Morgunblaðið - 26.07.1938, Síða 6
6
Þriðjudagur ,26. júlí 1931.
M 0 R G UNBLAÐIÐ
Heimsókn krónprinshjdnanna.
nAXH. AP ÞW3B3TJ SBSU.
teygja tindana npp í himinblám-
hnn.
Þannig er ísland, landið, sem
þið munuð kynnast nánar næstu
daga.
Þjóðin sjálf, sem þið einnig
munuð kynnast, hefir tekið svip-
mót af landinu og náttúru þess.
Þjóðin öll vill taka vel á móti
yður, konunglegu gestir, og við
færum fram þá ósk, að íslensk
náttúra megi einnig opna yður
faðminn í sinni sólbjötu suánar-
dýrð.
Yið vitum að ferð yðar hingað
til landsins eykur kynni yðar af
landi og þjóð og við vonum að
þau kynni megi styrkja bræðra-
böndin milli frændþjóðanna.
Jeg bið yður, góðir gestir, að
rísa úr sætum yðar og drekka
skál íslensku krónprinshjónanna,
um leið og vjer þökkum þeim
komuna hingað, færum vjer fram
þá ósk, að ferðin megi verða hin
ánægjulegasta.
Friðrik ríkiserfingi þakkaði
með nokkrum orðum og flutti
alúðarkveðju frá foreldrum sín-
um, konunginum og drotning-
unni. Var síðan hrópað ferfalt
húrra fyrir þeim.
Fönn að Geysi
og Gullfossi.
Stórkostlegt Geysisgos.
f gærmorgrun var dumbungs-
veður fyrst og leit ekki vel út.
Laust fyrir klukkan 8 fóru hin-
ir tignu gestir í Hótel Borg að
klæða sig og skömmu síðar
komu þangað bílarnir, sem áttu
að fara með ferðafólkið austur
að Gullfossi og Geysi.
Klukkan 9 var lagt á stað og
óku krónprinshjónin í farar-
broddi í spánnýjum bíl, sem lög
reglan á, og hefir merkið RE 1.
Bifreiðarstjórinn var Viggo Ey-
ólfsson, sem var bifreiðarstjóri
konungshjónanna þegar þau
voru hjer á ferð. Hinar bifreið-
arnar komu svo í halarófu á
eftir.
Þegar komið var á Kamba
var veður farið að birta og út-
sýn þaðan sæmileg til Eyja-
fjallajökuls og yfir láglendið,
en Vestmannaeyjar sáust ó-
glögt. Þó þótti fólkinu mikið
til útsýnisins koma og dáðist
mest að hinum fjölskrúðugu lit-
brigðum í fjöllunum.
Komið var við hjá Kerinu í
Grímsnesi sem allra snöggvast,
en síðan haldið beina leið tii
Geysis og komið þangað á há-
degi. Þar stóð á borðum fr.-.m-
reiddur matur, og settust 60
manns að borðum. Var nú mik-
ið um það talað hvort Geysir
mundi fást til þess að gjósa,
og voru flestir vongóðir, og við-
búnir að hlaupa upp frá borðum
hvenær sem hann færi að hreyfa
sig. En enginn þurfti að gera
sjer það ómak, því að Geysir
bærði ekki neitt á sjer. Var
vatnið í skálinni alveg rólegt,
og eimdi ósköp sakleysislega
upp af því. Þó hafði Geysir vei*-
ið mataður um morguninn á 200
kg. af sólskinssápu, eða meira.
Sumir sögðu jafnvel að honum
hefði verið gefið benzín að
drekka til þess að fjörga hann.
Þegar fólk hafði snætt, var
gengið upp að Geysi og beðið
þar lengi. Sýndist sitt hvorum,
sumir sögðu að hann mundi
gjósa einhverntíma dagsins,
aðrir sögðu að hann mundi alls
ekki gjósa. Leið nú óðum á
tímann, sem ákveðið var að
eyða þarna og fóru menn að
gerast órólegir. En þegar klukk-
una vantaði 20 mínútur í þrjú*
spýtti Geysir alt í einu úr sjer
dálítilli stroku. Mun það gos
hafa verið 15—20 metra hátt.
Síðan kom hvert smágosið á
fætur öðru, skvettur og læti og
undirgangur, og gekk svo langpj
hríð. Freyðandi sápulöður vall
út af börmunum í stórfossuní;
Alt í einu hættu lætin, og alt
vatnið sogaðist úr skálinni nið-
ur í hverinn. Var nú enn biðí©
nokkra hríð. Þá heyrast dynkir
og dunur og upp úr hvernum
þeytist ógnarstrókur með ógur-
legum krafti. Var það með tígu-
legustu Geysisgosum, serci sjest
hafa. Krónprinshjónin stóðu
einna fremst af áhorfendum,
sem skiftu mörgum hundruðum,
og urðu þau orðlaus af undr-
un. En aðrir hrópuðu og klcppí
uðu Geysi lof í lófa, og þá
brosti Ingiríður prinsessa < og
klappaði líka.
Er nú ekki að fjölyrða um
það, nema að þarna komu þrjú
stór gos, hvert á eftir öðru með
stuttu millibili. En á eftir var
eins og Geysir ræskti sig og
skirpti á báðd-'1 bóga af tómri
vonsku. Og seinast klykti hann
út með gufugosi. Var það allra
kunnugra manna mál, sem
þarna voru, að aldrei hefði þeir
sjeð önnur eins gos. En ókunn-
ugir áttu engin orð til að lýsa
undrun sinni og aðdáun. Sögðu
sumir ferðalangar, sem þarna
voru, að það margborgaði ferða-
kostnaðinn til íslands að fá að
sjá aðra eins sjón.
Frá Geysi var nú haldið að
Gullfossi. Þótti Ingiríði prins-
essu stórmikið til hans koma,
og hann vera ægifríður. Gekk
hún með manni sínum eftir tæp-
ustu sillum og út á ystu snasir
til þess að sjá fossinn sem best.
Eftir það var drukkið kaffi í
veitingaskálanum og síðan hald-
ið rakleitt að Ljósafossi. Fór
að rigna ofurlítið þégár 'éöm
niður með Tungufljóti, og var
rigning öðru hvoru það sem eft-
ir var dagsins. Varð því frem-
ur stutt viðdvöl hjá Ljósafossi,
en krónprinshjónin gengu út á
stífluna og horfðu um stúnd á,
vatnið þar sem það leysist úr
læðingi og brýst fram í fossa-
föllum.
Veisla í Þrastalimdi.
Frá Ljósafossi var farið að
Þrastalundi. Þar hafði bæjar-
stjórn Reykjavíkur búið gestun-
um veislu.
Forseti bæjarstjórnar, Guðmund
ur Ásbjörnsson bauð krónprins-
hjónin og aðra gesti velkomna.
Hann minti á, að konungur
hefði fyrir tveim árum lagt horn-
steininn að orkuverinu við Ljósa-
foss, sem gestirnir hefðu nú skoð-
að. En þetta væri mesta mann-
virkið, sem nokkurn tíma hefði
verið reist hjer á landi. Kvað
hann orkuverið við Ljósafoss vel
mega skoðast sem táknmynd þeirr
ar góðu kynningar, sem við Is-
lendingar hefðu haft af forfeðr-
um krónprinshjónanna. Á tíð lang
afa þeirra hefðum við fengið
stjórnarskrána. En á stjórnartíð
núverandi konungs okkar hefðum
við öðlast viðurkenningu sem
sjálfstætt og fullvalda ríki. Þess-
ar stjórnarfarslegu umbætur hefðu
svo aftur verið undirstaða þeirr-
ar framtakssemi, sem framfarir
síðustu áratuga ættu rót sína að
rekja til.
„Það er ekki að undra, að vjer
fögnum komu yðar konunglegu
tigna og óskum þess af einlægum
hug, að ísland megi bröSa við yð-
ur þá stuttu stund, er dvol yðar
varir hjer“.
Að endingu bað hann krónprins
hjónin lengi lifá og var tekið und
: ir það með dynjandi húrrahrópum.
| Síðan bað hann gesti að minn-
ast konungshjónanna og var það
gert með níföldu húrrahrópi.
í Krónprinsinn þakkaði móttök-
urnar með nokkrum orðum og
: lýsti því, hve dagurinn hefði ver-
| ið fagur og ánægjuríkur. Hann
bað Reykjavíkur bæ lengi lifa og
var tekið undir það með ferfðldu
húrrahrópi.
■ Að veislunni Iokinni var hald-
ið til Reykjavíkur og fóru krón-
prinshjónin og föruneyti þeirra
þegar um borð í Dronning Alex-
andrine. Lagði hún síðan á stað
í norðurferðina og verður á ísa-
firði í dag, en til Siglufjarðar og
Akureyrar kemur hún á morgun.
Islandsför
krónprins-
hjónanna
Khöfn í gær F.Ú.
Kaupmannahafnarblöðin í
dag birta langar frá-
:agnir um komu krónprinshjón
mna til Reykjavíkur. Blöðin
:egja, að útvarpsfi’ásögnin um
comu þeirra hafi verið skýr og
rreinileg og heyrst ágætlega.
Ný mynd, „Heimsókn hamingj-
unnar“, er sýnd í Nýja Bíó í
lcvöld, og leikur Claudette Col-
bert, hin vinsæla kvikmyndaleik
kona, aðalhlutverkið.
Drengur hrapar
i Borgarnesi.
Höfuðkúpan brotnar
Asunnudagskvöldið um kl. 8
voru tveir drengir að klifra
í klettum í sunnanverðu Borgar-
nesi. Voru þeir að eeilaet eftir
jurtum, sem þar vaxa í klettasill-
um.
Annar drengurinn fjell fram
yfir klettabrún, þar eem er 10—
12 metra standberg niður í sjáv-
arurð. Hann heitir Steinar Ingi-
marsson og er 8 ára gamall, son-
ur Ingimundar Einarssonar í
Borgarnesi og Margrjetar Guð-
mundsdóttur.
Drengurinn sem með honum var
hljóp og sagði frá slysinu. Þegar
komið var að Ingimar, þar sem
hann lá í urðinni, var hann með-
vitundarlaus. Var hann borinn
heim til sín. Læknirinn í Borgar-
nesi, Þórarinn Guðmundsson var
nú sóttur. Þar var og staddur
Björn Gunnlaugsson læknir hjeð
an úr Reykjavík. Er þeir skoð-
uðu drenginn, fundu þeir að höf-
uðkúpan var sprungin. Ráðlögðu
þeir að reyna skyldi að koina
honnm sem fyrst hingað á spítala.
Laxfoss var á leið til Reykja-
víkur er þetta gerðist. Jafnskjótt
og hann kom hingað var hann
sendur uppeftir að sækja dreng-
inn, og var hann fluttúr á Lands-
spítalann í fyrrinótt.
Fjelag fslenskra
mjólkurfræðinga
Laugardaginn 23. júlí s.l. komu
saraan hjer í Reykjavík
nokkrir menn, er mjólkuriðnað
stunda hjer á landi.
Ákváðu þeir þar að stofna með
sjer fjelag, sem heitir: „Fjelag
íslenskra mjólkurfræðinga".
Tilgangur fjelagsins er samkv.
3. gr. fjelagslaganna: a) að efla
mjólkuriðnað í landinu, auka
neyslu á mjólk og mjólkurvör-
um og stuðla að hagkvæmum
rekstri mjólkuriðnfyrirtækja. b)
að vera ráðgefandi aðila í þeim
málum, er mjólkuriðnaðinn
snerta. c) að koma á skipulagi um
nám þeirra manna, er stunda
vilja mjólkuriðnað.
I stjórn fjelagsins voru kosnir:
formaður Sigurður Guðbrandsson
mjólkursamlagsstjóri, Borgarnesi;
meðstjórnendur Sigurður Pjeturs-
son gerlafræðingur, Reykjavík og
Pjetur M. Sigurðsson mjólkur-
stöðvarstjóri, Reykjavík.
Fyrir fimtudagskvöld verða
þeir, sem ætla að taka þátt í för
Verslunarmannafjelagsins, að
Hvítárvatni, Hveravöllum og í
KerJingarfjöll, að vitja fai’miða
sinna, á skrifstofu fjelagsins í
Ingólfshvoli.
Greinin um Paganini, sem hirt-
ist í Lesbókinni síðustu, er eftir
Theodór Árnason fiðluleikara.
Fjell nafn hans niður í prentun-
inni.
DAGDEGA LÍBINU
@_______________________________S)
\T eðrið var alveg ákjósanlegt, þega»
» krónprinshjónin stigu á land,
biaejalogn og líklega um 15 stiga hiti.
Fólkið dreif að úr öllum áttum, svo að
sjaldan hefir verið annar eins mann-
fjöldi saman kominn í Reykjavík. Oj-
allir vildu fá „dýrðina að sjá“. Krón-
prinsessan hefir aldrei komið hjer til
iands. Mönnum var auðvitað sjerstak-
lega hugleikið að fá að sjá hana. Húo
er ekki einungis fyrsta krónprinse*#»(
konungsríkisins fslands, heldur er hún
liíka fyrsta krónprinsessan sem nokkuws
tírna hefir fæti stigið á þetta land.
★
En flestir urðu frá. að hverfa, áu
þess að hafa sjeð hina tignu gesti. Að-
eins þeir sem næst stóðu urðu fyrir
þeirri ná'ð. Því eftir ræðuhöldin vor*
krónprinshjónin drifin inn í lokaðan bíí
og ekið með þau í dauðans ofboði upp-
á Hótel Borg.
Menn eru ekki ánægðir með þetteu
Flestir líta svo á, að krónprinshjóni*
sjeu hingað komin, ekki einungis til
þess að kynnast stórmenni landsins,
heldur og ölium almenningi, eftir því
sem tök eru á, og það er enginn vafi á
því, að þau hefðu fengið miklu alúð-i
legri móttökur ef þau hefðu ekið í opn-
um bíl, eða þá blátt áfram farið gang-
andi þessa stuttu leið frá höfninni að
Hótel Borg. Og eins og yeðrið var þetta
kvöld, var þetta síður en svo frágangs-
sök, hvor kosturinn, sem tekinn hefði
verið.
★
Mikill mannfjöldi safnaðist nú fyr-
ir framan Hótel Borg og beið þess með
óþreyju, að krónprinshjónin birtust þar,
enda voru hinir stóru gluggar á fyrstu
hæð opnir út að götunni. En aftur urðu
menn fyrir vonbrigðum. Eftir að mann-
fjöldinn hafði beðið þarna lengi var
ekið með króuprinshjónin heim til for-
stisráðherra í sama lokaða bílnum, án
þess að aðrir en þeir, sem næst stóðu
dyrunum á Hótel Borg, kæmi auga á
þau.
★
Múmi trúa því ekki, að það geti ver-
ið að skapi krónprinshjónanna, að þau
voru svona vandlega fa.lin sjónum al-
mennings. Þeim hefði áreiðanlega ver-
ið vel fagnað, ef mönnum hefði gefist
kostur á því. Því þótt Islendingar sjeu
tómlátir og seinteknir, svo að á orði
er haft, þykir þeim sæmd í því, að rík-
iserfingjamir gera þeim heimsókn.
Það eru þessvegna leiðinieg mistök,
að móttöku krónprinshjónanna var
hagað, svo sem hjer hefir verið bent á.
★
Hjer í blaðinu var fyrir skemstu
skorað á Jón Eyþórsson, að nefna þá
menn hjer í bænum, sem fögnuðu því,
að ekki veiddist síld, vegna þess aö
með bví móti mætti losna við ríkig-
stjómina. Jón Eyþórsson gafst í gær
úpp við, að nefna þessa menn. Hann
sagði, að tveir menn ónefndir, hefðu
eitthvað verið að tala um þetta í stræt-
isvagni. Á þessum tveim ónefndu mönn-
um byggir Jón svo frásögn í útvarpið,
sem hlustendur skildu á þá leið, að
þessi hugsunarháttur væri almennur í
Reykjavík.
★
Jón Eyþórsson á' að vera hlutlaus í
útvarpinu.
Jón Eyþórsson vildi ekki viðurkenna,
að hann væri að biðja afsökunar á frum
hlaupi sínu. En honum er það þó fyrir
bestu, að yfirklór hans í gærkvöld verði
skilið á þá lund. Útvarpið á að vera
hin mesta menningarstofnun, en hún get
ur ekki verið það, nema starfsmenn
hennar gæti fullrar ábyrgðar í viðræð-
um sínum við almenning þessa lands.
Hjer í blaðinu hefir stundum veriö
minst á misfellur við þessa stofnun, og
þó ekki um skör fram. En starfsmenn
útvarpsins hafa „gott af“ að vita, aS
.starfi þeirra sje fylgt með athygli.
Ekkert gefur eins mikið öryggi gegn
misnotkun hverskonar opinberrar að-
stöðu, eins og aðhald almenningsálits-
int'.
★
Jeg er að velta því fyrir mjer: Hvort
Irinn, sem ætlaði til Californíu, en álp-
aoist austur yfir Atlantshaf, hafi ekki
gert þetta í einhverskonar írafári.