Morgunblaðið - 28.07.1938, Qupperneq 3
Fimtudagur 28, júlí 1938,
MORGUNBLAÐIÐ
3
Milli Akureyrar
og Reykjavlkur
á 1 klst. 27 mfn.
Þýsku flugmennirnir
f boði Ríkisstjórnar-
innar.
Pýsku flugmennirnir, Bau-
mann, Ludwig og Spring-
ob fóru skemtiferð í boði rík-
isstjórnarijmar norður að Mý-
vatni á mánudaginn.
Á mánudagsmorgun var
Ágnar Kofoed-Hansen flug-
maður staddur á Akureyri, en
þenna dag átti hann að fljúga
með þá norður. Hann lagði á
stað til Reykjavíkur í flugvjel
sinni snemma morguns og
flaug þvert yfir landið. Var
hann ekki nema 1 klst. 27 mín-
útur að fljúga hingað og mun
það sú fljótasta ferð, sem far-
in hefir verið milii Akureyrar
og Reykjavíkur.
Upp úr hádegi lagði hann
svo aftur á stað norður með
þýsku flugmennina og kom til
Akureyrar kk rúmlega þrjú og
snæddu þeir þar miðdegisverð.
Síðan var stigið á bíl og ekið
. áleiðis itl Mývatns. Á leiðinni
skoðuðu þeir -Vaglaskóg og
Goðafoss, og komu til Skútu-
staða við Mývatn um kvöldið.
Þar gistu þeir um nóttina.
í fyrradag fóru þeir svo út
í Slútnes og til Reykjahlíðar.
Fengu þeir sjer bað í Stórugjá
og þótti afar mikið til þess
koma, því að aldrei höfðu þeir
reynt það fyr, að fara niður í
jörðina til þess að fá sjer heitt
bað, sem komið er úr iðrum
jarðar. Miðdegisverður var
snæddur í Reykjahlíð, og síðan
haldið til baka. f leiðinni var
komið við hjá Laxárfossum.
Fengu þeir sjer hesta á Grenj-
aðarstað og riðu um nágrenn-
ið sjer til skemtunar. Heldu
svo áfram með bílnum að
Goðafossi og voru þar í glamp-
andi sólskini. En þegar til Ak-
ureyrar kom, var skollin á
dimm þoka. Veðurfregnir
hermdu, að þoka væri um alt
norðurland, en bjart yfir
Breiðafirði. Afrjeð Agnar Ko-
foed-Hansen því að leggja á
stað og flaug í svarta þoku yf-
ir Norðurland. En er til Breiða-
fjarðar kom, komu þeir út úr
þokunni í sólskin, og þótti
þýsku flugmönnunum það fög-
ur sjón, að horfa út yfir eyj-
arnar í Breiðafirði.
Var nú flogið yfir Kerling-
arskarð, en þegar yfir það kom,
skall á þoka að nýju. Gekk
ferðin þó vel og var komið til
Reykjavíkur um miðnætti.
f gærkvöldi var þýsku flug-
mönnunum haldið kveðjusam-
sæti í Hótel Borg, og gengust
fyrir því Flugmálafjelag fs-
lands, Svifflugfjelagið og bæj-
arstjórn Reykjavíkur.
Flugmennirnri fara utan með
Brúarfossi í kvöld.
Þýskutlugleiðanfl-
ursmennirnir fara
heimleiðis í Kvöld
með e.s. Brúarfoss
Krónprinshjónin á Siglufirði og Akureyri.
Þoka huldi landsýn
alla norðurleiðina
Frá vinstri: Ludwig, sem flaug listflugið á flugsýningunni,
Baumann, foringi leiðangursins, og Springob.
gær komu til Hjaíteyrar 12
þús mál síldar og 5 þús. mál
til verksmiðjanna á SiglufirSi.
Síldin er nú í Eyjafirði, við
Flatey og í Skagafirði og víð-
ar.
Veiðiveður var ágætt í gær,
nema hvað þoka tafði.
Til Hjalteyrar komu í gær:
Huginn III með 800 mál, Belg-
aum 1750, Brimir 1750, Jarl-
inn 1500, GAtlltoppur 2200, Ar-
inbjörn Hersir 1800, Þórólfur
1500, og Færeyingur með 900
mál. Von var á fleiri skipum.
Til Siglufjarðar komu í gær
20 skip. Hæðstan afla hötðu:
Rifsnes 1000 mál, Venus 800,
Sæfarinn 700. önnur skip voru
með 70 mál eða meir, afgang
af söltun.
Síðasta sólarhring voru salt-
aðar á Siglufirði 3771 síldar-
tunnur.
Als hafa verið saltaðar á
landinu fram að deginum í gær
25442 tunnur, þar af 13453
tunnur á Siglufirði.
Síldarverksmiðjan í Húsa-
vík tók til starfa á mánudags-
kvöld. Um hádegi á þriðjudag
var hún búin að fá 2000 mál
síldar.
i' > :r: rz ,'jsning
I 7 li ÁRAMÓT.
Biskupskosning, vegna lausnar-
beiðni dr. Jóns Helgasonar
biskups, fer að líkindum fram í
byrjun næsta árs.
Dr. Jón hefir beðið um lausn
frá 31. des. n.k.
Margrjet Eiríksdóttir,
píanóleikari, tieima
í sumarleyfi.
Ungfrú Margrjet Eiríksdóttir
kom heim. með e.s. Goða-
fossi í fyrradag. Hún hefir dvalið
í London í nær tvö ár og lagt
stund á píanóleik og píanókensln.
Áður en ungfrú Margrjet fór til
London, hafði hún lokið námi á
Tónlistarskólanum hjéf og ' þótti
mjög efnilegur nemandi. Og á
píanótónleikum, sem Húii hjelt
hjer rjett áður en hún fór, var
henni ákaflega vel tekið.
í London stundaði Margrjet
fýrfet íiám í eitt ár hjá Mr. York
Bower, sem er þektur píanóleikari
og tónsmiður, en fór síðan, eftir
áeggjan hans, á konunglega tón
listaháékólann í London „Royal
Academi of Music“.
Þaf hefir henni gengið mjög vei
og þykir eiga glæsilega framtíð
fyrir sjer sem píanóleikari. Við
árspróf, sem haldið var fyrst í
þessum mánuði, voru 7 af 168 nem-
endum valdir úr sem einkar efni-
legir og var Margrjet ein af þeim.
Einnig hlaut hún sjerstök verðlaun
við prófið, bronse-medalíu.
Loks mætti geta þess, að í als-
herjar músík-samkepni, í London
(Balham & Streatham Musical
Festival) sem Margrjet tók þátt í.
fekk hún fyrstu verðlaun í sínum
flokki, medalíu úr silfri og bækur,
og hlaut 94 st., en það hæsta, sem
liægt er að fá, er 100 st.
Listdómaranum fórust þannig
orð um Margrjeti sem píanóleik-
ara:
„Fer glæsilega af stað.
Hún liefir góð tök á að sýna
dramatísk litbrigði.
Ilún er miklum hæfileikum
gædd og býr yfir mikluní þrótti
og listrænum smekk“.
Viðfangesefnið var Beethoven-
sónata op. 31. nr. 2 í D-moll.
Allir, sem fengu 1. verðlaun í
samkepni þessari, Ijeku síðan á
opinberum tónleikum, og Margrjet
meðal annara.
— blandaðist reykjar-
strókum síldarverk-
smiðjanna á Siglufirði
og Hj altey ri
Frá frjettaritara vorum.
Akureyri í gær.
Er Dronning Alexandrine fór frá Isafirði á
þriðjudagskvöld var sami þokubakkinn í hafi
og fyr um daginn. Sigldi skipið í svarta þoku
alla nóttina og var hvergi landsýn fyrri en við innsiglingu
Siglufjarðar kl. 8 að morgni.
I Sigluf jarðarmynni mætti Drotningin allmörgum síld-
veiðiskipum, sem höfðu verið á Siglufirði um nóttina að
losa afla sinn. Reykjarstrókar dökkir eða hvítgráir stóðu
beint upp úr öllum síldarverksmiðjureykháfunum upp í
þokuþyknið er lá yfir firðinum og fjallatindum, því blæja-
logn var.
Klukkan 8V2 lagðist skipið við liafnarbryggjuna. Farþegar skips-
ins undruðust hve fáment var á bryggunni. „Eru Siglfirðingar ekki
vaknaðir?“, spurðu menn á þilfarinu, „þeir sem sagðir eru að vaka
bæði dag og nótt á þessum árstíma“.
En skýringin á fámenninu var önnur. Friðrik krónprins hafði
skýrt svo frá að hann ætlaði að ganga í land kl. 914.
Rannsóknir
„Dana" hjer
við land.
Tíðindamaður Morgunblaðs-
ins á Akureyri hitti þar í
gær Kristján Schram skipstjóra.
Hann er nýkominn austan frá
Seyðisfirði, en þar fór hann í
land af hafrannsóknarskipinu
Dana, sem sigldi frá landinu
fyrir nokkrum dögum heimleið-
is að loknum rannsóknum hjer
að þessu sinni.
Kristján var með Dana sem
kunnugur maður íslenskum
fiskimiðum, til þess að leiðbeina
við rannsóknirnar. Verkefni vís-
indamannanna var meðal ann-
gys að rannsaka sjávarhita til
samanburðar á sjávarhita 5
undanfarinna ára. Segir hann,
að sjávarhiti hafi reynst mun
minni en vanalega, fyrir norð-
ur og vesturlandi, 4^/2—7 gráð-
ur í stað þess að hann er vana-
Iega 7—9°.
Aflamagn af rauðsprettu í
Faxaflóa var rannsakað og
reyndist mjög lítið, svipað og
nú tíðkast í Norðursjónum.
Þar sem fengust um 3000 rauð-
sprettur 1 drætti fyrir 10 árum
fengust um 30 til 40.
Rækjur fundu þeir óvenju-
lega stórar, stærri en Vest-
fjarðarækjurnar.
Þegar sá tími kom voru komnir
á bryggjuna flestir Siglfirðingar
sem vetlingi gátu valdið, nema
það fólk sem var að vinnu á síld-
arbryggjunum. Lögregluþjónar
bæjarins, sjö að tölu, og skátar
sáu um að autt var svæði við
skiþshliðina og greiður gangur
upp bryggjuna.
Brátt komu bæjarfógeti Guðm.
Hannesson og bæjarfulltrúar á-
samt konum sínum til þess að
fagna krónprinshjónunum. Bæjar-
stjóri, Áki Jakobsson, var þar
ekki, því hann þurfti að bregða
sjer burtu úr bænum í dag. Guð-
mundur Hannesson mælti nokkur
orð til krónprinshjónanna af
bryggjunni og síðan gengu þau
og fylgdarlið þeirra ásamt bæjar-
fógeta, bæjarstjórn og fleiri Sigl-
firðingum til Hótel Hvanneyrar.
í boði bæjarstjórnar.
í veitingasölum hótelsins hafði
bæjarstjórn framreitt kampavín
handa hinum tignu gestum. Þar
j helt bæjarfógeti ræðu, en að henni
lokinni kom Karlakórinn Vísir inn
í salinn. Undirbúningur kórsins
undir söng þarna hafði enginn ver-
ið, því að seint hafði verið ákveðið
að syngja skyldi, og margir söng-
mannanna voru fjarverandi á sjó.
En þeir sem voru í síldarvinnu
höfðu haft fataskifti í skyndi, áð-
ur en söngurinn byrjaði.
Halldór Kristinsson hjeraðs-
læknis flutti ræðu þar sem hann
beindi sjerstökum þakkarorðum
til Friðriks krónprins fyrir þá vel-
vild og þá sæmd sem hann hefði
sýnt Sambandi íslenskra karla-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU-