
inni. Auk þess bíði Frakkar
eingöngu álitshnekki við
það, að eina nýlendan jæirra
í Suður-Ameríku skuli vera
notuð sem fanganýlenda.
Síldaiflotinn liggur
aðgeröarlaus
Engin síld hefir borist á
land síðustu daga, enda
ekkert veiðiveður. Flotinn ligg-
ur allur við land á dreifðu
svæði frá Aðalvík að vestan til
Langaness að austan, símar
frjettaritari vor á Siglufirði.
I fyrradag fóru mörg skip
út, en komu aftur samdægurs,
þar sem ekkert var hægt að að-
hafast og engin síld sást. —
Skipin hreyfðu sig ekki í gær.
Kuldi er afarmikill nyrðra
og á næturnar snjóar í fjöll og
niður í bygð.
Allar verksmiðjur hafa nú
stöðvast, þar sem ekkert er til
að vinna úr.