Morgunblaðið - 19.07.1938, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 19. júlí 1938.
að vakti mikið umtal í vetur,
að presti einum, Philipsen að
nafni, í Gram á Suður-Jótlandi
var stolið. Hálfsturlaður tugthús-
limur fekk einfalda menn sjer til
aðstoðar til þess að narra prestinn
ofan í stóran kassa. Og síðan óku
þeir með kassan út í skóg. En
prestur slapp brátt úr prísund-
inni — og ómeiddur.
Nú þótti það saga til næsta bæj-
ar hjer á dögunum, er sama presti
var „stolið“ aftur, eða svo var það
kallað.
Mæðgur tvær, sem eru nágrann-
ar hans, höfðu haft við hann
makaskifti á akurspildum. En
þegar því máli var lokið voru þær
óánægðar með þau viðskifti og
fanst að prestur liefði gabbað sig.
Báru þær þungan hug til prests,
og fóru ekki dult með.
En þó var það einn góðan veð
urdag, að dóttirin kom heim á
prestsetrið og bað prest að koma
heim til móður sinnar, sem lægi
fyrir dauðanum. Og prestur brá
skjótt við- En þegar þangað kom
var gamla konan hin hressasta.
Lokuðu þær prest inni, og ljetu
skammirnar dynja yfir hann.
Slapp hann úr klóm þeirra með
því að klifra út um glugga.
★
Við síðustu áramót voru, að því
er hagskýrslur sýna, 87 miljónir
utvarpstækja í heiminum.
★
í New York er kauphöll ein
sem verslar með hugmyndir fyrir
skáld og kvikmyndamenn, og not-
hæfa „brandara“. Sagt er að fyrir
meðal birtingarhæfa fyndni sjeu
greiddir þar 2 dollarar.
★
Samanlögð lengd járnbrauta í
heiminum er talin vera 1.220.000
kílómetrar.
í Ameríku eru menn farnir að
setja sjálflýsandi efni á bílaj svo
þeir sjáist betur í myrkri.
★
í Indlandi vildi eftirfarandi
sorglegi atburður til nýlega.
Kennari einn í sveitaskóla hafði
lokað 7 ára gamlan dreng inni í
kjallaraherbergi, vegna þess að
hann hafði sýnt einhverja óþekt í
skólanum.
En er kenslunni var lokið
gleymdi kennarinn að líta eftir
drengnum, svo ekkert var um hann
hirt fvrri en dagur leið að kvöldi
og foreldrar hans komu til að
svipast eftir honum.
Er kjallaraherbergið var opnað
var þar ófrýnilegt um að litast.
Inn í lierbergið hafði stór slanga
skriðið — og hún hafði gleypt
drenginn. Slangan var skotin sam-
stundis og rist á kviðinn.
Það bætti ekki um hörmungar
foreldranna er það kom í Ijós, að
lítilsháttar lífsmark fanst með
drengnum, er hann var tekinn út
úr slöngunni.
★
Amerísk tískublöð ræða mikið
um nýja uppfinningu, en það er
mismunandi litur sígarettureykur.
Segja tískublöðin að menn ættu
eingöngu að reykja sígarettur með
sama reyklit og fötin sem þeir
ganga í!
★
Bandaríkjamaður einn, Mr.
Health að nafni, er ákafur fylg-
ismaður danslistarinnar. Hann
heldur því fram, að ef allir menn
kynnii að dansa, myndi verða
eilífur friður í heiminum.
★
MÁLSHÁTTUR:
Nýtt fat kann að auka fríðleik-
ann.
Vil kaupa möítul. Bókhlöðu-
stíg 11. Sími 3855.
Ikiblúsur, fallegt Úrval. —
Versl. Kristínar Sigurðardóttur.
Stærsta úrval af nýtísku
silkiundirfatnaði kvenna, ung-
linga og barna. Vönduð sett frá
kr. 9.85. Versl. Kristínar Sig-
urðardóttur.
Sumarkjólaefni, Sumarkápu-
efni, Dragtaefni og Svakker-
efni. Nýjasta tíska. Einnig
sloppaefni og silkikjólaefni ný-
komin. Versl. Kristínar Sigurð-
ardóttur.
Fallegt úrval af sumarkápum
og sumarfrökkum. kvenna. Á-
gætt snið. Tískulitir — lágt
verð. Versl. Kristínar Sigurðar-
dóttur.
Nýtísku Golftreyjur og
prjónapeysur kvenna., mikið úr-
val. Telpna- og drengjapeysui',
háleistar, ullarsokkar á drengi,
silkisokkar — afar lágt verð.
Versl. Kristínar Sigurðardóttur.
Slifsisborðar í miklu úrvali,
nýkomnir. Versl ,,Dyngja“.
Kaupi gamlan kopar. Vald.
Poulsen, Klapparstíg 29.
Vjelareimar fást bestar, hjá
Poulsen, Klapparstíg 29.
I sumarfríið og sólskinið fáið
þjer ódýra, hvíta og mislita
kjóla hjá Guðrúnu Arngríms-
dóttur, Bankastræti 11. Sími
2725.
Flugnaslör fást í Hatta &
Skermabúðinni, Austurstræti 8.
Fullvissið yður um að það sje
„FREIA“ fiskfars, sem þjer
kaupið.
Úrval af þýskum sumarkjóla-
efnum nýkomið. Saumið sumar-
kjólinn sjálfar. Kaupið í kjólinn
hjá okkur og þjer fáið hann snið
inn, mátaðan eða alveg saum-
an, með stuttum fyrirvara. Alt-
af fyrirliggjandi tilbúnar blús-
ur og kjólar. Saumastofan Upp-
sölum, Aðalstræti 18.
Sumarkjólaefni. Frotti- og
strigaefni, ódýr. Morgunkjóla-
efni, Köflótt ullartau í kjóla og
Svaggera. Flauel, svört og mis-
lit. Pilsaefni. Peysufataklæði.
Peysufatasatinið viðurkenda.
Mjög fallegar slæður. Hárnet,
sterk og góð. Slifsi og silki-
svuntuefni margar tegundir. ís-
garnssokkar. Silkisokkar, fleiri
gerðir og margt margt fleira.
Verslun Guðrúnar Þórðardótt-
ur, Vesturgötu 28. Sími 1670.
Nýkomin sumarefni, röndótt,
rósótt, einlit. Fóðurefni í mörg-
um litum. Millifóðurstrigi. Vatt.
Silkitvinni. Smellur o. fl. Sauma-
stofa Ólínu og Bjargar, Ingólfs-
stræti 5. Sími 3196.
Wtm wm. —
F iðurhreinsun.
— Við gufu-
hreinsum fiðrið
úr sængurfötum
yðar samdæg-
urs. — Fiður-
hreinsun íslands
Sími 4520.
Kunststopning — Invisible
mending. Ofin saman slysagöt
á allskonar fatnaði. R. Stein-
dórs'. Ránargötu 21.
Bikum þök. Vanir menn.
(Benedikt) Sími 4965.
Otto B. Arnar, löggiltur út
varpsvirki, Hafnarstræti 19. —
Sími 2799. Uppsefning og vi6
gerðir á útvarpstækjum og loft
netum.
I. O. G. T.
St. Verðandi nr. 9. Fundur
í kvöld kl. 8. 1. Inntaka nýrra
fjelaga. 2. Sveinn Jónsson flyt-
ur erindi. 3. Frásögn af Þykkva.
bæjarför (S. G.) o. fl.
Friggbónið fína, er bæjarinfc
be3ta bón.
Lítið rólegt forstofuhe -
bergi óskast 1. ágúst. Tilboð:
auðkent „20“ sendist Morgun-
blaðinu.
Herbergi með húsgögnum,.
helst í Vesturbænum, óskast
fyrir þýskan stúdent, frá 1. sept.
Uppl. í síma 1318.
M.aður, sem hefir áreiðanlega
vinnu, óskar að fá tvær stofur
og eldhús 1. sept. Uppl. í síma.
3585, kl. 5—7 í kvöld.
Hvort heldur er um „Ka-
rikatur“-teikningar Stróbls*
að ræða eða aðrar m.yndir,
^eta allir verið sammála um
að innrömmunin er best ogr
ódýrust hjá
GUÐM. ÁSBJÖRNSSYNI,
LauKaveg 1.
EGGERT CLAESSEN
hœstar j e ttar mál afl utningsmaCnr,
Skrifstofa: Oddfellowhúsið,
Vonarstræti 10.
(Inngangur um austnrdyr).
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ
EKKI-----ÞÁ HVER?
MARGARETPEDLER:
DANSMÆRIN WIELITZSKÁ 2.
*
leggir hennar lokuðust utan um hinn litla líkama,
með eigingjörnu og afbrýðissömu látbragði. En það
var engin blíða í hreyfingum hennar. Með óþæginda-
kend datt honum í hug, að hún væri eins og ránfugl
með bráð sína.
Hann sneri sjer þögull og hljóður út að gluggan-
um aftur og var svo niðursokkinn í hugsanir sínar,
að hann heyrði ekki, þegar hurðin lokaðist á eftir
Katrínu.
Hvað hafði hún sagt?
„Guð hefir tekið refsinguna í sínar hendur“.
Hugh skildi vel, hvað hún meinti. Hann hafði orðið
aðal-erfingi við dauða eldri bróður síns. En hann átti
engan yngri bróður, sem gat tekið við af honum. Ef
honum fæddist ekki sonur, myndi titill og óðalssetur
ættarinnar falla í blut frænda hans, Ruperts Vallm-
court, sem var viðfeldinn ungur maður, en sneiddur
allri siðferðistilfinningu.
En um það voru þau bæði, Hugh og Katrín, inni-
lcga sammála, að Rupert væri síðastur allra verðugur
þess að vera höfuð ættarinnar. Og því höfðu þau
beðið eftir því með brennandi eftirvæntingu, að sonur
og erfingi fæddist.
Hugh var gersamlega yfirbugaður af þessu óvænta
áfalli. Til þessa hafði hann mætt fyrirlitningu systur
sinnar á ráðahag hans, með uppgerðar kæruleysi; fund-
ið huggun í ástaratlotum Díönu og blíðu.
En nú var alt í einu eins og blæju væri lyft frá
augum hans, og hann sá hjónaband sitt frá, sama sjón-
armiði og Katrín.
Hann fyltist gremju í garð konu sinnar.
Hann var maður veiklundaður og reyndi því að
finna einhvern, er hann gæti kent um, að liann hefði
brugðist skyldu sinni sem Vallincourt. Og hann leitaði
ekki til emskis. Hann fann Díönu, yndislega, fín-
gerða veru, með rjóðar varir og hlíðleg, lokkandi augu.
Hurðin inn í herbergi hans opnaðist aftur Hann
sneri sjer við, gremjulegur á svip
„Hvað er nú?“, spurði hann stuttur í spuna.
f dyragættinni stóð hvítklædd hjúkrunarkona Hún
leit á hamí rannsakandi augnaráði, þegar hún heyrði
hinn hörkulega málróm. Sjálfsagt hefði hún verið
meira hissa, ef hún hefði ekki fyrir skammri stundu
staðið við sjúkrabeð hinnar ungu móður og heyrt sárs-
aukafult óráðshjal liennar:
„Jeg veit það vel. Þú óskar stundmn, að þú hefðir
aldrei átt mig. Jeg er ekki nógu góð fyrir þig. Og
Katrín hatar mig. Víst gerir hún það, hún vill spilla
á milli okkar. En þú getur ekki hatað mig, þegar þú
sjerð barnið mitt, Hugh? Barnið þitt — þinn eiginn
son---------“
„Ungu frúna fengar til þess að sjá yður. Eiginlega
þyrfti hún að hvíla sig, en hún er í of mikilli geðs-
hræringu til þess. Hún hefir verið að búast við yður“.
Það var greinileg ásökun í síðustu orðunum og Hugh
varð þungbúinn á svip.
„Jeg skal koma", svaraði hann jafn stuttur í spuna
og áður og gekk á eftir henni upp stigann og inn í
sjúkraherbergið. Hjúkrunarkonan dró gluggatjaldið
ofurlítið til hliðar, svo að lítill sólargeisli gægðist inn
og lenti á koddanum hjá Díönu, þar sem hún lá, lítil
og grönn, undir snjóhvítri silkidýnunni. Hún lyfti
höfðinu frá koddanum með eftirvæntingarfullu lát-
bragði.
„Hugh!“, eins og lágt vein kom nafn hans frá vör-
um hennar.
Hugh horfði á hana. Aldrei hafði hún verið fegurri.
Svipur hennar var alvörugefinn, hreinn og göfugur
eins og á Madonnu-andlifi.
Hún rjetti fi’am höndina, og ástúðlegt bros ljek um,
varir hennar.
„Hugh — mon adoré!“
Á sama augabragði vaknaði ást hans á ný. Hami sett1-
ist á rúmstokkinn Iijá henni og tók hana í faðm sinn.
Með innilega ánægjulegu andvárpi hjúfraði hún sig
lípp að honum og lagði höfuðið að brjósti hans.
Rjett í þessu heyrðist veikt hljóð úr horninu við
arinneldinn. Hugh hrökk við og leit af konu sinni á
Virginíu gömlu, sem sat með barnið í fanginu og raul-
aði vögguvísu frá Bretagne.
í sömu svipan mundi hann alt.
Díana, sem fann, að faðmlag hans slappaðist, leitr
upp, kvíðafull og hrædd. Ilún horfði á hann rannsakr
andi augnaráði, og þá skildi hún----------- ;
„Hugh“! Blíðan var horfin úr rödd hennar; nú var-
hún þur og hljómlaus. „Hugh! Getur það verið, að þú
sjert reiður, af því það varð telpa?“
„Nei“, svaraði hann. „Jeg er ekki reiður yfir því..
„Jeg tek það sem rjettláta refsingu“.
„Refsinguf', endurtók hún undrandi.
„Já,. fyrir giftingu mína — giftingu okkar“.
„Við bvað áttuf“, stamaði hún. Óttinn speglaðist í
augum liennar, og hún greip dauðalialdi í handlegg
Hughs. „Þjer er ekki alvara, Ilugh ! Þú, sem hefir
altaf sagt, að Katrín væri hálf brjáluð, að kálla hjóna-
‘i’